Morgunblaðið - 09.12.1999, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.12.1999, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Schröder hvetur flokks- menn til að slíðra sverðin Berlín. AFP. GERHARD Schröder, kanslari Þýskalands, hvatti í gær vinstri- væng flokksins til að „rústa“ ekki þeim árangri sem stjórn hans hefði náð með því að krefjast þess að lagð- ur yrði sérstakur skattur á efnafólk. „Okkur gengur vel vegna þess að við höfum einbeitt okkur að því sem við getum gert og því sem við eigum að gera,“ sagði Sehröder er hann áv- arpaði flokksþing Jafnaðarmanna- flokksins, sem nú stendur yfir í Ber- lín. „Eg bið ykkur um að rústa þessu ekki enn einu sinni,“ sagði kanslar- inn. Vonlaust væri að reyna að knýja í gegn skatt af þessu tagi, sem vitað væri fyrirfram að ekki væri meiri- hluti fyrir í Sambandsráðinu, efri deild þingsins, þar sem stjóma- randstaðan hefur meirihluta. „Ef við krefjumst einhvers sem hlýtur að fara út um þúfur erum við að undir- búa næsta ósigur. Við þurfum hins vegar að sigra í næstu kosningum," sagði Schröder. Hefur styrkt stöðu sína Talið er að Schröder hafi að und- anförnu styrkt stöðu sína gagnvart vinstriarmi flokksins, meðal annars með því að koma í veg fyrir gjaldþrot byggingafyrirtækisins Holzmann. Var hann endurkjörinn formaður flokksins með yfirgnæfandi meiri- hluta á þriðjudag. Hans Eichel fjármálaráðherra lagði einnig áherslu á að ekki yrði hróflað við efnahagsstefnu stjórnai'- innar og sagði enga þörf á sérstök- um skatti á efnafólk. Stjómin stefndi að því að réttlæti ríkti í skattkerfinu en jafnframt að fólk ætti afgang eftir i veskinu. Markmiðið væri að allar tekjur yrðu skattlagðar og að skatt- lagninguna ætti að miða við tekjur en ekki stóreignir sérstaklega. Andrea Nahles, sem tilheyrir rót- tækri fylkingu vinstrimanna sem kölluð er Frankfurter Kreis, sagði hins vegar að þetta væri ekki nóg og tóku fleiri úr vinstriarmi flokksins í svipaðan streng. r ÍÍC>v<tl j i Reuters. Schröder að beija bumbuna á flokksþingi jafnaðarmanna. Rætt um stofnun alþjóðlegs dómstóls vegna mannróttindabrota á A-Tímor Stjórn Indónesíu vill ekki framselja hershöfðinma Jakarta. AP. HAFT var eftir Alvri Shihab, utan- ríkisráðherra Indónesíu, í gær að stjórn landsins myndi ekki fallast á að framselja háttsetta menn í hernum til að hægt yrði að leiða þá fyrir alþjóðlegan dómstól vegna mannréttindabrota á Austur— Tímor. Sonia Picado, sem stjórnar rann- sókn Sameinuðu þjóðanna á mann- réttindabrotunum, sagði að stuðn- ingsmenn Indónesíustjórnar hefðu gerst sekir um „kerfisbundin" grimmdai'verk eftir að Austur— Tímorar samþykktu sjálfstæði með miklum meirihluta í þjóðara- tkvæðagreiðslu fyrr á árinu. And- stæðingar sjálfstæðis, sem nutu stuðnings indónesískra hermanna, drápu þá hundruð manna, auk þess sem 300.000 Austur-Tímorar urðu að flýja heimili sín vegna óaldar- innar. „Drápin á Austur-Tímor voru kerfisbundin," sagði Picado. „Lík finnast á hverjum degi. Svo margir biðu bana, meðal annars konur og börn.“ Picado vildi þó ekki svara því hvort hún myndi leggja til við Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna í Genf að alþjóðlegur dómstóll yrði stofnaður til að fjalla um mannréttindabrotin á Austur- Tímor. „Sú ákvörðun verður tekin í Genf.“ Picado sagði eftir viðræður við ráðamenn í Jakarta að þeir hefðu lagt fast að henni að leggja ekki til að alþjóðlegur dómstóll yrði stofn- aður. Shihab utanríkisráðherra hefði sagt að indónesískir hers- höfðingjar yrðu ekki framseldir til annarra landa. Önnur ríki, sem hafa færst und- an samstarfi við stríðsglæpadóm- stóla Sameinuðu þjóðanna, svo sem Króatía og Serbía, hafa sætt efna- hagslegum og pólitískum refsiað- gerðum. Nýja stjórnin í Indónesíu hefur íýrirskipað nokkrar rannsóknir vegna ásakana um að herinn hafi gerst sekur um gi’immdai'verk víða um landið á þriggja áratuga valda- tíma Suhartos, fyriTerandi forseta. Varnarmálaráðherra landsins hef- ur þó sagt að ekki komi til greina að yfirmenn hersins, sem eru sak- aðir um að bera ábyrgð á grimmd- arverkunum, yrðu leiddir fyrir ind- ónesíska dómstóla. Þingið vill sérstakan mannréttindadómstól Þing Indónesíu hvatti til þess í gær að stofnaður yrði sérstakur dómstóll til að fjalla um mál her- foringja sem grunaðir eru um mannréttindabrot í Aceh-héraði, þar sem herinn hefur reynt að bæla niður uppreisn aðskilnaðar- sinna. Forystumenn þingsins kvöddu Abdurrahman Wahid forseta á sinn fund til að krefjast þess að stjórnin gerði ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir að Indónesía leystist upp vegna uppgangs aðskilnaðarsinna í Aceh og héraðinu Vestur-Irían og til að binda enda á átök múslima og kristinna íbúa Ambon-borgar á Maluku-eyjum. Þeii- vöruðu við því að ólgan á þessum svæðum stofn- aði einingu landsins í mikla hættu. Wahid sagði að hann myndi ekki Ijá máls á því að Aceh fengi sjálf- stæði og kvaðst ætla að koma á friðarviðræðum í Vestur-Irían og Ambon. Bandaríska Marsfarið líklega endanlega glatað Farnir að undirbúa næsta leiðanafur Pasadcna. AP, AFP. en ekki er víst, að lendingarstaðurinn hafi verið hentugur. Hugsanlegt er, að farið hafi lent á stórum kletti eða bjargbrún eins og sjá má á teikningunni og hrapað fram af. STARFSMÖNNUM bandarísku geimvísindastofnunarinnar, NASA, tókst ekki að ná sambandi við Marsfarið í fyrradag og eru þeir nú orðnir úrkula vonar um að það muni takast. Heyrðist síðast frá því á föstudag rétt áður en það fór inn til lendingar og því er líklegt, að það hafi skemmst eða eyðilagst í lendingunni. Vísindamennirnir eru þó ekkert á því að gefast upp og eru nú farnir að undirbúa næstu Marsferð. „Eftir fjóra erfiða daga höfum við spilað út okkar síðasta trompi,“ sagði Richard Cook, einn af yfir- mönnum Marsáætlunarinnar. „Það bar því miður engan árangur og við erum um það bil búnir að gefa upp alla von.“ Engar skýringar eru á því hvað fór úrskeiðis en þetta er annað Marsfarið, sem tapast á tæplega þremur mánuðum. Slæmur Iendingarstaður? „Það er hugsanlegt, að allt hafi gengið að óskum að öðru leyti en því, að farið hafi lent á ómöguleg- um stað,“ sagði eðlisfræðiprófes- sorinn Robert Park, sem starfað hefur við Marsáætlunina. „Hver veit nema farið hafi lent á stórum kletti eða bjargbrún og hrapað fram af. Við vitum það ekki og munum líklega aldrei komast að því.“ Óhappið og fyrir- huguð rannsókn kann þó að breyta áætlununum Nokkrar vonir eru þó bundnar við, að Mars Global Surveyor, gervihnöttur, sem er á braut um Mars og kortleggur yfirborðið, geti veitt einhverjar upplýsingar um af- drif Marsfarsins. Er hann búinn öflugum myndavélum, sem geta þó ekki greint farið sjálft en hugsan- lega náð myndum af fallhlífinni. Engin inistök að þessu sinni Vitað er hver urðu örlög hins farsins, Mars Climate Orbiter, fyr- ir þremur mánuðum. Það fór inn í gufuhvolf Mars í of lítilli hæð og brann upp. Var um að kenna mis- tökum einhvers starfsmannsins, sem hafði gleymt að færa mæliein- ingarnar inn í metrakerfið. A föstudaginn var hins vegar allt með felldu með aðdraganda lendingar- innar. Marsfarið, sem nú virðist glatað, kostaði um 12 milljarða ísl. kr. en farið, sem tapaðist 1993, Mars Obs- erver, kostaði hvorki meira né minna en 73 milljarða kr. Er ekki vitað með vissu hvað því olli en helst hallast að því, að ástæðan hafi verið sprungin eldsneytis- leiðsla. Mikil rannsókn stendur nú fyrir dyrum á hugsanlegum ástæðum fyrir uppákomunni að þessu sinni og verður farið nákvæmlega yfir allar ljósmyndir af samsetningu farsins og mælingar á einstökum hlutum kannaðar. Hugsanlega kemur þá í ljós, að einhver hlutur hafi ekki uppfyllt kröfurnar en af því hafa menn miklar áhyggjur nú þegar dagskipunin er sú, að geimr- annsóknir eigi að taka sem stystan tíma og vera sem ódýrastar. Næsta Marsför er fyrirhuguð ár- ið 2001 en margir spá því, að óhappið nú muni tefja fyrir geimr- annsóknum og leiða til einhverrar uppstokkunar innan NASA. Rann- sóknin mun fyrst og fremst beinast að því hvort nægileg vitneskja hafi verið um lendingarstaðinn, hvort hönnun farsins hafi verið fullnægj- andi og hvort NASA hafi haft það fjármagn, sem leiðangurinn krafð- ist. Enginn uppgjafartónn Ekki þarf að hafa mörg orð um vonbrigðin meðal vísindamannanna 15, sem mest hafa unnið að Mars- áætluninni, og þar að auki verða þeir að sitja undir alls konar háðs- glósum í fjölmiðlum. „NASA með nýjan leik: Hver vill tapa 12 mil- ljörðum" hljóðar einn brandarinn og sumir vísindamannanna eiga bágt með að leyna gremju sinni. Það er þó ekki að finna neinn uppgjafartón í vísindamönnunum og raunar voru þeir farnir að vinna að Marsferðinni 2001 áður en síð- ustu fréttamennirnir kvöddu er ljóst var orðið, að eitthvað hafði komið fyrir sl. föstudag. „Eg hef ekki séð neinn bresta í grát,“ sagði Jim Cutts, sem starfað hefur hjá NASA í 30 ár. „Þessir menn eru landkönnuðir og og láta ekki bugast þegar á móti blæs. Auðvitað verðum við að reyna að læra það, sem unnt er, af þessu, en við skulum hafa í huga, að þetta er J Mars. Það tekur þrjá daga að kom- f ast til tunglsins en upp undir heilt ár til Mars.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.