Morgunblaðið - 23.10.1999, Blaðsíða 56
^6 LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KATTASÝNING
ALÞJOÐLEGAR KATTA-
% SÝNINGAR í KÓPAVOGI
Gæðin komu
dómurum
á óvart
Exótísk læða, með bláan feld, gul augu og
fýlulegan svip, var valin kynjaköttur á
tveimur kattasýningum sem haldnar voru
um síðustu helgi. Brynja Tomer virti fyrir
sér ólíkar kattategundir á sýningunum og
ræddi svo við dómara og nokkra eigendur.
Henni sýndust síðhærðir kettir almennt
rólegir og værukærir, en snögghærðir
~___kettir skapmeiri fjörkálfar._
ASTÆÐA þess að
haldnar eru tvær að-
skildar kattasýningar
sömu helgina er ein-
föld, að sögn Ólafs
Njálssonar, formanns Kynjakatta,
kattaræktarfélags Islands. „Mikil
vinna og kostnaður felst í að setja
upp sýningu af þessu tagi og þetta
er því hagkvæmara.“ A kattasýn-
“'♦ingum skoða viðurkenndir dómar-
ar kettina með ræktunarmarkmið
viðkomandi tegunda að leiðarljósi.
Þyki þeim kettir framúrskarandi
fulltrúar tegundar sinnar geta þeir
veitt þeim meistarastig, en þrjú
meistarastig þarf til að köttur
hljóti titilinn íslenskur meistari. A
alþjóðlegum sýningum, eins og
þeim sem haldnar voru í reiðhöll
Gusts um síðustu helgi, hafa dóm-
arar ennfremur réttindi til að veita
alþjóðleg meistarastig, þyki þeim
köttur framúrskarandi á alþjóðleg-
an mælikvarða. Fimm alþjóðleg
meistarastig þarf til að köttur bæti
við sig titlinum alþjóðlegur meist-
ari. Köttur getur einnig fengið titla
**á borð við Evrópumeistari eða ai-
þjóðlegur stórmeistari, en fáir
kettir hafa náð svo góðum árangri.
Dómarar á sýningunum voru
þrír, tveir frá Sviss og einn frá
Danmörku. Allir voru þeir sammála
um að skipulag sýningarinnar væri
til fyrirmyndar og kettirnir í háum
gæðaflokki. „Eigendur kattanna
eru sérlega vingjarnlegir og margir
útlendingar hefðu gott af að koma
hingað og sjá hvernig setja á upp
skemmtilega sýningu og ekki síst
hvemig á að taka þátt í henni,“ seg-
ir Eva Wieland Schilla frá Sviss,
sem er vararitari Alþjóðasambands
kattaræktarfélaga, auk þess að
^vera alþjóðlegur dómari.
Kettir með góða
skapgerð
Eva segir að sér hafi komið
þægilega á óvart hversu fallegir
kettir voru á sýningunni. „Það er
ótrúlegt, sérstaklega í ljósi þess að
kattarækt hófst ekki hér fyrr en
íyrir um tíu árum. Einnig finnst
mér íslensku húskettirnir mjög fal-
legir og gaman að sjá svo marga
húsketti á sýningu. Kettir á sýn-
ingunni eiga það sammerkt að hafa
a. góða skapgerð og ég held að það sé
■‘rayrst og fremst vegna þess að þeir
fá gott atlæti hjá eigendum sín-
um.“ Hún segir að persnesku kett-
irnir séu almennt í mjög háum
gæðaflokki og einnig hafi komið
sér á óvart hversu fallegir Bengal-
og Abysiníu-kettirnir voru. „Ég hef
engar athugasemdir við kattarækt
Islandi, en hvet íslenska rækt-
endur til að halda áfram á sömu
Abyssiníu-kettir bíða eftir að dómari skoði þá.
braut, því þeir em greinilega á
réttri leið í ræktun sinni.“
Starfsbróðir Evu, Leslie Van
Grebst frá Danmörku, segir að
persnesku kettirnir hafi hrifið sig
mest, en hann sérhæfir sig í að
dæma ketti með síðan og hálfsíðan
feld. „Mér þykja norsku skógar-
kettimir líka mjög fallegir og
ræktun þeirra á réttri braut. Auk
góðs skipulags og fallegra katta,
kom mér einna mest á óvart
hversu rólegir kettirnir vora, en
talsvert álag fylgir því íyrir kött að
vera á sýningu. Ég ímynda mér að
ástæðan sé sú að eigendur þeirra
eru mjög afslappaðir."
Alfred Wittich frá Sviss hefur
réttindi til að dæma ketti af öllum
tegundum. Hann segist hafa hrifist
mest af norsku skógarköttunum og
segir að ræktun þeirra lofi mjög
góðu. „íslensku húskettirnir komu
mér einnig á óvart og almennt
finnst mér kattarækt hér mjög
áhugaverð." Aðspurður segir Al-
fred að í kattarækt sé stefnt að því
að skerpa sérkenni hverrar teg-
undar í útliti og skapgerð, auk þess
sem mikil áhersla sé lögð á gott
heilsufar undaneldisdýra. Vinsæl-
ustu kettir í Evrópu um þessar
mundir era Maine coon og British
shorthair, ekki spurning,“ svarar
hann að bragði.
Reynir að fækka
köttunum
Persneska læðan Afródíta of
Viking Cats, sem er svokallaður
exótískur Persi, er rúmlega
tveggja ára og var valinn kynja-
köttur á báðum sýningum Kynja-
katta, kattaræktarfélags íslands,
en þann titil hlýtur sá köttur sem
er besti köttur sýningar að mati
dómara. Eigandi Afródítu, Helga
Fallegasti geldingurinn og jafn-
framt best snyrti kötturinn
gegnir nafninu Helgi.
Hlynsdóttir, ræktar persneska
ketti, bæði síðhærða og exótíska.
Helga segist eiga nokkra ketti.
„Ég hef lengi stefnt að því að
fækka þeim niður í þrjá, en ein-
hverra hluta vegna fjölgar þeim
alltaf. Ég skil ekkert í þessu,“ segir
hún og hljómar ekkert sérlega
sannfærandi. Hún ber með sér að
vera einlægur aðdáandi katta og
hafa brennandi áhuga á ræktun
þeirra, svo fátt bendir til að köttum
hennar fækki í þrjá á næstunni.
Afródíta er drjúg með sig, segir
Helga. „Hún er samt afar róleg og
ljúf, eins og flestir persneskir kett-
ir.“ Hún segist alltaf baða hana
fyrir sýningar, en segir feldhirðu
að öðru leyti hvorki mikla né tíma-
freka. Helga flutti inn tvo pers-
neska ketti frá Noregi árið 1994,
en fyrsta „Persann“ eignaðist hún
1993. „Það er læða sem heitir Þoka
Alfred Wittich, dómari, skoðar norskan skógarkött,
en hann hreifst mest af þeirri tegund.
og er forystukötturinn á heimil-
inu.“ Þótt Helga sé hugfangin af
persneskum köttum, kveðst hún
hrifin af öllum köttum, líka þeim
sem ekki era hreinræktaðir.
Vel snyrtur og fallegur
geldingur
Hvítur og feldmikill fressköttur,
að nafni PR Af ísafold Ófeigur, var
valinn besti geldingur á báðum
sýningum Kynjakatta og einnig
best snyrti kötturinn. Einhverra
hluta vegna gegnir Ófeigur nafninu
Helgi, en eigandi hans er Kristín
Ki-istjánsdóttir. Hún segir afar
mikla vinnu liggja í feldhirðu katt-
arins, sérstaklega íýrir sýningar.
„Feldurinn er burstaður daglega
og öðru hvoru þarf að baða köttinn.
Þá er hann þveginn eftir kúnstar-
innar reglum með góðu sjampói og
feldurinn síðan þurrkaður með
hárblásara. Sýningarbað og snyrt-
ing fyrir sýningu tekur 3-4 klukku-
tíma. Auk þess að þvo feldinn með
sjampói er notuð næring og
djúpnæring og feldurinn skolaður
mjög vel á milli. Einnig þarf að
plokka hár ofan af eyrum og klippa
feldinn svolítið. Helgi er mjög ró-
legur og situr alveg kyrr meðan
verið er að snyrta hann.“
Kristín á annan persneskan kött,
gulleitan, sem á kattamáli er kall-
aður golden Persi. „Þeim semur
vel og hefur báðum vegnað mjög
vel á kattasýningum gegnum tíð-
ina.“ Helgi er íyrsti köttur Kristín-
ar og segist hún hafa heillast af
honum er hún sá hann sem kett-
ling. „Ég hafði ekkert velt því fyrir
mér að fá mér kött, en svo sá ég
þennan skjannahvíta kettling sem
bræddi í mér hjartað."
Norski skógarkötturinn CH
Norskur skógarköttur, sem varð sigursæll á sýningunum,