Morgunblaðið - 14.09.1999, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Helgi Símonarson á Þverá í Svarfaðardal varð 104 ára í gær
HELGI Símonarson á Þverá í
Svarfaðardal, elsti núlifandi
karlmaður landsins, varð 104
ára í gær. Hann fæddist í Gröf í
Svarfaðardal 13. september
1895. Helgi var hinn hressasti
er blaðamaður Morgunblaðsins
heimsótti hann heim að Þverá
sl. sunnudag, þar sem hann býr
enn hjá Símoni syni sínum og
dótturdóttur sinni Guðrúnu Lár-
usdóttur, sem þar búa félagsbúi.
Helgi sagðist vera við þokka-
lega heilsu og þyrfti ekki að
kvarta en sér hefði þó hrakað á
árinu. Sjónin er farin að
daprast og fætumir
farnir að gefa sig en
heyrnin er alveg þokka-
leg. Hann sagðist kom-
ast sinna ferða innan-
húss en þyrfti aðstoð ef
hann færi út úr húsi.
Hann er hættur að horfa
á sjónvarp og lesa blöð
en hann fylgist enn vel
með því sem er að gerast
í gegnum útvarpið.
Helgi átti ekki von á
mörgum gestum í af-
mæli sitt í gær enda ekki
um neitt stórafmæli að
ræða, eins og hann orð-
aði það. Helgi sagði það
ekki tmfla sig mikið að
vera elstur íslenskra
karlmanna og því síður
að það héldi fyrir sér
vöku.
Helgi hefur verið mik-
ill íþróttaáhugamaður
alla tíð og hann eins og
margir aðrir landsmenn
fylgdist með því er KR-
ingar lönduðu Islands-
meistaratitlinum lang-
þráða á laugardag. „KR-
ingar hafa staðið sig mjög vel í
sumar og þetta er því eðlileg
niðurstaða og það er líka orðið
ansi langt síðan þeir unnu titil-
inn síðast.“ Helgi hefur einnig
fylgst vel með góðum árangri ís-
lenska knattspyrnulandsliðsins
„og Guðjón (Þórðarson) hlýtur
að vera ansi góður þjálfari. En
það er búið að vera mikið um að
vera á íþróttasviðinu þessa dag-
ana og það er eins og þetta sé
það eina sem skiptir máli.“
Knattspymulið Dalvíkinga
hefiir einnig átt ágætu gengi að
fagna í sumar og Helgi hefur
fylgst með liðinu úr fjarlægð,
enda hættur að fara á völlinn.
„Ég hef nú ekki trú á því að liðið
komist upp um deild en það yrði
vissulega gaman. Liðinu hefur
gengið upp og ofan en það er
eitthvað sem vantar."
Til stóð að rétta í Tungurétt í
Svarfaðardal á sunnudag en
Eg er við
þokkalega heilsu
og þarf ekki
að kvarta
Morgunblaðið/Kristján
Helgi Símonarson, elsti núlifandi karlmaður landsins, fær sér kaffi heima á Þverá
með Laufeyju Kristjánsdóttur, fjögurra ára stúlku frá Akureyri, en hún er hundrað
ámm yngri en Helgi.
réttum var frestað um viku
vegna veðurs. Helgi hefur oftast
farið á Tungurétt en hann var
ekki alveg viss um hvort hann
færi á þessu hausti, það færi
m.a. eftir veðri. „Það hefúr ver-
ið leiðindaveður að undanförnu
með mikilli rigningu á hveijum
degi. Við höfum ekki farið var-
hluta af riðuveiki og það er því
fátt fé í dalnum en Tungurétt er
vel sótt af fólki.“ Símon og Guð-
rún á Þverá tóku lömb á ný í
fyrrahaust, eftir að hafa verið
ljárlaus í fjögur ár vegna riðu.
Forseti Islands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, heimsótti
Dalvíkurbyggð sl. vor og Helgi
var einn af þeim fjölmörgu sem
hittu hann að máli. Helgi hefur
þekkt Ólaf Ragnar frá árinu
1965 er þeir voru saman á sam-
komu framsóknarmanna á Þing-
völlum. „Við Ólafur Ragnar
lentum saman á herbergi og
okkur varð svo skrafdrjúgt að
við sofnuðum ekki fyrr en undir
morgun. Hvorgur okkar hefur
gleymt þessari nótt. Mér féll af-
skaplega vel við þennan unga
mann, hann var heilbrigður í
skoðunum og mikil áhugamaður
um framfarir og framkvæmdir á
ýmsum sviðum. Við Ólafur
Ragnar höfum hist annað slagið
eftir þetta og spjöllum þá sam-
an,“ sagði Helgi er hann riljaði
upp kynni sín af forseta fslands.
Nær til hjartans að
finna þessa vináttu
Helgi fær annað slagið heim-
sóknir og sérstaklega hafa
gamlir nemendur hans heimsótt
hann í seinni tíð, þar á meðal
fólk sem hann hefur ekki hitt í
mörg ár. Hann hefur átt sam-
verustund með gömlum ferm-
ingarbörnum og gömlum nem-
endum og fengið kveðjur í
bundnu máli frá fermningar-
börnum í Upsasókn árið 1939 og
frá nemendum sinum fæddum
1927 og 1928. „Það hefur verið
minn sólargeisli að fá að hitta
þetta fólk og það nær til hjart-
ans að finna alla þessa vináttu."
Helgi kom inn á fátækt í sam-
tali við blaðamann og sagði að
það væri mikill munur á fátækt í
dag og um og upp úr aldamótun-
um. Sjálfur ólst hann upp í fá-
tækt en hann missti föður sinn
1897 en hann drukknaði um vor-
ið, er Helgi var á sínu öðru ári.
Eftir Iát föður Helga,
skaut afi hans skjólshúsi
yfir hann og móður
hans. „Fátæktin á þess-
um tíma var alveg gríð-
arleg og það er í raun al-
veg furðulegt hvernig
fólk hreinlega lifði af,
þar sem fátæktin var
sem mest. Og aðeins þeir
sem áttu eignir og voru
auðmenn gátu stundað
nám. Mig langaði
snemma að læra eitt-
hvað en ég var aldrei í
barnaskóla og fékk nán-
ast enga kennslu fyrir
fermingu."
Líkaði vel í kennslunni
í fyrstu ferð sinni til
Akureyrar sá Helgi
hvar Gagnfræðaskóli
Akureyrar blasti við á
Brekkunni. Hann
hreifst mjög af skólan-
um og hét því þá að ef
hann einhvern tíma færi
í skóla yrði það Gagn-
fræðaskólinn á Akur-
eyri. Og þaðan útskrif-
aðist Helgi árið 1919
ásamt 20 öðrum nemendum.
Eftir það stundaði hann
kennslu, þar til hann fór í
Kennaraskólann 1922. Hann
tók kennarapróf árið eftir og
stundaði siðan kennslu í 20 ár,
eitt ár á Árskógsströnd og 19
ár á Dalvík og lét sig ekki
muna um að ganga til Dalvíkur
á þeim tíma. „Ég kenndi lengst
af við barnaskólann á Dalvík og
likaði það starf afskaplega vel.“
Helgi bjó á parti af jörðinni
Völlum frá 1914 til 1930 að
hann keypti Þverá. Á Völlum
kynntist hann konu sinni, Maríu
Stefaníu Stefánsdóttur, og giftu
þau sig árið 1927. „Við vorum
jafngömul, ég fæddur í septem-
ber en hún í nóvember. Saman
eignuðumst við sex börn en að-
eins Símon er á lífi. María var
ákaflega glaðvær og góð kona,
sem vildi hjálpa öllum sem áttu í
erfiðleikum."
Unnið að stofnun
hlutafélags um rekst-
ur Snæfells í Hrísey
Nýtt
hlutafélag
verði
skuldlaust
FORSVARSMENN sjávarútvegs-
fyrirtækisins Snæfells, þeir Eirík-
ur Jóhannsson stjórnarformaður
og Magnús Gauti Gautason fram-
kvæmdastjóri, áttu í gær fund með
fulltrúum Hríseyjarhrepps. Eins
og fram hefur komið liggur fyrir að
færa pökkun á frystum afurðum
írá frystihúsi Snæfells í Hrísey til
Dalvíkur. Þrettán manns hafa
starfað við pökkunina í eynni og
ljóst að þeir munu flestir missa
vinnuna, nema eitthvað annað komi
til.
Unnið að úttekt á stöðu
atvinnumálanna
Pétur Bolli Jóhannesson sveitar-
stjóri sagði að menn hefðu farið yf-
ir málin en að ekkert nýtt væri í
stöðunni. Hann sagði að menn
væru tilbúnir að leggja ýmislegt á
sig við að búa til eitthvað nýtt og
að Snæfellsmenn væru í þeim hópi.
Starfsmaður á vegum Atvinnuþró-
unarfélags Eyjafjarðar er að gera
úttekt á stöðu mála og sagði Pétur
Bolli að sú skýrsla yrði væntanlega
tilbúin um miðja vikuna. Þá er gert
ráð fyrir að fulltrúi frá Byggða-
stofnun, fulltrúai’ hreppsins og full-
trúar Snæfells komi að frekari
vinnu í kjölfarið.
„Það er þó búið að ákveða að
stofna hlutafélag í kringum þá
vinnslu sem eftir er og þær eignir
sem Snæfell á í eynni og er gert
ráð fyrir að það verði skuldlaust fé-
lag. Annað gengur ekki upp,“ sagði
Pétur Bolli.
Málin rædd á lokuðum
borgarafundi
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um það hvenær pökkunin verður
ílutt frá Hrísey en Pétur Bolli taldi
að það yrði aldrei fyrr en eftir ára-
mót, þar sem byggja á nýtt hús-
næði yfir pökkunina á Dalvík. „Það
er þó ekki eftir neinu að bíða og
tímabært að vinda sér í að skapa
eitthvað nýtt.“
I gærkvöld var haldinn lokaður
borgarafundur í Hrísey og sagði
Pétur Bolli mjög þarft fyrir alla
eyjarskeggja að taka þátt í þessari
umræðu enda menn bæði hundfúlir
og reiðir.
Fleiri ferðir
til Akureyrar
Enn eykur íslandsflug þjónustu sína.
Nú höfum við bætt við fjórðu ferðinni
í síðdegisflugi til Akureyrar alla virka daga.
Frá Reykiavík Frá Akureyri
nýtt
07:40
11:40
15:40
18:40
08:45
12:45
16:45
19:45
ISLANDSFLUG
Qorlr fíoirum fært aö ffjúga
www.islandsflug.is sími 570 8090
Breytingar á rekstri Snæfells ekki tilkynntar til verkalýðsfélagsins
Snertir marga fé-
lagsmenn í eynni
BJÖRN Snæbjörnsson formaður
Verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju í
Eyjafirði sagði að sú ákvörðun
sjávarútvegsfyrirtækisins Snæfells
að færa pökkun á frystum afurðum
frá Hrísey til Dalvíkur, hafi ekki
verið tilkynnt til félagsins. Þó sé
hér um að ræða mál sem snerti
stóran hluta félagsmanna verka-
lýðsfélagsins í eynni.
Björn sagði að þau fyrirtæki
sem vildu vera í góðu samstarfi
við verkalýðsfélögin settu menn
inn í málin og ræddu þau. „Við er-
um alltaf tilbúnir til viðræðna en
ég verð var við mikla reiði meðal
Hríseyinga enda hér um stóra að-
gerð að ræða. Ég á í raun mjög
Fundað með
starfsfólki
Snæfells í dag
erfitt með að trúa því að Snæfells-
menn ætli að gera þetta og kippa
þannig grundvellinum undan
byggðarlaginu. Það hlýtur líka að
vera ábyrgðarhluti hjá fyrirtæki
sem er búið að vera þarna í svo
langan tíma, að labba í burtu einn
góðan veðurdag. Það er ekki þetta
sem menn sáu fyrir sér þegar
unnið var að því að endurskipu-
leggja rekstur Snæfells á sínum
tíma.“
Peningahyggj' an
orðin svo mikil
Björn sagði að það geti vel verið
hagkvæmara að hafa pökkunina á
Dalvík en að fyrirtækið hefði
ákveðnar skyldur gagnvart þessu
fólki í Hrísey. „Hins vegar er pen-
ingjahyggjan orðin svo mikil að
það skiptir ekki máli hvernig ein-
staklingnum líður.“
Porsvarsmenn Einingar-Iðju
funda með starfsfólki Snæfells í
Hrísey í dag, þriðjudag, þar sem
farið verður yfir stöðu mála, að
sögn Björns.