Morgunblaðið - 16.10.1999, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 16.10.1999, Blaðsíða 56
*Í56 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 MINNINGAR KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ EDDA ÞÓRZ MAGNIJS Ó. VALDIMARSSON + Edda Þórz var fædd í Brekku í Reykjavík 4. júní 1920. Hún lést í Landspítalanum 11. febrúar siðastliðinn og fór útför hennar -»r- fram frá Dómkirkj- unni 18. febrúar. + Magnús Ólafur Valdimarsson fæddist í Reykjavík 6. janúar 1925. Hann lést í Land- spítalanum 30. sept- ember síðastiiðinn og fór útför hans fram frá Seltjarnarnes- kirkju 7. október. Það er margs að minnast þegar þau eru kvödd Edda og Mói en það var Magnús kallaður af flestum sem til hans þekktu. Við hjónin þekktum þau vel allt frá því að þau _3ifluttu á Nesið og áttum með þeim margar ógleymanlegar stundir, sérstaklega á Mallorca en þar voru þau á heimavelli og þekktu þar alla staði sem vert var að heimsækja. Mói átti forláta rauða derhúfu sem hann notaði bara á ströndinni og Magalufströndin var uppáhalds göngubraut þeirra hjóna. Mói var mjög listhneigður og var sannkall- aður „lífskúnstner" eins og þeir gerast bestir og óborganlegar eru margar portrait-myndir hans af ^samtíðarmönnum. Magnús var einn af stofnendum Myndlista- klúbbs Seltjarnarness, glaðværs hóps myndlistamanna sem hittist í „Való“ hvern laugardag í áraraðir og máluðu þar ýmist undir leið- sögn kennara eða frjálst. Hópur- inn hélt sýningar sem vöktu at- hygli bæjarbúa og annarra sem til sáu en umfram allt voru þessir tímar mikil lífsfylling fyrir þátt- takendur. Undanfarin ár hafði Mói vinnustofu á leigu í Bónus-húsinu og stundaði list sína af krafti og er hans sárt saknað úr hópnum sem þar hefur aðsetur. Mói var mjög félagslyndur maður og var virkur í félögum hér á Seltjarnarnesi m.a. Sjálfstæðisfélagi Seltirninga þar sem hann sat í stjóm um skeið og Rotary þar sem hann starfaði síð- ari árin. Edda og Mói voru mjög áhuga- söm um íþróttir og stunduðu bæði sund af kappi, ennfremur voru þau áhugafólk um boltaíþróttir og mættu oft á kappleiki. Magnús hafði mikinn áhuga á bæjarmálum og kom oft til mín til að ræða um það sem efst var á baugi hverju sinni, bæði í bæjarmálum og lands- málum. Eddu og Móa er sárt sakn- að hér á Nesinu og við kveðjum góða vini með eftirsjá. Við sendum Katrínu og Birni og dætrum þeirra kveðjur okkar. Sigríður Gyða og Sigurgeir Sigurðsson. RAKEL ÁRNADÓTTIR + Rakel Árnadóttir fæddist á fsafirði 27. ágúst 1936. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavikur 29. september síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði 7. októ- ber. Elsku Rakel frænka. Nú ertu farin upp til himna þar sem þér líð- ur betur. Þegar pabbi minn, Snæ- bjöm, hringdi í mig og sagði að þú værir dáin, stoppaði hjartað í mér í smástund, en samt áttaði ég mig ekki á að þú værir dáin. Mér fannst guð ósanngjam að taka þig burt svona unga. En ég á góðar minn- ingar um þig sem ég aldrei gleymi. Alltaf þegar pabbi minn, Snæ- bjöm, kom í bæinn frá Isafirði ^komum við alltaf til þín í flotta stóra húsið þitt og Braga í Fagra- hvamminum í Hafnarfirði. Síðan þegar við kvöddum sagðir þú alltaf við mig að ég þyrfti að koma aftur til þín, því ég ætti nú heima í Hafn- arfirði. Ég sagði að ég myndi koma fljótt aftur, en kom aldrei nema með pabba þegar hann var fyrir sunnan. Þegar ég gekk framhjá húsinu þínu og Braga hugsaði ég til þín og hvort ég ætti að koma til þín í heimsókn, en gerði það aldrei því ég var svolítið feimin. Seinustu árin höfum við pabbi ekki heimsótt þig, af tímaleysi, sem ég sé eftir í dag og ég hugsa bara að ef ég hefði farið oftar í heimsókn til þín þá liði mér betur. A ættarmótinu sem var fyrir þremur árum varstu svo fjörug og skemmtileg. Ég man ennþá eftir hve góð þú varst alltaf og mun aldrei gleyma því. Elsku Rakel frænka, ég bið að heilsa Bjössa afa og bið guð að geyma ykkur. Elsku Bragi, Guð- mundur, Sigga, Doddi og Daði, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Guð veri með ykkur í þessari miklu sorg. Dagný Sif Snæbjamardóttir. + Innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og vinsemd við fráfall dóttur okkar og systur, RÓSU JÓNSDÓTTUR. Jón Hrólfur Sigurjónsson, Guðrún Erla Sigurbjarnadóttir, Daði Jónsson. Safnaðarstarf Kirkjudagur Fríkirkju- safnaðarins í Hafnarfirði Á MORGUN, sunnudag 17. októ- ber, verður árlegur kirlqudagur safnaðarins og hefst hann með bamasamkomu í kirkjunni kl. 11 en umsjón með bamastarftnu hafa þau Sigríður Kristín Helgadótir, Om Amarson og Edda Möller. Guðsþjónusta verður síðan að venju kl. 14 og mun kirkjukórinn leiða söng undir stjóm Þóm V. Guð- mundsdóttur, organista, og eldri deild bamakórs kirkjunnar mun einnig flytja nokkur haustlög í guðsþjónustunni. Stjórnandi barna- kóra kirkjunnar er Sigríður Ása Sigurðardóttir. Að lokinni guðsþjónustu hefst síðan hin árlega kaffisala kvenfé- lags Fríkirkjunnar í Hafnarfirði og fer hún fram á báðum hæðum safn- aðarheimilisins á Linnetsstíg 6 en það er næsta hús fyrir neðan kirkj- una. Allur ágóði af kaffisölunni fer að sjálfsögðu til kirkjustarfsins. Er það von okkar að safnaðarfólk og aðrir gestir fjölmenni til kirkjunnar á kirkjudegi. Einar Eyjólfsson fríkirkjuprestur. Saga kvenna- baráttunnar í Kvennakirkj unni Kvennakirkjan heldur guðþjón- ustu í Grensáskirkju sunnudaginn 17. október kl. 20.30. Fjallað verður um sögu kvennabaráttu þessarar aldar á leikrænan hátt. Sóley Stef- ánsdóttir guðfræðinemi prédikar. Margrét Eir Hjartardóttir syngur einsöng. Kór Kvennakirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng og Aðalheiður Þorsteinsdóttir leikur á píanó. Nýlega hélt Kvennakirkjan ráð- stefnu um stöðu kvennabaráttunnar og er umfjöllunin í messunni í beinu framhaldi af því. Einnig var ákveðið að halda umræðunni áfram á mánu- dögum í stofu Kvennakirkjunnar, Þingholtsstræti 17. Mánudaginn 18. október kl. 17.30 koma tvær konur sem sátu ráð- stefnuna Konur og lýðræði og segja frá, þær Hjördís Hákonardóttir lög- fræðingur og dr. Amfríður Guð- mundsdóttir guðfræðingur. Allir em velkomnir. Taize-söngvar og gestaprestar í Landakirkju Bænasöngvar kendir við Taize- þorpið í Frakklandi verða áberandi við bænar- og kyrrðarstundir Landakirkju í vetur. Fyrsta stundin verður fimmtudaginn 14. október og þar verður héraðspresturinn, sr. Kristín Þómnn Tómasdóttir, til að leiða stundina, en hún hefur kynnt sér taize-hefðina sérstaklega. Stundin hefst kl. 18 og er gert ráð fyrir að hún standi í 20-25 mínútur. Fyrirbænaefnum má koma tii prestanna eftir ýmsum leiðum fyrir stundina eða bera bænimar upp við altarið. Erlendur prestur, sr. John Stabb, kemur í heimsókn frá Bandaríkjun- um og verður með prestum Landa- kirkju í starfi dagana 14. til 17. október. Hann er hingað kominn til að kynna sér daglegt starf presta á nokkmm stöðum á íslandi í ljósi Porvoo-samþykktarinnar, sem er samstarfssamningur milli lúterskr- ar kirkju og ensku biskupakirkj- unnar. Prestar Landakirkju. Létt sveifla - kvöldmessa í Neskirkju Kvöldmessa með léttri sveiflu verður í Neskirkju sunnudags- kvöldið 17. október kl. 20. Reynir Jónasson, harmonikkuleikari og organisti, sér um tónlistarflutning ásamt hljómsveit og sönghópnum Einkavinavæðingu. Hljómsveitina skipa Edwin Kaabewr, sem leikur á gítar, Ómar Axelsson á bassa, Sveinn ÓLi Jónsson á trommur en sjálfur mun Reynir leika á harmon- ikku. Hálftíma fyrir messu flytur hljómsveitin tónlist í kirkjunni. Að messu lokinni verður fundur með foreldrum fermingarbama í safnað- arheimilinu. Prestur er sr. Öm Bárður Jónsson. Sama dag kl. 14 er hefðbundin guðsþjónusta safnaðarins sem sr. Frank M. Halldórsson annast. Sunnudagaskólinn er nú kominn vel í gang. Fjöldi bama og foreldra kemur til kirkju kl. 11 á sunnudög- um. Starfinu er skipt í tvo hópa. Yngri bömin em í kirkjunni en 8-9 ára böm í safnaðarheimilinu. Notað er mjög vandað fræðsluefni. Börnin fá veggspjald og myndir til að líma á spjaldið. Fjallað er um kristna trú í landinu í þúsund ár. Óhætt er að fullyrða að bæn og trúariðkun er eitt besta veganesti sem börn fá fyrir lífsgönguna. Stuðlum að því að bömin fari ekki á mis við að kynn- ast þeirri lífæð sem trúin er. Neskirkja. Félagsstarf aldraðra í dag kl. 13. Ferð. Loftskeytastöðin við Suðurgötu heimsótt og fjar- skiptasafn Landssímans skoðað. Kaffiveitingar í safnaðarheimili. AU- ir velkomnir. Sr. Frank M. Hall- dórsson. Hjálpræðisherinn. Kl. 13 laugar- dagsskóli fyrir krakka. Hvammstangakirkja. Sunnudaga- skóli kl. 11. Akraneskirkja. Kirkjuskóli kl. 11. TTT-starf (10-12 ára) kl. 13. Stjóm- andi Eiín Jóhannsdóttir. Unglinga- kórinn: Æfing í safnaðarheimilinu Vinaminni kl. 14. Stjórnandi Hann- es Baldursson. KEFAS, Dalvegi 24. Laugardagur: Samkoma kl. 14, ræðumaður Sigrún Einarsdóttir. Allir hjartanlega vel- komnir. Þri: Bænastund kl. 20.30. Mið: Samverustund unglinga ki. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. BRIPS Umsjón Arnór G. Ilaganrsson Svæðismót Norðurlands í tvímenningi SVÆÐISMÓT Norðuriands í tví- menningi fer fram á Sauðárkróki laugardaginn 23. október nk. Fyrir- hugað er að mótið hefjist kl. 10 stund- víslega og reiknað er með að spilað verði um 60 spil, en það fer eftir þátt- töku. Mótshaldari er Bridsfélag Sauð- árkróks og spilastaður er veitingahús- ið Kaffi Krókur við Aðalgötuna á Króknum. Ákveðið er að spilaður verði barometer tvímenningur. Keppnis- gjald er 2.500 á par. Við viljum biðja ykkur að kynna þetta í ykkar félögum, hvetja til þátttöku og láta okkur heyra frá ykkur sem allra íyrst. Þátttaka tilkynnist hjá Ásgrími Sig- urbjörnssyni, sími 455-5504, heimasími 453-5030 eða Guðna Krisjánssyni, simi 453-5433, heimasími 453-5359, fyrir fimmtudaginn 21. október kl. 20. Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík 11. október lauk tvímenningskeppni sem spiluð var mánudögum í septem- ber og október í samtals 5 skipti. Keppnin fór fram í Ásgarði Glæsibæ. Urslit urðu þannig: Júlíus Guðmundss. - Rafn Kristjánss. 1167 Þórarinn Amason - Fróði B. Pálsson 1115 Eysteinn Einarss. - Magnús Halldórss. 1107 Auðunn Guðm.sson - Albert Þorsteinss. 1100 Sigtryggur Ellertss. - Þorsteinn Laufdal 1025 Fimmtudaginn 7. október, 23 pör. Meðalskor 216 stig. N/S Eysteinn Einarss. - Magnús Halldórss. 245 Sigtryggur Ellertss. - Þorstónn Laufdal 244 Albert Þorsteinss. - Auðunn Guðmundss. 243 Bergljót Rafnar - Soffla Theódórsdóttir 242 A/V Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðss. 259 Alda Hansen - Margrét Margeirsdóttir 252 Olafur Ingvarsson - Kristján Olafsson 250 Mánudaginn 11. október, 22 pör. Meðalskor 216 stig. N/S ViggóNorquist-HjálmarGíslason 271 Eysteinn Einarss. - Magnús Halldórss. 241 IngunnBemburg-Elín Jónsdóttir 237 A/V Kristján Olafsson - Olíver Kristófersson 271 Fróði B. Pálsson - Þórarinn Amason 249 Júlíus Guðmundsson - Rafn Krisjánsson 246 Bridsfélag Akureyrar Þá er lokið Greifatvímenningi félags- ins og öruggir sigurvegarar urðu Páll Pálsson og Þórarinn B. Jónsson með 157 stig. í öðru sæti urðu Skúli Skúla- son og Guðmundur með 111 stig og í þriðja sæti urðu Reynir Helgason og Haukur Grettisson með 98 stig. Næsta mót er Akureyrarmót í tvímenningi og hefst það þriðjudaginn 19. október. Bridsspilarar á Akureyri eru hvattir til að láta sjá sig i Akureyrarmótinu og einnig er spilað á sunnudögum og þar er tilvalið fyrir byrjendur að láta sjá sig. Spilað er í Hamri, Félagsheimili Þórs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.