Morgunblaðið - 23.10.1999, Page 1
STOFNAÐ 1913
241. TBL. 87. ÁRG.
LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Forsetakjör
í Argentínu
ÞÚSUNDIR stuðningsmanna
Eduards Duhalde, frambjóðanda
Perónistaflokksins í forsetakosn-
ingum sem fram fara í Argentínu
í dag, sjást hér safnast saman í
miðborg Rosario, annarri
stærstu borg landsins, til að
hlýða á lokakosningaræðu
Duhaldes. Fastlega er búizt við
að Duhalde bíði lægri hlut fyrir
Fernando de la Rua, borgar-
stjóra Buenos Aires, sem er
frambjóðandi stærsta stjórnar-
andstöðuflokksins.
■ Líklegt/29
Margl er enn á huldu um flugskeytaárásina í miðborg Grosní
Ósamræmis gætir í
málflutningi Rússa
Grosní, Helsinki. AP, Reuters.
RUSSNESKIR embættismenn urðu í gær tvísaga um hvort Rússar bæru
ábyrgð á flugskeytaárásinni á markaðstorg í miðborg Grosní í fyrrakvöld.
Snemma í gær sagði talsmaður á vegum rússneska hersins að árásinni hefði
verið beint gegn ólöglegri vopnasölu sem fram hefði farið á torginu og stað-
hæfði að engir óbreyttir borgarar hefðu skaðazt. „Sérstök aðgerð okkar
gjöreyddi vopnamarkaðnum, með öllum þeim vopnum, sprengiefnum og
sölumönnum sem þar voru,“ er haft eftir talsmanninum, Alexander Veklich.
Hann bætti við að almennir borg-
arar væru ekki á ferli svo seint að
kvöldi á stað þar sem glæpamönnum
og hryðjuverkamönnum væru seld
vopn, fólk væri þá heima hjá sér.
Á torginu voru aðallega seld mat-
væli af ýmsu tagi og aðrar vörur til
heimilishalds og torgið var krökkt af
fólki þegar árásin varð. Vitað er að á
torginu voru einnig seld vopn þar
sem vopnaburður er algengur meðal
tjetsjneskra karlmanna.
Aðrir rússneskir embættismenn
neituðu í gær að Rússar hefðu staðið
að baki flugskeytaárásinni eftir að
forsætisráðherra landsins, Vladimir
F’útín, hafði þvertekið fyrir að svo
hefði verið. Pútín, sem í gær fundaði
með foiystumönnnum Evrópusam-
bandsins (ESB) í Helsinki, fullyrti að
árásin væri liður í innbyrðis valdabar-
áttu milli andstæðra hópa Tjetsjena.
Pútín sagði að rússneskar hersveitir
hefðu að öllum líkindum staðið fyrir
sérstökum aðgerðum á fimmtudag en
að þær aðgerðir hefðu ekkert að gera
með flugskeytaárásina í Grosní.
Bæði varnarmálaráðherra Rúss-
lands, Igor Sergejev, og yfirmaður
leyniþjónustunnar, Nikolai Patrus-
hev, neituðu að þeir hefðu nokkra vitr
neskju um hver stæði að baki
árásinni. „Við vitum að vopn voru
geymd og seld á markaðstorginu í
Grosní en hersveitir okkar gerðu ekki
árás á borgina á fimmtudagskvöldið,“
hefur Interfax eftir Sergejev.
Hvattir til að láta af
stríðsrekstri
Reuters
Maurice Papon handtekinn á flótta í Sviss og framseldur
Fluttur strax í
franskt fangelsi
París. Reuters.
MAURICE Papon, fyrrverandi ráð-
herra í Frakklandi sem í fyrra var
dæmdur fyrir að hafa aðstoðað við
að koma frönskum gyðingum í
dauðabúðir nazista á stríðsárunum,
var handtekinn á hóteli í Sviss í
fyrrinótt, er hann hafði verið í tæp-
an sólarhring á flótta undan réttvís-
inni.
Strax í gær var flogið með hann
til Frakklands þar sem hann þarf að
afplána 10 ára fangelsisdóm fyrir
„glæpi gegn mannkyni" sem stað-
festur var í fyrradag, er æðsti dóm-
stóll Frakklands hafnaði áfrýjunar-
beiðni Papons vegna þess að hann
mætti ekki til réttarhaldsins.
Svissneska lögreglan fann Papon,
sem er á nítugasta aldursári, á lúx-
ushóteli í skíðabænum Gstaad. Yfir-
völd vísuðu honum umsvifalaust úr
landi eftir að hann hafði gengizt
undir læknisskoðun, sem sýndi að
honum væri óhætt að fljúga. Flogið
var með hann í þyrlu til Dijon í
Frakklandi og þaðan áfram með
flugvél til Fresnes-fangelsisins suð-
ur af París.
„Sviss er enginn griðastaður fyrir
menn sem hafa hlotið dóm fyrir
glæpi gegn mannkyni," sagði Ruth
Metzler, dómsmálaráðherra Sviss, á
blaðamannafundi í Bern. „Það er
engin þörf á formlegu framsals-
ferli,“ sagði hún.
Frakkar hæla Svisslendingum
Franska stjómin bar í gær lof á
snör handtök svissneskra yfirvalda
og lagði áherzlu á að frönsk lög-
gæzluyfirvöld hefðu gert allt sem í
þeirra valdi stóð til að hafa hendur í
hári Papons. Innanríkisráðherrann
Jean-Pierre Chevenement benti á
að það hefðu v'erið dómstólar en
ekki stjórnin sem stóðu fyrir því að
Papon fékk að vera frjáls ferða
sinna unz áfrýjun dómsins yfir hon-
um var tekin fyrir.
Papon er eini fyrrverandi hátt-
setti embættismaður Vichy-stjóm-
arinnar, sem hlotið hefur dóm fyrir
að hafa aðstoðað við gyðingaofsókn-
ir nazista. Lögmenn hans hafa sagzt
munu kæra þá meðferð sem mál
hans hlaut fyrir frönskum dómstól-
um til Mannréttindadómstóls Evr-
ópu í Strassborg.
Reuters
„Posthotel Rössli“ í Gstaad, þar
sem handtaka Papons fór fram.
Stríðsrekstur Rússa í Tjetsjníu
kom til umræðu á fundi forystu-
manna ESB og Pútíns í Helsinki í
gær. Á fundinum hvatti Paavo
Lipponen, forsætisráðherra Finn-
lands, til þess að Rússar leituðu leiða
til að binda enda á átökin. Finnar
fara nú með formennsku innan ESB.
ESB-leiðtogarnir kröfðust þess
einnig að dregið yrði úr umsvifum
rússneska hersins annars staðar í
Norður-Kákasus og að hjálparsam-
tökum yrði leyft að starfa á svæðinu.
Þar era nú hundruð þúsunda flótta-
manna á vergangi vegna hernaðarins
í Tjetsjeníu og Dagestan.
■ Talið að/30
Skammaður fyrir
kj ötbannsmótmæli
FRANSKUR eigandi rómaðs
veitingastaðar á Englandi hefur
hlotið skammir franska sendi-
ráðsins í Bretlandi fyrir að strika
franska rétti út af matseðlinum í
mótmælaskyni við að frönsk
stjórnvöld skuli þverskallast við
að aflétta banni við innflutningi
brezks nautakjöts.
Philippe Roy, sem rekur veit-
ingastaðinn Le Clos du Roy í
Bath á Suðvestur-Englandi, sagð-
ist steinhissa á bréfi sem við-
skiptaskrifstofa sendiráðsins
sendi honum. Þar var amast við
því að Roy hafði strikað út
franska rétti af matseðlinum og
boðið upp á brezka rétti í staðinn,
í mótmælaskyni við að innflutn-
ingur á brezku nautakjöti til
Frakklands skyldi ekki hafa verið
leyfður aftur, eftir að Evrópusam-
bandið aflétti banni sem það setti
vegna „kúariðufársins“. Þetta
uppátæki Roys hafði vakið nokkra
fjölmiðlaathygli.
„Þetta er ótrúlegt. Ég ætla að
ramma þetta inn,“ hefur franska
fréttastofan AFP eftir Roy. „Mér
líður eins og óþekkum dreng sem
láðist að spyrja mömmu sína
hvort hann mætti tjá sig.“
Robert Hue
Formanni
kommún-
ista stefnt
París ÁP
ROBERT Hue, leiðtoga Kommún-
istaflokks Frakklands, hefur verið
stefnt fyrir rétt til að svara fyrir
ásakanir um að flokkurinn hafi verið
flæktur í fjársvikamál, eftir því sem
heimildamenn innan franska dóms-
kerfisins greindu frá í gær.
Rannsóknardómarinn sem gaf út
stefnuna, Laurence Vichnievsky,
hefur að sögn heimildamannanna
verið að rannsaka meint tengsl
Kommúnistaflokksins og Compagnie
Générale des Eaux, stórfyrirtækis
sem undir breyttu rekstrarformi ber
nú heitið Vivendi.
Hugsanlegt er að hin væntanlegu
réttarhöld muni leiða til þess að
Lionel Jospin forsætisráðherra sjái
sig knúinn til að slíta stjórnarsam-
starfinu við kommúnista.
Rannsóknin beinist aðallega að þvi
hvort rétt sé að Générale des Eaux
hafi í upphafi þessa áratugar greitt
um 19 milljónir franka, andvirði um
210 milljóna króna, fyi’ir gervirann-
sóknarverkefni sem stofnun á vegum
Kommúnistaflokksins átti að
„vinna“. Þetta fé hafi síðan lent í
fjárhirzlum flokksins. Að launum á
fyrirtækið að hafa fengið samninga
við yfirvöld í borgum og bæjum þar
sem kommúnistar vora í stjóm.
----------------------
Sáttatónn
sagður í
Milosevic
Belgrad. AP.
SLOBODAN Milosevic, forseti Júgó-
slavíu, er viljugur til að leyfa Svart-
fellingum að ganga úr sambandsríki
Serbíu og Svartfjallalands án
blóðsúthellinga.
„Okkur mun aldrei verða fært að
leysa þau vandamál sem eru í sam-
skiptum Serbíu og Svartfjallalands
með valdi,“ sagði Tomislav Nikolic,
varaforsætisráðherra Júgóslavíu, í
sjónvarpsviðtali. Nikolic viðurkenndi
að sambandsstjómin hefði, eins og
komið væri, nærri því engu hlutverki
að gegna lengur í Svartfjallalandi.
Talsmaður Milosevics, Ivica Dacic,
tjáði AP að „ríkjasamband Svart-
fjallalands og Serbíu [væri] undir
borguram Svartfjallalands komið“.
Fyrir skemmstu lýsti Milosevic sjálf-
ur þessu sama yfir á útifundi.
Ríkisstjórn Milos Djukanovics,
forseta Svartfjallalands, hefur kraf-
izt róttækrar endurskoðunar á
skipulagi júgóslavneska sambands-
ríkisins. Verði tillögur hennar að
veraleika yrði Milosevie sviptur
meira eða minna öllum áhrifum á
stjórn Svartfjallalands. Áformað er
að Svartfellingar gangi til þjóðarat-
kvæðis um fullt sjálfstæði hafni
Milosevic framkomnum tillögum.