Morgunblaðið - 14.09.1999, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuters
Leiðtogar aðildarríkja APEC sátu fyrir á hópmynd að fundinum loknum, íklæddir nýsjálenskum sjóstökk-
um. Á myndinni eru Chiang Pin-Kung, formaður sendinefndar Taívans, Chuan Leekpai, forsætisráðherra
Taflands, Bill Clinton Bandaríkjaforseti og Phan Van Khai, forsætisráðherra Víetnams.
Fundi Efnahagssamvinnuráðs Asíu- og Kyrrahafsrrkja lokið
Lýsa yfír stuðningi
við viðræður WTO
Auckland, AFP, AP, Reuters.
FUNDI Efnahagssamvinnuráðs
Asíu- og Kyrrahafsríkja (APEC)
lauk í Auckland á Nýja-Sjálandi í
gær. Lýstu fulltrúar aðÖdarríkj-
anna yfír „fullum stuðningi" við
næstu samningalotu Heimsvið-
skiptastofnunarinnar (WTO), sem
hefjast mun í Seattle í Bandaríkjun-
um í nóvember.
I sameiginlegri yfirlýsingu leið-
toganna segir að APEC hafi „sér-
stakt tækifæri til að veita viðræðum
WTO aukna vigt í ár“, en til stendur
að ræða lækkun tolla á landbúnað-
arafurðir, þjónustugreinar og iðnað.
I yfirlýsingunni er einnig hvatt til
þess að þau aðildarríki APEC sem
ekki eru í WTO fái þar skjóta inn-
göngu. Um er að ræða Kína, Rúss-
land, Taívan og Víetnam, en löndin
voru ekki nefnd með nafni vegna
deilu Kínverja og Taívana.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti og
Jiang Zemin, forseti Kína, ræddu í
gær inngöngu Kínverja í WTO.
Forsetarnir ákváðu á laugardag að
viðræður þjóðanna þar að lútandi
yrðu teknar upp að nýju, en þær
höfðu legið niðri síðan bandarísk
sprengja hæfði óvart kínverska
sendiráðið í Belgrad í vor.
Stefna skal að afnámi
niðurgreiðslna
I ályktun fundarins segir að
næsta samningalota WTO skuli
miða að því að bæta aðgang ríkja
heims, einkum - þróunarlanda, að
heimsmörkuðum. Umræðugrund-
völlur viðræðnanna skuli vera breið-
ur, og þeim skuli lokið innan þriggja
ára. Þá segir að í viðræðunum skuli
stefnt að afnámi niðurgreiðslna
Genf. Reuters.
YFIRVÖLD í Sviss kváðust í gær
vera reiðubúin að veita dómsmála-
yfirvöldum í Bandaríkjunum aðstoð
sína við rannsókn á miklu peninga-
þvætti. Snýst það um gífurlegar
fjárhæðir, sem fluttar voru frá
Rússlandi og inn á reikninga í Bank
of New York.
Talsmaður svissneska dómsmála-
landbúnaðarafurða og óréttlætan-
legra útflutningshamla.
Hétu leiðtogar aðildarríkja
APEC því að styrkja fjármála-
markaði í löndum sínum og gera
viðskiptakerfið gegnsærra, svo
frekar megi takast að forða efna-
hagskreppum á borð við þá sem
þjakað hefur ýmis Asíuríki undan-
farið.
Aðildarríki APEC fara með 45%
af heimsviðskiptum, og heildar-
framleiðsla þeirra nemur 1.600
milljörðum dollara á ári.
ráðuneytisins sagði í gær, að Sviss-
lendingar vildu sýna fram á, að þeir
hefðu ekkert að fela þótt landið
væri miðstöð alþjóðlegra fjármála
og bankastarfsemi. Hins vegar
sagði hann, að ekkert hefði enn
komið fram, sem benti til, að pen-
ingaþvættið í New York tengdist
Sviss.
Bjóða fram aðstoð
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999 29
DREPTUí
á Nicotinell tyggigúmmíi
ámeðanblrgðirendast
Apwtekið
löufelli Skeifunni Smiðjuvegí
Smáratorgi Spönginni Suöurströnd
Akureyri Hafnarfirði Mosfellsbæ
styrkleiki
mag 2mg 4mg
48 668.- 838.-
84 1.655.- 1.272.-
284 2.257.- 2.728.-
Fáanlegt með ávaxta og piparmyntubragði
Líttu vel
fvrir allt
Við kynnum til sögunnar nýjan skutbíl - Renault Mégane Break.
Hann tilheyrir hinni öruggu línu Mégane sem fékk bestu einkunn í sínum
flokki í Euro NCAP árekstrarprófinu og öryggisverðlaun What Car 1999.
Renault Mégane Break er búinn ABS hemlalæsivöm, 4 loftpúðum,
styrktarbitum í hurðum o.fl. auk farangursrýmis sem er allt að 1600 1.
Veldu meira rými. Reynsluaktu Renault Mégane Break.
Crjóthóls 1
Sírai 575 1200
Söludcild 575 1220
RENAULT
nQr Mégane
út. Vertu með nóg pláss
og alla.