Morgunblaðið - 16.10.1999, Síða 64
* 64 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Fyrirlestur
um þvagleka
hjá konum
HELGA Sæunn Sveinbjömsdóttir,
verkefnisstjóri á hjúkrunarsviði hjá
Heilbrigðisstofnun Austuriands,
ílytur fyrirlestur um „Þvagleka hjá
konum 55 ára og eldri í Egils-
staðalæknishéraði" í málstofu í
hjúkrunarfræði á vegum Rannsókn-
arstofnunar í hjúkrunarfræði mánu-
daginn 25. október klukkan 12.15 í
stofu 6 á 1. hæð í Eirbergi, Eiríks-
götu 34.
Þvagleki er algengt vandamál á
meðal kvenna og getur valdið þeim
andlegum, líkamlegum, félagslegum
og fjárhagslegum vandamálum, seg-
ir í fréttatilkynningu. Konur sem
þjást af þvagleka reyna frekar að
hjálpa sér sjálfar á ýmsan hátt og
oft með lélegum árangri en að leita
sér aðstoðar hjá heilbrigðisstarfs-
fólki. í þessari rannsókn var tíðni
þvagleka könnuð á meðal kvenna á
aldrinum 55 og eldri sem dvelja
heima hjá sér í Egilsstaðalæknis-
héraði. Einnig voru kannaðar að-
ferðir sem þessar konur notuðu til
þess að meðhöndla þvaglekann.
Niðurstöður þessarar könnunar
benda til þess að nærri helmingur
allra íslenskra kvenna sem eru 55
ára og eldri og dvelja ekki á stofn-
unum hafi einhvem þvagleka og
einn þriðji þeirra hafi mikinn þvag-
leka. Niðurstöðumar gefa einnig til
kynna að þær konur sem hafa þvag-
leka meðhöndli þvaglekann frekar
sjálfar heldur en að leita sér hjálpar
hjá heilbrigðisstarfsfólki.
Ráðstefna
um aðgengi
fyrir alla
SAMBAND íslenskra sveitarfélaga
og ferlinefnd félagsmálaráðuneyt-
isins efna til ráðstefnu um aðgengi
fyrir alla á Hótel Loftleiðum mánu-
daginn 18. október og hefst hún kl.
9 árdegis.
Markmið ráðstefnunnar er m.a.
að kynna nýútkomna handbók sem
ber titilinn „Aðgengi fyrir alla“.
Bókin er sú fyrsta sinnar tegundar
' sem gefin er út hér á landi. í öðm
lagi er tilgangur hennar að kynna
þær breytingar sem gerðar hafa
verið á aðgengi fatlaðra á höfuð-
borgarsvæðinu, á Akureyri og í
fleiri sveitarfélögum og að ræða
stöðu ferlimála og framtíðarsýn nú
á Ari aldraðra, segir í fréttatilkyn-
inngu.
Ráðstefnan er einkum ætluð
sveitarstjórnamönnum, tækni-
mönnum sveitarfélaga, hönnuðum
og öðmm þeim sem láta sig varða
aðgengi.
Ráðstefnan er öllum opin. Þátt-
tökugjald er 3.000 kr.
----------------
Kristján L. Möller, Jóhann Ár-
sælsson, Gísli Einarsson og Bryn-
dís Hlöðversdóttir ræða stjóm-
málaástandið. Að loknu kaffihléi
verða lög kjördæmasambandsins
lögð fram og kosin stjórn sam-
bandsins.
Fundurinn er opinn öllu stuðn-
ingsfólki Samfylkingarinnar. Þetta
er fimmta kjördæmasamband
Samfylkingarinnar sem stofnað er.
Áður er búið að stofna slík sam-
bönd á Austurlandi, Vestfjörðum,
Vesturlandi, Suðurlandi og nú á
Norðurlandi vestra.
-------♦♦-♦-------
Lýsir eftir
bifreið
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir bifreið sem stolið var síðast-
liðinn miðvikudag við Bólstaðar-
hlíð. Skráningarnúmer bifreiðar-
innar er JU-805 og er hún af gerð-
inni Saab 900 árgerð 1989, brún að
lit. Biður lögreglan þá, sem hafa
séð bifreiðina eftir miðjan dag á
miðvikudag, að hafa samband við
sig.
------♦♦♦-----
Samfylkingin
á Norðurlandi vestra
Kj ördæmissam-
band stofnað
STOFNFUNDUR Kjördæmasam-
bands Samfylkingarinnar í Norð-
urlandskjördæmi vestra verður
haldinn sunnudaginn 17. október
kl. 14 í Hótel Varmahlíð.
Margrét Frímannsdóttir og Sig-
hvatur Björgvinsson alþingismenn
ræða framtíðarsýn og væntanlega
flokksstofnun. Alþingismennirnir
Ráðstefna um
þök í íslenskri
veðráttu
Á SÍÐUSTU árum hafa miklar
breytingar átt sér stað varðandi
uppbyggingu, útlit og endurnýjun
þaka. Fjöldi nýrra þakefna og
breyttar áherslur og kröfur um
frágang og útlit hafa leitt af sér
nýjar lausnir á þessu sviði.
Föstudaginn 15. okt. munu
Tæknifræðingafélag Islands og
Verkfræðingafélag íslands standa
fyrir ráðsteftiu um ofangreint mál-
efni. Á fundinum munu helstu
fræðimenn landsins á viðkomandi
sviði fjalla um gerð og uppbygg-
ingu þaka, greina frá viðgerðarað-
ferðum, umfangi viðgerða, kostn-
aði, útliti ábyrgð o.fl. Þá verður
hugað að framtíðinni um þakgerðir,
litið um öxl og rakin þróun við gerð
og útlit þaka. Ráðstefnan verður
haldin á Engjateigi 11. Skráning
fer fram á skrifstofu félaganna.
------♦♦♦------
Barnamyndin
Hörkuklump-
urinn sýnd
SÆNSKA kvikmyndin „Dunder-
klumpen11 eða Hörkuklumpurinn í
fundarsal Norræna hússins sunnu-
daginn 17. október kl. 14. Myndin
er ætluð börnum og fullorðnum.
Þetta er leikin mynd með teikn-
uðu ívafi og mætast þar teiknaðar
persónur og veruleikinn. Aðalper-
sónumar eru Hörkuklumpurinn,
strákurinn Jens, álfurinn Blómahár-
ið, Jorm jötunn og íleiri spennandi
persónur. Myndin er gerð 1974.
Sýningartíminn er ein og hálf
klukkustund. Sænskt tal er í mynd-
inni. Aðgangur er ókeypis.
FONDURVORUR
SÉRHÆFÐ f GLERVINNU 0G K0RTAGERÐ
♦Sóðinsgötu 7 ÍOHMiffí Sími 562 8448
&
í DAG
VELVAKAMII
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Lokun hjá
ríkissjónvarp-
inu, gott mál
ÁSTÆÐA fyrir skrifum
mínum er vegna fréttar
Stöðvar 2 í gær sunnudag
vegna lokunaraðgerða
Heimdallar á ríkissjón-
varpið. Ég sá þessar aug-
lýsingar Heimdallar í skól-
anum mínum og vöktu þær
athygli samnemenda
minna. Þessi aðferð þeirra
til að sýna fram á það
óréttlæti sem ríkissjón-
varpið hefur komist upp
með í gengum árin, var
skemmtilega úr garði gerð
og vakti athygli mína. Mig
langar til að lýsa yfir full-
um stuðningi við Heimdall
ásamt því að kasta fram
þeirri spurningu hvort ein-
hver hafi athugað þann
kost að fara í mál við ríkis-
sjjónvarpið fyrir hönd allra
Islendinga. Svona óþolandi
óréttlæti á að hindra nú
þegar og ég skora á alla
Islendinga að ígrunda
þann möguleika alvarlega.
Ég segi bara ,Áfram
Heimdallur!"
Stuðningsmaður.
Villandi gagnrýni
ER HÆGT að segja mjög
lagvissan mann laglausan?
Auðvitað ekki. Skissa er
fyrst og fremst mynd sem
er rissuð upp og ekki út-
færð. Engin slík skissa er
á sýningu Sigurðar Ey-
þórssonar í Gallerý Fold
sem nú stendur yfir, eins
og Jón Proppé vill vera
láta í gagnrýni sinni í
Morgunblaðinu í dag, mið-
vikudaginn 13. október. Er
hann ólærður í myndlist?
Veit Jón Proppé ekki hvað
myndbygging er? „...í þeim
virðist ekki farið af stað
með neina ákveðna heild-
arhugmynd og myndbygg-
ing hefur stundum greini-
lega ekki verið vel ákveðin
fyrirfram." Það skýtur
nokkuð skökku við hjá
Jóni að ýja að flaustri
vegna þess að notkun Sig-
urðar á myndbyggingu og
rými í mynd er fyrsta
flokks, áberandi vel
ígrunduð og allt út í gullin-
snið, fýrir þá sem vita hvað
það er. Er gagnrýni Morg-
unblaðsins til þess gerð að
gefa villandi upplýsingar?
Ingibjörg Elín
Sigurbjörnsdóttir.
Göngustígur
við Bláa lónið
ÍRIS hafði samband við
Velvakanda og vildi benda
á að göngustígurinn við
Bláa lónið væri helst til
langur. Hún og maki henn-
ar, ásamt öðrum hjónum,
höfðu farið þangað á
mánudaginn til þess að fá
sér kaffisopa og væru þau
öryrkjar og ættu erfitt um
gang. Þeim fannst erfitt að
ganga þennan spotta.
Fyrirspurn til RÚV
HVAÐ meina forsvars-
menn RÚV með því að
flytja leikrit um valdarán á
Islandi á samtengdum rás-
um 1 og 2 sl. laugardag.
Fannst mér þetta leikrit
ekkert sniðugt og vil ég fá
skýringu á því hvað þeim
hafi gengið til að flytja
það. Var mér sagt að mikið
hefði verið hringt frá elli-
heimilum því að þar hafi
fólk orðið mjög hrætt er
það hlustaði á útvarpið.
Finnst mér þetta fyrir
neðan allar hellur og mjög
óviðeigandi og vil ég fá
skýringar á þessu.
Áslaug Kjartansdóttir.
Tapað/fundið
Stór svört
taska týndist
STÓR svört taska týndist
úr bíl annaðhvort í Karfa-
vogi eða á Sogavegi í byrj-
un vikunnar. I töskunni
voru kennslugögn sem
nýtast engum nema eig-
anda og er gagnanna sárt
saknað. Skilvís fínnandi
hafi samband við Ragn-
heiði í síma 554 1400,
698 5218 eða 553 7578.
Fundarlaun.
íkornastytta týndist
ÍKORNASTYTTA týndist
frá Torfufelli 36 sl. sumar.
Þeir sem kannast við að
hafa styttuna undir hönd-
um eru beðnir að skila
henni aftur á sama stað.
Gullhálsmen týndist
GULLHÁLSMEN með
blóðsteini týndist helgina
8.-10. október. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 587 8744.
Dýrahald
Svartur kettlingur
í óskilum
SVARTUR stálpaður kett-
lingur, ómerktur og ólar-
laus, er í óskilum í Uthlíð í
Reykjavík. Þeir sem kann-
ast við kettlinginn vinsam-
lega hafið samband í síma
552 7031 eða vs. 515 3900
eða 896 3764.
Læða týndist
í Garðabæ
GRÁBRÖNDÓTT læða
týndist frá Furulundi 4,
Garðabæ, aðfaranótt
mánudagsins sl. Hún er
merkt og á að vera með ól.
Þeir sem hafa orðið henn-
ar varir hafi samband í
síma 565 7524.
SKAK
llmsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN
kom upp í
deilda-
keppni
Skáksam-
bands Is-
lands um
síðustu
helgi. Ar-
inbjörn
Gunnars- Svartur leikur og vinnur.
son var
með hvítt, en Jón Viktor Gunnarsson
hafði svart og átti leik.
22. - He2! 23. Rxe2 - Hxe2 24. Ddl -
Hg2+ 25. Kfl - Hxc2 26. Dxf3 -
Rxd4 27. De3 - Df5+ og hvítur gafst
upp.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA er ljóst að góðæri rík-
ir í landinu. Að vísu hefur af-
rakstur góðærisins ekki skilað sér
beint í launaumslag Víkverja, nema að
mjög takmörkuðu leyti, en hann hefur
á undanförnum árum verið að losna
úr húsnæðisskuldafeninu og það mun-
ar um minna. Víkverji hefur því meira
umleikis nú en oftast áður og er
þokkalega sáttur við lífið og tilveruna,
þannig séð. Víkverja virðist líka, þeg-
ar hann Mtur í kringum sig, að kaup-
geta almennings hafi aukist talsvert á
undanfömum árum, miðað við það
sem var í upphafi þessa áratugar.
Bættur fjárhagur fólks er auðvitað
af hinu góða, en getur þó haft í för
með sér ýmsar aukaverkanir. Mönn-
um hættir til að taka ógætileg hliðar-
spor og spenna bogann óþarflega
hátt með eyðslusemi og kæmleysi í
peningamálum. Hjá Víkverja hefur
þetta meðal annars komið fram í því
að hann hefur endurnýjað hjá sér
ýmis heimilistæki, sem kannski hef-
ur ekki verið brýn þörf á, og hann er
hættur að nenna að fara í Bónus til
að gera hagstæðari matarinnkaup,
eins og hann gerði fyrir nokkram ár-
um. Þannig slær góðærið á verðskyn
almennings og þeir sem stjórna
vöraverðinu eru vísir til að ganga á
lagið, enda löng hefð fyrir því að ís-
lenskir neytendur láti bjóða sér hvað
sem er þegar verðlagsmál era ann-
ars vegar. Þess vegna er vöruverð
mun hærra á íslandi en í flestum
öðram löndum. í þessum efnum geta
neytendur sjálfum sér um kennt.
X X x
ÓTT Víkverji sé þokkalega sátt-
ur með sinn hlut finnst honum
samt sem góðærið hafi að sumu leyti
farið framhjá honum. Hann hefur
það á tilfinningunni að hann sé að
missa af einhverju. Kannski stafar
það af því að hann hefur aldrei kunn-
að að fara með peninga, hefur ekkert
vit á verðbréfamörkuðum og ber
ekkert skynbragð á hagvöxt og hagn-
að. Víkverji getur því engu um kennt
nema eigin aulahætti að hann er ut-
anveltu í dansinum í kringum gull-
kálfinn. Hann er með öðram orðum
fífl í peningamálum.
Hávar Sigurjónsson, blaðamaður á
Morgunblaðinu, lýsti þessu fyrir-
brigði vel í ágætri viðhorfsgrein
sinni, „íslenska gullæðið“ í blaðinu
nýverið svohljóðandi: „Hér ríkir orð-
ið það merkilega viðhorf að þeir sem
ekki kunna að græða séu einfaldlega
fífl. Þeir sem leggja sig niður við
kennslu til að lifa á því eru fífl, þeir
sem leggja sig niður við að gæta
barna til að lifa af því eru fífl, þeir
sem yfirhöfuð leggja sig niður við að
vinna láglaunastörf til að lifa á þeim
era fífl, því allir aðrir hafa vit á að
gera eitthvað annað ábatasamara.“ í
samræmi við þessar staðhæfingar er
Víkverja ljóst að það er auðvitað ekk-
ert annað en fábjánaháttur af honum
sjálfum að hafa ekki vit á að notfæra
sér góðærið til að græða á því.
x x x
VÍKVERJI sá sem skrifar pistil
dagsins rak upp mikið rama-
kvein hér á dögunum þegar bensín-
verðið hækkaði um rámar fimm
krónur á lítrann. Hækkunin var sögð
óhjákvæmileg vegna hækkunar á
heimsmarkaðsverði og engin ástæða
til að vefengja það. Nú hafa hins
vegar þau tíðindi spurst út að heims-
markaðsverð hafi lækkað aftur og
því viðbúið að sú lækkun skili sér
innan tíðar í lækkandi bensínverði
hér á landi - eða hvað?
Það fer vitaskuld eftir birgðastöð-
unni, en brögð hafa verið að því á
undanförnum áratugum að lækkun
heimsmarkaðsverðs á bensíni hafi
skilað sér seint og illa inn í verðlagið
og svo óheppilega viljað til að miklar
bensínbirgðir hafa jafnan verið til í
landinu þegar verðið lækkar á
heimsmarkaði. Vonandi hafa olíufé-
lögin ekki verið það óforsjál og sein-
heppin í þetta skipti að birgja sig svo
upp af bensíni á uppsprengda verð-
inu að birgðirnar endist fram yfir
aldamót.