Morgunblaðið - 14.09.1999, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Fjárvangur
fjárfestir
í Plast-
prenti
FJÁRVANGUR hefur keypt
5,23% hlut í Plastprenti að nafn-
virði 10.462.710 krónur, að þvi er
fram kemur í tilkynningu til Verð-
bréfaþings Islands. Um utan-
þingsviðskipti er að ræða en gengi
hlutabréfanna er ekki gefið upp.
Lokagengi á hlutabréfum í Plast-
prenti var í gær 2,40 og hækkaði
um 20%. Viðskipti á Verðbréfa-
þingi íslands námu 680.000 krón-
um að nafnvirði.
Hlutafé í Plastprenti var nýlega
aukið um 15% eða um 30 milljónir
króna að nafnvirði. Prentsmiðjan
Oddi og Sigurður Bragi Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Sig-
urplasts hf. eru meðal nýrra hlut-
hafa og er Sigurður Bragi nýr
framkvæmdastjóri Plastprents hf.
Eðlileg hækkun
Albert Jónsson hjá Fjárvangi
segir Plastprent áhugaverðari fjár-
festingarkost nú eftir aðkomu nýrra
hluthafa. „Á undanfömum tveimur
árum hafa verið erfíðleikar í rekstri
Plastprents. Félagið skilaði tapi í
fyrra og á fyrstu sex mánuðum
þessa árs. Ymsar spamaðaraðgerð-
ir hafa verið notaðar til að ná betri
rekstri og nú hefur náðst verulegur
árangur síðastliðna þrjá til fjóra
mánuði. Nýir aðilar hafa komið að
rekstrinum, Prentsmiðjan Oddi og
Sigurplast og hluthafahópurinn er
því orðinn breiðari," segir Albert.
I síðustu viku fór gengi hluta-
bréfa í Plastprenti í 3 úr 1,50 en
lokagengi var í gær 2,40. Albert
segir gengi hlutabréfa félagsins
hafa lækkað mjög síðustu 3-4 ár.
„Gengi hlutabréfa í Plastprenti var
um 8 fyrir þremur til fjóram áram
en hefur síðan lækkað alveg niður í
1,50. Nú er félagið metið á um 500
milljónir og það er frekar lágt mat
þegar til framtíðar er litið. Nú era
komnir traustir aðilar að íyrirtæk-
inu sem þekktir eru fyrir góðan
rekstur. Það má því segja að útlitið
sé bjart og fleiri hafa því sýnt fjár-
festingum í Plastprenti áhuga,“
segir Albert.
VIÐSKIPTI
Richard A. Grasso, stjórnarformaður og aðalstjórnandi Kauphallarinnar i New York
Morgunblaðið/Ásdís
Richard A. Grasso, aðalstjórnandi Kauphallarinnar í New York, Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti fslands, Ólafur Jóhann Ólafsson, forstjóri Advanta,
og frú Dorrit Moussaiess.
Kári Stefánsson, forstjóri Islenskrar erfðagreiningar, var meðal gesta
í hádegisverðarboði forseta íslands á Bessastöðum en talið er að
DeCode verði fyrst fslenskra félaga til þess að hljóta skráningu á
bandarfskum hlutabréfamarkaði.
Islancl ein af meginstoð-
um mítímah agkerfis
LEIÐTOGAFUNDUR Ronalds Reagans, for-
seta Bandaríkjanna, og Mikhails Gorbatsjovs,
leiðtoga Sovétríkjanna, í Reykjavík árið 1986
gegndi mikilvægu hlutverki í þeirri alþjóðavæð-
ingu sem nú ríkir í hagkerfí heimsins, segir Ric-
hard A. Grasso, stjómarformaður og aðalstjóm-
andi Kauphallarinnar í New York, New York
Stoek Exhange, en hann snæddi hádegisverð á
Bessastöðum í gær í boði forseta Islands, Olafs
Ragnars Grímssonar.
I erindi sem Grasso flutti í hádegisverðarboð-
inu kom fram að Islendingar hafa átt þátt í að
leggja granninn að meginstoðum nútímahagkerf-
is. Ein þeirra hafi verið leiðtogafundurinn í
Höfða fyrir þrettán áram og þær breytingar sem
hafa orðið í pólitísku og efnahagslegu umhverfi
heimsins í kjölfar hans. Grasso sagði að önnur
ríki gætu horft til íslands vegna þess hve efna-
hagsástandið á Islandi er traust og stöðugt. Þær
breytingar sem hafi átt sér stað á íslenskum fjár-
málamarkaði undanfarinn áratug sýni hversu
hröð þróunin geti verið. Margfalt styttri tíma
hafi tekið fyrir um helming íslenskra heimila að
verða virkir þátttakendur á hlutabréfamarkaði,
eða einungis tíu ár, en í Bandaríkjunum hafi
þessi þróun tekið hátt í öld.
Heimamarkaðurinn mikilvægastur
Ekkert íslenskt félag er skráð á bandarískan
hlutabréfamarkað en að sögn Grassos hefur út-
lendum félögum fjölgað mjög í Kauphöllinni í
New York á undanfömum áram og era þau orðin
tæplega fjögur hundruð talsins. Hið sama gildi
um bandarísk félög en yfir tvö þúsund af þeim
rúmlega þrjú þúsund félögum sem era skráð í
Kauphöllinni í New York vora ekki komin á
markað fyrir áratug.
Að sögn Grassos er ásókn útlendra félaga á
bandarískan hlutabréfamarkað ánægjuleg en það
megi samt aldrei gleyma því að heimamarkaður-
inn sé mikilvægastur.
Kauphöllin í New York er sú stærsta í heimi
og er veltan þar meiri en samanlögð velta þeirra
fimm kauphalla sem koma næstar. Að sögn
Grasso getur þetta breyst eins og allt annað og
tók hann sem dæmi þær breytingar sem hafa átt
sér stað í Tokýó en velta Kauphallarinnar þar
hefur minnkað tii muna vegna þeirra efnahags-
erfiðleika sem ríkt hafa í Asíu.
Miklar tækniframfarir hafi auðveldað öll við-
skipti með verðbréf í heiminum og segii- Grasso
að í dag skipti litlu hvar menn séu staddir í heim-
inum þeir geti alltaf tekið þátt i kauphallarvið-
skiptum á helstu mörkuðum heims.
Á sama tíma hafi verð hlutabréfa verið á hraðri
uppleið og markaðsvirði margra skráðra hlutafé-
laga hækkað og viðskipti með þau aukist.
w
Verð áðurkr. 272.B0II-
Verðnu kr. 199.000,-stgr.
Síðumúla 20, sími 568 8799
Raðgreiðslur til allt að 36 mán.
Chateaufl’flx 3+1+1, teg: 327
Stjórn Baugs íhugar
50% fjárfestingu í Bon-
us dollar stores
Yerslanir í
anda Bónus
á Flórída
BAUGUR hf. hefur nú til athugunar
að kaup 50% hlutafjár í Bonus dollar
stores, keðju verslana sem verið er
að setja upp á Flórída, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá Baugi.
Baugur hefur tryggt sér kauprétt á
50% hlutafjár og hefur fylgst með
uppbyggingu fyrirtækisins frá upp-
hafi, en þegar hafa verið opnaðar 6
verslanir. Hugmyndafræðin er að
byggja upp einfaldar verslanir í anda
Bónuss á Islandi, sem selja 70% sér-
vöra og 30% matvöra.
Uppsetning á verslununum hefur
verið í höndum Jim Schafer, sem m.a.
hefur unnið fyrir K-Mart og Wal-
Mart, að því er fram kemur í fréttatil-
kynningunni. Þriggja ára viðskiptaá-
ætlun gerir ráð fyi'ir 50 verslunum
undir merkjum Bonus dollar stores á
Flórídasvæðinu og reiknað er með 30
milljóna króna hagnaði af starfsem-
inni á næsta ári. Kostnaður við upp-
setningu á hverri verslun mun nema
sem svarar 11 milljónum íslenskra kr.
í tilkynningunni kemur fram að
Baugur hyggist setja upp verslanir
undir Bónusnafninu víða um heim.
Nú er verið að kanna uppsetningu á
verslunum í samstarfi við Rema 1000
í Evrópu.