Morgunblaðið - 09.12.1999, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Umferðar-
ljósin þrifin
JÓLALJÓSIN lýsa upp skammdeg-
ið á aðventunni en umferðarljósin
vísa vegfarendum til vegar aílan
ársins hring. Borgarstarfsmenn líta
eftir vitunum og passa að það logi á
perunni.
Salmonell-
usýking'
í rénun
SALMONELLUSÝKING á Bjólu I
í Rangárvallasýslu er í rénun. Á bæ
í næsta hreppi greindist þó nýlega
salmonellusýking í tveimur hrossum
og einni kind, sem höfð var í sama
húsi.
Annar hesturinn hefur nú drepist
úr sýkingunni en ekki eru talin
tengsl milli þessara tilfella, að því er
segir í fréttatilkynningu frá emb-
ætti yfirdýralæknis. Salmonellusýk-
ing greindist á Bjólu í lok nóvember.
Sextán kýr og nokkrir ungkálfar
hafa drepist í kjölfarið og segir Sig-
urður Sigurðarson, dýralæknir á
Keldum, að talið sé að ástandið á
Bjólu sé nú að færast í eðlilegt horf.
Sjúkdómseinkenni séu ekki lengur
áberandi, kýrnar á batavegi og
flestar farnar að éta eðlilega.
Morgunblaðið/Kristinn
Félag um hótel á Seyðis-
firði stofnað á morgun
BYGGÐASTOFNUN hefur veitt
Seyðfirðingum vilyrði fyrir 100 millj-
óna króna láni vegna fyrirhugaðrar
byggingar 36 herbergja 1.400 fer-
metra hótels í bænum. Á morgun
verður haldinn stofnfundur hlutafé-
lags um byggingu og rekstur hótels-
ins og tekur hlutafélagið við störfum
undirbúningshóps, sem unnið hefur
að málinu undanfarið.
Ólafur H. Sigurðsson, bæjarstjóri
á Seyðisfirði, á sæti í undirbúnings-
hópnum og hann sagði í samtali við
Morgunblaðið að undirbúningshóp-
urinn hefði gengist fyrir samkeppni
tveggja arkitekta um hönnun og yrði
afstaða tekin til teikninga á fundin-
um á morgun, auk þess sem það
kæmi til kasta hins nýja félags að
annast um hlutafjárútboð og sækja
um einhverja þeirra þriggja lóða
sem helst koma til greina í bænum.
Seyðisfjarðarbær hefur lagt 2,5
m.kr. í undirbúningskostnað vegna
málsins, með skilyrði um að því fé
yrði breytt í hlutafé ef af stofnun fé-
lags verður. Ólafur sagði engar aðr-
ar ákvarðanir teknar um hlutafjár-
framlög af hálfu bæjarins en hlutafé
verður safnað meðal bæjarbúa og
aðila utan bæjarins. Hótelkeðjur
koma ekki að málinu á þessu stigi, en
til þeirra kann að verða leitað á síð-
ari stigum.
17.000 ferðamenn á ári
Áætlaður byggingarkostnaður er
170-180 milljónir króna. Auk lánslof-
orðsins frá Byggðastofnun er hug-
myndin að fjármagna framkvæmdir
með hlutafé. Verið er að vinna að við-
skiptaáætlun vegna rekstrarins.
Áformað er að hótelið verði risið í
maí 2001.
Spurður um ástæður þess að
Seyðfirðingar vilja byggja hótel
sagði Ólafur að gistiaðstaða í bænum
væri af skornum skammti og gamal-
dags. Mikill straumur ferðamanna
er til bæjarins, fyrst og fremst í
tengslum við rekstur ferjunnar Nor-
rænu. „Hingað koma 17.000 ferða-
menn á ári,“ sagði Ólafur, „og á mið-
vikudögum, daginn fyrir ferjudag,
eru öll gistirými, sem hægt er að
nýta, troðfull. Ef ekki er hægt að
reka hótel hér þá veit ég ekki hvar
það er hægt.“
Auk 36 herbergja er áformað að í
hótelinu verði veitingasalur og bar
en ekki verður lögð áhersla á fundar-
sali. „Við erum mjög vel sett með
fundarsali í félagsheimilinu," sagði
Ólafur.
Talið er að hótelið muni skapa
a.m.k. 6-8 störf yfir sumarmánuðina.
Einnig er litið til þess að yfir vetrar-
mánuðina megi nýta hótelið ef til
þess kemur að rýma þurfi hús í bæn-
um vegna snjóflóðahættu, sem sjald-
an hefur gerst á Seyðisfirði, og gera
rýminguna þannig léttbærari.
Ólafur sagði vonir standa til að
með hótelinu kæmist Seyðisfjörður á
kortið hvað varðaði ráðstefnumark-
aðinn, ekki síður en Egilsstaðir,
enda ekki nema 20 mínútna akstur á
Egilsstaðaflugvöll. Þá muni bærinn
njóta góðs af markaðssetningu Eg-
ilsstaðaflugvallar sem millilanda-
flugvallar en nýstofnað félag vinnur
nú að því verkefni.
Þúsund umsóknir vegna 204 íbúða í Grafarholti
Hæstu tilboð meira en
þrefalt lágmarksboð
HÆSTU tilboð í byggingarrétt á
lóðum í nýju íbúahverfi í Grafarholti
eru meira en þrefalt það lágmarks-
verð, sem upp var gefið í útboði.
Frestur til að sækja um og bjóða í
byggingarrétt rann út á þriðjudag. í
fyrsta úthlutunaráfanga var um að
ræða mismunandi húsagerðir með
samtals 204 íbúðum. Þá bárust 475
umsóknir um 21 einbýlishúsalóð en
eftir er að yfirfara þær umsóknir.
Hins vegar liggja fyrir upplýsing-
ar um tilboð í aðrar húsagerðir en
einbýlishús. Tilboð í byggingarrétt
28 húsa í Grafarholti voru opnuð 7.
desember á skrifstofu borgarverk-
fræðings að viðstöddum bjóðendum.
Boðið var í byggingarrétt 111
íbúða í fjölbýlishúsum, 32 íbúða í
raðhúsum, 12 íbúða í keðjuhúsum og
28 íbúða í tvíbýlishúsum. Samtals
bárust 533 tilboð í þennan bygging-
arrétt.
í byggingarrétt 30 íbúða í fjölbýli
við Maríubaug 125-143 bárust 25 til-
boð. Lágmarksboð samkvæmt skil-
málum var 15,9 milljónir króna.
Hæsta boð sem barst var 46,9 millj-
ónir króna, 295% af lágmarksverði.
Tilboðið var frá Guðleifi Sigurðssyni
byggingarmeistara.
25 tilboð bárust í 15 íbúðir í fjöl-
býli við Kristnibraut 14-22. Lág-
marksboð var 7,95 milljónir en
hæsta tilboð var 22,8 milljónir króna,
eða 287% af lágmarkstilboði og var
einnig frá Guðleifi Sigurðssyni.
115 íbúðir í fjölbýli við Maríubaug
87-93 bauð Viðar J. Scheving 27,15
milljónir króna, sem er 342% af
lágmarkstilboði en það var 7,950
m.kr.
í 6 raðhús við Ólafsgeisla 1-11 var
lágmarksboð 9,9 milljónir króna.
Hæsta boð sem barst hljóðaði upp á
20,2 milljónir króna, eða 204% af
lágmarkstilboði. Tilboðið átti Járn-
bending ehf.
Viðar J. Scheving bauð 25,65 millj-
ónir króna í fimm keðjuhúsaíbúðir
við Maríubaug 115-123. Lágmarks-
boð var 7,95 milljónir og var þetta
hæsta boð því 323% af lágmarksboði.
Eftir er að yfirfara umsóknir um
einbýlishúsalóðir en 475 umsóknir
bárust um 21 einbýlishúsalóð. Að
lokinni yfirferð verður dregið úr til-
boðum að viðstöddum fulltrúa sýslu-
manns og fá þeir, sem eiga tilboð
sem dregin verða út, svokallað val-
númer. Verður þeim tilkynnt um það
og fá þeir að velja sér lóð í þeirri röð,
sem valnúmer þeirra segir til um.
Val lóða fer fram miðvikudaginn 16.
desember 1999 kl. 16:00 á 5. hæð í
Skúlatúni 2.
Valréttur fellur niður mæti þeir
sem fá valnúmer eða umboðsmenn
þeirra ekki við það tækifæri.
Næsti úthlutunaráfangi í Grafar-
holti verður boðinn í janúar nk. og
verður það auglýst nánar síðar.
Þá kemur ný ferja í gagnið árið
2002 sem leysir Norrænu af hólmi.
Sú verður 30.000 lestir og fremur
skemmtiferðaskip en ferja.
------♦ ♦ ♦---
Formaður bankaráðs
Islandsbanka
Forysta um
að viðræður
komist af
stað
KRISTJÁN Ragnarsson, formaður
bankaráðs íslandsbanka, segir mis-
skilnings gæta þegar rætt sé um að
Islandsbanki verði í forystu komi til
sameiningar íslandsbanka og
Landsbanka Islands. „Ég hef talað
um að íslandsbanki hefði forystu um
að þessar viðræður kæmust af stað.
Að sjálfsögðu mæta menn til slíkra
viðræðna á jafnréttisgrundvelli. Við
munum aldrei ákveða eitthvað fyrir
Landsbankann. Það gerir Lands-
bankinn sjálfur vegna þess að hann
sér sínum hag betur borgið í sam-
starfi við íslandsbanka. Mér finnst
ummæli Finns Ingólfssonar í Morg-
unblaðinu þó benda til þess að vilji sé
til þess að slíkar viðræður fari fram.
Það er þá í fyrsta skipti sem það
kemur beint fram að það verði látið á
það reyna að sameina þessa tvo
banka sem yrði eigendum þeirra og
viðskiptavinum til mikils hags og
framþróunar í íslensku bankakerfi,"
segir Kristján.
-♦ ♦ ♦
Slysi ekki
afstýrt
RÚMLEGA tvítug kona var sýknuð
í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær af
ákæru fyrir hegningar- og umferð-
arlagabrot með þvi að hafa ekið bif-
reið of hratt og án nægjanlegrar að-
gæslu við slæm veður- og akst-
ursskilyrði vestan við Litlu kaffi-
stofuna í febrúar með þeim af-
leiðingum að hún ók aftan á
kyrrstæða bifreið sem kastaðist á
aðra kyrrstæða bifreið. Ökumaður
þeirrar bifreiðar varð á milli bifreið-
anna og slasaðist mikið.
I niðurstöðu dómsins kom fram að
við það yrði að miða við að ákærða
hafi ekki haft tök á því að afstýra
slysinu með því að beygja fram hjá
bifreiðinni sem hún ók aftan á.
Ekki þótti dóminum sannað að
ákærða hefði ekið bifreiðinni án
nægjanlegrar aðgæslu og of hratt
miðað við þær aðstæður sem voru
fyrir hendi, en ákærða sagðist hafa
ekið á 70 km hraða á klukkustund
áður en hún ók inn í hríðarbyl þar
sem bifreiðirnar voru kyrrstæðar á
veginum.
Sérblöð í dag
11^ 3!»»
Viðskiptablað
Morgunblaðsins
Sérblað um viðskipti/atvinnulíf
Með Morg-
unblaðinu í
dag fylgir
tímarit
íþrótta og
ólympíusam-
bands ís-
lands,
íþróttablaðið
Kristín Rós og Geir íþróttamenn
ársins hjá fötluðum / B1
Titilvörn hjá Erni Arnarsyni á EM
í sundi í Lissabon / B3