Morgunblaðið - 09.12.1999, Blaðsíða 66
66 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fynrlestur um þjóð-
sögur fyrr og nú
SÆNSKI þjóðháttafræðingurínn og
rithöfundurinn Bengt af Klintberg
heldur fyrirlestur í Norræna húsinu
í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.30
sem nefnist „Folksagner förr och
nu“ - þjóðsögur fyrr og nú og er
fluttur á sænsku.
í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Orðið þjóðsögur er alþýðuheiti á
þeim munnlegu frásögnum sem
sagðar eru þannig að hlustandinn
eigi að trúa því að þeir atburðir, sem
þar er lýst, hafi í raun gerst. Stund-
um byggjast sagnirnar á raunveru-
legum atburðum en oftast er um
hreinan skáldskap að ræða.“
Bengt af Klintberg er sænskur
þjóðháttafræðingur og rithöfundur
sem gefið hefur út um þrjátíu bæk-
ur. Flestar fjalla þær um alþýðu-
skáldskap en hann hefur einnig gef-
ið út ljóðabækur og barnabækur.
Kunnastur er hann þó fyrir þjóð-
sagnasöfn sín frá okkar tímum,
„Ráttan i pizzan“ („Rottan í píts-
unni“) (1986) og „Den stulna njur-
en“ („Stolna nýrað“) (1994).
Fyrirlesturinn í Norræna húsinu
er á vegum Konunglegu Gústav
Adólfs akademíunnar í Uppsölum
og er hinn þriðji í röð fyrirlestra á
þessu hausti. Bengt af Klintberg er
félagi í akademíunni. Aðgangur er
ókeypis.
Forseti alþjóðaráðs
Rauða krossins í heimsókn
CORNELIO Sommaruga, forseti
alþjóðaráðs Rauða krossins, kemur
í opinbera heimsókn til íslands á
morgun og laugardág í boði Hall-
dórs AsgrímSsönar, utanríkisráð-
herra og Rauða kross ísíands. Til-'
efni heimsóknarinnar er .75 ára
afmæli Rauða kross íslands og sér-
stakt málþing helgað alþjóðlegum
mannúðarmálum sem haldið verð-
ur af því tilefni.
Forseti alþjóðaráðs Rauða
krossins mun meðal annars verða
heiðursgestur í hádegisverðarboði
Halldórs Ásgrímssonar, utanríkis-
ráðherra og eiga fundi með Davíð
Oddssyni, forsætisráðherra og Ól-
afi Ragnari Grímssyni, forseta ís-
lands. Hann mun jafnframt taka
þátt í sérstakri afmælisdagskrá
Rauða kross Islands, á morgun,
föstudag.
Cornelio Sommaruga, forseti al-
þjóðaráðs Rauða krossins, verður
ásamt George Weber, aðalfram-
kvæmdastjóra alþjóðasambands
félaga Rauða krossins og Rauða
hálfmánans, frummælandi á mál-
þingi helguðu alþjóðlegum mann-
úðarmálum, „Role of Humanitarian
Organizations in the World Today
and the Main Challenges Ahead“.
Málþingið verður haldið í stofu
101 í Odda í Háskóla íslands kl.
12:00 á morgun,10. desember 1999.
Fer það fram á ensku og er öllum
opið. Málþingið er skipulagt af
Rauða krossi Islands, utanríkisráð-
uneytipu og alþjóðastofnun Há-
skóla íslands.
Flækjufrítt
kasthiól!
jólapakkann
Auðveldari og skemmtilegri veiði
Hugsaðu þér veiði án þess að línan flækist á veiðihjólinul
ABU-Garcia kynnir nýja Ambassadeur 5600AB, fyrsta
flækjufría kasthjólið í heiminum. í kasti stjórnar stýrikerfi
keflinu og kemur í veg fyrir yfirspólun sem valdið getur
flækjum á línu.
Ambassadeur 5600AB er ótrúlega einfalt í meðförum og
gagnast því bæði byrjendum og reyndum veiðimönnum
sem gera kröfur um vönduð tæki. Viljir þú njóta góðra
stunda víð ár eða vötn án skaprauna af hvimleiðum
flækjum þá er Ambassadeur 5600AB rétta veiðihjólið.
Myndbandsspóla með íslenskum texta fylgir hverju hjóli.
Á spólunni eru sýndir helstu kostir hjólsins.
Ambassadeur 5600AB fæst
í öllum helstu veiðivöru-
verslunum landsins.
Viðgerðamóttaka á ABU-Garcia
veiðihjólum er í Útilífi og Vestur-
röst
: ■
Thumbr, U|i
Mtauam Mh WiWt im
hístHíítíeHtrt
ÆsAbu
Garcia
for life. _
Veiðimaðurinn
Upplýsingasími Veiðimannsins
GRÆN LÍNA
Athugið!
Ambassadeur 6600 AB
er komið til landsins.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Frumlegasta
bónorðið á mbl.is
Á DÖGUNUM stóðu Morgunblaðið
á Netinu, Sambíóin, Japis, Hard
Rock, Intersport, Labello, BT og
FM 95,7 fyrir leik á mbl.is í tilefni
frumsýningar á grínmyndinni
Strokubrúðurin (Runaway Bride).
Leikurinn gekk út á það að senda
inn frumlegt bónorð og svara létt-
um spurningum úr kvikmyndinni.
Veglegir vinningar voru í boði
en auk miða á myndina áttu vinn-
ingshafar möguleika á að vinna
8.000 kr. úttekt hjá Intersport,
máltíð frá Hard Rock og vara-
salva frá Labello.
HEILSURÆKTARSTÖÐIN
Hreyfing mun í samvinnu við
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og
Opin kerfi hf. standa að jólagjafa-
söfnun nú í desember. Mæðrastyrks-
nefnd mun sjá um að koma gjöfunum
til íslenskra barna sem koma frá
heimilum þar sem þröngt er í búi.
Að sögn Ásgerðar Jónu Flosadótt-
ur, formanns mæðrastyrksnefndar,
er bágt ástandið á mörgum íslensk-
um heimilum fyrir jólin og slík jóla-
gjafasöfnun kærkomin til að gleðja
litlar sálir um jólin.
Viðskiptavinir Hreyfingar eru
hvatth' til að fara snemma í jólaskap
Bókin
MIKILVÆGUSTU
TUNGUMÁL JARÐAR
svarar:
Hvað eru margar kvikmyndir
gerðar í Bandaríkjunum?
www.tunga.is
Stóru vinningana unnu Matt-
hías Már Ölafsson (t.v.), sem vann
myndavél frá BT, miða fyrir tvo á
Runaway Bride og Runaway-
tösku. Fyrir miðju á myndinni af-
hendir Hendrikka Wagee markað-
sstjóri Japis, Fjólu Karlsdóttur
Sony ferðatæki með geislaspilara
frá Japis, miða fyrir tvo á Runa-
way Bride, Runaway Bride-hring,
peysu og fjórar tegundir af Label-
lo. Öllum vinningshöfum hefur
verið sendur tölvupóstur og vilja
aðstandendur leiksins óska þeim
hjartanlega til hamingju.
og kaupa htla gjöf fyrii' 800-1.000
kr., pakka henni inn í jólapappír og
merkja hana stelpu eða strák og fyr-
ii' hvaða aldur gjöfin er. Gjöfunum er
safnað undir stórt jólatré í Hreyf-
ingu og 17. des., þegar söfnuninni
lýkur, verða gjafirnar afhentar
mæðrastyi'ksnefnd sem mun sjá um
að afhenda gjafirnar.
Allir sem koma með gjöf í söfnun-
ina fá afhentan happdrættismiða og
23. des verður dregið í happdrættinu
og er vinningurinn glæsileg Intel
Pentium PIII450 mhz tölva með öllu
því nýjasta frá Opnum kerfum.
Dilbert á Netinu
yi^mbl.is
_ALL.TAF eiTTHVAÐ NÝTT
Yerðlaun
veitt í
gestaþraut
DREGIÐ hefur verið í gestaþraut
Hrafnseyrar sem lögð var fyrir gesti
staðarins sumarið 1999, en það hefur
tíðkast undanfarin sumur að leggja
nokkrar spurningar á léttum nótum
fyrir gesti í safni Jóns Sigurðssonar
um líf hans og starf, við almenna
ánægju safngesta.
Um 3.000 manns leystu gesta-
þrautina og fá 50 heppnir þátttak-
endur senda heim bókina Jón Sig-
urðsson, ævisaga í hnotskurn, og er
það Hrafnseyrarnefnd sem veitir
þau verðlaun.
Jón Sigurðsson hefur nú verið
kjörinn Islendingur árþúsundsins,
eins og það er kallað, í skoðanakönn-
un Bylgjunnar, DV, Dags og Vísis.
Ástæða er til að benda þeim sem
áhuga hafa á að kynna sér sögu hins
ástsæla Vestfirðings á Heimasíðu
hans á Netinu. Er þar fjallað í sam-
þjöppuðu formi um æviferil hans.
Nægjanlegt er að slá inn orðin Jón
Sigurðsson á öllum helstu leitarvél-
um og þá fá menn upp síðu hans á
skjáinn hjá sér.
♦ ♦ ♦
Jólahand-
verksmark-
aður í Gull-
smáranum
GLEÐIGJAFARNIR koma saman í
Félagsheimilinu Gullsmára 13 föstu-
daginn 10. desember kl. 14 og syngja
fullum hálsi sem þeiiTa er vandi. Síð-
an liggur leiðin á Jólahandverksmar-
kaðinn á sama stað.
Par verður boðið upp á margt
góðra handunninna muna, prjónles,
heklaða og saumaða muni, silfur- og
glermuni. Sem og fjölmargt sem
heyrir til jólum: jólakúlur, jólakort,
jólaengla og fleira Og ekki má
gleyma að minna á glæsilegar kökur,
smákökur, randalínur og tertur, seg-
ir í fréttatilkynningu.
Ennfremur verður á boðstólum
aðventu-kaffihlaðborð ásamt heitu
súkkulaði og þeyttum rjóma.
Félagsmiðstöðin er opin fyrir
þessar uppákomur frá kl. 13-18.
—»-».............
Jólahlaðborð á
Kringlukránni
BOÐIÐ er upp á jólahlaðborð á
Kringlukránni föstudaga og laugar-
daga, í hádeginu kl. 12-15 og á kvöld-
inkl. 18-21.
Guitar Islancio leika fyrir matar-
gesti um kvöldið en sveitina skipa
gítarleikararnir Björn Thoroddsen,
Gunnai- Þórðarson og Jón Rafnsson
en þeir leika alhliða gítartónlist, allt
frá gömlum íslenskum þjóðlögum til
nýrra frumsamdra verka.
Jólagjafasöfnun
Hreyfingar
Sófar • stólar
Svefnsófi Fedra 182.000,- kr.
höfðatúni 12 105 reykjavík
sími 552 6200 552 5757
nus
gogn