Morgunblaðið - 16.10.1999, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 69^
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Bíóhöllin, Kringlubíó, Nýja bíó
Keflavík og Nýja bíó Akureyri frumsýna banda-
rísku teiknimyndina Kóngurinn og ég, sem
talsett er á íslensku.
Kennslukonan
og konungurinn
FRUMSYNING
TEIKNIMYNDIN Kóngurinn og
ég segir frá því þegar bresk kennslu-
kona réðst við hirð konungsins af
Síam að kenna börnum hans vest-
ræna siði. Hún er byggð á sannri
sögu Önnu Leonowen eins og henni
er lýst í bókinni Anna og konungur-
inn af Síam eftir Marg-
aret Landon en upp úr
henni var saminn frægur
Broadway - söngleikur
með lögum eftir Richard
Rodgers og Oscar
Hammerstein. Síðar var
söngleikurinn kvikmynd-
aður og nú hefur Warner
Bros. kvikmyndaverið
sent frá sér þessa teikni-
mynd sem sniðin er eftir
söngleiknum og er með
lögum þeirra Rodgers og
Hammerstein.
Teiknimyndin hefur
verið talsett á íslensku og
fer Egill Ólafsson með
hlutverk konungsins en
Þórunn Lárusdóttir talar
fyrir kennslukonuna.
Aðrir leikarar eru m. a.:
Þórhallur Sigurðsson,
Arnar Jónsson, Selma
Björnsdóttir, Rúnai'
Preyr Gíslason, Grímur
Gíslason og Hilmir Snær Guðnason.
Bíómyndin Konungurinn og ég var
gerð árið 1956. „Fjölskyldur þekkja
vel til þessarar frábæru sögu,“ er haft
eftir framleiðanda teiknimyndarinn-
ar, James G. Robinson. „Við vildum
segja hana upp á nýtt og varðveita
um leið söngvana góðu og gæta þess
að hún yrði mjög aðgengileg ungum
börnum. Okkur fannst teiknimynda-
formið upplagt í þeim tilgangi."
Hann sótti um leyfí fjölskyldna
Rodgers og Hammersteins til þess
að ráðast í framleiðslu teiknimynd-
arinnar og var það auðfengið.
Teiknimyndaleikstjórinn Richard
Rich var ráðinn til þess að hafa um-
sjón með verkinu en hann á að baki
teiknimyndir eins og Svarta pottinn
°g Svanaprinsessuna. „Þetta er saga
sem hefur margt með sér,“ er haft
eftir honum. „Sögusviðið er mjög
spennandi með sínum glæsihöllum
og búningum og sagan sjálf inniheld-
ur spennu því hún segir af tilraun til
þess að koma konunginum frá völd-
um. Þetta er líka ástarsaga á milli
kennslukonunnar Önnu og konungs-
ins og hún segir frá hópi glaðværra
krakka sem eru eins og allir aðrir
krakkar um allan heim þótt þeir séu
fæddir í konungshöll.“
Framleiðandinn Robinson tekur
undir það. „Okkur leist svo á að
krakkarnir væru lykillinn að vel
heppnaðri teiknimynd," segir hann.
„Samband þeirra við nýju kennslu-
konuna er í miðpunkti sögunnar. Við
vildum að teiknimyndin fjallaði um
vinskap, sambandið á milli ólíkra
menningarheima og hvernig við get-
um lært að skilja hvert annað þrátt
fýrir ólíkan uppruna.“
Við gerð teiknimyndarinnar var
blandað saman hefðbundinni teikni-
myndatækni, sem notast hefur verið
við áratugum saman í Hollywood eða
frá því Walt Disney var þar á dög-
um, og nýtísku tölvutækni í gerð
teiknimynda. Teiknivinnan fór fram
um allan heiminn með hjálp tölvu-
tækninnar, Kalíforníu, Irlandi og
Kóreu. Þannig unnu t.d. asískir
teiknarar við að skapa mannlífíð í
Síam og þar fram eftir götunum.
Konungurinn og kennslukonan með
nokkrum af persónunum í teiknimyndinni
Konungurinn og ég.
SÍMINN
www.simi.is
Hættu\
að hrjóta
„Stop Snoring'* Hættu að
hrjóta tryggir hljóðlátan
og angurværan sve*
•4*^ ' X,
Fæst í stórmörkuðum, apótekum
og bensínstöðvum Esso
BOWTUMIR
\
Dreamcast. háskólabíó
n
Rauðará
JAPIS3 L
Taktu þátt í skemmtilegum leik á mbl.ÍS
þar sem þú getur séð sýnishorn úr kvikmyndinni
BOWFINGER eða svarað spurningum.
Með því getur þú unnið:
Dreamcast leikjatölvu frá Japis
Gjafabréf að upphæð kr. 10.000
frá steikhúsinu Rauðará
Miða á kvikmyndina Bowfinger frá Háskólabíói
Bowfinger lyklakippu
Eddie Murphy grímu frá Háskólabíói
Á næstunni verður frumsýnd gamanmyndin B8WFIHGER með
Eddie Murphy og Steve Martin í aðalhlutverkum.
Kvikmyndaframleiðandinn Bobby Bowfinger (Steve Martin) fær algjöran lúða
til að hlaupa í skarðið fyrir ofurstjörnuna sem vill ekki vinna með honum.
Eddy Murphy fer á kostum í hlutverki lúðans og stjörnunnar.
ÞBR SVÍHJfl, SVINDLA OG STElfl - ALUIGÓÐUI
<§>mbl.is
-^\LLT/\f= eíTTH\//\£} A/Ýl 7
r