Morgunblaðið - 09.12.1999, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 37
LISTIR
Ola Kolehmainen sýnir í Ing’ólfsstræti 8
Himnesk birta
í gylltum sal
Morgunblaðið/Golli
Ola Kolehmainen opnar sýningu í i8 í dag kl. 17.
Sýnd veiði en
ekki gefin
FINNSKI myndlistarmaðurinn Ola
Kolehmainen opnar sýningu í gal-
leríinu i8 í Ingólfsstræti í dag kl. 17.
Par sýnir hann innsetningu með
ljósmyndum sem hann tók í gyllta
salnum í Ráðhúsinu í Stokkhólmi.
Ola Kolehmainen er fæddur í
Helsinki árið 1964 og iauk nýverið
mastersnámi frá ljósmyndadeild
Listiðnaðarháskólans í Helsinki.
Hann hefur hlotið fjölmargar viður-
kenningar fyrir verk sín, sem hann
hefur sýnt á einkasýningum og
samsýningum í Finnlandi og víða í
Evrópu allt frá árinu 1992.
Lendur handan lifsins
Sjálfur lýsir listamaðurinn verk-
um sínum þannig í sýningarskrá:
„Ég kanna þær hliðar dauðleik-
ans sem eru hvorki ógnvekjandi né
hryliilegar, heldur himneskar og
friðsælar. Ég þróa hugmynd og
nota til þess myndmál sem hlutger-
ist í ljósmyndum af rými ýmist utan
dyra eða innan, sem verður á vegi
mínum á ferðalögum. Síðan bæti ég
við skyldum þáttum í sinni einföld-
ustu og hreinustu mynd. Gullnum
vegg, svörtu plexigleri, bláu ljósi:
þessir þættir endurspegla áhor-
fandann bæði bókstaflega og and-
lega.
Innsetningin er í sjálfu sér ferða-
lag - lögun lands, vatna eða borga -
sem gefur til kynna lendur handan
lífsins.'11
Þegar Ola Kolehmainen er spurð-
ur hvernig hugmyndin að því að
sýna ljósmyndir úr gyllta salnum sé
tilkomin rifjar hann upp þegar hann
hélt sýningu í Stokkhólmi í mars
síðastliðnum, þar sem eitt verkanna
var gullinn veggur sem hann hafði
gert úr stálplötum. „Eftir opnunina
fórum við út að borða og við sama
borð sat sænskt par. Við tókum tal
saman og þau spurðu mig hvort ég
hefði komið í gyllta salinn. Svo var
ekki, en ég varð strax forvitinn og
þau sögðu mér frá salnum, sem er
þakinn 18,5 milljónum mósaík-
stykkja," segir Kolehmainen, sem
heillaðist af birtunni í salnum. „Eft-
ir að ég hafði tekið myndirnar átt-
aði ég mig á því að þetta væri himn-
esk birta,“ segir hann.
Sýningin stendur til 23. janúar
nk. og er opið í galleríinu fimmtu-
daga til sunnudaga kl. 14-18. Gal-
leríð verður þó lokað frá 20. desem-
ber til 6. janúar en hægt verður að
sjá sýninguna utan frá í gegnum
glugga.
KVIKMYJVDIR
Stjörnubíó
Spegill, speg-ill „Virtual
Sexuality" ★ ★%
Leikstjóri: Nick Hurran. Handrit:
Nick Fisher. Aðalhlutverk: Laura
Fraser, Ruper Peny - Jones, Luke
De Lacey. Columbia/TriStar 1999.
BRESKA unglingamyndin Spegill,
spegill fjallai’ eins og bandarísku
unglingamyndimar um ástamál ungl-
inganna en hún gerir það á talsvert
frumlegri og kaldhæðnislegri hátt en
flestar bandarísku myndirnar og er
ágætis skemmtun.
Spegili, spegUl segir af ungri
stúlku sem dreymir um að komast á
séns með helsta töffara skólans en
það gengur ekkert sérlega vel. Á
tölvusýningu í grenndinni fær hún
tækifæri til þess að skapa sinn eigin
draumaprins með sýndarveruieika-
tækni og sá prins verður til fýrir al-
vöru þegar verður slys og búnaður-
ÚTGÁFURÉTTUR á Slóð fiðrild-
anna, skáldsögu Ólafs Jóhanns Ól-
afssonar, hefur verið seldur til
Þýzkalands, Frakklands og Ítalíu,
en áður var hann seldur til Banda-
ríkjanna og Bretlands. í Þýzkalandi
kemur bókin út hjá Albrecht
Knaus-forlaginu, á Italíu gefur
Longanesi bókina út og í Frakk-
landi Seuil, en það forlag gaf út bók
inn klikkar. Málið er bara það að
draumaprinsinn er unga stúlkan sjálf
í glæsilegum karlmannslíkama. Hún
hefur sumsé gengið í gegnum kyn-
skiptingu án þess að leggjast á skurð-
arborðið.
Myndin er byggð á samnefndri
unglingasögu sem komið hefur út á
íslensku og hefur margt skondið fram
að færa um unglingsárin og ástina
þótt allt sé það á mjög einföldum nót-
um. Veruleiki unglinganna í myndum
sem þessum virðist litlum breyting-
um taka í gegnum árin. Flestar pers-
ónurnar eru staðlaðar en það er frísk-
leiki í persónugerðunum og samtölin
eru sniðuglega samin og með hressi-
legum frásagnarstíl er reynt að
brjóta upp hið hefðbundna mynstur
unglingamyndanna. Að vísu víkur
sagan talsvert frá efninu þegar hún
leiðist út í lganalegan eltingarleik við
tölvuþrjóta, sem er óþörf viðbót.
Myndin heppnast ágætlega og nær
markmiðum sínum og má segja að
Spegill, spegill sé með skárri mynd-
um af því taginu sem hún tilheyrir.
Arnaldur Indriðason
Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Fyrir-
gefningu syndanna, fyrir þremur
árum.
í Bretlandi gefur Faber & Faber
út bókina óg í Bandaríkjunum
Knopf og Vintage í kiljuformi. í
frétt frá Vöku-Helgafelli segir að
viðræður um útgáfu bókarinnar
standi yfir við forlög á Norðurlönd-
um og i öðrum Evrópulöndum.
Utgáfuréttur til fimm landa
Ath Sendum í póstkröfu.
Laugavegi 18b Sími 562-9730 Fax 562-9731 Grænt númer 800-5730
Kringlunni Sími 568-0800 Fax 568-0880 Grænt númer 8006880