Morgunblaðið - 23.10.1999, Page 22
22 LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Jóhanna Reynisdóttir, sveitarstjóri í Vogxnn, til vinstri, ásamt
Tómasi Knútssyni við hluta „fengsins" á bryggjunni í Vogum. Þá
höfðu þau fundið sláttuvél, nokkra rafgeyma, rafsuðuvél og gildr-
ur. Síðar fundust fleiri rafgeymar, reiðhjól og akkeri svo eitthvað
sé nefnt.
Sveitarstj órinn
kafaði í
hreinsunarátaki
Keflavík - „Köfun hefur lengi ver-
ið áhugamál en ég hef því miður
ekki haft þann tíma sem ég gjarn-
an vildi til að sinna þessu áhuga-
máli,“ sagði Jóhanna Reynisdótt-
ir, sveitarstjóri í Vogum, sem tók
virkan þátt í að hreinsa til í höfn-
inni í Vogum nýverið.
Það er „Blái herinn", sem er
nemendur í Sportköfunarskóla Is-
lands í Keflavík undir stjórn Tó-
masar Knútssonar kafara, sem
stóð að hreinsuninni. Þeir hafa að
undanfömu staðið að hreinsun á
Suðumesjum og að þessu sinni lá
leiðin í Vogana.
Jóhanna sagði að sér skiidist að
draslið sem fannst í höfninni væri
ekki mikið í samanburði við aðrar
hafnir á svæðinu, en eigi að síður
væri það óveijandi að fólk æki út
á bryggju til að kasta msli í höfn-
ina og benti á ruslagáma sem
stóðu á hafnarsvæðinu.
Tómas Knútsson sagði að það
væri með ólíkindum hveiju fólk
fleygði í sjóinn og til marks um ós-
vífni íþessum efnum sagði hann
að nýlega hefðu þeir verið að taka
til við höfnina í Garði og þar hefði
verið bílhlass af gleri í höfninni.
Einhver hefði verið að gleija hjá
sér og gert sér síðan lítið fyrir og
kastað gamla glerinu í höfnina.
V ottunarstofan Tún
flutt frá Vík í Mýrdal
VOTTUNARSTOFAN Tún ehf.
hefur flutt starfsemi sína frá Vík í
Mýrdal til Reykjavíkur. Gunnar A.
Gunnarsson framkvæmdastjóri
segir að ein af ástæðunum fyrir
flutninginum sé sú að það bakland
sem forráðamenn stofunnar vonuð-
ust á sínum tíma til að væri að
myndast í sveitinni hafði ekki verið
eins og traust og efni stóðu tO.
„Vottunarstofan Tún var stofnuð
upp úr þróunarverkefninu Lífrænt
samfélag sem var starfrækt á ár-
unum 1993-1995 í Mýrdalshreppi.
Við ákváðum að staðsetja stofuna í
sveitinni í þeirri von að við myndum
fá öflugt bakland fyrir lífræna
framleiðslu í sveitinni. Reyndar
undirritaði sveitarstjómin viljayf-
irlýsingu um að standa á baki líf-
rænni ræktun en þeirri viljaryflr-
lýsingu var ekki fylgt eftir og því
var okkur ekki lengur stætt að vera
með starfsemina í sveitinni. Það er
ákveðinn fómarkostnaður íyrir
fyrirtæki eins og okkur að vera
staðsett á landsbyggðinni. Eins og
málum var háttað var ekki réttlæt-
anlegt lengur að greiða þann kostn-
að. Þessi ákvörðun um flutning fyr-
irtækisins er tekin með hagsmuni
þess, viðskiptavina og lífrænnar
framleiðslu í huga.“
Stærsti framleiðandi lífrænna
afurðu á landinu farinn
Að sögn Gunnars stefndu menn á
það á sínum tíma að í Mýrdals-
hreppi yrði til öflugt lífrænt samfé-
lag en þær vonir hafa bmgðist.
„Þegar þróunarverkefnið hófst
hafði fimmtungur bænda tekið
skref í átt að lífrænni ræktun. Þessi
byijun lofaði mjög góðu og stuttu
eftir að vottunarstofan var stofnuð
fengu fímm bændur vottun fyrir
framleiðslu sína. Þetta lofaði mjög
góðu og við vonuðum að fleiri
myndu fylgja kjölfarið þannig að
þetta yrði ákjósanleg staðsetning
íyrir vottunarstofuna. Þetta hefur
ekki ræst og sem dæmi um það
flutti stærsti lífræni framleiða-
ndinn á landinu af svæðinu fyrir
stuttu. I dag era þrír bændur sem
stunda lífræna ræktun starfandi
enn í sveitinni.“
Gunnar furðar sig á því að nú
þegar flest sveitarfélög berjast í
bökkum við halda í fólk að Mýrdals-
hreppur skuli ekki hafa gert meira
fyrir þá nýsköpun sem felst í líf-
rænni framleiðslu.
V egaframkvæmdum
á Tjörnesi lokið
VEGAFRAMKVÆMDUM á
Tjörnesi, austan Húsavíkur, frá
Héðinshöfða að Hringveri, lauk í
vikunni. Það var Klæðning ehf. í
Garðabæ sem hafði verkið með
höndum en um var að ræða upp-
byggingu á 5,6 km kafla. Nú er því
komið bundið slitlag á vegarkafl-
ann frá Húsavík að Hringveri, um
10 km leið.
Framkvæmdir hófust í byrjun
júlí og samkvæmt útboði átti þeim
að vera lokið 1. september sl. Sig-
urður Oddsson deildarstjóri fram-
kvæmda hjá Vegagerðinni á Akur-
eyri sagði að nokkur dráttur hefði
orðið á verkinu, bæði vegna meira
efnismagns, auk þess sem sérpan-
tað efni í ræsi skilaði sér seint er-
lendis frá.
Alls fóru um 130 þúsund rúm-
metrar af efni í fyllingar og fláa-
fleyga og í efra og neðra burðarlag
fóru um 30.000 rúmmetrar af efni.
Lokið var við að leggja klæðingu á
þennan vegarkafla sl. þriðjudag.
Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar
hljóðaði upp á um 65 milljónir
króna en Klæðning bauðst til að
vinna verkið fyrir um 44 milljónir
króna, eða um 68% af kostnaðar-
áætlun. Þá er að sögn Sigurðar ver-
ið að endurbyggja og lagfæra Hóls-
fjallaveg, frá Grímsstöðum á
Fjöllum niður að Dettifossi.
„Markmiðið með þeim fram-
kvæmdum er að gera ferðafólki og
öðram fært að komast að Dettifossi
fyrr á vorin.“
Morgunblaðið/Bjami Aðalgeirsson
Starfsmenn Klæðningar ehf. leggja síðustu hönd
á verkið á Tjörnesi.
Sparisjóðurinn í Keflavík
Skráning skuldabréfa
Víkjandi skuldabréf Sparisjóðsins í Keflavík,
2. flokkur 1998. á Verðbréfaþing íslands.
Verðbréfaþing (slands hefur ákveðið að taka
skuldabréf Sparisjóðsins í Keflavík. 2. flokk
1998, á skrá þingsins. Bréfin verða skráð
fimmtudaginn 28. október nk. Skuldabréfin
greiðast í einu lagi 10. september 2008. bera
6,70% fasta vexti og eru bundin vísitölu
neysluverðs. Skuldabréfin eru víkjandi og
innkallanleg. Skráningarlýsingu er hægt að
nálgast hjá umsjónaraðila skráningarinnar.
Kaupþingi hf. Þar er einnig hægt að nálgast þau
gögn sem vitnað er til í skráningarlýsingunni.
KAUPÞING
Ármúli 13A • 108 Reykjavík
Sími 5151500 • Fax 5151509
Auglýsing þessi er eingöngu birt í upplýsingaskyni www.kaupthing.is
Kennarar
þinga um
nýja aðal-
námskrá
Hvolsvelli - Skólar í Rangárvalla-
og Skaftafellssýslum héldu sam-
eiginlegan starfsdag hinn 20.
október. Hittust allir kennarar
skólanna, um 100 manns, á Hvols-
velli og hlýddu á kynningu á nýju
aðalnámskránni fyrir hádegi en
seinni hluta dagsins vora haldnar
málstofur í Hvolsskóla þar sem
umræður og kynningar vora á
hinum ýmsu námsskrám.
Sesselja Snævarr og Guðni 01-
geirsson, deildarsérfræðingar hjá
menntamálaráðuneytinu, kynntu
helstu áherslur og breytingar á
námsskrám en Svanhildur K.
Sverrisdóttir og Jóna Björg Sætr-
an kennarar kynntu og stjómuðu
umræðum um íslensku og erlend
tungumál en Meyvant Þórólfsson
kennsluráðgjafi kynnti m.a. nýtt
námsefni í stærðfræði.
Kennarar létu vel af því að fá
kynningu á nýju aðalnámskránni
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Helena Pálsdóttir, kennari í Skógaskóla, og Hrund Gauta-
dóttir, Grunnskólanum A-Landeyjum, skoða námski'á í ís-
Iensku.
en hún gekk í gildi íyrr á þessu
ári. Margir hafa nú þegar tekið
upp kennslu eftir henni en skól-
amir hafa tveggja ára aðlögunar-
tíma að námsskránni. A fundinum
kom fram að margir kennarar ótt-
ast að samræmdu prófin verði
ekki í samræmi við nýjar áherslur
í námsskrá og einnig að vegna
mikillar áherslu á notkun tölva og
upplýsingatækni í nánast öllum
námsgreinum grunnskólans sé
mikil og knýjandi þörf á endur-
menntun kennara á því sviði.