Morgunblaðið - 23.10.1999, Blaðsíða 70
0 LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Leitar Spielberg
' í smiðju
STEVEN Spielberg lýsti því yfir í
ráðstefnusal Universal-kvik-
myndaversins að hann hefði mikið
álit á dogma-reglum dönsku leik-
stjóranna Thomasar Vinterbergs
og Lars Von Triers og að hann
langaði sjálfan til að gera mynd
eftir sáttmálanum, að því er fram
kemur í nýjasta hefti Newsweek.
Fyrsta bandaríska dogma-myndin,
Julien donkey-boy, úr smiðju leik-
stjórans uppáfyndingasama Har-
mony Korine, sem gerði hina um-
töluðu Kids og Gummo, var frum-
Triers?
sýnd vestanhafs í síðustu viku og
fjallar hún um geðklofa (skoska
leikarann Ewan Bremner), yfir-
gangssaman föður (Werner
Herzog) og ófríska systur hans
(Chloe Sevigny). Þegar hafa þrjár
danskar dogma-myndir verið sýnd-
ar hérlendis, Veisian, Fávitarnir og
Síðasti söngur Mifune. Fjórða
myndin verður úr smiðju Kristians
Leverings, „The King Is Alive“.
Tökur á henni fara fram í Namibíu
og fer Jennifer Jason Leigh með
aðalhlutverk.
Úr Fávitum Triers.
Fyrsta ferðin verður vestur á Bolungarvík!
Já, ég verð bara heppnarí næst.
Þá eru allir Yaris bílarnir
komnir á götuna!
Nú höfum við hjá Happaþrennunni dregið út
þrjá Yaris í sumar. Um leið og við óskum vinnings-
höfum til hamingju með bílana sína, og öllum
heppnum Happaþrennukaupendum með aðra
vinninga, þökkum við fyrir frábærar viðtökur
í sumar.
Megi heppnin vera með ykkur!
MYNDBÖND
Rotinn kjarni
8MM______________
Spennumynd
★ ★‘/2
Leikstjóri: Joel Schumacher. Hand-
rit: Andrcw Kevin Walker. Kvik-
myndataka: Kobcrt Elswit. Aðalhlut-
verk: Nicolas Cage og Joaquin
Phoenix. (123 mín.) Skífan, október
1999. Bönnuð innan 16 ára.
í FIRRTU nútímasamfélagi þar
sem kynlíf og ofbeldi eru hversdags-
leg söluvara, er ef til vill aðeins eitt
efiii sem enn er for-
boðið en það er
„snuff“ myndin, kvik-
mynd þar sem raun-
verulegt morð er fest
á filmu. I kvikmynd-
inni 8MM er þetta
viðfangsefni tekið fyr-
ir. Joel Schumacher,
leikstjóri myndarinn-
ar, gerir sér vel grein fyrir áhrifa-
mætti hugmyndarinnar um tilveru
slíkra kvikmynda og sveipar það
dulúð með því að leiða áhorfandann í
gegnum undirheima bandaríska klám-
iðnaðarins áður en komist er að rotn-
um kjamanum. Nicolas Cage er
traustur að vanda i hlutverki spæjar-
ans sem smám saman tapar áttum á
ferð sinni um myrkviði stórborgarinn-
ar en Joaquin Phoenix stelur þó sen-
unni í hlutverki menningarlegs klám-
búllustarfsmanns. I síðari hluta
myndarinnar fer þó að halla undan
fæti fyrir frásögninni og í lokin fær
hástemmd merkingarleit söguhetj-
unnar heldur ódýr svör.
Heiða Jóhannsdóttir
Fyrsti æsi-
fréttablaða-
maðurinn
Winchell
(Winchell)_________________
Drama
★★★
Framleiðandi: Stan Wlodkowski.
Leikstjóri: Paul Mazursky. Handrits-
höfundur: Scott Abbott. Kvikmynda-
taka: Robbie Greenberg. Tónlist: Bill
Conti. Aðalhlutverk: Stanley Tucci,
Glenne Headley, Paul Giamati,
Christopher Plummer, Xander
Berkeley. (103 mín.) Bandarikin.
Bergvík, 1999. Myndin er bönnuð
innan 12 ára.
Blaða- og útvarpsmaðurinn Winchell
er umijöllunarefni þessarar myndar,
en það má segja að hann hafi verið
fyrsti æsifréttamaður
sögunnar. Hann lét
aldrei segja sér fyrir
verkum og hikaði ekki
við að tjá skoðanir sín-
ar á prenti eða í ræðu.
Einnig er lauslega
farið í einkalíf
Winchels, sem virðist
hafa verið nijög kven-
samt og glysgjarnt.
Stanley Tucci, sem er einn fremsti
leikari Bandaríkjanna í dag, fékk Em-
my-verðlaunin fyrir túlkun sína á hin-
um málglaða blaðamanni. Tucci sýnir
gífurlegan kraft og öryggi og er mynd-
in þess virði að horfa á út af honum
einum. Leikstjórinn Paul Mazursky
gerði margar áhrifamiklar myndir á 8.
og 9. áratugnum og hann sýnir að hann
hefur engu gleymt. Þetta er góð mynd
sem gefur einfalda en kröftuga mynd
af einum áhrifamesta blaðamanni ald-
arinnar.
Ottó Geir Borg
GÓLFEFNABÚÐIN
Mikið úrval
fallegra flísa
Borgartún 33 • RVK
Laufásgata 9 • AK