Morgunblaðið - 16.10.1999, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.10.1999, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Dæmdur vegna gá- leysis og hirðuleysis HÆSTIRETTUR hefur dæmt þrítugan karlmann til greiðslu 300 þúsund króna sektar, en hann var skráður framkvæmdastjóri og stjórnarformaður félags, sem rak skemmtistað í Reykjavík um tíma. Hæstiréttur sagði sannað að staða mannsins hafi verið til málamynda og hann í raun ekki haft með hönd- um fjármálastjórn félagsins. Hann hafi hins vegar af „stórkostlegu gá- leysi“ brotið gegn þeim skyldum sem þessi staða hans lagði á hans herðar. Hlutafélagið Vökvi tók við reksti veitingastaðarins „Tveir vinir og annar í fríi“ í september 1993 og rak hann þar til snemma árs 1995, en sömu aðilar ráku veitingastaðinn frá ágúst 1992 til maí 1997 í nafni þriggja hlutafélaga. Maðurinn var skráður stjórnarformaður og fram- kvæmdastjóri Vökva, að eigin sögn til málamynda þar sem eigendurnir máttu ekki hafa prókúru vegna fyrri vanskila. Annar eigendanna stað- festi þetta fyrir dómi og sagði hann manninn ekki hafa komið að rekstri staðarins, sem m.a. stóð ekki skil á virðisaukaskatti til ríkissjóðs. Mað- urinn, sem var barþjónn, lét af störf- um á veitingastaðnum um áramótin 1993-1994, en var skráður stjórnar- formaður þar til félagið var tekið til gjaldþrotaskipta rúmu ári síðar. Hæstiréttur bendir á það í dómi sínum að maðurinn hafi ekki hlutast til um að breyting yrði gerð á skráðri stöðu hans eftir að hann lét af störfum. Þótt staða hans hafi ver- ið til málamynda breyti það engu um að hann hafi verið fyrirsvarsmaður félagsins og borið skyldur sam- kvæmt ákvæðum hlutafélagalaga. „Með aðgerðaleysi sínu vanrækti ákærði af stórkostlegu gáleysi þær skyldur varðandi bókhald félagsins, sem hvfldu á honum lögum sam- kvæmt sem stjórnarformanni og framkvæmdastjóra Vökva hf.,“ segir Hæstiréttur, sem kemst einnig að þeirri niðurstöðu að maðurinn hafi með stórkostlegu hirðuleysi brotið gegn skyldum sínum samkvæmt lög- um um virðisaukaskatt til að hlutast til um að virðisaukaskattskýrslum yrði skilað og skatturinn greiddur. Aðalfundi Landssambands smábátaeigenda lauk í gær Vilja frestun laga um veiðar smábáta REKSTRARFORSENDUR stærsta hluta smábátaflotans bresta, nái lög um veiðar þeirra óbreytt fram að ganga á næsta fiskveiðiári. Aðalfundur Landssambands smá- bátaeigenda fór fram á það við stjómvöld að lögunum verði frestað en fundi sambandsins lauk í gær. I ályktun aðalfundarins segir að smábátaeigendur hafi orðið að búa við hverja skammtímalausnina á fætur annarri og undantekningar- laust með þeim fylgifisk að hluti flot- ans sé skilinn eftir í algeru uppnámi með öll framtíðaráform. Vegur smá- bátaflotans hafi engu síður aukist á undanförnum árum en gangi núgild- andi lög óbreytt eftir, dyljist engum að stór hluti smábátaflotans verði sviptur rekstrarlegum forsendum frá og með 1. september árið 2000. Helstu viðbrögð stjómvalda við kvótadómi Hæstaréttar hafi verið að þeim bæri skylda til að vemda at- vinnurétt smábátaeigenda. Eina leiðin til þess væri að breyta lögun- um með þeim sem þau gerðu, þ.e. að kvótasetja helftina af þeim sem litla eða enga veiðireynslu hafa og læsa þá sem eftir standa inni í sóknar- dagakerfi, sem í senn býður upp á vonlaust rekstrarumhverfi og er stórhættulegt frá öryggissjónarmið- um. Afram segir í ályktuninni: „Með slíkum gjömingum er síst verið að nálgast sátt um veiðikerfið, að ekki sé minnst á þau gífurlegu verðmæti sem fara samtímis forgörðum í formi verðlausra atvinnutækja, ónýtts mannafla og mannvirkja. Sú spurn- ing hlýtur að vakna hvort stjómvöld- um sé heimilt að breyta þannig leik- reglum að atvinnutæki þeirra sem inn í greinina hafa komið á fullkom- lega löglegum forsendum og aðilar fjárfest í með gildandi lög í huga, verði á svipstundu verðlaus vegna lagabreytinga. Þá ítrekaði fundurinn nauðsyn þss að rannsökuð verði umhverfisáhrif veiðarfæra. Ekki nægi að sátt sé milli manna um veiðamar, heldur þurfi enn frekar að ríkja sátt milli manns og náttúm. Höfuðmarkmiðið sé að vernda og nýta í senn. Því beri löggjafanum skylda til að fella inn í stjómkerfi fiskveiða hvatningu til notkunar umhverfisvænna veiðar- færa, orkuspamaðar og ekki síst verðlaun fyrir alla viðleitni til há- mörkunar þeiira verðmæta sem fást fyrir sjávaraflann. LYFTU ÞÉR UPP MHI SLÖKKVIUDIREYKJAVÍKUR 0PIÐ HÚS SUNIMUDAGIIMIM 17. 0KTÓBER KL. 14.00 TIL 17.00 í SKÓGARHLÍÐ • Nýr 32 metra hár körfubíll frá Bronto Skylift • Nýr gámabíll • Allir bílar og búnaður til sýnis • Slökkviliðsmenn veita upplýsingar um forvarnir • Neyðarbíllinn verður á staðnum • Léttar veitingar Þorir þú upp með körfubílnum? VERIÐ VELK0MIN SLÖKKVILIÐ REYKJAVÍKUR Morgunblaðið/Árni Sæberg Félagar í Heimdalli lokuðu útvarpshúsinu með táknrænum hætti. Félagar í Heimdalli lokuðu útvarps- húsinu með táknrænum hætti Anægðir með viðbrögðin FÉLAGAR í Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna, lokuðu Ríkisútvarpinu með táknrænum hætti á sunnudag til þess að mót- mæla hugmyndum um aðra rás sjónvarpsins. Viggó Orn Jónsson, formaður Heimdallar, sagði að aðgerðirn- ar hefðu gengið vel og þeir væru mjög ánægðir með þau viðbrögð sem þeir hefðu fengið við þeim. „Við erum að mótmæla þessu sjónvarpi sem við erum þvinguð til að borga fyrir án þess að við höfum nokkuð um það að segja,“ sagði Viggó ennfremur. Viggó sagði að mótmælin hefðu gengið vel, en með að- gerðunum hefðu þeir viljað mót- mæla vangaveltum um nýja sjón- varpsstöð Ríkisútvarpsins. Þeir hefðu byijað á því að gera vegg- spjöld þar sem látið væri líta út fyrir að Ríkisútvarpið væri að auglýsa nýja sjónvarpsstöð. Síð- an hefðu þeir sent útvarpsstjóra reikning fyrir óumbeðna þjón- ustu og hefðu gefið honum sólar- hrings gjaldfrest. Þegar ekki hefði verið greitt hefðu þeir inn- siglað Ríkisútvarpið út af ógreiddri skuld vegna þjónustu sem Ríkisútvarpið hefði ekki beðið um og hefðu þeir í þeim efnum tekið mið af fyrirkomu- lagi afnotagjaldanna. Markmið og framkvæmdaáætlun landbúnað- arráðuneytisins í jafnréttismálum kynnt Ráðinn verði jafn- réttis- og byggða- þróunarfulltrúi LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTIÐ kynnti í gær markmið og fram- kvæmdaáætlun landbúnaðarráðu- neytisins í jafnréttismálum en hún er í samræmi við framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar til fjögurra ára um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna. Meðal annars er lagt til að ráðinn verði starfsmaður í ráðuneyt- ið, svokallaður jafnréttis- og byggða- þróunarfulltrúi, sem hefði það á sinni könnu að sinna hagsmunamálum kvenna og jafnréttismálum í land- búnaði, og til að gæta að sérhags- munum bændastéttarinnar í at- vinnuuppbyggingu og atvinnuþróun til sveita. _ Guðni Agústsson landbúnaðarráð- herra sagði í upphafi fréttamanna- fundar, sem haldinn var í Karphús- inu í gær, að hér væri um að ræða innlegg landbúnaðarráðuneytisins í þá vinnu ríkisstjórnarinnar að stuðla að jafnrétti kynjanna. Sagðist hann gjarnan vilja auka hlut kvenna í nefndum og ráðum á vegum land- búnaðarráðuneytisins, sem og áhrif þeirra í landbúnaði almennt, en fram komi í máli Guðna að einungis 2 af 49 fulltrúum á Búnaðarþingi eru konur. I máli Önnu Margrétar Stefáns- dóttur, sem vann skýrsluna um markmið og framkvæmdaáætlun landbúnaðarráðuneytisins í jafnrétt- ismálum, kom fram að miklar breyt- ingar hefðu orðið í landbúnaði. Þó væri eins og samfélag íslenskra bændakvenna sæti eftir í þróun jafn- réttismála. Lagði hún áherslu á að hvetja þyrfti karla og konur til að standa saman að breytingum í þess- um efnum því hér væri um mikið hagsmunamál að ræða fyrir bænda- stéttina í heild sinni. Morgunblaðið/Golli Anna Margrét Stefánsdóttir kynnti niðurstöður skýrslu uni markmið og framkvæmdaáætl- un landbúnaðarráðuneytisins í jafnréttismálum í gær. Áhersla lögð á fimm þætti í skýrslu landbúnaðarráðuneytis- ins um markmið og framkvæmdaá- ætlun ráðuneytisins í jafnréttismál- um er gert ráð fyrir að einkum verði lögð áhersla á fimm þætti. Þeir fela í sér að félagsleg og efnahagsleg rétt- indi kvenna í bændastétt verði skoð- uð sérstaklega, og gerðar tillögur til úrbóta sé þess þörf. Jafnframt verði unnið upplýsinga- og fræðsluefni um réttindi og skyldur kvenna og karla í bændastétt, atvinnumál kvenna á landsbyggðinni skoðuð gaumgæfi- lega og sérstakt átak gert til að fjölga konum í stjórnum og ráðum sem varða landbúnaðarmál. Að end- ingu verði staða jafnréttismála í landbúnaðarráðuneytinu og stofnun- um þess könnuð og í framhaldinu gerð áætlun um hvernig jafna skuli hlut kynjanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.