Morgunblaðið - 23.10.1999, Page 19

Morgunblaðið - 23.10.1999, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999 19 Morgunblaðið/Kristján Reimuðu á sig hlaupa- skóna NORRÆNA skólahlaupið er haf- ið að nýju og í vikunni brugðu nemendur og kennarar Síðuskóla út af hefðbundnu skólastarfi í skamma stund og reimuðu á sig hlaupaskóna. Um 530 nemendur af um 570 nemendum Síðuskóla tóku þátt í hlaupinu að þessu sinni og að auki nokkrir kennar- ar. Krakkarnir hlupu 2,5 km leið í nágrenni skólans og fóru mis- jafnlega hratt yfír, sumir hægt og aðrir hratt, eins og þessir ungu drengir sem héldu uppi góðum hraða eftir Vestursíðu. Hugsanleg sameining í Eyjafírði Viðræður þriggja hreppa hafnar VIÐRÆÐUR um hugsanlega sam- einingu Glæsibæjarhrepps, Skriðu- hrepps og Oxnadalshrepps eru hafnar en íyrsti fundur fulltrúa hreppanna var haldinn á dögunum. Þá sátu tveir áheyrnarfulltrúar frá Arnarneshreppi fundinn. Viðræður um sameiningu hrepp- anna þriggja fóru af stað að frum- kvæði Glæsibæjarhrepps og sagði Oddur Gunnarsson oddviti, að ákveðið hafí verið að halda þeim áfram. „Við ætlum að kanna þenn- an möguleika til hlítar og þá hvort hugsanlegt sé að Arnameshreppur komi frekar að málinu þegar lengra líður.“ Oddur sagði menn ekki hafa sett sér nein tímamörk en að nauðsyn- legt væri að hraða málinu. Hann sagði að ef niðurstaðan yrði sú að stefna að sameiningu kæmi til þess að leggja hana fyrir íbúana í kosn- ingu. Kirkju- starf AKUREYRARKIRKJA: Sunnudagaskóli í Safnaðar- heimili kl. 11 á morgun, sunnudag. Messa í kirkjunni kl. 14, sopi og spjall á eftir þar sem kirkjugestum gefst kost- ur á að ræða efni predikunar- innar. Biblíulestur í Safnaðar- heimili í umsjá sr. Guðmundar Guðmundssonar héraðsprests á mánudag, 25. október, kl. 20. Morgunsöngur kl. 9 á þriðjudag. Mömmumorgunn í Safnaðarheimili frá 10 til 12 á miðvikudag. GLERÁRKIRKJA: Sunnu- dagaskóli Glerárkirkju fer í heimsókn til Svalbarðseyrar á morgun, foreldrar hvattir til að koma með bömunum. Far- ið verður frá kirkjunni kl. 10.30. Messa í Lögmannshlíð- arkirkju kl. 14. Kyrrðar- og tilbeiðslustund í kirkjunni kl. 18.10 á þriðjudag. Hádegis- samvera frá kl. 12 til 13 á mið- vikudag, orgelleikur, fyrir- bænir, altarissakramenti og léttur málsverður í safnaðar- HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagaskóli kl. 11 á morg- un, bæn kl. 16.30, samkoma kl. 17, unglingasamkoma kl. 20 um kvöldið. Heimilasamband kl. 15 á mánudag. Krakka- klúbbur kl. 17.30 á fímmtudag og Ellefu plús kl. 17.30 á föstudag. Flóamarkaður frá kl. 10 til 18 á föstudögum. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Bænastund kl. 20 í kvöld, laugardagskvöld. Sunnudaga- skóli fjölskyldunnar kl. 11.30 á morgun, kennsla fyrir alla aldurshópa, Yngvi Rafn Yngvason kennir. Vakninga- samkoma kl. 16.30, Kristín Harðardóttir predikar, fyrir- bænaþjónusta, barnapössun. Skrefið og Krakkaskrefið á þriðjudag kl. 17, krakkaklúbb- ur kl. 17 á miðvikudag. Gospelkvöld unga fólksins á föstudagskvöld. Bænastundir eru alla morgna kl. 6.30. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa kl. 18 í dag, laugardag, og kl. 11 á morgun, sunnu- dag, í kirkjunni við Eyrar- landsveg 26. KFUM og K: Almenn sam- koma kl. 20.30 á morgun, sunnudag. Kjellrún og Skúli Svavarsson kristniboðar tala og sýna myndir frá Kenýa en þar hafa þau dvalið undanfar- in tvö ár. Fundur í yngri deild KFUM og K kl. 17.30 á mánu- dag fyrir drengi og stúlkur 8 ára og eldri. SJONARHÆÐ: Sunnu- dagaskóli í Lundarskóla kl. 13.30 á morgun. Almenn sam- koma á Sjónarhæð kl. 17 sama dag. Barnafundur kl. 18 á mánudag, allir velkomnir, sérstaklega Ástirningar. .Britax bamabílstólamir eru ríkulega búnir þægindum. Þeir em viðukendir samkvæmt Evrópska gæðastaðlinum, ECE 44.03 ...byltingarkennd belti, sem em hert með einu bandtaki. ...festir með sætisólum bílsins. ...þrennskonar hallastillingar, færanlegur höfuðpúði, mjúkur púði á axlarólum og smellu á Freeway Excel. ...þykkt og sterkt áklæði sem má þvo i þvottavél. ...auka áklæði eru fáanleg. ...Britax bamabílstólamir fást m.a. á eftirfarandi stöðum: Everest, Olavia og Oliver, Bamaheimur, Varðan, Húsasmiðjan Reykjavík, Hagkaup Kringlan, Skeljungsbúðin Keflavík, Shellstöðvamar, Olísstöðvamar. Britax

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.