Morgunblaðið - 09.12.1999, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 09.12.1999, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Kjarna Pverholti 2, 5. hæð, 270 Mosfellsbæ, Ástríður Grímsdóttir hdl., lögg. fasteignasali, oorbjörg I. Jónsdóttir hdl., lögg. fasteignasali. Sími 586 8080, símbréf 566 8532. Netfang: kjarni@mmedia.is http://www.habii.is/fastmos/ HJALLAHLÍÐ - 4RA HERB. ALLT SÉR - GLÆSILEG ÍBÚÐ. Mjög falleg 4ra herb. 94,4 fm íbúð á 2. hæð með sérinngangi. íbúðin skiptist í forstofu með flísum á gólfi, tvö bamaherbergi með skápum og dúk á gólfum, gott hjónaherbergi með dúk og miklum Skápum. Flísalagt Baðherbergi í hólf og gólf, með inngangi í þvottahús. Lítið vinnuherbergi. Góð stofa og eldhús. Góð teppi á gangi og stofu en flísar á eldhúsgólfi. Köld útigeymsla og geymsluris yfir íbúðinni. Mjög falleg íbúð. Áhv. 5,4 m. V. 9,6 m. MARKHOLT - 4-5 HERB. ALLT SÉR, ALLT NÝTT - MIKIÐ FYRIR LÍTIÐ. 4-5 herb íbúð á 1. hæð , fjórbýli, 144 fm. (búðin er öll endurnýjuð, nýjar innréttingar, nýir gluggar og gler, nýtt baðherbergi, nýtt á gólfum. Sérgarður og -bílastæði. Falleg íbúð sem gefur mikla möguleika. Ekkert greiðslumat. Áhv. 6,0 m. V. 10,9 m. (1103) BYGGÐARHOLT - RAÐHÚS - BÍLSKÚR. EIGN SEM BEÐIÐ HEFUR VERIÐ EFTIR. 143 fm endaraðhús ásamt 33 fm bílskúr. Húsið skiptist í góða forstofu, gestawc, sjónvarpshol, eldhús með þvottahúsi innaf, fjögur svefnherbergi, baðherb., stóra stofu, sauna og sturtuklefa. Húsinu er sérlega vel við haldið að utan sem innan. Húsið stendur í lokuðum botnlanga. Góð ræktuð lóð. Stutt í alla þjónustu, íþróttahús, skóla, hesthús, verslanir o.fl. Áhv. 2,5 m. V. 15,2 m. Bjargvætturinn iðjulausi KVIKMYNDIR llcgnboginn ANIDEAL HUSBAND ★ ★1/2 Leikstjórn: Oliver Parker. Handrit: Oliver Parker eftir leikriti Oscars Wilde. Aðalhlutverk: Rupert Ever- ett, Cate Blanchett, Jeremy Nort- ham, Minnie Driver og Julianne Moore. Icon Productions 1999. ÁRIÐ er 1895 og borgin er Lon- don. Samkvæmislíf heldra fólksins er í blóma; allir í leit að hentugum maka, allir gefa sig út fyrir að vera siðferðið uppmálað. Nema herra Arthur Goring. Hann er siðlaus iðjuleysingi, og viðurkennir það, og af einhverjum ástæðum hrífst fólk af þessari hreinskilni og treystir honum. Þegar fégráðug frú Cheveley mætir á staðinn og hótar alþingismanninum Sir Róberti, fyr- irmynd annarra ungra manna, öllu illu, lendir Arthur í hlutverki bjargvættar mitt í hringiðu lyga, yfirhylminga, misskilnings og ör- væntingar, þar sem ástin er samt aldrei langt undan. Þessi grá- glettna mynd, sem byggð er á leikriti Oscars Wilde, lýsir á skemmtilegan hátt þeim neyðar- legu aðstæðum sem oft skapast af þeim einum orsökum að fólk má ekki vera það sjálft í þessu sam- ansaumaða samfélagi. Margt er býsna skemmtilegt, eins og pers- ónurnar sem eru vel skrifaðar og líflegar. Samtölin eru ansi góð á stundum, og þá helst í samskiptum Arthurs og föður hans. Margar uppákomur eru skondnar, en í heildina fínnst mér myndin missa marks, þar sem sögufléttan er hreinlega ekki nógu áhugaverð, ekki nógu grípandi, auk þess sem siðferðiskennd manneskjunnar hef- ur breyst og gerir söguna illskilj- anlega á stundum. Eg get ímyndað mér að leikritið geti verið býsna skemmtilegt sem léttur farsi, en bíóhúsagestir nútímans gera mikl- ar kröfur til söguþráðs án hnökra. Það besta við myndina eru allir þessir stórskemmtilegu leikarar. Rupert Everett er sérlega sann- færandi sem hinn heillandi iðju- leysingi, en hann má eiga það að þótt hann fái aldrei sérlega bita- stæð hlutverk þá skilar hann sínu alltaf vel. Jeremy Northam stend- ur sig mjög vel í hlutverki hins ör- væntingarfulla Sir Róberts. Minnie Driver og Julianne Moore eru fín- ar, en best allra er Cate Blanchett. Hún hefur sýnt það áður að hún er alveg þrusugóð leikkona. Hér sýnir hún svo fínan leik sem hin siðsama Gertrude, ástfangin eiginkona Sir Roberts, að manni finnst hálfgerð sóun að eyða kröftum hennar í svo litla og saklausa mynd sem þessa. Fyrirmyndar eiginmaður er vel leikinn, lítill og ljúfur farsi sem víst má glotta að í skammdeginu. Hildur Loftsdóttir Þórarinn Torfason og Tómas R. Einarsson fléttuðu saman tónlist og ljóðalestri. Menningarkvöld Við árbakkann Blönduósi-Húnvetnskir og hún- vetnsk ættaðir listamenn komu fram á menningarkvöldi í kaffi- húsinu Við árbakkann á dögunum og fluttu ljóð, lásu sögur og léku tónlist af fingrum fram. Tómas R. Einarsson tónlistar- maður sem er ættaður frá Blönduósi las kafla úr bókinni Af- ródíta eftir Isabel Allende en Tó- mas þýddi þá bók. Auk þess að lesa lék Tómas á bassann sinn eigin tónverk og annarra. Dúett- inn Kúnzt frá Blönduósi, sem skipaður er hjónunum Jóni Sverr- issyni og Jóhönnu Harðardóttur, flutti nokkur lög af nýjum geisla- diski sínum sem ber nafnið „Ótrú- leg orð“. Birgitta Hrönn Halldórsdóttir bóndi og rithöfundur frá Syðri- Löngumýri las úr nýjustu skáld- sögu sinn „Eftirleik“ en þessi bók er jafnframt sautjánda bók höf- undar. Þórarinn Torfason las úr nýrri ljóðabók sem hann gefur sjálfur út og heitir „SviP‘. Þessi bók er önnur Ijóðabók höfundar en auk þess hefur hann gefið út eina skáldsögu. Þeir Tómas og Þórarinn fléttuðu einnig saman tónlist og ljóðalestri við góðar undirtektir. Kolbrún Zophonías- dóttir Ias úr bók Árna Gunnars- sonar „Háspenna lífshætta" sem fjallar um veiðimanninn skag- firska Sigurfinn Jónsson. Húvetningar fjölmenntu á menningarhátíðina Við ár- bakkann og var gerður góður rómur að frammistöðu listamann- ana. Kjúklingasúpa fyrir 6 900-1200g kjúklingur í bitum • 5 gulrætur • 2 litlir laukar • 3 stönglar sellery • 1 rauð parika • 1 ds mais/gulikorn • 3/4 bolli ósoðið bygg/hrisgrjón. Maireiðsluaðferð: Maukið í matvinnsluvél 2 gulrætur, 1 lauk og sellerýstönglana. Saxið afganginn af græmetinu. Setjið vatn í pott svo fljóti yfir kjúkinginn. Grænmetismaukið og saxaða grænmetið sett yfir. Suðan látin koma upp og látið krauma í 1 klst. Bætið þá byggi/hrisgrjónum útí í og látið sjóða í aðra klst. Takið kjúklinginn úr pottinum, hreinsið kjöt af beinunum, skerið í bita, setjið út í súpuna ásamt maisnum. Skerpið á hitanum og berið súpuna fram með góðu brauði. X Erlendar súpusfður: http://www.souprecipe.com/ http://www.happycookers.com/ Kjúklinga-spaghettisúpa 500 gr kjúklingabringur • 500 gr spaghetti • 4 stk hvítlauksgeirar • 3 msk salt • 12 bollar vatn • 3 msk matarolía • kjúklingakraftur og soyjasósa Matreiðsluaðferð: Látið vatnið sjóða í góðum potti, setjið út í salt, olíu og niðurskorinn hvítlaukinn. Skerið bringumar í smá bita, brjótið speghettíið fingurlangt út í pottinn, hrærið vel saman, sjóðið í 30 mín. Bragðbætið eftir smekk með kjúlinj ogsoyasósu KJUKUNGAS/ BÆNDUR í DfEr hita og hreSf pfkulda og trekk'
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.