Morgunblaðið - 09.12.1999, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.12.1999, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Morgunblaðið/Kristinn Guðrún Ögmundsdóttir og Jóhann Ársælsson, þingmenn Samfylkingar- innar, fylgjast með umræðum á Alþingi. Fyrirspurn á Alþingi um kynferðisafbrot gegn börnum Starf dómstóla verði kynnt fyrir almenningi SÖLVEIG Pétursdóttir dómsmála- ráðherra sagði á Alþingi í gær að hún teldi þá umræðu, sem fram hefði farið að undanförnu um kynferðis- brotamál, gefa tilefni til þess að það mikilvæga starf sem fram fer í dóm- stólum landsins verði kynnt betur fyrir almenningi. Sagði hún jafn- framt að ef uppi væru hugmyndir um að setja í lög ákvæði um lágmarks- refsingar þá kæmi slíkt fyrst og fremst til álita í málum sem vörðuðu kynferðisbrot gegn bömum. Dómsmálaráðherra sagði í svari við fyrirspum Jóhönnu Sigurðar- dóttur, þingmanns Samfylkingar, að hún hefði þegar fært það í tal við dómstólaráð að hefja kynningu á starfi dómstóla, auk þess sem hún hefði vakið máls á þessu á nýaf- stöðnu dómstólaþingi. „Þess er nauðsynlegt að gæta að jafnan sé byggt upp traust almennings á dóm- stólum,“ sagði ráðherrann. ! ALÞINGI Jóhanna hafði gert nýlegan sýknudóm Hæstaréttar yfir ákærð- um föður, sem dóttir hafði kært fyrir grófa kynferðislega misnotkun, að umtalsefni og spurði hún hvort Sól- veig teldi ástæðu til sérstaki-a við- bragða vegna hans. Sagði Jóhanna dóminn vekja margar spurningar, einkum varðandi starfsreglur dóm- stóla og refsiúrræði og meðferð kyn- ferðisbrotamála almennt í kerfinu. Fyrirspurn um gerð frummatsskýrslu um álver á Reyðarfírði Gengið út frá því að endanlegur framkvæmdaaðili greiði kostnaðinn FINNUR Ingólfsson iðnaðarráð- herra sagði á Alþingi í gær að erfitt væri að gefa í einni tölu kostnað við gerð frummatsskýrslu um fyrirhug- að álver á Reyðarfirði. Gengið væri hins vegar út frá því að endanlegur framkvæmdaaðili að byggingu ál- versins myndi greiða þennan kostn- að þegar upp væri staðið. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmað- ur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, hafði borið fram fyrir- spurn til iðnaðarráðherra um það hver hefði borið kostnað af gerð frummatsskýrslu um mat á umhverf- isáhrifum fyrirhugaðs álvers, sem kynnt hefði verið í nafni eignarhalds- félagsins Hrauns ehf. í október síð- astliðnum. Vildi Kolbrún jafnframt fá að vita hvað gerð skýrslunnar hefði kostað. Sagði Kolbrún liggja fyrir að Hraun ehf. hygðist ekki hefja gerð álvers á Reyðarfirði og ekki væri því hægt að telja það framkvæmdaraðila að álverinu, þótt hins vegar væri kveðið á um það í lögum að hann skyldi annast gerð frummatsskýrsl- unnar. Finnur Ingólfsson iðnaðarráð- herra rakti í máli sínu þær rannsókn- ir sem fram hefðu farið á Hrauni og í nágrenni Hrauns allt frá 1982. Að þessum rannsóknum hefðu ýmsir að- ilar komið, Kísilmálmverksmiðjan hf., sem ríkið stofnaði 1982, síðar Markaðsskrifstofa iðnaðarráðuneyt- isins og Landsvirkjunar og síðan Verkefnisstjórn STAR (Samstarfs- nefnd um staðarvalsathuganir iðnað- arsvæða á Reyðarfirði). Ráðherrann sagði Hydro Alumin- ium AS einnig hafa lagt fram fjár- magn til rannsóknanna síðastliðin 2 ár og því væri ljóst að enginn einn aðili hefði borið kostnað af gerð skýrslunnar. Jafnframt væri erfitt að gefa í einni tölu kostnað við gerð hennar. Finnur sagði ennfremur að frummatsferlinu væri ekki lokið og því væri ljóst „að kostnaðurinn við gerð frummatsskýrslunnar verður mun hærri en áður hefur þekkst í hliðstæðum dæmum enda svæðið meira rannsakað". Inni í þessu væri það fjármagn sem Hydro Aluminium AS hefði lagt fram til verkefnisins en framlag þess ætti að sanna vilja þess til verkefnisins. Sagði iðnaðarráðherra rétt að geta þess að gengið væri út frá því að end- anlegur framkvæmdaraðili að bygg- ingu álversins myndi greiða þann kostnað þegar þar að kæmi. „Þegar upp verður staðið verður því kostn- aðurinn borinn af framkvæmdarað- ila en ekki ríkinu," sagði Finnur. Þörf væri á ítarlegri úttekt á stöðu þolenda kynferðisbrota, og reyndar öllu kæruferli í réttar- og dómskerf- inu frá því kæra berst og úrskurður dómstóla liggur fyrir. Einnig kallaði þetta á endurskoð- un laga um meðferð opinben'a mála, svo sem varðandi rannsóknaraðferð- ir, sönnunarkröfur og mat á sönnun- argögnum þegar kynferðisbrotamál ættu í hlut. Sólveig sagði í svari sínu að hún teldi ekki eðlilegt að hún tjáði sig um umrætt dómsmál í einstökum atrið- um enda gilti hér á landi reglan um þrískiptingu ríkisvalds og dómum yrði ekki skotið til löggjafarvalds eða framkvæmdavalds til endurskoðun- ar. Rifjaði hún upp að dómsmálaráð- herra hefði árið 1998 skipað nefnd til að rannsaka viðurlög við afbrotum. Sagði Sólveig reyndar almennt talið rétt að nema úr lögum ákvæði um lágmarksrefsingar, enda þætti eðli- legt að eftirláta dómstólum refsima- tið, auk þess sem fyrirmæli laga um lágmarksrefsingu gæti í einstaka til- vikum leitt til ósanngjarnrar niður- stöðu. Hins vegar kæmi slíkt fyrst og fremst til álita í málum er vörðuðu kynferðisbrot gegn börnum. „Ég tel rétt að skoðað verði sérstaklega hvort tilefni sé til breytinga á hegn- ingarlögunum og mun ég láta kanna það þegar íyrrgreind rannsókn á við- urlögum við afbrotum liggur fyrir á næsta ári,“ sagði dómsmálaráð- herra. --------♦ ♦ ♦-------- Nýr þingmaður Samfylkingar EINN nýi’ þingmaður tók sæti á Al- þingi í gær en þá tók Dóra Líndal Hjartardóttir, varaþingmaður Sam- fylkingar í Vesturlandskjördæmi, sæti Gísla S. Einarssonar. Dóra hef- ur ekki áður tekið sæti á Alþingi og undirritaði því drengskaparheit, skv. ákvæðum stjómarskrár. Ágúst H. Bjarnason grasafræðingur um rannsóknarhlutverk sitt Dæmdi gildi rannsókna og kom með ábendingar ÁGÚST H. Bjarnason, grasafræð- ingur, telur að réttmætis hafi ekki verið gætt í umfjöllun um þátt hans í grasafræðiathugunum sem byggt er á í skýrslu Landsvirkjunar um um- hverfi og umhverfismat Fljótsdals- virkjunnar. Af þessum sökum segir hann brýnt að koma nokkrum at- hugasemdum á framfæri. Ágúst segir að Landsvirkjun hafi ráðið sig til skýrslugerðarinnar sumarið 1998 en vinna hans fólst annars vegar í athugun á flóru og gróðri á þremur ráðgerðum lóns- stæðum sem em í tengslum við fyrir- hugaða virkjun, við aðkomugöng III og á Bessastaðaái-melum í Fljótsdal. Hins vegar hafi honum verið ætlað að safna saman og gera grein fyrir grasafræðiathugunum sem fram hafa farið á öðrum fyrirhuguðum svæðum Fljótsdalsvirkjunar. Skýrslu um þessa þætti hafi hann skilað til Landsvirkunar í mars á þessu ári. Hvatt til aukinna rannsókna „Landsvirkjun spurði mig aldrei að því hvort ég væri með eða á móti Eyjabakkalóni enda kom það þessari vinnu minni ekkert við,“ segir Ágúst. „I skýrslunni er engin afstaða tekin til þess, enda ekki til þess ætlast. Þar er aftur á móti hvatt til aukinna rannsókna á flóru og gróðri sem aldrei getur orðið annað en ávinning- ur.“ Varðandi seinni þátt skýrslu sinn- ar, segist Ágúst hafa skoðað flest gögn sem lúta að flóra og gróðri á svæðinu. ,Áður en hafist var handa var farið vandlega yfir þessi gögn.' Síðan var gengið um svæðið, plöntu- tegundum safnað eða þær skráðar og gróðurmælingar gerðar.“ Eftir að Ágúst hafði lokið við að vinna úr þessum efniviði bar hann niðurstöður sínar saman við áður prentuð gögn, alls átta talsins. Elst þeirra er rannsókn á gróðurfari á miðhálendinu frá 1945 en yngsta rit sem Orkustofnun gaf út 1996: Kynn- isferðir um vatnasvæði Hraunaveitu. Gróðurfar. Grundvallandi vom rann- sóknir Hjörleifs Guttormssonar og Kristbjörns Egilssonar á Eyja- bakkasvæðinu og á virkjunarsvæð- inufrá 1977 og 1981. I skýrslu sinni gerði Ágúst at- hugasemdir við einstök rit en í yfir- Uti segir m.a.: „Sé litið sérstaklega til flóm svæðisins, er óhætt að segja að hún sé ágætlega þekkt, enda hefur mjög vel verið að því verki staðið.... Við þessa vinnu er litlu að bæta. Höf- undur fann reyndar tvær tegundir af blaðmosum, sem er ekki getið frá þessu svæði áður.“ Ekkert bendir til sérstöðu gróðurfélaga á Eyjabökkum Um gróður á fyrirhuguðu svæði Eyjabakkalóns segir m.a.: „Megin- þorri þeirra gróðurlýsinga, sem til eru af þessu svæði, em almenns eðl- is. Gróður á fyrirhuguðu svæði Eyja- bakkalóns er því aðeins þekktur í stærstu megindráttum, þar sem fáar eða nær engar nákvæmar athuganir hafa verið gerðar. Á hinn bóginn hef- ur ekkert komið fram fí skýrslum Kristbjörns og Hjörleifs] , sem bendir til þess, að gróðurfélög á Eyjabakkasvæðinu hafi sérstöðu, að því er varðar gerð og tegundasam- setningu. Að vísu segir það ekki nema hálfa söguna, því að líta þarf til ýmissa atriða í umhverfinu, sem skipt geta miklu máli. Slíkar athug- anir liggja ekki fyrir nema að tak- mörkuðu leyti,“ segir í skýrslu Ágústs. „Eftir að hafa skoðað niðurstöður þessara manna, gat ég ekki komið auga á, að þeir lýsi þar gróðurfélög- um, sem hvergi sé annars staðar að finna," segir Ágúst. I þessu sam- bandi bendir hann á að það sé úrelt sjónarmið að aðeins skuli vernda þann gróður sem sé einstakur. „Ef aðeins á að leggja til gi-undvallar sér- stæð gróðurfélög og sjaldgæfar teg- undir þá mætti sökkva 90% hálendis- ins.“ Þótt hann gagnrýni einstakar ályktanir í ofangreindum athugun- um segist Ágúst ekki vita betur en að allir rannsóknaraðilarnir séu mik- ilsvirtir náttúrafræðingar. Hvað varðar gagnrýni um að hann hafi ekki farið um allt svæðið segir Ágúst: „Því miður komst ég ekki út í Eyjar vegna vatnavaxta en fór inn allt Snæfellsnes og inn undir Háöldu. Ég hef engar ástæður til að ætla, að athuganir Kristbjörns Eg- | ilssonar og Hjörleifs Guttormssonar | í Eyjum séu vem en á öðrum stöð- J um.“ En Eyjar eða Þóriseyjar eru * flæðimýrar sem eru meii’a eða minna umluktar af jökulánni. Ágúst áréttar að hans hlutverk hafi einungis falist í því að draga saman rannsóknirnai’, dæma gildi þeirra og koma með ábendingar. „Það er því ljóst að ég gerði ekki þessar „ónýtu rannsóknir“, þó að sumir vilji eigna mér þær,“ segir k Ágúst og bendir jafnframt á að til I þessa hafi athuganir starfsmanna I Náttúrafræðistofnunar íslands og i Rannsóknastofnunar landbúnaðar- ins verið taldar fullgildar við um- hverfismat. „í skýrslu minni vík ég að því, að það sé rangnefni að nota orðið „há- lendisvin“ um gróður á Eyjabökk- um, eins og flestum er tamt. Þessu áttu margir bágt með að kyngja og töldu mig spilla fyrir málinu með þessum orðum. Þess í stað benti ég á, að um sé að ræða óslitið gróður- | lendi frá sjó inn að Eyjabakkajökli, f 140 km leið, og meðal annars þess vegna tel ég svæðið einstakt."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.