Morgunblaðið - 14.09.1999, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
Útikennsla í
Selásskóla
bitni á minni skólum á landsbyggð-
inni. „Það er takmarkað hvað er
hægt að bjóða upp á marga áfanga í
hverri grein. Litlu skólamir þurfa
vafalaust að takmarka kjörsviðin.
Þetta bil verður þó að einhverju
leyti brúað með fjamámi. „Augljós-
lega verður þó sumt námsframboð
aðeins í 1-2 skólum, eins og t.d.
tanntæknanám, svo ég taki nú
dæmi úr mínum skóla, sem
takmarkast við hversu margir
komist í starfsþjálfun. Einnig er
hagkvæmast að hafa kjarnaskóla
(móðurskóla) í starfsgreinum, en
það vantar enn reglugerðir um þá.“
Sjálfstæði
skóla í svigum
Aðalnámski-áin tekur mið af lög-
um sem nýlega hafa verið sett í
þjóðfélaginu, t.d. um stjórnsýslu og
upplýsingar o.fl. Námskráin kveð-
ur m.a. skýrar á um almenn rétt-
indi og skyldur hvers og eins í
skóla. Núna verða til dæmis tveir
yngstu árgangarnir í framhalds-
skóla ekki sjálfráða fyrr en við 18
ára aldur (áður 16) og því ber öllum
kennurum skylda að veita foreldr-
um upplýsingar um nemendur og
ber að eiga samskipti við heimilin.
Hlutverk námsráðgjafa öðlast
einnig aukið vægi vegna þessa.
Skólar hafa breyst í að vera sjálf-
stæðar stofnanir í eigin málum.
Gerðir eru skólasamningar um
innra starf skólans við menntamál-
aráðuneytið og kveðið á um
kennslu og fjárframlög. Skólar fá
greitt eftir því hvað margir nem-
endur fara í próf, og ýmsum öðrum
þáttum.
Sölvi segir að líkanið sem notað
er til að reikna fé til skóla sé gallað,
enda nýtt og lítil reynsla komin á
það. „Menntamálaráðherra og
embættismönnum er þetta ljóst og
ég vænti þess að fjárveitingavaldið
fallist á röksemdir þeirra til að
rekstur skóla geti verið í góðu
horfí.“
„Segja má að sjálfstæði skóla sé í
ósýnilegum svigum meðan þetta
ástand varir,“ segir hann, „þótt
tölvukostur geti t.d. verið góður,
vantar e.t.v. fé og tæknimenn til að
halda honum við. Ráðheira hefur
fullan skilning á þessu, en fínna
þarf meira fé í skólana." Sölvi ber
skólana saman við jafnfjölmenn
fyrirtæki og nefnir að í þeim eru oft
2-3 stöðugildi í starfsmannahaldi.
Skólar eru undirmannaðir miðað
við fyrirtæki. Nefna má ennfremur
að staða stjórnenda í framhalds-
skólum hefur breyst og fer núna
minni tími í nemendur því margvís-
leg umsýsla rekstursins er á þeirra
herðum.
Hörð samkeppni um
góða starfskrafta
Sölvi segir að ný skólaskipan
muni hafa áhrif á kjarasamninga
kennara og spáir nýjungum strax í
næstu samningum. „Skólinn hefur
breyst, kröfurnar eru aðrar og
þjónustan við nemendur meiri, t.d.
vegna margvíslegra sérþarfa. Skóli
sem sjálfstæð stofnun verður að
gæta þess að mannauðurinn nýtist
nemendum sem best og að kennar-
ar beri sanngjörn laun úr býtum.“
Hann bendir á að núna séu allir
með eins samninga og geri það
sama. Hver kennari sé sérfræðing-
ur í sinni grein, en önnur störf
dreifíst jafnt á alla. „Ég vil valfrelsi
þannig að þeir kennarar sem vilja
fylla starfsskyldu sína einungis
með kennslu og innra starfí ná-
tengdri henni fái að gera það.
Einnig vil ég að skólar fái peninga í
sérstök verkefni og geti kallað
menn í tímabundin störf. Það vant-
ar sveigjanleika að þessu leyti í
skólastarfíð. Kennarar hafa held
ég einir stétta rígskorðaðan vinnu-
tíma, en nýr kjarasamningur og
hagnýting upplýsingatækni geta
breytt því.“
„Kennsla er gefandi starf en
skólar eiga í harðri samkeppni um
góða starfskrafta," segir hann,
„þess vegna þarf að bæta sam-
keppnisstöðu þessara stofnana.
Þær eru ekki einungis þjóðhags-
lega hagkvæmar, svo klisjan sé nú
hent á lofti, heldur lífsnauðsynlegar
í bráð og lengd. Skólamir eru fjár-
festingabanki framtíðarinnar.“
DAGANA 8.-17. september er
skólastarf í Selásskóla í Selás-
hverfi helgað umhverfísmennt
og er kennt að miklu leyti utan
skólans. Yngstu nemendurnir
verða fyrst og fremst á skólalóð-
inni við ýmiss konar störf og
verkefni, 3. bekkur fer um skóla-
hverfið, 4.-6. bekkir fara vítt og
breitt um nágrenni hverfísins að
Rauðavatni, í Rauðhóla og um
Elliðaárdal og 7. bekkur fer í
gönguferð um íjöllin sem blasa
við hverfinu í austri. 011 verkefn-
in sem nemendur leysa af hendi
þessa daga eru byggð á áfanga-
og þrepamarkmiðum nýrrar að-
alnámskrár.
Haustið 1998 hófst við Selás-
skóla þróunarverkefni við að
efla umhverfismennt og úti-
kennslu við skólann. Skólanum
var mörkuð umhverfisstefna og
leitast var við að flétta úti-
kennslu inn í sem flestar náms-
greinar og sérstök áhersla lögð
á útiverkefni samhliða kennslu í
upplýsingatækni. Vorið 1999
kom fram tillaga um að helga
tvær vikur í upphafi skólaárs
útikennslu og umhverfismennt
og var það einróma samþykkt á
myndmennt
■ MYND-MÁL myndlistaskóli
Málun, leiknun. Undirstöðuatriði og
tækni. Byrjendur og framhaldsfólk.
Upplýsingai og innritun kl. 15—21 alla
daga. Símar 561 1525 og 898 3536.
Rúna Gísladóttir, listmálari.
________tungumál___________
■ Þýskunámskeid Germaniu
Námskeiðin hófust á ný 13. september
og er kennt (stofum 204 og 205 í Odda,
Háskóla íslands. Boðið er upp á byrj-
endahóp, þrjá framhaldshópa og tvo
tathópa. Enn er hægt að bæta við þátt-
takendum í alla flokka. Upplýsingar eru
veittar í síma 551 0705 kl. 16.30—17.45
á virkum dögum en hægt er að leggja
skilaboð inn á símsvara kl. 12.00—20.00.
Geymið auglýsinguna.
Stjórn Germaniu
kennarafundi í skólanum. í sum-
ar var unnið að því að þróa hug-
myndir að lientugum verkefnum
fyrir alla árganga skólans og
semja kennsluleiðbeiningar sem
umsjónarkennarar einstakra
bekkja fengu í hendur þegar
þeir mættu til starfa í haust.
Snemma sumars var ákveðið
að Selásskóli yrði einn af s.k.
móðurskólum í náttúrufræði í
Reykjavík sem þýðir að aðrir
skólar eiga að geta leitað þang-
að með hugmyndir að kennslu í
þeirri grein. Verkefnin sem
nemendur leysa af hendi á um-
hverfis- og útikennsluvikunum
taka því ekki aðeins mið af um-
hverfisstefnu skólans heldur
byggjast þau öll á þrepamarkm-
iðum og áfangamarkmiðum í
nýrri aðainámskrá í flestum
námsgreinum, ekki síst náttúr-
ufræði, samfélagsfræði og líf-
sleikni.
Umhverfis- og útikennsluvik-
urnar í Selásskóla hófust 8. sept-
ember og standa til 21. septem-
ber. Verkefnisstjóri er Sigrún
Helgadóttir kennari og náttúruf-
ræðingur en skólastjóri í Selás-
skóla er Hafsteinn Karlsson.
■ FULLORÐINSFRÆÐSLAN
SCHOOL OF ICELANDIC,
GERÐUBERGI 1, R.
Sfðdegis- og kvöldnámskeið hcfjast 20.
sept. í ensku, spænsku, frönsku, sænsku,
þýsku. Morgun- og kvöldnámsk. í
íslensku fyrir útlcndinga. Sími 557 1155.
__________nudd
■ www.nudd.is
ýmislegt
■ Frá Heimspekiskólanum
Fjölbreytt námskeið fyrir 5—14 ára nem-
endur. Upplýsingar og innritun í símum
562 8283 og 899 2283.
www.islandia.is/~hskoli/
Nýjar bækur
• AUKIN gæði náms - Skóla-
þróun í þágu nemenda er komin
út hjá Rannsóknarstofnun Kenn-
araháskóla Islands. Bókin er
byggð á grunni þróunarverkefn-
isins Aukin gæði náms - AGN
sem er enskt að uppruna en
stuðst hefur verið við það í
nokkrum skólum hér á landi síð-
an 1995.
I bókinni er lýst forsendum og
meginhugmyndum AGN-
verkefnisins og fjallað ítarlega
um þau skilyrði umbóta og þró-
unar sem leitast er við að skapa
bæði innan kennslustofunnar og í
stjórnskipulagi skóla. Bókin
skiptist í þrjá hluta. I fyrsta
hluta er gerð grein fyrir uppruna
AGN-verkefnisins og megin-
hugmyndir þess kynntar. Jafn-
framt er lýst skipulagi og vinnu-
brögðum. I öðrum hluta er
dregin upp mynd af lykilþáttum í
stjórnskipulagi skóla. Þar er
rætt um mikilvægi forystu, sam-
starf og samábyrgð, starfsþróun
meðal kennara, athuganir og
mat, þróunar- og framkvæmda-
áætlanir og samhæfingu starfa í
skólum. I þriðja hluta er sjónum
beint að starfínu í kennslustof-
unni. Þar er fjallað um sérfræði-
þekkingu kennara, samskipti og
sjálfsmynd nemenda, markvissa
bekkjarstjórnun, fjölbreyttar
kennsluaðferðir, leiðir til að upp-
fylla einstaklingsbundnar þarfir
nemenda og undirbúning og
sjálfsmat kennara.
Ritstjóri bókarinnai' er Rúnar
Sigþórsson. Aðrir höfundar eru
Börkur Hansen, Jón Baldvin
Hannesson, Ólafur H. Jóhanns-
son, Rósa Eggertsdóttir og Mel
West. Höfundar bókarinnar hafa
allir tengst AGN-verkefninu.
Mel West, kennari við Cambrid-
geháskóla, er einn af frumkvöðl-
um verkefnisins og var hann ráð-
gjafi við skipulag þess á Islandi
fyrstu tvö árin. Jón Baldvin
Hannesson, Rósa Eggertsdóttir
og Rúnar Sigþórsson hafa starf-
að sem ráðgjafar í þeim skólum
sem tekið hafa þátt í verkefninu.
Börkur Hansen og Ólafur H. Jó-
hannsson eru báðir kennarar við
Kennaraháskóla Islands og
rannsökuðu þeir framgang og ár-
angur vekefnisins um tveggja
ára skeið.
Aukin gæði náms - Skóluþró-
un íþágu nemenda erætluð skól-
astjórnendum, kennurum og
öðru áhugafóiki um bætt skóla-
starf. Rannsóknarstofnun Kenn-
araháskóla Islands gefur bókina
út. Hún er221 bls. ogfæst íBók-
sölu kennaranema, Bóksölu stú-
denta, stærri bókaverslunum og
hjá útgefanda.
skólar/námskeið
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999 39
___j
Léttar í spori
enn betra verfl
®?Ofnasmiðjan
Háteigsvegur 7, sími 5111100
Háteigsvegur
slóð: www.ofn.is — netfang: ofnasmidjan@ofn.is
Hentugar fyrir heim-
ili, verslun, iager,
eldhús, svefnher-
bergi og nánast hvar
sem er.
Hipmktuf
ifsins (
húS'Mmm
Lattu okkurvita ef
Húsgagnarhallarlistinn erekki
kominn til þín