Morgunblaðið - 23.10.1999, Side 44
LISTIR
44 LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Borgarbdkasafn Reykjavíkur
100 ár afmælis Málfríðar
Einarsdóttur minnst
PESS verður minnst á Borgar-
bókasafni Reykjavíkur í Þingholts-
stræti 29A í dag, laugardag, eru
100 ár liðin frá fæðingu Málfríðar
Einarsdóttur frá Munaðamesi. Að-
alsafn Borgarbókasafns Reykja-
víkur hefur fengið lánuð sýnishom
af „strammaskáldskap" Málfríðar,
sem em púðar og önnur útsaums-
verk og verða þau til sýnis í sýning-
arskáp safnsins. Ymis fróðleikur
um líf og skáldskap Málfríðar mun
hanga uppi á veggjum safnsins og
bókum hennar verður stillt út.
Málfríður Einarsdóttir fæddist í
Munaðarnesi 23. október árið 1899.
Hún brautskráðist frá Kennara-
skóla Islands 1921. Framsamið og
þýtt efni eftir hana, sögur og ljóð,
vora flutt í Ríkisútvarpinu og birt í
tímaritum frá því á síðari hluta
sjötta áratugarins en fyrsta bók
hennar, Samastaður í tilveranni,
kom ekki út fyrr en árið 1977, þeg-
ar Málfríður var hátt á áttræðis-
aldri. Útgefnar bækur Málfríðar
era sex talsins, sú síðasta gefín út
að henni látinni, og innihalda þær
bæði sjálfsævisöguleg skrif og
skáldskap. Auk ljóða birti Málfríð-
ur greinar í blöðum og tímaritum
Málfríður Einarsdóttir
um árabil, einnig þýðingar, meðal
þeirra nokkrar barnabækur og
skáldsaga Pár Lagerkvists, Dverg-
urinn.
Málfríður hlaut viðurkenningu
frá menntamálaráðuneytinu árið
1978 og úr Rithöfundasjóði Ríkis-
útvarpsins 1982.
Málfríður lést í Reykjavík þann
25. október 1983.
Frá sýningu Hafsteins Austmanns.
Sýningu Hafsteins Austmanns
á Kjarvalsstöðum að ljúka
Ræðir við gesti
um verk sín
HAFSTEINN Austmann listmál-
ari verður viðstaddur á lokadögum
sýningar sinnar á Kjarvalsstöðum
nú um helgina og til viðtals fyrir
áhugasama gesti. Raunar segist
hann ekki geta útskýrt myndimar
sínar, sé hann spurður. „Því miður
skil ég þær ekki,“ segir hann og
bætir við að fólk verði að skilja þær
sínum eigin skilningi. Hefði hann
haft boðskap fram að færa hefði
hann skrifað skáldsögu í stað þess
að mála.
Hugleiðsla
um list
SARA Bjömsdóttir myndlistar-
kona opnar sýningu í versluninni
Nælon og jarðarber, Hverfísgötu
39, í kvöld, laugardagskvöld, kl. 20.
Yfirskrift sýningarinnar er Hug-
leiðsla um list og stendur hún til 8.
nóvember.
“Tónleikum af-
lýst í Salnum
TÓNLEIKUM Guðnýjar
Guðmundsdóttur og Gerrits Schuil,
Fiðla og píanó í Tíbrá, sem vera
áttu í Salnum á mánudagskvöld, er
»aflýst af óviðráðanlegum orsökum.
Á sýningunni, sem hefur staðið í
tæpa tvo mánuði, era rösklega 50
verk, málverk og vatnslitamyndir,
unnin á síðastliðnum fímmtán ár-
um. Nú þegar hefur á sjötta þúsund
manns heimsótt sýninguna, að sögn
Hafsteins, og telur hann það býsna
góða aðsókn. Þegar hafa allmörg
verk selst, mun fleiri en venjulega,
segir hann.
Sýningu á verkum Patricks Huse
og sýningunni „Borgarhluti verður
til“ á Kjarvalsstöðum lýkur einnig
nú á sunnudag.
Hefðbundin leiðsögn er um sýn-
ingamar á sunnudag^ kl. 16 auk
þess sem Pétur H. Armannsson,
deildarstjóri byggingarlistardeild-
ar safnins, mun íjalla sérstaklega
um byggingarlistarsýninguna.
Opið er á Kjarvalsstöðum alla
daga kl. 10-18.
Eftir þetta sýningatímabil verð-
ur austursal Kjarvalsstaða lokað.
Fyrir dyrum standa viðamiklar lag-
færingar á salnum og undirbúning-
ur veglegrar sýningar á verkum
Kjarvals sem opnuð verður í lok
janúar árið 2000.
Listasafn ASI
_ Örverka- og þemasýningu FÍM,
Úr djúpinu, í Listasafni ASI lýkur á
sunnudag. 37 listamenn taka þátt í
þessari sýningu, sem er opin kl. 14-
18.
Þá lýkur sýningu Péturs
Behrens í Stöðlakoti á sunnudag.
Galleríið er opið daglega kl. 14-18.
Svarthvítagaldur
TONLIST
Háskolabítí
KVIKMYNDA-
TÓNLEIKAR
Charlie Chaplin: Borgarljós. Þögul
kvikmynd með hljómsveiterundir-
leik. Sinfóníuhljómsveit Islands u.
stj. Franks Strobels. Fimmtudaginn
21. október kl. 20.
ÞAÐ er tímanna tákn ef kalla má
kvikmyndasýninguna í Háskólabíói
á föstudagskvöldið fágætan atburð.
Einkum ef horft er til flutningsmáta
þögulla kvikmynda á fyrstu áratug-
um aldarinnar, áður en talmyndin
hóf innreið sína (Djasssöngvarinn
með A1 Jolson í aðalhlutverki) laust
fyrir 1930. Þá þótti nefnilega ekki
tiltökumál að vera með allt að 50-60
manna hljómsveit til undirleiks á
hverri sýningu í stærstu „kvik-
myndaleikhúsum" erlendis, þó að
hér á landi hafí stakur píanóleikari
að líkindum verið látinn duga, þeg-
ar landar Bíó-Petersens lögðu hljóð
að þögulli atburðarrás hvíta tjalds-
ins.
Hvað tíðkaðist hér áður fyrr í
þeim efnum er annars varla mörg-
um kunnugt, og hefði ekki verið
óviðeigandi að láta fylgja einhvern
fróðleik þar að lútandi á staka laus-
blaðinu sem útbýtt var við inngang-
inn, úr því að málkunnugir aðiljar
stóðu að uppákomunni, þ.e.a.s.
Kvikmyndasjóður og -safn Islands;
að þessu sinni með stuðningi Germ-
aníu. Hitt kom ei heldur fram sem
maður frétti á skotspónum, að álík-
ar uppfærslur þögulla kvikmynda
hafi á seinni áram átt verulegri end-
KÓR Snælandsskóla heldur tón-
leika í Salnum í Tónlistarhúsi
Kópavogs í dag, laugardag, kl.
16. Tónieikarnir eru útgáfutón-
leikar vegna geislaplötu sem kór-
inn vann að síðastliðið vor og _
kemur út um þessar mundir. A
plötunni, sem nefnist „Fagur er
Fossvogsdalur", eru 19 lög, bæði
innlend og erlend. Nafn plötunn-
ar er úr texta sem Sigurbjörn
Einarsson biskup samdi fyrir
skólann og barnabam hans, Mist
Þorkelsdóttir, gerði lag við.
Á tónleikunum verður einnig
flutt verk sem Mist samdi við ljóð
afa síns, Afmælisósk, í tilefni 25
ára afmælis skólans. Tónleikar-
nir eru hluti af afmælishaldi
urreisn að fagna, sérstaklega í
Þýzkalandi.
Hið margskammaða flaggskip ís-
lenzkra hljómlistarhúsa, Háskóla-
bíó, sem þrátt fyrir vanþekkingar-
glöp ónefnds brezks
plötugagnrýnanda hefur hingað til
ekki þótt burðugt til tónlistarflutn-
ings, sýndi í þessu tilviki fram á
ótvíræðan kost: bíó með sviðspláss
fyrir sinfóníuhljómsveit! Hvað sem
segja má um afleitan hljómburð sal-
arins, þá verður samt að viður-
kenna, að til þess konar flutnings er
kvikmyndahúsið í sérflokki, því
óvíða kemst annar eins fjöldi hljóð-
færaleikara fyrir í bíósölum okkar
tíma. Það mátti því segja, að sjaldan
hafi dagskrárefni verið betur í hús
komið en þetta kvöld.
Borgarljós (1931) var ekki síðasta
þögla kvikmynd meistara Chaplins,
því burtséð frá heyranlegu söng-
atriði í lokin var Nútíminn (1936)
einnig með þeim formerkjum. Sagt
er að sjálfhafni alþýðuskemmtarinn
brezki hafí verið vandlátur á hljóm-
gæði, sem vora ekki upp á marga
fiska í fyrstu talmyndunum, og þess
vegna kosið að halda þöglu línunni
fram eftir 4. áratug. Hitt er þó jafn-
víst, að honum stóð ekki á sama um
hvers konar tónlist fylgdi myndum
hans úr hlaði, enda lét hann festa
nótum hugmyndir sínar um hljóm-
sveitarandirleik, þótt ekki væri
sjálfur fær um nánari útfærslu.
Kom hér enn að einum af vankönt-
um tónleikaskrár, sem lét þess í
engu getið hverjir lögðu lokahönd á
plóg; ekki frekar en þegar útvarps-
þulir afgreiða höfundamál með
klausunni „lagið er erlent".
En þó að tónlistarmenntun
Chaplins kunni að hafa verið tak-
skólans á þessum timamótum.
Með kórnum á plötunni leika
Kristinn Örn Kristinsson píanó,
Lilja Hjaltadóttir fíðla, Martial
Nardeau flauta og Lóa Björk Jó-
elsdóttir píanó.
Kórinn hefur fengið boð um að
taka þátt í menningarhátíð í Nor-
folk í Bandarikjunum i apríl á
næsta ári. Hátíð þessi, sem nefnd
er Alparósarhátíð, er haldin á
hverju ári og hafa Islendingar
verið tilnefndir heiðursþjóð há-
tíðarinnar að þessu sinni, m.a.
vegna 1000 ára afmælis landa-
funda Leifs Eiríkssonar.
Stjórnandi Kórs Snælan-
dsskóla er Heiðrún Hákonardótt-
ir.
mörkuð, voru hugmyndir hans um
tónlist við kvikmyndir árangursrík-
ar. Löngu fyrir tilkomu hljóðrásar
gerði hann sér skýra grein fyrir sér-
hæfðu þjónustuhlutverki kvik-
myndatónlistar, þar sem hnitmiðuð
tímasetning, látlaus undirstrikun
og leiðistefjatækni skipta meira
máli en heilstætt form. Og spuming
er hvort tónlist Chaplins verði bet-
ur fram sett en einmitt eins og
heyra mátti þetta kvöld, með lifandi
leik undir árvökulli handleiðslu
stjómanda, sem sérhæft hefur sig í
því að endurvekja töfra þögla
skeiðsins í rauntíma. Er óhætt að
segja, að fyrir atburð sem þennan
hafí Sinfóníuhljómsveitm tæpast
getað fengið hæfari mann til leið-
sagnar en þýzka stjórnandann
Frank Strobel. Nánast hvert ein-
asta „kjú“ steinsmall við það sem
fór fram á tjaldinu, jafnt á rólegum
augnablikum sem á fullri ferð, eins
og í hnefaleiksatriðinu kostulega,
sem nær væri að kalla ballett en
box.
Hin 70 ára gamla svarthvíta saga
Chaplins um samskipti litla flæk-
ingins við drykkfellda milljónamær-
inginn og umkomulausu blindu
stúlkuna öðlaðist bókstaflega nýtt
líf þetta kvöld í mögnuðu jafnvægi
milli allt að trúðslegrar kómedíu og
skáldlegs undirtóns. Upplifun við-
staddra var satt að segja engu lík,
og samkennd manns með persónum
og atburðum gömlu gamanmyndar-
innar gekk göldram næst - nema
nákvæm spilamennska hljómsveit-
arinnar og næmt tímaskyn stjórn-
andans hafí eitthvað haft um málið
að segja.
Ríkarður Ö. Pálsson
Verk Hörpu Björnsdóttur í
Listasalnum Man á Skóla-
vörðustíg.
Harpa
Björns-
dóttir sýn-
ir hvað
htin sá
HARPA Bjömsdóttir opnar sýn-
ingu í Listasalnum Man Skóla-
vörðustíg 14 í dag kl. 14. Á sýning-
unni eru vatnslitamyndir sem era
unnar á síðustu áram.
í fréttatilkynningu segir:
„Myndimar eru sjónrænt endur-
varp úr umhverfi og upplifun lista-
mannsins. Allt sem við sjáum
verður eign okkar í sjónrænum
skilningi og við getum tekið þá sýn
fram hvenær sem við viljum, um-
breytt henni, smíðað hana í hvert
það form sem við viljum. Hinn
sjónræni eignarréttur er miklu
meira virði en hinn efnislegi eign-
arréttur, því hann lifir með ein-
staklingnum allt til æviloka. Lista-
maðurinn leikur sér með þessa
eign sína sem hann grípur úr um-
hverfi sínu, skoðar margbreytileik
hennar, og á einhverjum tíma-
punkti segir hann „sjáið hvað ég
sá“.“
Harpa Björnsdóttir lauk námi
frá Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1982 úr nýlistadeild. Hún
hefur dvalist á vinnustofum í
Frakklandi, Finnlandi, Danmörku,
á Italíu, Irlandi, Spáni og Bali.
Þessi sýning í Man er 20. einka-
sýning Hörpu.
Sýningin er opin á verslunar-
tíma og stendur til 7. nóvember.
Morgunblaðið/Ásdís
Kór Snælandsskóla fylgir nýútkominni plötu sinni eftir
með tónleikum í Salnum í dag.
Kór Snælands-
skóla kynnir nýja
geislaplötu