Morgunblaðið - 09.12.1999, Síða 4

Morgunblaðið - 09.12.1999, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Omar Veisla við Tjörnina Þaö var vængjasláttur á Tjörninni kringlum birtist þar og tók að út- og fuglarnir flykktust að bakkan- deila góðgætinu til anda, gæsa og um þegar maður með fullan poka af álfta. Sameiginleg stjórnarnefnd ríkisspítalanna Guðný Sverrisdóttir fyrsti formaðurinn GUÐNY Sverrisdóttir, sveitarstjóri í Grýtu- bakkahreppi, verður næsti formaður stjórnarnefndar ríkisspítalanna og jafn- framt fyrsti formaðurinn í stjórnarnefnd sem fer með stjórn bæði Sjúkrahúss Reykjavíkur og Lands- spítalans eftir ákvörðun heilbrigðisráðherra þess efnis að skipa sameiginlega yfir báðum spítölunum. stjórn Frá tilnefningu Guðnýj- ar var greint á starfs- mannafundi í Sjúkrahúsi Reykjavíkur í fyrradag. Formaður stjórnar- nefndarinnar er tilnefnd- ur af ráðherra, fjórir stjórnarmeðlimir eru kosnir af Alþingi og tveir eru kosnir af starfsmannaráði spíta- lanna . Gert er ráð fyrir að stjórnin taki við um áramótin Auglýsingar DAS brutu gegn samkeppnislögum SAMKEPPNISRÁÐ hefur fellt fjóra úrskurði þar sem auglýsingaefni frá Happdrætti DAS er talið stangast á við samkeppnislög. í þremur tilvikum er lagt bann við birtingu þess en það var talið óþarfi í fjórða tilvikinu þar sem fyrir lá yfirlýsing happdrættis- ins um að birting þeirrar auglýsingar hefðu verið mistök. Afskipti samkeppnisyfirvalda af málinu voru til komin vegna kæru frá auglýsingastofunni Góðu fólki, sem annast auglýsingamál Happdrættis Háskóla íslands. I einni auglýsingunni kom fram að aðalvinningur í hverjum útdrætti væri 4 milljónir króna og hinu sama var haldið fram í vinningaskrá happ- drættisins. Hæsti vinningur 2 m.kr. Auglýsinganefnd Samkeppnis- stofnunar fjallaði um málið og segir ijóst að hæsti vinningur í hverjum út- drætti Happdrættis DAS sé 2 mill- jónir kr. á hvem miða. Til þess að fá 4 millj. kr. vinning í Happdrætti DAS þurfi viðkomandi að eiga báðar flokkaraðirnar, A og B, fyrir vinn- ingsnúmerið. Fullyrðingin um að að- alvinningur í hverjum útdrætti sé 4 milljónir kr. sé því röng og villandi og brjóti í bága við ákvæði 21. gr. sam- keppnislaga. Samkeppnisráð féllst á þetta álit og telur nauðsynlegt að banna Happ- drætti DAS að birta samsvarandi fullyrðingar Þá kvartaði Gott fólk yfir auglýs- ingaþætti Happdrættis DAS í Ríkis- sjónvarpinu þar sem kynnir hefði sagt að hægt væri að vinna 40 m.kr. á einn miða. Auglýsinganefnd Sam- keppnisstofnunar fjallaði um málið og sagði ljóst að til að vinna 40 m.kr. í Happdrætti DAS þyrfti viðkomandi að eiga báðar flokkaraðimar, A og B, íyrir vinningsnúmerið. Til þess að eiga möguleika á 40 milljóna kr. vinn- ingi þyrfti þannig að eiga tvo miða. Fullyrðingin um 40 milljónir kr. á einn miða væri því röng. Bann við birtingu Samkeppnisráð kvaðst sammála áliti auglýsinganefndar. Fullyrðingin væri röng og bryti því í bága við ákvæði 21. gr. samkeppnislaga nr. 8/ 1993. Samkeppnisráð lagði bann við að happdrættið birti samsvarandi fullyrðingar. Þá kvartaði Gott fólk yfir auglýsingu frá Happdrætti DAS með íyrirsögn- inni „Fleiri útdrættir - meiri líkur“. Kærandinn taldi gefið í skyn að með fjölgun útdrátta væru rnefri líkur á að hreppa vinning en til þess þyrfti ann- að hvort að bjóða fjölgun vinninga eða fækkun útgefinna miða í happ- drættinu. Aukin tíðni útdrátta hefði ekkert með líkur að gera. Samkeppnisráð kvaðst sammála því áliti auglýsinganefndar Sam- keppnisstofnunar að fullyrðingin „Fleiri útdrættir - meiri líkur“ væri röng og villandi. Jafnframt sé hún ós- anngjöm gagnvart keppinautum og brjóti í bága við ákvæði 21. gr. sam- keppnislaga nr. 8/1993 þar sem m.a. segir að óheimilt sé að veita rangar eða villandi upplýsingar í auglýsing- um og að þær skuli ekki vera ósann- gjarnar gagnvart keppinautum. „Samkeppnisráð telur nauðsynlegt að banna Happdrætti DAS að birta fullyrðinguna sem mál þetta fjallar um,“ segir í úrskurðinum. Loks kvartaði Gott fólk til Sam- keppnisstofnunar yfir auglýsingu frá Happdrætti DAS með fyru-sögninni „10 manns fá milljón á morgun". Kærandinn sagði að það væri blekk- ing þar sem ekki væri einvörðungu dregið úr seldum miðum og útdregin vinningsnúmer gætu einnig fallið á óselda miða og væri á engan hátt ör- uggt að 10 manns hlytu vinning held- ur væri fjöldi vinningshafa háður til- viljun. Eina leiðin til að standa við fullyrðinguna væri að draga ein- göngu úr seldum miðum. Auglýsinganefnd Samkeppnis- stofnunar taldi auglýsinguna gefa til kynna að öruggt væri að 10 einstakl- ingar fengju milljón í vinning en þar sem dregið væri úr öllum miðum væri slíkt ekki öruggt. Því væri orðalag auglýsingarinnar villandi og ósann- gjarnt gagnvart keppinauti og bryti í bága við ákvæði 21. gr. samkeppnis- laga. Þessu áliti var Samkeppnisráð sammála en þar sem Happdrætti DAS hafði lýst því yfir að birting auglýsingarinnar hefðu verið mistök og hún aðeins birst einu sinni taldi samkeppnisráð ekki nauðsynlegt að beita viðui’lögum. Sigurður Agúst Sigurðsson, for- stjóri Happdrættis DAS, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að kærumar til samkeppnisráðs væru komnar frá samkeppnisaðila DAS, Happdrætti Háskólans. „Þetta er mjög athyglis- vert vegna þess að við erum að fara svolítið eftir því sem háskólahapp- drættið sjálft hefur verið að gera í gegnum tíðina,“ sagði Sigurður Agúst og kvaðst þar vísa til bæklings háskólahappdrættisins þar sem full- yrt væri að þar gæti annar hver miði unnið og að annað hvert númer gæti unnið. „Okkur finnst mjög einkenni- legt að samkeppnisaðili, sem sjálfur hefur notað sams konar orðalag sé að setja út á við okkur þegar við notum það orðalag sem þeir hafa notað.“ Hann sagði líka einkennilegt að ekki mætti segja frá því að aðalvinningur happdrættisins væri 40 milljónir. „Við erum búnir að borga út tvöfalda vinninga út á fjórar milljónir; ég veit ekki hvað þessir menn eru að fara með þessu,“ sagði Sigurður Ágúst. Ætla að gera okkur tortryggilega Hann sagði að úrskurðimfr væru nýtilkomnir og happdrættið hefði ekki átt von á að fá bágt fyrir allar þessar auglýsingar. „Við vissum að það vai’ villa í einni auglýsingu, sem við kipptum strax til baka, sem varð vegna handvammar á auglýsingastof- unni þar sem nýr starfsmaður áttaði sig ekki á því að 10 manns geta fengið vinning en að fullyrða að 10 manns fái vinning var of sterkt til orða tekið. Við vildum líka leita sátta en það virt- ist ekki vera markmiðið hjá þessum aðilum að leita sátta; þeir virðast ætla að gera okkur tortryggilega í augum almennings.“ Sigurður Ágúst sagði að framhald þessa máls yrði skoðað, þar á meðal hugsanleg kæra til áfrýj- unamefndar samkeppnismála. „Þetta kemur okkur mjög undarlega fyrii’ sjónir því við teljum okkur hafa farið í einu og öllu eftir þeim almennu reglum sem gilt hafa í framsetningu á auglýsingum varðandi happdrætti. Eg ítreka það að háskólinn, sam- keppnisaðilinn sem er að kæra okkur, hefur notað sama orðalag." Dótturfélag Qrca SA er stærsti hluthafí í FBA D Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf. 10 stærstu hluthafar, 8. des. 1999 Hluthafar alls 3.836 Nafnverð hlutafjár, kr. 'Hlutfall 1 FBA Holding SA 1.903.000.000 27,99% 2 Lífeyrissjóðurinn Framsýn 487.406.202 7,17% 3 Lífeyrissjóður verslunarmanna 408.000.000 6,00% 4 Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf. 314.367.097 4,62% 5 Partimonde Holdings Anstalt 272.000.000 4,00% 6 Lisfield Holding 238.000.000 3,50% 7 Lífeyrissjóður sjðmanna 224.207.586 3,30% 8 íslandsbanki hf. 215.578.340 3,17% 9 Gunnar Pór Ólafsson 204.000.000 3,00% 10 Sterkir stofnar ehf. 204.000.000 3,00% 10 stærstu samtals 4.470.559.225 65,74% FBA Holding með 27,99% 10-15 kennar- ar vilja semja umendur- greiðslu AF UM 179 kennurum sem hafa fengið send bréf frá Fræðslumið- stöð Reykjavíkur um að þeir hafi fengið ofgreidd laun á þessu ári hefur einn endurgreitt og tíu geng- ið til samninga um endurgreiðslu. Alls hafa um 300 kennarar feng- ið ofgreidd laun allt frá haustinu 1997 og nam heildarupphæð of- greiddra launa um 31 milljón króna. í samræmi við verklags- reglur Reykjavíkurborgar og ríkis- ins í slíkum málum voru kennar- arnir krafðir um endurgreiðslu en einungis vegna ofgreiddra launa á þessu ári. Sú upphæð nemur um 11 milljónum króna. Kennurum var gefinn kostur á því að greiða mismuninn upp á átta mánuðum og hafa 10-Í5 kenn- arar haft samband við Fræðslu- miðstöðina og óskað eftir því að gera slíka samninga. Gert er ráð fyrir því að slíkir samningar verði frágengnir vegna þessa hóps um áramótin. Kennarinn sem þegar hefur greitt mismuninn gerði það með ávísun og var þar um að ræða fremur lága upphæð. Ofgreiðslan sem kennarar eru endurkrafðir um nam allt frá örfáum krónum á kennara upp í allt að 3% af heild- arlaunum kennara fyrstu átta mánuði ársins. LISTI yfir 10 stærstu hluthafa í FBÁ var birtur í gær. Stærsti hlut- hafi er FBA Holding SA, með 27,99% hlut eða 1.903 milljónir að nafnverði. Næststærstu hluthafar eru Lífeyrissjóðurinn Framsýn með 7,17% hlut og Lífeyrissjóður versl- unarmanna með 6%. FBA Holding er 100% dótturfélag Orca SA sem í ágúst sl. keypti öll hlutabréf í Áimúli Holding, sem fór með eignarhlut Scandinavia Holding í FBA. í kjölfarið var nafni Armúli Holding breytt í FB A Holding. Sömu aðilar standa að baki félög- unum, þ.e. fjórir hluthafahópar sem Eyjólfur Sveinsson, Jón Olafsson, Jón Ásgeir Jóhannesson og Þor- steinn Már Baldvinsson fara fyrir. í fréttatilkynningu sem send var út í kjölfar sölu á 51% hlut ríkisins í bankanum í byrjun nóvember kom fram að eigendur Orca hygðust skipta upp hlutabréfum sínum í FBA eins hratt og kostur væri, en þangað til myndu hluthafar fara beint með atkvæði á hluthafafundum FB A í samræmi við sinn eignarhlut.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.