Morgunblaðið - 23.10.1999, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999 31
ERLENT
Arvissir skógareldar í Bandaríkjunum með allra versta móti í sumar og valda mikilli eyðileggingu
Sviðin jörð
og húsarústir
Skógareldar hafa logað í Kaliforníu í
allt sumar og hættan er fjarri því að vera
liðin hjá. Fjöldi íbúðarhúsa hefur brunnið
til kaldra kola, þúsundir slökkviliðsmanna
eru að störfum dag og nótt og þykkur
reykjarmökkur liggur yfir stórum
svæðum, svo fólk er varað við að vera
meira úti við en nauðsyn krefur. I grein
Ragnhildar Sverrisdóttur kemur fram
að þetta ár er eitt hið versta í manna
minnum. Sjaldan hafa árvissir eldarnir
valdið annarri eins eyðileggingu.
Reykjarmökkur af völdum skógarelda hylur skýjakljúfa í San Fransisco fyrr í vikunni.
TÓLF hundruð slökkviliðs-
menn berjast við skógar-
elda á einum stað, hálft
þriðja þúsund á öðrum.
Þúsundir slökkviliðsmanna til við-
bótar eru að störfum vítt og breitt
um Kalifomíu, þótt norðurhluti rík-
isins hafí orðið sérstaklega illa úti
síðustu daga.
Skógareldarnir hafa verið ein-
staklega erfiðir viðureignar þetta
árið. I júlí börðust sautján hundruð
manns við elda norðvestur af Los
Angeles, þar sem um 10 þúsund ekr-
ur skógar eyddust. í ágúst var áætl-
að að eldurinn hefði farið yfir sam-
tals 200 þúsund ekrar í Kaliforníu,
Nevada og Oregon. í september var
lýst yfir neyðarástandi í fjórum sýsl-
um Kalifomíu, Butte, Plumas,
Shasta og Tuolomne. Þá höfðu skóg-
areldar eytt yfir 100 þúsund ekram
lands í þessum sýslum á einni viku
og rúmlega 30 hús brannið til kaldra
kola. Eldar blossuðu þá aftur upp
sunnar í ríkinu, norðaustur af Los
Angeles, eyddu 65 þúsund ekram,
gjöreyðilögðu 52 íbúðarhús og 19
önnur mannvirki.
Tvö þúsund manns
flúðu heimili sín
Þegar loks fór að hilla undir að
ósköpunum linnti fór enn að loga í
norðurhluta ríkisins. Laugardaginn
16. október vora aðstæður allar hin-
ar verstu, gróður var skrælnaður af
þurrki og sífellt bætti í vindinn. Það
þurfti því lítið til að kveikja elda, líkt
og í september, þegar neistaflug frá
járnbretti, sem dróst aftan í bíl, olli
gífuriegum skaða. Eldingar, sem
Ijósta trjátoppa, eiga líka sök á fjöl-
mörgum branum þetta árið og í
fimmtán tilvikum granar yfirvöld að
brennuvargar hafi verið á ferð. Við
þessar aðstæður verður hver að
gæta vel að sér. Tvívegis hefur
blaðamaður orðið vitni að því þegar
rannar við hraðbrautina fuðraðu
skyndilega upp, að öllum líkindum
vegna þess að einhver kastaði log-
andi sígarettu út um bílgluggann.
Og skógai-eldarnir blossuðu enn upp.
I þetta sinn var annaðhvort neista
vegna skammhlaups í rafali eða
glæðum frá varðeldi um að kenna, að
því er yfirvöld segja. Tvö þúsund
manns þurftu að flýja heimili sín og
mátti stundum ekki tæpara standa
þegar eldurinn æddi yfir allt sem
fyrir varð. Sjálfboðaliðar þeystu á
mótorhjólum á milli húsa, skipuðu
fólki að grípa það nauðsynlegasta
með sér og hafa sig á brott. Á þessu
svæði í norðurhluta ríkisins er nokk-
uð strjálbýlt, þarna eru smábæir og
einstaka hús kúrir inn á milli
trjánna. Ibúarnir fá ekki rönd við
reist þegar logarnir nálgast. Á 20
klukkustundum, frá morgni laugar-
dagsins 16. október til sunnudagsins
17. október, fór eldurinn rúma 27
kílómetra í suðurátt. Eldar blossuðu
líka upp vestar og eyddu 42 þúsund
ekram á sólarhring.
Ailir íbúarnir hafa sloppið hingað
til, en stundum hefur það staðið
naumt. Kona nokkur beið aðstoðar
slökkviliðs, en þegar eldurinn nálg-
aðist og enginn birtist hélt hún af
stað gangandi til að leita hjálpar fyr-
ir börn sín þrjú og eiginmann, sem
er bundinn hjólastól. Hún þurfti að
vaða eld, í orðsins fyllstu merkingu,
og brenndist illa á fótleggjum, hand-
leggjum og í andliti, en náði að gera
vart við sig og slökkviliðsmenn
björguðu fjölskyldunni þegar
logarnir vora farnir að sleikja vegg-
ina. Hús þeirra er núna rústir einar,
líkt og um eitt hundrað heimili önn-
ur. Fjárhagslegt tjón vegna þessara
hamfara er líklega hátt í hálfur
milljarður ki-óna.
I þessari síðustu atlögu skógar-
eldanna hefur einn látið lífið, kona
sem var sjálfboðaliði við slökkvistarf
varð undir einni bifreiða slökkviliðs-
ins. Níu hundrað félagar hennar
börðust áfram við eldana og reyndu
að ryðja landræmu svo eldurinn
næði ekki að breiðast meira út. Yfir
þeim sveimuðu þyrlur og flugvélar,
sem slepptu vatni og slökkvidufti yf-
ir eldana.
Reykj armökkur
yfir stóru svæði
Á þriðjudag var mesta hættan lið-
in hjá og slökkviliðsmenn höfðu náð
að hemja eldinn, þótt enn logaði
víða. Vindinn hafði lægt, sem auð-
veldaði þeim baráttuna, en lognið
hefur það í för með sér að þykkur
reykjarmökkur liggur yfir öllu. í
höfuðborg ríkisins, Sacramento, um
60 kílómetra suður af mestu eldun-
um, var skyggnið í byrjun vikunnar í
mesta lagi um 2-3 kílómetrar. Sumir
ganga um með grímur til að verjast
reyknum og nær eldsvæðunum er
börnum haldið inni vegna svælunn-
ar.
Þetta sumar og haust hefur verið
með allra versta móti. I október er
alltaf hætta á skógareldum í norður-
hluta Kaliforníu, þegar gróður er
mjög þurr eftir sumarið, það hvessir
gjarnan og eldingar leika um himin-
inn, - og tijátoppana. Fyrir átta ár-
um, í október 1991, létu 25 lífið í
svokölluðum Oakland Hills-brana,
sem eyddi að auki þrjú þúsund
heimilum og olli rúmlega 100 millj-
arða króna tjóni.
Kalifornía hefur að vísu ekki orðið
verst úti í ár, heldur nágrannaríkið
Nevada. Neyðarástandi var lýst yfir
í fimm sýslum ríkisins vegna skóg-
arelda sem blossuðu upp vegna eld-
inga í byrjun ágúst og lögðu 1,5
milljónir ekra í eyði. Alls hafa um 5
miHjónir ekra orðið skógareldum að
bráð í Bandaríkjunum það sem af er
árinu, en það er tvöfalt meira en að
meðaltali undanfarin tíu ár.
Stund milli stríða
í norðurhluta Kaliforníu er stund
milli stríða, þótt slökkviliðsmenn
eigi enn mikla vinnu eftir við að
slökkva allar glæður. Fólk er farið
að snúa heim, þótt þar sé lítið að
finna nema branarústir. Rauði
krossinn og aðrar hjálparstofnanir
rétta hjálparhönd. Þeir sem vora
svo lánsamir að húsin þeirra sluppu
taka sér frí úr vinnu til að hjálpa ná-
grönnum sínum að reisa ný hús og
aðrir hafa lánað bláókunnugu fólki
hjólhýsi sín og húsbíla, svo allir eigi
vísan næturstað. Veitingastaðir
bjóða fórnarlömbum skógareldanna
og örþreyttum slökkviliðsmönnum
ókeypis máltíðir. Samhjálpin lætur
ekki að sér hæða á stundum sem
þessum.
©GIACOIIIIM
Hitastýrður
ofnloki
• Lofthitastýrður
• Með innri stillingu
• Vökvanemi
• Læsing á rofastilli
HÚSASMIDJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
■ ' c
BH
tölvuskóli
suðurnesja
Hafnargötu 34 • 230 Keflavík
Sími: 421 4025
fyrir kröfuharða
Sex kvölda námskeið í notkun EXCEL á sviði viðskipta og fjármála
Möguleiki er að fara í verkefni eftir óskum þátttakenda
Kennari er Bjarni Kristjánsson, framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Softa ehf.
og höfundur Excel kennslubóka Tölvuskóla Suðurnesja.
Fjarvinnsla um Hetið
Kynning á HOT Office margverðlaunuðum
hugbúnaði sem gerir þér kleift að vinna á
skrifstofu þinni, hvar sem þú ert staddur í veröldinni
Nánari upplýsingar og skráning I
er á skrifstofu skólans
og á heimasíðu skólans www.tss.is ■
_____________________________