Morgunblaðið - 09.12.1999, Blaðsíða 62
*S2 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Smelltu þér á bók... i i ■
www.boksa la.is
UMRÆÐAN
Aðventukærleikar
í Garðabæ
SVEITARFÉLÖGIN í landinu
eru eitt af öðru að ganga frá fjár-
hagsáætlunum sínum fyrir næsta
ár. Hjá okkur í Garðabæ var fjár-
hagsáætlunin samþykkt í bæjar-
stjórn nú í byrjun desember. Fór sá
gjörningur fram án nokkurrar eftir-
tektar. Engir sýndu umræðum um
fjárhagsáætlunina áhuga, hvorki
fjölmiðlar né bæjarbúar. í sjálfu sér
eru það engin tíðindi, slíkt er venja í
Garðabæ, enda heyrir það til undan-
tekninga að fylgst sé með umræðu á
*r0tmWaJ»i.|O
í tilefni ársins 2000 gefur Morgunblaðið út
veglega sérútgáfu mánudaginn 3. janúar.
Þessi sérútgáfa verðmfyrsta blað Morgunblaðsins
á árinu 2000 og í henni verður birt margvíslegt
efni úr blaðinu frá upphafi.
Skilafrestur auglýsingapantana er til
kl. 12 föstudaginn 10. desember.
Vinsamlegast pantið tímanlega!
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar
á auglýsingadeild í síma 569 1111.
bæj arstj órnarfundum.
Samkvæmt venju eru
umræður um fjárhags-
áætlun hefðbundið
nagg meiri- og minni-
hluta, þar sem tekist
er á um forgangsröðun
einstakra fram-
kvæmda og í Garðabæ
hefur um árabil ekki
verið vilji fyrir því að
ná samkomulagi. Að
þessu sinni voru þó
ágreiningsmálin færri
og smávægilegri en oft
áður. Við drögin að
fjárhagsáætluninni
komu að venju fram
breytingartillögur frá
meirihluta sjálfstæðismanna, en
minnihlutin lagði einnig fram,
nokkrum dögum fyrir síðari um-
ræðu, samtals níu tillögur til breyt-
inga og voru sumar til útgjaldaauka
en aðrar kváðu á um lækkun út-
gjalda. Samtals hefðu tillögur okkar
minnihlutamanna aukið útgjöldin
um 12 millj. kr. eða 0,7 %. Jafnframt
létum við þess getið að ef meirihlut-
inn gæti fallist á þessar breytingar-
tillögur okkar samþykkti minnihlut-
inn fjárhagsáætlun fyi'ir árið 2000,
en slík samstaða um afgreiðslu áætl-
unarinnar hefði vissulega þótt sögu-
leg tíðindi í Garðabæ.
Vonbrigði með
Sjálfstæðisflokk
Viðbrögð sjálfstæðismanna í bæj-
arstjórninni við þessari málsmeð-
ferð ollu mér hins vegar miklum og
sárum vonbrigðum. I stað þess að
reyna að ná samkomulagi um breyt-
ingartillögurnar eða að minnsta
kosti hluta þeirra helltu þeir yfir
okkur minnihlutafulltrúana svívirð-
ingum og skömmum og kölluðu til-
löguflutninginn helbei'a sýnda-
rmennsku. Sérstaklega voru það
þau Erling Ásgeirsson, formaður
bæjarráðs, og Laufey Jóhannsdótt-
ir, forseti bæjarstjórnar, sem töluðu
af einskærum hroka og lítilsvirðingu
um tillögur okkar, sem vel að
merkja voru flestar annaðhvort í
samræmi við þeirra eigin þriggja
ára áætlun frá fyrra ári eða teknar
nánast orðrétt upp úr óskum for-
stöðumanna ýmissa stofnana bæjar-
ins. Þannig var t.a.m. með hugmynd
um bættan tölvukost skólanna, eins
ráðningu námsráðgjafa og óskir
skólastjóra Flataskóla um fé til end-
urbóta á illa búinni
skólalóð. Hér er ekki
rúm til að fjalla ítar-
lega um hugmyndir
þessar, en breytingar-
tillögur okkar voru að
sjálfsögðu settar fram í
fullri alvöru.
Slegið á sáttahönd
Upp á síðkastið hef-
ur samkomulag í bæj-
arstjórn Garðabæjar
batnað, sjálfur hef ég
lagt mig fram um það
að bæjarstjórnin geti
Einar staðið sameiginlega að
Sveinbjörnsson sem flestum ákvörðun-
um. Nú var tækifæri til
að ná sögulegu samkomulagi um
fjárhagsáætlun, en á þá sáttahönd
sló Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ
Fjárhagsáætlanir
Sjálfstæðisflokkurinn í
Garðabæ opinberaði eðli
sitt, segir Einar Svein-
björnsson, eðli sjálfs-
ánægju og hroka þeirra
sem líta á sig sem kónga
í eigin ríkidæmi.
með eftirminnilegum hætti. Hann
opinberaði jafnframt eðli sitt, eðli
sjálfsánægju og hroka þeirra sem
líta á sig sem kónga í eigin ríkidæmi.
í stjórnmálum lærir maður stöðugt
nýja lexíu. Eftir að hafa orðið vitni
að ótrúlegri vanþóknun sjálfstæðis-
manna í garð okkar þriggja fulltrúa
minnhlutaflokkanna fer minna fyrir
vilja en áður til þess að ná sam-
komulagi við þetta fólk. Sennilega
er því vænlegri leið til aðhalds og
gagnrýni á gerðir meirihlutans sú að
sýna hörku og óbilgirni, þótt mér sé
sjálfum fremur illa við slíkar aðferð-
ir í stjórnmálum. Sjálfstæðisflokk-
urinn í Garðabæ uppsker eins og
hann sáir. Ef hann vill vera einráður
í bæjarstjórn kallar hann jafnframt
yfir sig gallharða andstöðu minni-
hlutans. Slíkt liggur í hlutarins eðli.
Höfundur er bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokks i Garðahæ.
AUGLYSINGADEILD
Sími 569 1111 • Bréfasími 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
Bíldshöföa 20 • 112 Reykjavik • 510 8020 • www.intersport.is