Morgunblaðið - 23.10.1999, Síða 72

Morgunblaðið - 23.10.1999, Síða 72
. 472 LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ r. t HÁSKÓLABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ Miskannarlauslr Blygðunarlausir Kfækjóttir NOTTING HILL Sýnd kl. 11. ALLT UM MÓÐUR MÍNA Hagatorgi, simí 530 1919 Bandaríski Ijósmyndarinn Nan Goldin flytur uerkið The Ballad of Sexual Dependency í sal 2. Verkið hefur vakið heimsathygli og verið sýnt á mörgum helstu iistasöfnum og listahátiðum í Evrópu og Bandaríkj- unum. Hér er um stórviðburð að ræða sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Aðeins þessar tvær sýningar. Stórmynd byggð á sögu Halldórs Laxness rXCl'RllN GÓÐA 0(;HÚSIÐ mvÆi mmBn msáSk BÍÓHÖIL FYRIR 990 PUNKTA FRRDUÍBÍÓ Alfabakka 8, simi 587 8900 og 587 8905 Sýnd kl. 2.50, 5 og 7. ís. talJHXDQinL IUJ(( w I l II 5 ★ ★★ 1/2 OFE Hausverkur i \ w ?1 F ★ ★★ ★★★l/2 Rás 2 Kvikmyndir.is ★ ★★★ ★★★ ay-T' Mbl Dv Thc VVn 5CH5C ' $->«TTA JnL-ldCARVITM Kl. 4.40, 6.45, 9 og 11.15. b.i. te. BMDiGnAL IVSbi •Igjan 1/2 Kvlkmyndlf.is msont- t Kl. 2.30. ii'l? Synd kl. 3, 5,7, 9 og 11. IDY KI.3, 5, 7,9 og 11. Kl. 3, 5,7, 9 og 11. B. i. 10. Sýnd kl. 9 og 11.20. Síö. sýn. www.samfilm.is Danshátíð Dansskóla Jóns Péturs og Köru Helguðu líf sitt dansinum Marcus og Karen Hilton unnu sinn fyrsta heimsmeistaratitil í samkvæmisdönsum er þau voru 21 árs. Síðan þá hafa þau bætt fímmtán í safnið og eru eitt eftirsóttasta danspar heimsins í dag. AFMÆLISHÁTÍÐ Dansskóla Jóns Péturs og Köru er hald- in í LaugardalshöEinni í dag og verða Marcus og Karen Hilton sérlegir gestir hátíðarinnar. - Þið tUkynntuð í vor að þið væruð hætt að keppa í dansi, hvað kom til? „Við vorum komin með nóg,“ seg- ir Marcus og lítur hlæjandi á Karen. „Við fórum að hugsa um það fyrir tveimur árum, þá fannst okkur við hafa náð þeim árangri sem við ætluðum okkur,“ bætir hann við. Karen segir þau hafa slegið heims- met með titlunum sextán og ákveðið að láta þar við sitja. „Þá fannst okk- ur tími til komin að leggja keppnis- skóna á hilluna." Lífsins dans - Þegar þið lítið yfir ferilinn sem spannar orðið tvo áratugi, eruð þið sátt? „Já, alveg tvímælalaust,“ svara þáu brosandi samtímis. „Dansinn var aðeins áhugamál hjá okkur í fyrstu en varð síðan stærri hluti af lífi okkar en við hefðum nokkum tímann geta ímyndað okkur,“ segir ★ Karen. „Þetta hefur verið yndisleg- ur tími, nánast eins og draumur.“ Marcus segir að við upphaf ferils- ins hafi þau náð mjög góðum ár- angri en einnig þurft að láta í minni pokann og það hafi styrkt þau mik- ið. „Það er dýrmæt reynsla að læra að tapa,“ segir Karen. „Maður kann ■fcbetur að meta sigrana þegar maður **hefur tapað áður.“ - Kynnust þið í dansinum? Já, við þekktumst áður en við urðum dansfélagar,“ segir Karen. „Þegar við vorum unglingar vorum við keppnautar. Það var ekki fyrr en síðar að við fórum að dansa sam- an.“ Það er augljóst að Marcus og Karen em góðir félagar enda segja þau það algert lykilatriði. „Þegar við erum ein rífumst við eins og hundur og köttur," segir Marcus í gríni. „En í alvöru talað þá eyðum við svo mikl- um tíma saman að við gætum þetta ekki nema að vera bestu vinir.“ Karen tekur undir það. „Við erum saman á eilífum ferðalögum, ekki að- eins á dansgólfinu. Við gætum ekki dansað saman ef okkur kæmi illa saman, það gengi engan veginn upp.“ - Hafíð þið aldrei fundið til leiða og langað til að hætta að dansa? „Nei, og þess vegna ákváðum við að hætta að keppa á þessum tíma- punkti,“ segir Karen. „Meðan við erum enn full af keppnisskapi og höfum gaman af þessu.“ Tími til að hugsa um aðra - Eg heyri að þið eruð mjög sátt viðþessa ákvörðun? „Já, nú getum við slakað aðeins á,“ segir Marcus. „Þegar maður er alltaf að keppa verður maður að reyna stöðugt að bæta sig og það getur verið taugastrekkjandi að ná öllu rétt fyrir hverja keppni. Við er- um mjög sátt við þessa ákvörðun, sjáum ekki eftir því.“ Morgunblaðið/Jón Svavarsson Heimsmeistaramir Marcus og Karen Hilton dansa í Laugardalshöllinni í dag. - En þið munuð halda áfram að dansa ogsýna dans? „Svo sannarlega," segir Marcus og Karen kinkar kolli því til sam- þykkis. „Við erum sennilega upp- teknari núna en nokkru sinni." Karen segir að þegar þau hafi verið að keppa hafi þau varið miklum tíma í æfingar fyrir stórar keppnir. „Þá vorum við svolítið sjálfselsk og hugsuðum aðeins um það sem við vorum að gera og hvernig við gæt- um bætt okkur. Núna höfum við meiri tíma til að hugsa um aðra, ferðast og kenna.“ Karen og Marcus byrjuðu bæði að æfa dans mjög ung og segja það nauðsynlegt til að ná góðum árangri. „Eg byrjaði að æfa ballett þegar ég var fjögurra ára,“ segir Karen. „En Marcus byrjaði ekki fyrr en átta ára og þess vegna er ég betri en hann,“ bætir hún við stríðnislega. - Þið hafíð ferðast mjög víða vegna dansins. „Heldur betur,“ segja þau bæði brosandi. „Og við höfum mjög gam- an af því, okkur finnst gaman að vera saman,“ segir Marcus. „Það er einmitt eitt af því sem gerir dans- inn heillandi, það eru ferðalögin," segir Karen. „Við höfum verið svo heppin að geta valið hvert við för- um.“ - Hafíð þið farið á einhvern sér- staklega framandi og eftirminnileg- an stað? „Við fórum t.d. til Zimbabwe og sýndum í höfuðborginni," segir Marcus. „Það var skemmtileg reynsla og dansai-arnir í keppninni deildu t.d. fötum. Svo þegar kom að úrslitunum var rifist um hver mætti vera í hvaða jakka!“ Valsinn skemmtilegastur - Hver erykkar eftirlætisdans? „Ætli það sé ekki valsinn," segir Marcus. „Tónlistin er mjög skemmtileg og þetta er alltaf fyrsti dansinn sem keppt er í og þess vegna er mikilvægt að hann sé góð- ur.“ Karen er sammála manni sín- um. „Við erum líklegast þekktust fyrir að dansa kvikk-stepp en ég held mest upp á valsinn." -Eruð þið með einhver sérstök ráð fyrir unga dansara í dag? „Það er þrennt sem góður dans- ari þarf að hafa í huga: Agi, festa og að gefa sig allan í dansinn," segir Marcus. „Dansari verður stöðugt að vilja bæta sig, vera agaður til að það sem hann geri líti vel út og vilja sigra af öllu hjarta.“ Karen segir æfinguna skapa meistarann. „En fyrst og fremst verður dansari að hafa gaman af því sem hann er að gera. Hvort sem hann er að keppa eða ekki er ánægjan aðalatriðið. Við höfum yndi af dansinum og höfum helgað líf okkar honum. Hann hefur líka gefið okkur mjög mikið og það er það sem skiptir máli.“ Það bíða eflaust margir dansunn- endur spenntir eftir að sjá þau Marcus og Karen líða um gólfið í Laugardalshöllinni og fyrir þá sem ekki komast á staðinn er hægt að fyigjast með danshátíðinni á sjón- varpsstöðinni Sýn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.