Morgunblaðið - 09.12.1999, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.12.1999, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 175 lóðir auglýstar til úthlutunar í Ásahverfí Bæjarráð hefur samþykkt nýjar úthlutunarreglur Hafnarfjörður Morgunblaðið/Þorkell GEIR Gunnar Geirsson, íbúi á Kjalarnesi, segir það sjálf- sagt öryggismál að lýsa Vesturlandsveginn frá Mosfellsbæ að Ilvalfjaröargöngum. Ibúar á Kjalarnesi safna undirskriftum Vilja lýsa Vest- urlandsveginn Kjalarnes ÍBÚAR Reykjavíkur á Kjal- arnesi söfnuðu 217 undir- skriftum, þar sem farið er fram á að Vesturlandsvegur verði lýstur frá Mosfellsbæ og að Hvalfjarðargöngum. Borgarráð tók málið til um- fjöllunar í fyrradag og vísaði því til borgarverkfræðings til umsagnar. „Manni fínnst það skjóta svolítið skökku við að menn skuli vera að tala um það að lýsa Hellisheiðina, þegar enn er ekki búið að lýsa leiðina heim fyrir íbúa í nyrsta hluta Reykjavíkur," sagði Geir Gunnar Geirsson, íbúi á Vallá og einn af hvatamönnum lýs- ingar Vesturlandsvegar. „Það hefur verið talað um þetta alltof lengi, en því miður hefur enginn haft bein í nef- inu til að fylgja málinu eftir. Það er alveg ljóst að um- ferð um Vesturlandsveginn hefur stóraukist síðan Hval- fjarðargöngin voru opnuð og það er ekki hægt að bjóða vegfarendum upp á það að keyra um þennan veg, sem er á mjög stórviðrasömu svæði, í kolniðamyrkri. Það er sjálf- sagt öryggisatriði að lýsa veginn." Áður en borgarráð fjallaði um málið hafði samstarfsráð Grafarvogs tekið það til skoð- unar og beindi það þeim til- mælum til borgarráðs að mál- ið færi til umsagnar Vegagerðarinnar. I ályktun samstarfsráðsins voru m.a. lagðir fram undir- skiáftalistarnir, sem á voru 217 undirskriftir íbúa nyrsta hluta Reykjavíkur, þ.e. Kjal- arness. í ályktuninni sagði m.a.: „Eftir opnun Hvalfjarðar- ganga hefur umferð aukist meira en áætlanir gerðu ráð fýrir og er nú svo komið að stóraukin þörf er á lýsingu ör- yggisins vegna, því óskar samstarfsráðið eftir því við borgarráð að teknar verði upp viðræður við Vegagerð ríkisins um málið.“ Geir Gunnar sagði að auk þess að lýsa veginn væri brýnt að ganga frá sandnám- um inni í Kollafírði þannig að þar væri ekki hætta á sand- foki. „Þama er skilti, sem varar ökumenn við sandfoki, en hvað eiga þeir að gera, er það ekki á ábyrgð verktakans sem nýtir námuna að búa þannig um að ekki sé þar hætta á sandfoki." HAFNARFJARÐARBÆR mun fljótlega á næsta ári út- hluta 175 lóðum í öðrum áfanga lóðaúthlutana í Ásl- andi, en gert er ráð fyrir að lóðirnar verði auglýstar til út- hlutunar á sunnudaginn. Þetta kom fram í samtali Morgunblaðsins við Halldór Ámason, framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og framkvæmda- sviðs Hafnarfjarðarbæjar. Lóðunum 175 verður öllum úthlutað til einstaklinga enda um að ræða lóðir fyrir enbýl- ishús, raðhús og parhús. Áð sögn Halldórs verður lóðun- um úthlutað samkvæmt nýj- um reglum sem samþykktar voru í bæjarráði í síðustu viku. I úthlutun í fyrsta áf- anga var dregið úr þeim um- sóknum sem uppfylltu tiltek- in skilyrði en nú mun bæjarráð gera tillögu til bæj- arstjórnar um það hverjir skuli fá úthlutað lóð. Sátt um reglurnar í bæjarráði Halldór sagði að útdráttur- inn hefði alls ekki gefist illa, en að minnihlutinn í bæjar- ráði hefði verið á móti þeirri aðferð og því hefði verið ákveðið að breyta. Hann sagði að sátt ríkti í bæjarráði um hinar nýju úthlutunar- reglur og að það væri ákveð- inn kostur. Samkvæmt nýju reglunum verða umsækjendur m.a. að leggja fram staðfestingu frá viðskiptabanka á greiðslu- getu sinni fyrir fjárfestingu að fjárhæð 15 milljónir króna vegna einbýlis, en 11 milljón- ir vegna par- eða raðhúss. Þá er þeim gert að tilgreina bús- etu og atvinnu í Hafnarfirði. í reglunum segir einnig að lóðunum sé ekki úhlutað til sölu og því beri lóðarhafa að skila lóðinni til Hafnarfjarð- arbæjar hyggist hann ekki nýta hana til íbúðar. Búist við mikilli ásókn í lóðir Þegar bæjarráð hefur valið umsækjendur að jafnmörg- um lóðum og í framboði eru verða þeir umsækjendur boð- aðir til fundar þar sem þeir draga númer sem segir til um röð þeirra við lóðarval. Búist er við mikilli ásókn í lóðirnar nú líkt og í fyrstu út- hlutuninni, en þá sóttu t.d. helmingi fleiri um einbýlis- húsalóðir en fengu. Halldór sagði að líklega yrði fólki gefínn frestur til 1. febrúar til að sækja um lóðir og að u.þ.b. mánuði síðar yrði lóðunum úthlutað. Hann sagði að lóðirnar yrðu vænt- anlega ekki byggingarhæfar fyrr en í júní á næsta ári. Auk þess að bjóða út 175 lóðir til einstaklinga í þessum öðrum áfanga er ráðgert að byggja fjölbýli með 252 íbúð- um og því er alls gert ráð fyr- ir 427 íbúðum í þessum áf- anga. Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti deiliskipulag fyrir væntanlegt byggingarsvæði í ágúst síðastliðnum. Deili- skipulagið tekur til svæðis í hlíðum Ásfjalls, austan og of- an við Ástjörn og afmarkast af Reykjanesbraut að norðan, hlíðum Ásfjalls og fólkvangs- mörkum að austan, vestan og sunnan. Krakkar á Kjalarnesi undirbúa jólin Kjalarnes KIRKJUSTARF fyrir tíu til tólf ára krakka er orðið fastur liður í fjölmörgum söfnuðum. í haust hófst slíkt starf í fyrsta sinn í Brautar- holtssókn á Kjalarnesi og hittast krakkarnir þar einu sinni í viku og gera eitthvað skemmtilegt saman. Farið er í leiki, sungið/föndrað og fleira og þegar Morgun- blaðið leit inn hjá þeim í gær voru þau að föndra fyr- ir jólin. Sr. Kristín Þórunn Tóm- asdóttir, héraðsprestur í Kjalarnesprófastsdæmi, hefur umsjón með starfinu, ásamt Sveini Bjarka, bróður sfnum. Kristín Þórunn segir börnin virkilega áhugasöm og að gaman sé að vera með þeim. Þau séu alvcg sér- staklega lífleg og frjálsleg í fasi, en jafnframt prúð. Krakkarnir sátu einbeitt- ir við jólafóndrið og sögðu að þeim fyndist skemmti- legast að búa til jólakort til að senda öðrum. Þau ætluðu ýmist að senda mömmu og pabba, ömmu og afa, vinum eða skólasystkinum kortin og var mikil natni lögð í hvert smáatriði. Skemmti- Iegast þótti þeim að h'ma glansandi límmiða og glimmer á koriin og eins þótti þeim gaman að nota klcssuliti og litaðan pappír sem þau klipptu út í ýmis form. Davíð Karl Wiium og Magnús Már Ein- arsson voru kátir við jólaföndrið í gær. Þeir bjuggu til falleg jólakort til að senda fjölskyldu og vinum, eins og þeir Jón Ásgeir Þor- valdsson og Eggert Kristjánsson sem sitja þarna hjá þeim. Krakkarnir þyrpt- ust í kringum sr. Kristínu Þórunni þar sem hún útdeildi glansandi límmiðum og glimmeri til að skreytajólakortin með. Morgunblaðið/Þorkell
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.