Morgunblaðið - 14.09.1999, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999 33
LISTIR
Rammvillt kýr
NOKKRIR Parísarbúar gjóa aug-
unum á höggmyndina „Kýr uppi
í tré“ sem breski listamaðurinn
John Kelly, sem nú er búsettur í
Ástralíu, skóp en styttan er hluti
af sýningu sem kennd er við list
ársins 2000. Sýningin hefst form-
lega í vikunni og lýkur 14. nóv-
ember. Að baki hinni rammvilltu
kú má greina Sigurbogann.
Minningartón-
leikar í Fella-
og Hólakirkju
Minningartónleikar um Jóhann
Pétur Sveinsson lögfræðing verða í
Fella- og Hólakirkju annað kvöld,
fimmtudagskvöld, kl. 20.30 í tilefni
þess að 18. þ.m. hefði Jóhann Pétur
orðið fertugur, en hann lést árið
1994. Allur ágóði af tónleikunum
rennur í minningarsjóð um Jóhann
Pétur, sem stofnaður var við fráfall
hans og hefur m.a. það markmið að
styrkja fatlaða til náms.
A tónleikunum koma fram Skag-
firska söngsveitin í Reykjavík og
sönghópurinn Veirumar, en með
báðum þessum hópum starfaði Jó-
hann um árabil. Þá koma fram
fimm skagfirskir einsöngvarar: As-
geir Eiríksson bassi, Margrét S.
Stefánsdóttir sópran, Ólafur
Sveinsson barítón, Óskar Péturs-
son tenór og Sigurður Skagfjörð
Steingrímsson barítón. Píanóleik-
arar verða Sigurður Marteinsson
og Björgvin Þ. Valdimarsson og
Guðmundur Hafsteinsson leikur á
trompet.
Forsala aðgöngumiða er í Penn-
anum Hallarmúla.
A afmælisdaginn, 18. september,
verða tónleikarnir endurteknir í
Miðgarði í Skagafirði kl. 21, með
þeirri breytingu að í stað Skag-
firsku söngsveitarinnar koma
Álftagerðisbræður þar fram.
Bach-tónleikar
í Selfosskirkju
JÓN Stefánsson, organisti Lang-
holtskirkju, leikur á orgel Selfoss-
kirkju í kvöld, þriðjudagskvöld, kl.
20.30 á Septembertónleikum kirkj-
unnar. Jón leikur einvörðungu
verk eftir Bach; orgelforleiki úr
„Litlu orgelbókinni" og Prelúdíu
og fúgu í D-dúr.
________________LANDMÆLING__________________________________
Námskeið í landmælingu, tækniteikningu og tilboðsgerð
Fjölþætt og hagnýtt nám, sem stendur yfir í rúma 3 mánuði. Að loknu náini eiga
þátttakendur að vera færir um að vinna sjálfstætt við mælingar og tilboðsgerð.
Helstu þættir námsins eru:
Hallamælingar, málbandsmælingar, hornamælingar, byggðamæling, hnitakerfið,
burðarhæfni jarðvegs, Autocad æfingar, tilboðsgerð í excel, vinna við alstöð,
stærðfræði og verkefni leyst með stærðfræðiforriti.
Hentugt nám fyrir þá sem vinna við mælingar og tæknistörf hjá verktökum,
sveitarfélögum og byggingameisturum eða vilja kynna sér þessa tækni. Vel menntaðir
kennarar með mikla reynslu af mælingum og kennslu. Vönduð námsgögn.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 551 5593.
Stærðfræði- og tölvuþjónustan, Brautarholti 4.
Hringið og við sendum bækling um hæl.
Norrænir orgeldagar
Fimm org-
eltónleikar
í Hallgríms-
kirkju
FIMM orgeltónleikar verða haldnir
í Hallgi-ímskirkju dagana 16.-19.
september, í tengslum við Norræna
orgeldaga sem haldnh- verða í Hall-
grímskirkju. Á öllum tónleikunum
verður noiTænni orgeltónlist gert
hátt undir höfði. Mótið verður sett
kl. 20 á fimmtudag og mun Hörður
Áskelsson, organisti Hallgríms-
kirkju, flytja tvö norræn orgelverk
eftir Kjell Mprk Karlsen og Jón
Nordal við setninguna.
Fjórir gestir koma frá Norður-
löndunum: dómorganisti frá Þránd-
heimi og kennarar frá tónlistarhá-
skólunum í Stokkhólmi, Helsinki og
Piteá.
I hádegi föstudagsins 17. septem-
ber mun Kaj-Erik Gustafsson, lekt-
or við Sibeliusarakademíuna í
Helsinki, spila hálftíma orgelandakt
í kirkjunni og um kvöldið mun pró-
fessor Anders Bondeman frá Stokk-
hólmi leika á orgelið.
I hádegi laugardagsins 18. sept-
ember verða stuttir tónleikar þar
sem Per Fridtjov Bonsaksen, org-
anisti dómkirkjunnar í Niðarósi,
flytur tvö verk eftir fyrh-rennara
sinn við dómorgelið í Niðarósi,
ásamt prelúdíu og fúgu Bachs í G-
dúr. Að kvöldi laugardags verða
tónleikar þar sem Hans-Ola Erics-
son frá Piteá flytur Livre du Saint
Sacrement (Bókin um heilagt
sakramenti) eftir Olivier Messiaen.
Verkið tekur um tvo tíma í flutn-
ingi.
Orgeldagarnir eru nokkurs konar
þing fyrir kirkjuorganista hérlendis
og á hinum Norðurlöndum og eru
haldnir í framhaldi af orgeldögum
sem fram fóru í Östersund í Svíþjóð
fyrir tveimur árum. Ákveðið var þá
að stefna að því, að þetta mót yrði
endurtekið reglulega eða á tveggja
ára fresti, og einnig var ákveðið að
Reykjavík mundi taka á móti org-
anistum haustið 1999.
Norrænir orgeldagar 1999 eru
samstarfsverkefni Listvinafélags
Hallgrímskirkju og Félags ís-
lenskra organleikara.
Frábært fyrirtæki
itt þekktasta framköllunarfyrirtæki borgarinnar til sölu. Fram-
kallar, innrammar, tekur myndir, stækkar og selur filmur og
skyldar vörur. 10 ára gamalt fyrirtæki sem selst af sérstökum
ástæðum og er laust strax. Vel staðsett. Mjög gott dæmi fyrir
þá sem vilja hafa frábæra tekjumöguleika. Sérkunnátta ekki
nauðsynleg. Sérstaklega mikið tækjaúrval. Þið sem hafið
verið að leita eftir góðum fyrirtækjum sem gefa góðar tekjur
ættu að skoða þetta dæmi. Það er svo sannarlega þess
virði.
Mikið af fyrirtækjum á skrá. Þú ert ávallt velkominn.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASALAN
SUÐURVE R I
SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
CAB-kuldaskór
með ekta lambsull
Tegund: 9147 m/riflás
Litir: Svartir/gráir
Stærðir: 30-35
Verð: 4.350
Tegund: 8673 m/rennilás
innanfótar
Litir: Rauðir/svartir
Stærðir: 22-35
Verð: 4.390
Kringlunni, 1. hæð,
sími 568 9345
PÓSTSENDUM
SAMDÆGURS
Léttur og meðfærilegur
með innbyggðuin prentara
Les allar tegundir greiðslukorta
sem notuð eru á íslandi
Er með lesara fyrir
Hlíðasmára 10
Kópavogi
Sími 544 5060
Fax 544 5061
snjallkort og segulrandarkort
Hraðvirkur hljóðlátur prentari