Morgunblaðið - 14.09.1999, Side 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Skákþing Islands 1999
Nr. Nafn Titill Stiq 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 Vinn. Röð
1 Helqi Ass Grétarsson SM 2521 % 1/2 1 1 54 1 1 1 1 1 1 91/2 1.-2.
2 Hannes H. Stefánsson SM 2584 IB 1 1 54 1 1/2 1 1 1 1 1 91/2 1.-2.
3 Jón Garðar Viðarsson FM 2352 0 1 0 0 1 1 1 0 1 1 61/2 3.-4.
4 Róbert Harðarson FM 2331 0 0 0 1 1 1/2 1 1 0 1 1 61/2 3.-4.
5 Þröstur Þórhallsson SM 2489 0 1/2 1 0 '/2 '/2 54 '/2 54 1 1 6 5.
6 Jón Viktor Gunnarsson AM 2411 54 0 1 0 54 0 1 0 54 0 1 454 6.-10.
7 Sævar Biarnason AM 2309 0 1/2 0 54 1/2 1 0 '/2 1 0 1/2 41/2 6.-10.
8 Davlð Kiartansson 2154 0 0 0 0 ’/4 0 1 0 1 1 1 41/2 6.-10.
9 Berqsteinn Einarsson 2241 0 0 0 0 54 1 '/2 1 54 54 '/2 454 6.-10.
10 Siqurbiörn Biörnsson 2254 0 0 1 1 54 1/2 0 0 54 54 54 454 05 \ O
11 Biörn Þorfinnsson 2195 0 0 0 0 0 1 1 0 1/2 1/2 ^jj o 3 11.
12 Braqi Þorfinnsson 2260 0 0 0 0 0 0 1/2 0 54 '/2 1 2’/4 12.
p u - immimmm
1 unnes fílíiíir Hjiirn
Hannes teflir við Björn í síðustu umferð mótsins.
Helgi Ass og Hann-
es Hlífar sigra
í landsliðsflokki
SKAK
Reykjavík
SKÁKÞING ÍSLANDS
31.8.-11.9. 1999
HELGI Áss Grétarsson og
Hannes Hlífar Stefánsson komu
hnífjafnir í mark í landsliðsflokki á
Skákþingi Is-
lands. Helgi Áss,
sem hafði haft
forystu síðustu
umferðimar
gerði jafntefli við
Jón Garðar Við-
arsson í síðustu
umferð. Hannes
Hlífar náði hins
vegar að sigra
Bjöm Þorfinns-
son eftir langt og
strangt tafl og ná þannig Helga að
vinningum.
Þeir Helgi og Hannes höfðu
mikla yfírburði á mótinu og vom
hvorki meira né minna en þremur
vinningum fyrir ofan næstu kepp-
endur, eins og sjá má á meðfylgj-
andi töflu. Frammistaða annarra
keppenda var ansi sveiflukennd, en
þegar upp er staðið geta þeir Ró-
bert Harðarson og sérstaklega Da-
víð Kjartansson verið ánægðir með
frammistöðuna þegar tekið er tillit
til skákstiga. Á hinn bóginn veldur
frammistaða þeirra Jóns Viktors,
Þrastar Þórhallssonar og Braga
Þorfínnssonar vonbrigðum.
Stórmeistaramir Helgi Áss og
Hannes Hlífar tefldu þunga bar-
áttuskák í 10. umferð Skákþingsins.
Helgi var í efsta sætinu, hálfum
vinningi fyrir ofan Hannes, þannig
að sá síðamefndi lagðist þungt á ár-
ar.
Eftir 55 leiki var Helgi kominn í
óvirka vörn, en spumingin var,
hvort Hannesi tækist að vinna.
Hvíti kóngurinn er lokaður úti og ef
svartur nær að koma kóngi sinum
til d6 eða c5, þá vinnur hann með
því að leika Bxd2, ásamt Kc4 og
Kb3.
56. Bb4 - Kf5 57. Bc3 - Ke6 58.
Kgl - Kd5 59. e4+! -
Eftir 59. Kg2? - Bxd2 60. Bxd2 -
Kc4 61. Kf2 - Kb3 62. Be3 - a3 vinn-
ur svartur.
59. - Ke6 60. Kg2 - Kf7
Helgi finnur nú mjög snjalla vöm.
61. Rbl! - Bxc3 62. Rxc3 - d2 63.
Kf2 - dlD 64. Rxdl - Bxdl 65. Ke3
- Ke6 66. Kd2 - Bb3 67. Kc3 - Ba2
68. Kc2 - Ke5 69. b4! -
Það er slæm staða svarta kóngsins
og peðið á e4, sem bjargar hvíti í
stöðunni. Ef peðið á e4 væri fallið
og svarti kóngurinn stæði á d5, þá
væri staðan unnin fyrir svart: 69. a3
70. Kc3 - Kc6 71. Kc2 - Kb5 72. Kc3
- Ka4 73. Kc2 - Kxb4 74. Kdl - Kc3
75. Kcl - Kb3 76. Kdl - Kb2 og
svarta peðið rennur upp i borð og
endurfæðist sem drottning.
69. - axb3+ 70. Kb2 - Kxe4
Keppendur sömdu um jafntefli.
Hvítur leikur kóngnum fram og til-
baka á milli al og b2 og ef svarti
kóngurinn nálgast, á a3, c3 eða cl,
þá er hvítur patt. Ef svartur reynir
að fórna biskupnum gæti skákinni
lokið á eftirfarandi hátt: 71. Kal -
Kd4 72. Kb2 - Kc4 73. Kal - Bbl
74. Kxbl - Kc3 (74. Kb4 75. Kb2)
75. Kcl - b2+ 76. Kbl - Kb3,
patt=jafntefli.
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
I DAG
VELVAKAMPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Sælir eru
einfaldir
ÉG ER að velta því fyrir
mér hvers vegna skuldir
heimilanna hækka um
fjóra og hálfan milljarð út
af bensínverði, en lækka
ekki þegar matvæli bjóð-
astá tilboðsverði.
Ég undra mig líka á
10-12 þúsund Islending-
um sem hafa sagt sig úr
gagnagrunninum. Af
hverju? Fólk í felum? Ég
veit það ekki. Er virkilega
svona mikið til af samkyn-
hneigðum landsmönnum
að ónafngreindum við-
skiptavinum, pörum, hjón-
um Rauða torgsins, sem
auglýsa í smáauglýsinga-
dálkum Dagblaðsins eftir
3 eða 4 bólfélögum? Eða
eins og ung stúlka í leit að
ástinni sagði mér um dag-
inn: Nú er ekki lengur
spurt: Hvað ertu búin að
vera með mörgum? heldur
hvað ertu með mörgum í
einu?
Hvað þessar síðari
vangaveltur snertir, eiga
stjórnendur fjölmiðla stóra
sök, hvort sem eru rit-
stjórar tímarita eða dag-
skrárstjórar sjónvarps.
Ástin er ekki alfarið fyrir
neðan nafla.
Smáskot á læriföður
gagnagrunnsins: Hvernig í
ósköpunum er hægt að
rekja genin í Islendingum,
þrátt fyrir góða viðleitni
trúfélags mormóna, þegar
við eigum met hvað snertir
fólksfjölda í kjörbörnum,
ófeðruðum eða rang-
feðruðum, sem sagt óekta
börnum, vegna sultarára
einstæðra mæðra, án
bamabóta, sem áttu engan
kost?
Að lokum, gæludýraeig-
endum til íhugunar. Menn
og dýr tjá sig með ólíkum
hætti. Hvoragt skilur ann-
að fyrr en eftir áralanga
reynslu.
Eitt er víst, aldrei
skyldi hundaeigandi berja
sinn hund til hlýðni, loka
hann inni daglangt, segja
sittu, stattu, eða éttu þetta
eða éttu hitt, sem hús-
bóndinn myndi aldrei
leggja sjálfur sér til
munns úr skítugu íláti.
Hvað köttinn snertir:
Kettlingur sem minnist
spena móður sinnar er öll-
um heillum horfinn. Hann
er ekki velkomið leikfang
barna þeirra sem pússa
betur bíl en barn.
Guðrún Jacobsen,
Bergstaðastræti 34.
Þakka skrifin
ÉG þakka Sigurði Jóns-
syni hjartanlega fyrir
skrifin um hundana sem
birtust í blaðinu 10. sept-
ember. Ég er honum
hjartanlega sammála.
Hvers á fólk að gjalda?
Önnur konan er á fyrstu
hæð og ein og þetta er
hennar öryggi. Ég veit að
þessi fjögur dýr sem deilt
er um í húsinu eru til fyr-
irmyndar. Ég er svo
lánsöm að búa í Kópavogi í
tvíbýli en þótt ég sé með
sameiginlegan inngang við
sambýlisfólk mitt hefur
aldrei neitt komið upp á
enda þykir þeim eins væpt
um dýrin mín og mér. Ég
tek þetta fram þvi í Síla-
kvísl era allir með sérinn-
gang.
Ég þekki vel til þarna
og veit að þessi reiða kona
vissi ósköp vel af hundun-
um þegar hún flutti í
þetta hús. Hefði hún verið
svona á móti dýrunum
átti hún aldrei að fara í
sambýli þar sem dýr eru.
Ég vona að allt fari vel
þvi annað er grimmd sem
dregur dilk á eftir sér.
Heilbrigt fólk þolir ekki
svona álag hvað þá fólk
sem gengur ekki heilt til
skógar.
María Kristinsdóttir,
Löngubrekku 7.
Tapað/fundið
Barnaskór
týndist
SVARTUR barnaskór með
grænu og dökkrauðu
skrauti, uppreimaður, nr.
24, týndist líklega á leið-
inni frá Bogahlíð að sund-
laugunum í Laugardal.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 553 4502.
Svart peninga-
veski týndist
SVART peningaveski
týndist sunnudagsmorgun-
inn 5. september, hugsan-
lega í leigubíl frá miðbæn-
um í Fossvoginn. I bílnum
var einnig stúlka á leið upp
í Breiðholt. I veskinu var
m.a. Garfield-símabók og
skilríki. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
698 1644. Fundarlaun.
Krissi
er týndur
KRISSI, sem er gulbrúnn
fress, týndist í Kópavogi
19. ágúst sl. Þeir sem hafa
orðið hans varir hafi sam-
band í síma 896 6353.
Kettlingar
fást gefíns
ÞRÍR kettlingar fást gef-
ins, kassavanir og vel upp
aldir. Upplýsingar í síma
898 2973 eða 554 3973.
SKAK
limfijún Margcir
Pétursson
tapar hann drottningunni til
baka. Shabalov sigraði ör-
ugglega á mótinu með 8
vinninga, en Hrascek, Tékk-
landi og Lesiege, Kanada,
komu næstir með 7 v.
STAÐAN kom upp
á sterku opnu móti
í Koszalin í Pól-
landi í ágúst. Alex-
ander Shabalov
(2.566), Bandaríkj-
unum, hafði hvítt
og átti leik gegn
Skripehenko
(2.456), Moldavíu.
29. Dxg6!! - fxg6
30. Bd5+ - He6 31.
Bxe6+ og svartur
gafst upp, þvi eftir
31. - Kf8 32. Rh7+
- Ke7 33. Bg5+
HVÍTUR leikur og vinnur.
HÖGNI HREKKVÍSI
„þetia. er ný/etsé:i- /ej/ujrjnsi' faan-s 'y
Víkverji skrifar...
VIÐMÆLANDI Víkverja, sem
býr í litlu fjölbýlishúsi á höfuð-
borgarsvæðinu, segir farir sínar
ekki sléttar af samskiptum sínum
við Landssímann hf. Um mitt síð-
asta ár réðst fjarskiptafyrirtækið í
lagningu breiðbandsins í húsið. Ibú-
um var tilkynnt bréfleiðis að fram-
kvæmdimar stæðu til og að þeim
kæmi til með að fylgja nokkur upp-
gröftur og jarðrask á lóðinni við
húsið, sem þá var nýmálað.
Það fylgdi hins vegar ekki sög-
unni að öllum uppgreftrinum yrði
meira og minna mokað upp að ný-
máluðu húsinu og þá aðallega bíl-
skúrshurð viðkomandi eins og raun-
in varð þannig að stórsá á.
Hann var að vonum frekar óhress
með hlutskipti sitt og hringdi í höf-
uðstöðvar Landssímans og sagði
farir sínar ekki sléttar. Eftir mikla
leit hafðist uppá manni sem taldi sig
bera ábyrgð á verkefninu. Hann
sagði félagið hafa ráðið til sín verk-
taka í umrædda vinnu en lofaði að
ganga í málið og sjá til þess að mál-
að yrði yfír skemmdimar.
Til að gera langa sögu stutta, þá
liðu dagar, vikur og mánuðir, án
þess að nokkuð væri að gert. í heilt
ár hefur viðmælandi Víkverja sett
sig reglulega í samband við Lands-
símann og reynt að fá skemmdirnar
lagfærðar. Jafn oft hafa starfsmenn
Símans lofað úrbótum, án þess að
nokkuð hafi gerst.
Svo gerðist það í sumar að hurðin
var loks máluð en einungis að hluta
og í vitlausum lit. Þá var þolandan-
um nóg boðið og hringdi enn á ný
og jós úr skálum reiði sinnar yfir
því að þurfa að eyða tíma sínum og
fjármunum í símtöl til Landssímans
vegna skemmda á fasteigninni sem
þeir bæm fulla ábyrgð á. Sem fyrr
var tekið fyllilega undir kvartanir
íbúans og nú um daginn, mörgum
vikum síðar, var hurðin loks máluð í
heOd sinni, en viti menn, í sama vit-
lausa litnum.
Víkverji efast um að notendur
kæmust upp með að standa í van-
skilum með símreikning sinn hjá
Landssímanum í vel á annað ár og
af ofangreindu máli að dæma er
nokkuð ljóst að ímyndin um gamla
og þunglamalega ríkisbáknið Póst
og síma, sem forsvarsmenn Lands-
símans hafa svo mikið reynt að
losna við, á greinUega ennþá við
nokkur rök að styðjast.
X x x
LÍTIL frétt á forsíðu Morgun-
blaðsins á fimmtudag vakti at-
hygli Víkverja en fyrirsögn fréttar-
innar var: ,,Sókn gegn franskri karl-
rembu“. í fréttinni er sagt frá
frönsku félagi sem ætlar að berjast
gegn karlrembulegum ummælum
um konur í stjórnmálum og atvinnu-
lífi. Þar kemur fram að oft sé gefið í
skyn að framakonur hafi komist
áfram með því að sænga hjá yfir-
mönnum og að þær þurfi oft að þola
að vera dæmdar á grundvelli útlits
og klæðaburðai-.
Fréttin vakti Víkverja til um-
hugsunar um hvemig fjallað er um
konur í íslenskum stjórnmálum og
atvinnulífi. Og því miður er raunin
oft svipuð og í Frakklandi hérlend-
is. Vonandi er ástandið ekki jafn
slæmt hér og því er lýst í Frakk-
landi. En ljóst er að þetta er eitt-
hvað sem ekki á að þekkjast í nú-
tímasamfélagi, að fólki sé mismun-
að eftir kynferði frekar en kyn-
þætti.