Morgunblaðið - 23.10.1999, Page 28
28 LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Samningar við Færeyinga um túnfiskveiðar?
„Sjálfsagt er að taka
slíkt mál til skoðunar“
„PAÐ getur vel hugsazt að Færey-
ingar og Islendingar ræði um
gagnkvæmar túnfiskveiðiheimildir
innan lögsögu beggja landanna.
Mér finnst þó rétt að beiðni um
slíkt komi frá íslenzkum stjóm-
völdum. Þetta hefur áður borið á
góma í viðræðum landanna um
tvíhliða fiskveiðisamninga í ráð-
herratíð Þorsteins Pálssonar og þá
vorum við opnir fyrir slíku sam-
starfi. Það getur vel verið að þetta
mál verði tekið upp í næstu viðræð-
um, sem eru áætlaðar í janúar á
næsta ári. Ég vil alls ekki vísa hug-
myndum sem þessum á bug, enda
eigum við betri samvinnu við Is-
lendinga á sviði fiskveiða en
nokkra aðra þjóð,“ segir Jörgen
Góður túr
NORSKI línubáturinn Fröya-
nes Senior gerði nýlega góðan
grálúðutúr í Barentshafið.
Hann kom til hafnar með 333
tonn af grálúðu. Var verðmæti
aflans um 75 milljónir ís-
lenzkra króna, en aflinn er all-
ur frystur um borð. Þetta mun
vera einhver verðmesti fengur
sem norskur línubátur hefur
borið að landi.
Þrír færeyskir
bátar stunda
túnfiskveiðar
Niclasen, sjávarútvegsráðherra
Færeyja, í samtali við Morgun-
blaðið.
Útgerð túnfiskskipsins Byrs VE
hefur viðrað hugmyndir sínar um
leyfi til túnfiskveiða innan lögsögu
Færeyja, en veiðar þar hafa gengið
betur í sumar en innan íslenzku
lögsögunnar. Ami Mathiesen, sjáv-
arútvegsráðherra, segir að útgerð-
in hafi ekki farið þess á leit við ráð-
uneytið að liðka fyrir slíku. Hann
segir hinsvegar sjálfsagt að taka
slíkt mál til skoðunar.
Sex bátar innan
færeysku lögsógunnar
Jörgen Niclasen bendir reyndar
á að nú séu þrír færeyskir bátar
gerðir út á túnfiskveiðar og auk
þess hafi þrír japanskir bátar leyfi
til veiða innan lögsögunnar. Bát-
amir séu því sex og það sé í meira
lagi. Þeir leggi línu sem sé upp í 70
mílna löng og því geti hver sem er
séð að plássið íyrir fleiri sé lítið. Þá
bendir hann á að aflabrögð hafi
farið versnandi innan færeysku
lögsögunnar:
„í fyrra var veiðin mjög góð,
slakari í fyrra og á þessu ári hefur
hún ekki verið neitt sérstök. Þrátt
fyrir það útiloka ég ekkert um
hugsanlegt samstarf og gagn-
kvæmar veiðiheimildir á túnfiski.
Færeyskar útgerðir hafa ekki ósk-
að eftir því að gerður verði gagn-
kvæmur túnfiskveiðisamningur við
ísland, en ég veit af áhuga Islend-
inga og við emm meira en tilbúnir
til að ræða þau mál í næstu samn-
ingaviðræðum," segir Jörgen
Niclasen.
Álitamál hvernig standa
eigi að styrkveitingu
Útgerð Byrs hefur einnig óskað
eftir opinbemm stuðningi við til-
raunaveiðar sínar á túnfiski, enda
em þær mjög kostnaðarsamar og
hafa ekki skilað eins miklum ár-
angri og vonazt var til. Ámi M.
Mathiesen, sjávarútvegsráðherra,
segir að útgerð Byrs VE hafi ekki
sótt formlega um styrk til veið-
anna, heldur hafi hún aðeins spurst
fyrir um slíkt í ráðuneytinu. Þar
hafi menn skoðað þessi mál en ekki
fundið neinn sérstakan fiöt á þeim.
Þvi sé ekki hægt að halda því fram
að styrkveitingu hafi verið hafnað.
„Okkur finnst þessar veiðar engu
að síður mjög spennandi en það er
alltaf álitamál hvort og þá hvernig
stjórnvöld eiga að standa að slíkri
styrkveitingu.“
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Stjómendurnir. Egill G. Jónsson, framkvæmdastjóri Nasco, Guð-
mundur Hólm, framkvæmdastjóri Bakka og Jónas A. Þ. Jónsson,
stjórnarformaður Bakka.
Afkastageta rækju-
verksmiðju Bakka
verið tvöfölduð
Bolungarvík. Morgunblaðið
MIKLAR endurbætur hafa staðið
yfir á rækjuverksmiðju Bakka hf. í
Bolungarvík að undanfömu en þær
tvöfalda afkastagetu verksmiðjunn-
ar og er hráefnisþörf verksmiðunnar
eftir þessar breytingar áætluð 10 til
12 þúsund tonn á ári.
Nasco ehf. keypti 60% hlut í
Bakka hf. í byrjun desember sl. og
og tók þá þegar við rekstri fyrirtæk-
isins í Bolungarvík. Síðastliðið vor
eignaðist Nasco síðan allan annan
eignarhlut í Bakka h.f.
Þær breytingar sem nú hafa verið
gerðar fólust í því að pillunarvélum
var fjölgað úr þremur í sex. Þá var
bætt við tækjabúnaði sem eykur
verulega sjálfvirkni í verksmiðjunni
sem kemur fram í því m.a. að þrátt
fyrir að afkastageta verksmið-unnar
hafi tvöfaldast þá er ekki gert ráð
fyrir að bæta þurfi við starfsfólki.
Fram að þessu hefur vinna við að
þíða og flokka hráefnið farið fram í
svo kölluðu Græðishúsi sem er stað-
sett annarstaðar í bænum og því
nokkurt óhagræði af því fyrirkomu-
lagi. Því var lagt í framlwæmdir á
neðstu hæðinni í Bakka þar sem
þeirri starfsemi var komið fyrir í
samræmi við þarfir verksmiðjunnar,
þannig að starfsemi sem áður var í
tveimur húsum er nú undir sama
þaki.
Frá því að Nasco ehf tók við
rekstri verksmiðjunnar hefur verið
stöðug vinnsla ef undan er skilið
nokkurra daga stopp meðan verið
var að koma viðaukanum í gagnið.
Hráefni til verksmiðjunnar kemur
að langstærstum hluta af Flæm-
ingjagrunni, en þar eru níu skip sem
tengjast Nasco með einum eða öðr-
um hætti. Þá kaupir Bakki h.f. hrá-
efni á mörkuðum, t.d. talsvert magn
úr Barentshafi, en einnig hefur verið
leitast við að kaupa ferskt hráefni af
Islandsmiðum.
Afurðir verksmiðjunnar eru að
stærstum hluta seldar á Bret-
landsmarkað.
Eigendur Bakka hafa áform um
frekari sjálfvirkni og stækkun
verksmiðjunnar. T.d. kemur til
greina að fjölga pillunarvélum í 10 til
12 en ákvörðun um það ræðst af af-
komu Bakka og ýmsum ytri aðstæð-
um, s.s. möguleikum á að tryggja
verksmiðjunni nægilegt vatn til
vinnslunnar. Vatnsþörf 12 véla
verksmiðju er c.a. ein milljón tonn af
vatni á ári.
Framkvæmdastjóri Bakka h.f. í
Bolungarvík er Guðmundur Hólm,
fjármálastjóri er Magnús Sigurjóns-
son og framleiðslustjóri er Hjördís
Sigurðardóttir. Stjómarformaður
Bakka hf. er Jónas A. Þ. Jónsson.
Naseo ehf. er fjölskyldufyrirtæki
sem er að stærstum hluta í eigu Eg-
ils G. Jónssonar og eiginkonu hans
og Jónasar A. Þ. Jónssonar.
♦ ♦ ♦
4 sviptir
veiðileyfí
FISKISTOFA svipti fjóra báta
veiðileyfi í september. Þrjá vegna
afla umfram heimildir og einn fyrir
að landa framhjá vigt. Þann 30.
september var Gullfaxi GK 14
sviptur veiðileyfi og hefur hann
fengið það að nýju eftir að aflamar-
ksstaða hans var lagfræð. Þá voru
Bervík SH 343 og Stella SU 44
sviptar veiðileyfi af sömu sökum
sama dag, en báðir bátamir fengu
leyfið að nýju 5. október er aflarn-
arksstaða þeirra hafði verið lag-
færð. Loks var Örlygur KE 111
sviptur leyfi til veiða í i í 12 vikur
vegna undanskots á afla frá vigtun
á hafnarvog og fyrir ranga tilgrein-
ingu afla við vigtun á hafnarvog.
mmJ Harðplast-
■/j gluggar og
_ _ __
hurðir í allar
byggingar!
A nilugareynsla
án viðhalds!
Kjarnagluggar
Dalvegi 28 • 200 Kópavogi • Sími 564 4714 • Fax 564 4713