Morgunblaðið - 23.10.1999, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999 67*
FÓLK í FRÉTTUM
STEVE ALBINI VANN VIÐ UPPTÖKUR OG HLJÓÐBLÖNDUN Á TÓNLIST ENSÍMIS
Gagnkvæm virðing íslenskra
tónlistarmanna til sóma
Steve Albini hefur tek-
ið upp og hljóðblandað
tónlist þekktra hljóm-
sveita á borð við Nir-
vana og Pixies. Hann
sagði Sunnu Osk Loga-
dóttur hvernig tónlist-
armenn hann kann að
meta og nefndi íslensku
hljómsveitina Ensími
sem dæmi.
HLJÓMSVEITIN Ensími vinnur
að breiðskífu um þessar mundii' og
fékk hún Steve Albini, upptöku-
stjóra, upptökumann og hljóð-
blendil, til að koma hingað til lands
og aðstoða við upptökur. Steve sér-
hæfir sig í hljóðblöndun og upptöku
neðanjarðartónlistar og segist hafa
þróað vinnuaðferðir sem skili góð-
um árangri á stuttum tíma. „Margir
framleiðendur tónlistar og þeir sem
hljóðblanda hana hafa mjög skýrar
vinnuaðferðir sem hljómsveitir sem
þurfa að vinna hratt geta ekki nýtt
sér, hvort sem það er vegna tíma-
eða peningaskorts," útskýrir Steve.
„En mínar aðferðir nýtast slíkum
hljómsveitum á áhrifaríkan hátt.“
Steve segist sjálfur hafa verið í
hljómsveitum og viti því hvernig
tónlistarmenn vilja vinna. „Eg hef
unnið við hljóðblöndun í næstum
tuttugu ár og komið að mörgum
plötum á þeim tíma.“
í annað sinn á íslandi
-Hvernig kom samstarf þitt og
Ensímis til?
„Ég býst við að þeir hafi heyrt
plötur sem ég hef unnið að og kunn-
að að meta það sem þeir heyrðu,"
segir Steve og ypptir öxlum kæru-
leysislega.
ísland er ekki með öllu framandi
fyrir Steve því í sumar kom hann
hingað með hljómsveit sinni Shellac
til að spila á lágmenningarhátíð
Reykjavíkur. Það var síðan haft
samband við mig og hugmyndin um
að vinna með Ensími viðruð.
„Ég kann vel við Reykjavík, þetta
er frábær borg. Ekki sakaði að upp
úr kafinu kom að Ensími er fyrir-
taks hljómsveit," segir Steve og
hlær. „Svo að það virtist góð hug-
mynd að koma hingað aftur.“
Steve heyrði nokkur af eldri lög-
um Ensímis áður en hann fór að
vinna með þeim en segir nýju tón-
listina að vissu leyti einfaldari en
áður. „í henni koma fram margar
hliðar á persónuleika sveitarinnar.“
Steve dvaldi hérlendis í nokkra
daga sem öllum var varið í hljóðveri
og segir miklu hafa verið áorkað.
,,Ég hafði ekki hitt strákana áður en
ég kom hingað en við vorum fljótir
að finna út hvernig best væri að
vinna vel þannig að enginn tími færi
til spillis."
Samkeppnin ekki þrúgandi
Það er mjög misjafnt í hverju
starf Steves er fólgið hverju sinni.
„Ef hljómsveit er búin að útfæra vel
þær hugmyndir sem hún hefur og
er vel æfð þá getur upptökuhlutinn
verið mjög einfaldur. Þannig hefur
þetta einmitt verið núna með
Ensími. Þannig finnst mér best að
vinna.“
-Hefurðu heyrt aðra íslenska
tónlist?
„Já, ég hef heyrt í nokkrum eldri
pönk/rokksveitum og þess vegna
var ég mjög spenntur að koma
hingað og kynnast tónlistarheimin-
um.“
-Og hvernig kemur hann þér
fyrir sjónir?
Morgunblaðið/Ásdís
Steve Albini á heimavelli í Stúdíó Sýrlandi við upptökur plötu Ensímis.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Ensími á tónleikunum í Flug-
skýli 4 síðastliðið laugardags-
kvöld, en þar voru nokkrir út-
sendarar erlendra plötuútgáfna
að kanna íslenskar sveitir.
„Mjög jákvætt. Jafnvel hljóm-
sveitir sem spila ólíka tónlist bera
virðingu hver fyrir annarri og allir
kunna að meta það sem aðrir hafa
fram að færa. Það virðist ekki ríkja
eins yfirþyrmandi samkeppni hér
og víða annars staðar. í Bandaríkj-
unum og Bretlandi er tónlist nánast
eins og stjórnmál. Fólk er alltaf að
gagnrýna hvert annað til að því líði
sjálfu betur. Þar ríkir mikill metn-
aður, ekki þó metnaður til að gera
góða tónlist, heldur vilja tónlistar-
mennimir verða vinsælii- og frægir
og tónlistin er aðeins aðferð til að
ná því marki. Það virðist ekki vera
málið héma á Islandi."
- Gæti það stafað af því að tónlist
er yfirleitt aðeins aukastarf fyrir
tónlistarmenn á Islandi?
„Ja, það gæti vissulega skipt
máli. En fyrir mér er það einmitt
eðlilega leiðin. Það er nánast
ómögulegt að framfleyta sér á tón-
listinni einni saman, hvorki hér á
landi né annars staðar. Með þeim
hætti er líka hægt að njóta tónlist-
arinnar á sama hátt og að njóta
þess að fara í veiðiferðir. Þannig
held ég að sambandið og lífíð með
tónlistinni verði farsælast.“
Neðanjarðariónlistin komin
á réttan stað
- Hefur þú orðið var við að
keppnisandi milli tónlistarmanna
hafi aukist síðustu ár?
„Mér finnst keppnisandinn hafa
minnkað í Bandaríkjunum undan-
farin ár. Á tímabilinu 1992-1997
reyndu stór útgáfufyrirtæki að
hasla sér völl í neðanjarðartónlist
og reyndu að finna tónlistarmenn
sem voru vinsælir í þeim geira og
gera þá vinsæla meðal almennra
tónlistaráheyrenda. Næstum allar
slíkar tilraunir mistókust, borguðu
sig ekki og því er þetta ekki eins
áberandi í dag. Þetta hafði vissu-
lega tmflandi áhrif á tónlistarheim-
inn en aðeins í þennan stutta tíma.
Ég varð var við þessi áhrif á marga
tónlistarmenn í kringum mig og um
tíma var það mjög óþægilegt. Núna
er neðanjarðartónlistin aftur komin
á sinn stað, meðal óháðra, smárra
útgefenda.“
- Pú vinnur aðallega fyrir lítil út-
gáfufyrirtæki?
„Venjulega vinn ég fyrir hljóm-
sveitirnar sjálfar en ef útgáfufyrir-
tæki er með í spilinu er það næstum
alltaf smátt fyrirtæki. Þá verða
tengslin milli tónlistarmanna og út-
gefanda nánari og það er vissulega
af því góða. Örsjaldan hef ég unnið
fyrir stærri fyrirtæki og yfirleitt
hefur það valdið vandræðum þó að
tónlistin geti verið mjög góð og
starfið með hljómsveitinni gefandi."
- Vinnurðu með sömu lista-
mönnunum aftur og aftur?
„Já, það gerist oft. Ég er svo
heppinn að hafa unnið með langlíf-
um hljómsveitum í gegnum tíðina.
Ef hljómsveitum reynist erfitt að
vinna saman í hljóðveri er oft gott
fyrir þær að fá mann eins og mig
inn í starfið til að auðvelda þeim líf-
ið svo að þeir geti einbeitt sér al-
gjörlega að tónlistinni."
Ferðast til áhugaverðra staða
Eftir að vinnunni með Ensími
lauk hélt Steve heim til Chicago en
næsta verkefni hans er með hol-
lenskri hljómsveit sem kallast Ces-
ars.
Steve hefur ferðast töluvert und-
anfarin ár vegna vinnu sinnar en
upp á síðkastið hefur hann aðallega
unnið í Bandaríkjunum og Kanada.
„Þegai' við í Shellac fórum í tón-
leikaferðalag reynum við alltaf að
finna áhugaverða staði til að spila á.
Þannig ferðalög kann ég að meta.“
Það er á döfinni hjá Shellac að
fara í tónleikaferð til Ástralíu og
jafnvel Nýja-Sjálands en í augna-
blikinu eru þeir að vinna að plötu
sem verður tilbúin um jólin en óvíst
er enn hvenær hún kemur í verslan-
ii'. Plata Ensímis kemur hins vegar
út fyrir aldamót og verður því vænt-
anlega vinsæl í jólapakkana í ár
enda úrvals tónlist á ferð að mati
Steves Albinis.
Óskalög landans
Söngtextar Jónasar Ámasonar
úrástkæmm leikritum.
Flytjendur: Aðalheiður Þorsteinsdóttir,
Anna Sigriður Helgadóttir, Örn Amarson.
f kvöld lau. 23/10. Kvöldverður kl. 20.
Söngskemmtun kl. 21.30
Æmntýrið
um óstina
eftir Þorvald Þorsteinsson
„...hinir fullorðnu skemmta sérjafnvei ennþá
betur en bömiri'. S.H. Mbl.
„...bráðskemmtilegt ævintýr... óvanalegt
og vandað bamaleikrit.“ LA Dagur.
..hugmyndaauðgi og kímnigáfan kemur
áhorfendum í srfellu á óvart..." S.H. Mbl.
sun. 24/10 kl. 15 örfá sæti laus
sun. 31/10 kl. 15
MIÐAPANTANIR í S. 551 9055
165 milljóna
ára dýr á
skjáinn
OFT hefur verið fundið að
vinnubrögðum svonefndra dag-
skrárstjóra sjónvarps. Þeir hafa
ekki alltaf þótt starfi sínu vaxn-
ir. Þess ber þó að gæta að vett-
vangurinn, þar sem þeir starfa,
er ákaflega hugmyndasnauður.
Helstu viðfangsefni leikinna
sjónvarpsþátta og kvikmynda í
sjónvarpi eru
tvenns konar.
Annars vegar
glæpasögur
SJÓNVARPÁ
eru
af margvíslegu tagi, sem geta
orðið ákaflega leiðigjarnar ef
oft er á þær horft, enda einfald-
ar að gerð. Hins vegar eru sög-
ur af ástum kvenna og karla,
hálf geldingslegar og frámuna-
lega leiðinlegar margar hverjar,
þar sem kari og kona eru látin
bauka saman í rúmi ef svo viðr-
ar, sem aftur leiðir til þess, að
hinir peningaóðu framleiðendur
færa sig stöðugt upp á skaftið,
uns jafnvel Alþingi íslendinga
telur sig knúið til að fjalla um
„pornóbúllur" frjálsræðisins.
Allt stafar þetta af hugmynda-
leysi framleiðenda og þeim öm-
urlega og í raun fábrotna tilvist-
arheimi, sem leikið sjónvarps-
efni sprettur úr. Bjánalegar til-
raunii' til dii'fsku á sjónvarps-
skermi stafa af ókunnugleika
ýmiskonar og þeirri bjargfóstu
trú að nauðsynlegt sé að vita
ekkert um fyrri tíð. Nokkrir há-
skólafyrirlestrar um baðstofulíf
á nítjándu öld ættu að taka úr
hinum nýju hugmyndasmiðum
mestu dirfskuna og hrollinn,
vegna þess að allt sem þeir
koma með var vitað fyrir.
Af umtalsverðu sjónvarpsefni
nýlegu má nefna þátt í ríkis-
kassanum um franska sjómenn
við íslandsstrendur í lok nítj-
ándu aldar og byrjun þeirrar
tuttugustu, sem sýndur var á
sunnudagskvöld. Þarna voru
sýndar gamlar forvitnilegar
myndir, bæði ljósmyndir og
kvikmyndir. Þetta er auðvitað
partur af sögu okkar, sem hefur
varðveist í munnmælum og
skrifuðum frásögnum, bæði hér
og í Brittany, og hefur Elín
Pálmadóttir blaðamaður eink-
um gert sér far um að halda til
haga ómetanlegum upplýsing-
um um frönsku sjómennina.
Frakkanna varð einkum vart á
Austfjörðum, en á Fáskrúðs-
firði komu þeir sér upp aðstöðu,
m.a. frönskum spítala (handan
fjarðar), sem stendur enn að
mig minnir. Franska siglingin
hingað til lands og frönsku sjó-
mennirnir efndu til vinsamlegra
samskipta við landsmenn, eink-
um á austanverðu Suðurlandi
og Austfjörðum, og Þórbergur
lýsir því, að í Suðursveit töluðu
menn, m.a. Steinn afi hans, um
„falleg strönd“ þegar duggur
var að bera upp á sandana.
Á mánudags-
kvöld sýndi Sýn
LAUGARDEGI kvikmyndina
-------------------------- Tombstone, en
það er heiti á bæ í Arizona. í
dag er hann rekinn sem túrista-
bær og er i sama horfi og hann
var fýrir meira en öld. Þar er
fræg rétt, sem stendur enn og
heitir „O.K. Corral“, þar sem
frægir byssumenn tókust á í
Irægum skotbardaga, sem
margar kvikmyndir hafa verið
gerðar um. Ég kom í þennan bæ
haustið 1982 og var leiddur um
gamlar krár og síðast í tilbúinn
kirkjugarð, þar sem margar
hetjur villta vestursins virtust
vera grafnar. Garðurinn var í
melbrekku og grafirnar merkt-
ar með steinai'öð í kringum þær,
en snyrtilegur hvítur kross stóð
upp úr hverju leiði með nafni
einhvers byssubófans. Mér var
sagt að engir bófar hvíldu í
þessum garði. Þeir væru huslað-
ir um allt „vestrið". Garðurinn
var gerður íyrir túrista sem
streymdu á staðinn.
Talið er að dinósárar hafi ver-
ið allsráðandi á jörðinni fyrir
165 milljónum ára. Með tölvu-
tækni hefur tekist að „endur-
lífga“ þessar risaskepnur í kvik-
myndum og fyrir sjónvarp. BBC
hefur nú lokið við sjónvarpsþætti
um dinosára, sem samtals tekur
eina sex klukkutíma að sýna.
Ákveðið hefur verið að búta
þetta niður í tólf hálftíma þætti.
Hugmyndin að þessum þáttum
er komin frá Spielberg, leik-
stjóra sem gerði Jurassic Park.
Þessir BBC-þættir ná þó til
miklu fleiri afbrigða en Jurassic
Park, eiginlega til allra dýra,
sem vitað er að voru til fyrir 165
milljónum ára. Sjónvarpsstöðvar
í mörgum þjóðlöndum hafa sam-
einast undir forustu BBC um
gerð þáttanna, sem nú virðist
lokið. Vonandi komast þessir
þættir að hér í sjónvarpi fyrir
fótbolta og golfi áður en langt
um líður. Þeir eru taldir til meiri
afreka en áður hafa þekkst í gerð
sjónvarpsefnis.
Indriði G. Þorsteinsson
íA[œ-tur^aíinn
Smiðjuvegi 14, ‘Kppœvofli, sími 587 6080
Dans- og skemmtistaður
í kvöld fögnum við vetri
með Hilmari Sverrissyni og
Önnu Vilhjálms
Opið frá kl. 22—3
Næturgalinn — alltaf lifandi danstónlist
fyrir fólk á öllum aldri
Tölvur og tækni á Netinu
^mbl.is