Morgunblaðið - 09.12.1999, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 09.12.1999, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ____________________________FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 49 MINNINGAR SIG URBJÖRG HELGADÓTTIR + Sigurbjörg Helgadóttir fæddist, í Skagafirði 30. nóvember 1919. Hún lést á Akureyri 4. desember síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru María Guðmundsdóttir og Helgi Guðnason. Systkini hennar sam- feðra: Kristinn, Reimar, Anna og Birna. Bræður lienn- ar sammæðra: Björn og Hrólfur. Albræð- ur tvíburarnir Sig- urður og Björgvin og var Sigur- lijörg yngst þessara níu systkina. 011 eru þau látin nema Hrólfur, 93 ára. Sigurbjörg giftist 1954 Ragn- ari Arnasyni sjómanni, f. 1921, d. 1998. Dætur þeirra eru: 1) Kol- brún Björk, f. 1954, gift Páli Jóns- syni, f. 1954, þau eiga þrjú börn. 2) Svanhvít Björk, f. 1956, gift Erni Ingvarssyni, f. 1951, þau eiga tvo syni. Fyrir átti Sig- urbjörg Valdísi Brynju Þorkelsdótt- ur, f. 1946, hún er gift Jóhanni Eyþórs- syni, f. 1948, þau eiga tvö börn og eitt barnabarn. Fyrir átti Ragnar Rögnu Jóhönnu, f. 1943, gifta Emil Helga Péturssyni, f. 1942, og Sigurð Rúnar, f. 1949, kvæntan Kristínu Arinbjarn- ardóttur, f. 1950. Sigurbjörg starfaði sem mat- ráðskona og verkakona. Hún rak um árabil matsölu á Akureyri og síðustu 10 starfsárin var hún matráðskona í Slippstöðinni á Akureyri. Utför Sigurbjargar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. í dag kveðjum við hana ömmu mína, Sigurbjörgu Helgadóttur, sem alltaf var kölluð Bogga. Amma varð áttræð hinn 30. nóvember sl. en þá reyndist vera stutt eftir, því hún lést síðastliðinn laugardag. Það er erfitt að vera langt í burtu þegar svona stendur á, en minningarnar um ömmu, nú síðast í sumar, nokkuð hressa, ylja okkur hér úti i Edin- borg. Við komum til hennar um hvítasunnuna, mæðgurnar og mamma, en síðan fórum við fjöl- skyldan aftur til hennar á ferðalagi um landið í sumar áður en við flutt- um hingað. Þá fórum við í bíltúr um Eyjafjörðinn, fengum okkur ís, grill- uðum úti á svölum hjá henni og átt- um með henni góðar stundir. Valdís Huld, dóttir okkar, var hrifin af Boggu langömmu sem átti ýmislegt sniðugt dót til að lána lítilli skottu. Amma missti hann Ragnar, manninn sinn, á síðasta ári og í sumar fór hún að slakna sjálf og var komin á sjúkradeild á dvalarheimilinu Hlíð nú frá haustinu. Við bjuggum í Hafn- arfirði frá því að ég var lítil en amma á Akureyri. Við fórum alltaf í heim- sókn norður á sumrin og stundum á veturna líka. Það sem mér er einna minnisstæðast varðandi ömmu er hlýjan hennar og góða skapið. Hún átti létta lund hún amma, sama hvort vel eða illa gekk í lífinu, og hvað sem á bjátaði gat hún alltaf séð björtu hliðarnar og komið með léttleikann að málinu. Þrátt fyrir nokkur áföll heilsufarslega síðustu árin náði hún sér alltaf aftur og sýndi ótrúlegt þrek þegar hún veiktist alvarlega í ferð til Spánar fyrir nokkrum árum. Hún náði sér sem betur fer ágætlega efth' það, svo við fengum að hafa hana hjá okkur lengur og sjá hve hún bjó yfir miklum lífsvilja og þreki. Arama var félagslynd, hress og hafði alltaf mikinn áhuga á alls konar listgreinum. Hún hafði gaman af að mála og föndra úr óvenjulegum hlut- um og eftir að hún var komin á efri ár fór hún á námskeið í málaralist og gerði margar skemmtilegar myndir. Amma hafði unnið ýmis störf um æv- ina, lengst sem matráðskona. Hún rak í mörg ár matsölu á Hótel Akur- eyri, en sá vinnustaður sem ég man eftir er Slippurinn. Amma stjórnaði þar mötuneytinu og í mínum huga sem lítil stelpa stýrði amma þessum „Slipp“ meira og minna, enda hafði ég óljósa hugmynd um hvað það var á þessum aldri og fyi'ir mér var þetta bara Slippurinn hennar ömmu. Bogga amma var manneskja sem lifði lífinu af gleði og gaf samferða- mönnum sínum stóran hluta af sinni lífsgleði. Við kveðjum hana ömmu í dag, en munum geyma minningu hennar í hjarta okkar. Anna, Jón Orn og Valdís Huld. Enhérvantarþig sem huggaðir, gladdir og annaðist mig. Hjartað og höndin þín bætti hvaðsemmiggrætti. Bláu augun mín og brosið mitt, það voru daglaunin þín. Eg átti ekkert annað að bjóða, ammamíngóða. Pú fluttist svo fjær, fóstra mín blessuð, æ amma mín kær, komdu í vor öræfm yfir því að þú lifir. Lifiégþá, að iauna þér ástfóstrið, það skaltu sjá. (Páll Ólafsson) Þín barnabörn, Elmar, Sigurbjörg, Logi, Tómas og Ragnar. BJORN JÓNASSON + Björn Jónasson fæddist í Reykja- vík 12. september 1928. Hann lést á líknardeild Land- spitalans 29. nóvem- ber síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 6. desember. Ég hef alltaf hugsað það þannig að foreldrar deyja ekki. Þeir eiga alltaf að vera til staðar, því sársaukinn og söknuðurinn sem fylgir andláti er of sár. Búddi kom inn á heimili okkar þegar ég var tíu ára árið 1977. Móðir mín var búin að missa manninn sinn, sem var góður vinur Búdda, og gekk hann okkur systkinunum í föðurstað á allan hátt. Virðingin sem við bárum fyiir honum var mikil. Ég á margar minningar um ógleymanlegar samverustundir með Búdda og þá sérstaklega úr ferða- lögum sem ég fór með honum, bæði þegar ég var lítil og efth’ að ég eign- aðist börnin mín. Eitt ferðaiag úr æsku er mér þó minnisstæðara en önnur og var það ekki síst vegna þeirra úiTæða sem Búddi greip til í þeirri ferð. Við lögðum af stað í híf- andi roki og rigningu. Þegai' við komum loks á áfangastað var kiukk- an orðin eitt að nóttu til og veðrið ennþá með versta móti. Búddi sagði okkur hins vegar að veðrið skipti engu, það myndi stytta upp síðar um nóttina og að hann skyldi tjalda. Hann steig út úr bílnum og tjaldaði tveimur tjöldum, öðru fyrir okkur krakkana og hinu fyrir mömmu og hann. Eftir smástund kemur hann rennandi blautur inn í bílinn og byrj- ar að færa bílinn fram og til baka. Mamma spyr hvað hann sé að gera og þá kom í ljós að hann hafði gleymt öllum tjaldhælunum og sagði að best væri þá að binda tjöldin niður með steinum, spottum í stuðarann á bflnum og trjágreinum í kiing. Og það var gert. Síðan var skriðið inn í tjöldin og gerð tilraun til að leggjast til svefns í brjáluðu veðri. Við systkinin áttum erfitt með að sofna og kölluð- um því til Búdda að við vildum halda heim. Þá skreið hann út úr tjald- inu sínu, setti bflinn í gang, smalaði okkur inn í hann, og tók niður tjöldin og pakkaði saman öðrum föggum okkar þegjandi og hljóðalaust. Þetta lýsir honum Búdda mínum. Aldrei gafst hann upp eða skipti skapi. Daginn áður en Búddi lést byrjaði að snjóa. Ég horfði út um gluggann um morguninn og var að riíja upp sumarbústaðarferð sem ég og Búddi fórum með krakkana mína mörgum árum áður. Það var um hávetur og ég rifjaði upp hve vel mér hafði liðið þá helgi. Okkur þótti gott að vera ná- lægt hvort öðru, afslappað og þægi- legt, en þessi mynd er föst í huga mér þar sem ég var að horfa á hann og krakkana leika sér á sleðunum. Handrit afmælis- og minningargreina skuiu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Það var aðdáunarvert þvflíka þolin- mæði hann hafði. En það er einnig gaman að minn- ast nokkurs sem ég fékk ekki að vita fyrr en mörgum árum seinna. Þegar krakkarnir fengu að sofa hjá afa Búdda, eins og þau kölluðu hann, þá húrruðu þau alltaf og veiuðu, því þá fengu þau að sofa í svefnpoka. Én það var ekki aðalmálið heldur að Búddi sofnaði alltaf og þá fengu þau frið til þess að vaka frameftir. Ég hef hugsað til þess hvernig allt hefði verið ef Búdda hefði ekki notið við. Ég hefði ekki viljað skipta þar sem hann reyndist mér svo vel og mínum börnum. Elsku Búddi. Þakka þér fyrir allt og að hafa verið hjá mér á þeirri stundu sem ég gekk í gegnum mína erfíðustu lífsreynslu. Þá þerraðir þú tár mín með þínum hlýju höndum og orðum. Ég gleymi þér aldrei. Elsku Herdís, Einar og aðrir að- standendur, guð gefi ykkur styrk í þessum mikla missi. Jóna María. Stofnað 1990 Útfararþjónustan ehf. Aðstoðum við skrif minningarrgreina Rúnar Geirmundsson, útlararstjóri Sími 567 9110 □□ŒxxxiiixiiDacrxr; H H H H Erfisdrykkjur *- P E R L A N Sími 562 0200 HxxxxxxIlIIXXXXXjfc + Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, SIGRÍÐUR RUNÓLFSDÓTTIR, Hraunbæ 156, Reykjavík, lést á heimili sínu að morgni þriðjudagsins 7. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Kristján F. Oddsson, Guðbjörg Kristjánsdóttir, Laufey Kristjánsdóttir, Oddur Kristjánsson og aðrir aðstandendur. + Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, (AGNAR) REYNIR SIGURÐSSON, lést á sjúkrahúsi á Kanaríeyjum sunnudaginn 5. desember. Sigríður J. Aradóttir, Sigurður F. Reynisson, Auðbjörg Reynisdóttir, Einar Gautur Steingrímsson, Viktor Þór Reynisson, Anna Kristín Kristófersdóttir, Jóhann Reynisson, Ingibjörg Stefánsdóttir og barnabörn. + Útför okkar ástkæru, ERNU KRISTINSDÓTTUR, Fitjasmára 9, Kópavogi, sem andaðist á Vífilsstaðaspítala fimmtudag- inn 2. desember,. fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 10. desember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Samtök lungnasjúklinga. Guðlaugur Helgason, Kristinn Guðlaugsson, Anna Guðlaugsdóttir, Hannes Leifsson og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ÞORSTEINN JÓNSSON, Dalbraut 23, Reykjavík, sem lést föstudaginn 3. desember sl., verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 10. des- ember kl. 13.30. Geirlaug Guðmundsdóttir, Gísli Þorsteinsson, Hjördís Henrýsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, Guðrún Þóra Halldórsdóttir og barnabörn. + Maðurinn minn, JAMES JOSEPH REGAN, Old Lyme, Connecticut, Bandaríkjunum, lést á sjúkrahúsi í Boston mánudaginn 6. desember. Oddný Björnsdóttir Regan. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁGÚSTJÓNSSON bóndi, Sigluvík, Vestur-Landeyjum, verður jarðsunginn frá Akureyjarkirkju laugardaginn 11. desember kl. 14.00. Hildur Ágústsdóttir, Rúnar Guðjónsson, Jón Ágústsson, Hrefna Magnúsdóttir, Eiríkur Ágústsson, Guðríður Andrésdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.