Morgunblaðið - 09.12.1999, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Bæjarstjórinn í Ólafsfírði um gjaldþrot Sæunnar Axels
Mikið áfall fyrir
bæiarfélagið
ÁSGEIR Logi Ásgeirsson bæjar-
stjóri í Ólafsfirði sagði gjaldþrot
fiskvinnslufyrirtækisins Sæunnar
Axels ehf. mikið áfall fyrir bæjar-
félagið og grafalvarlegt mál.
„Þetta er mjög slæmt fyrir þá ein-
staklinga sem verða fyrir því að
missa vinnuna og hafa ekki að
neinu öðru að hverfa og líka fyrir
þá sem eru að tapa þarna verð-
mætum.“
Fyrirtækið Sæunn Axels ehf.
var úrskurðað gjaldþrota í Hérað-
sdómi Norðurlands eystra sl.
þriðjudag. Ástæðan er stórfelldur
taprekstur síðastliðinna ára en
skuldir fyrirtækisins eru um 830
milljónir króna. Um 30-40 manns
unnu hjá fyrirtækinu en starfsfólki
hafði fækkað á síðustu vikum og
mánuðum í kjölfar óvissu um
framtíð fyrirtækisins. Ásgeir Logi
sagði ekki ljóst á þessari stundu
hvaða afleiðingar gjaldþrotið ætti
eftir að hafa í bænum og þá hvort
að um einhverja búferlaflutninga
yrði að ræða. „Ef okkur ekki tekst
að koma einhverju á koppinn á ný
er spurning hvað gerist með fólkið
sem er vant að vinna og vill
vinna.“
Tímabundið atvinnuleysi
vegna hráefnisskorts
Vegna hráefnisskort hefur verið
tímabundið atvinnuleysi að undan-
förnu í þremur fiskvinnslufyrir-
tækjum af fjórum í bænum, m.a.
hjá Sæunni Axels. Ásgeir Logi
sagði að vegna ótíðar hafi verið lít-
ið að hafa af smábátum, auk þess
sem verð á mörkuðum hafi verið
hátt og framboð að minnka. „Þau
fyrirtæki sem reka sig á hráefni af
mörkuðum eingöngu hafa því verið
í erfiðri stöðu. Þetta er ekki bara
vandamál hér, því víða um land á
landvinnslan undir högg að
sækja.“
Ásgeir Logi sagði að í Ólafsfirði
væri rekin öflug útgerð frystiskipa
og að sú starfsemi bæri byggðar-
lagið uppi í dag. Það breytti því
hins vegar ekki að nauðsynlegt sé
að skapa atvinnutækifæri fyrir
fólk í landi. „Það er hefð fyrir því
að veiðar og vinnsla fari saman en
menn hafa ekki náð að aðlaga sig
breyttum tímum. Við Ólafsfirðing-
ar höfum áður lent í erfiðleikum
en náð að rífa okkur upp aftur og
ég vona að okkur auðnist að gera
það á ný.“
Skemmdir unnar á jólaskreytingum í miðbænum
Björgunar-
sveitar-
menn á vakt
um helgar
MIÐBÆJARSAMTÖKIN, sem
standa að Jólabænum Akureyri,
ásamt fleiri aðilum, hafa gert
samkomulag við Björgunarsveit-
ina Súlur um vakt að næturlagi
um helgar í miðbænum. Ólafur
Hilmarsson „bæjarstjóri“ Jóla-
bæjarins sagði að vegna tíðra
skemmdarverka á jólaskrauti hafi
menn ekki séð sér annað fært en
að setja upp vakt um helgar.
Skemmdir hafa verið unnar á
ýmsum jólaskreytingum og mann-
hæðar háir jólasveinar úr tréplöt-
um hafa einnig orðið fyrir barð-
inu á skemmdarvörgum. Gengið
var í skrokk á einum þeirra á
dögunum og öðrum var stolið af
stalli sínum. Ólafur sagði að pilt-
arnir sem skemmdu jólasveininn
á dögunum hafi verið kærðir til
lögreglu. Hann sagði að piltar
sem stálu jólasveininum um helg-
ina, hafi rölt með hann inn í bæ
og gefið vinkonu sinni í afmælis-
gjöf. Eftir að fréttist af því hvar
jólasveinninn var niðurkominn,
var hann snarlega sóttur og kom-
ið fyrir á stalli sínum á ný.
„Það er alveg með ólíkindum
hvernig menn geta látið og það
fær ekkert að vera í friði. Þetta
eru engin börn sem að þessu
standa en menn eru að gera þetta
í einhverjum fíflagangi,“ sagði
Ólafur.
Morgunblaðið/Kristján
Jólasveinamir vekja mikla athygli og þá ekki síst hjá yngstu kynslóð-
inni. Hún Kolbrún heilsaði einmitt upp á einn þeirra í miðbænum í gær
og hreinsaði m.a. snjóinn af stalli hans.
Morgunblaðið/Kristján
Frá hluthafafundi Tækifæris á Fosshóteli KEA í gær, en við enda
borðsins sitja þeir Krislján Þór Júliusson, bæjarstjóri á Akureyri, og
Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnunar.
Hlutafé Tækifæris
rúmar 200 milljónir
HLUTAFÉ Tækifæris hf., sem er
hlutafélag í eigu sveitarfélaga og
fyrirtækja á Norðurlandi og
Byggðastofnunar, er rúmar 200
milljónir króna eftir hluthafafund
sem haldinn var í gær.
Félagið var stofnað á síðasta ári
eftir að Byggðastofnun kynnti þau
áform sín að úthluta fjármagni til
atvinnuþróunarmála í kjördæmum
landsins næstu þrjú ár. I fram-
haldi af því hóf Kaupþing Norður-
lands að kanna áhuga sveitarfé-
laga og fyrirtækja á þátttöku í
stofnun þessa félags sem nú hefur
orðið til.
Markmið Tækifæris er að fjár-
magna nýsköpunarverkefni á
Norðurlandi eystra og vestra í því
skyni að ná góðri arðsemi og
stuðla að atvinnuuppbyggingu á
svæðinu. Umóknir sem félaginu
berast verða lagðar fyrir fagráð til
umsagnar og á grunni þeirrar um-
sagnar verður ákveðið að fjárfesta
eða hafna þeim verkefnum sem
berast.
Hlutafé félagins er sem fyrr
segir rúmar 200 milljónir króna og
eru áform um að auka það um 200
milljónir króna næstu tvö árin.
Kaupþing Norðurlands hefur sjóð-
inn í sinni vörslu og annast dag-
legan rékstur hans.
Kennarar Tónlistarskólans á Akureyri
Furðuleg- vinnubrögð
bæjarfulltrúa
FUNDUR kennara við Tónlistar-
skólann á Akureyri sem haldinn var í
gær sendi frá sér ályktun þar sem
furðu er lýst á þeim vinnubrögðum
bæjarfulltrúa að hækka laun sín um
tugi prósentna með þeim rökum að
Tónlistarskóli
Eyjafjarðar
Þrennir
jólatón-
leikar
ÞRENNIR jólatónleikar verða
haldnir á vegum Tónlistarskóla
Eyjafjarðar í Freyvangi í Eyja-
fjarðarsveit. Um er að ræða
tvenna hljóðfæratónleika og
eina söngtónleika.
Fyrstu tónleikarnir verða á
föstudagskvöld, 10. desember,
kl. 20.30, þá verða tónleikar á
laugardag, 11. desember, kl. 15
og loks verða söngtónleikar á
sunnudag, 12. desember, kl. 15.
Aðgangur að öllum tónleik-
unum er ókeypis og eru allir
velkomnir.
verið sér að leiðrétta þau til sam-
ræmis við laun bæjarfulltrúa annars
staðar.
„Krafa kennara við Tónlistarskól-
ann á Akureyri frá í vor um sam-
bærilega hækkun launa til jafns við
aðra kennara í bænum var hundsuð
og stendur því enn óbreytt. Fara
kennarar Tónlistarskólans fram á
útskýringu bæjarfulltrúa á þessu
háttalagi sínu,“ segir í ályktun kenn-
arafundarins.
♦ ♦♦
Kirkjustarf
AÐVENTUKVOLD verður í Sval-
barðskirkju á Svalbarðsströnd í
kvöld, fimmtudagskvöldið 9. desem-
ber, og hefst það kl. 20.30. Fjölbreytt
dagskrá og mikill söngur. Kirkju-
skóli verður á laugardag, 11. desem-
ber, kl. 11.
Aðventukvöld verður í Grenivík-
urkirkju á sunnudagskvöld, 12. des-
ember, kl. 20.30. Fjölbreytt dagskrá,
helgileikir, söngur og hljóðfæraleik-
ur. Ræðumaður verður Halldór
Blöndal, forseti Alþingis. Kirkjuskóli
verður á sunnudag, 12. desember, kl.
11 (ath. breytta dagsetningu). Að-
ventustund verður í Laufáskirkju á
sunnudag kl. 13.30 í upphafi hátíðar í
Gamla-bænum.
Einn milljarður í Framkvæmdasjóði Akureyrar
Tillögur um aðgeröir í atvinnu-
málum lagðar fram innan skamms
STAÐA Framkvæmdasjóðs Akur-
eyrar er mjög sterk eftir sölu hluta-
bréfa bæjarins í Útgerðarfélagi Ak-
ureyringa fyrr .á árinu og er gert ráð
fyrir að peningaleg staða hans verði
að öllu óbreyttu jákvæð um rúman
einn milljarð króna í árslok.
Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri sagði í framsögu sinni við
framlagningu frumvarps að fjár-
hagsáætlun bæjarsjóðs að sam-
kvæmt fyrirliggjandi fjármagnsyfir-
liti Framkvæmdasjóðs væri ekki
gert ráð fyrir neinum útgreiðslum úr
sjóðnum á næsta ári nema framlagi
til málaflokks atvinnumála að upp-
hæð 19 milljónir króna, eða jafngildi
framlags Ákureyrarbæjar til At-
vinnuþróunarfélags Eyjafjarðar bs.
„Fyrir liggur hins vegar að við
umræður um sölu á hlut bæjarins í
ÚA kom fram eindreginn vilji til
þess að verja verulegum fjármunum
úr sölunni til beinna aðgerða í at-
vinnumálum og munu tillögur þar að
lútandi lagðar fram innan skamms,"
sagði bæjarstjóri.
Hann vakti athygli á því að í fjár-
hagsáætlun fyrir Leiguíbúðir bæjar-
ins væri gert ráð fyrir neikvæðri
peningalegri stöðu að upphæð 970
milljónir króna í lok ársins 2000.
Eignir á móti þeim skuldum sem
hvíla á íbúðum bæjarins eru færðar
á 1.273 milljónir króna. Áætlað er að
byggja 15 íbúðir á næsta ári og ráð-
gert að verja til þess verkefnis um
105 milljónum króna.
Kristján Þór benti einnig í ræðu
sinni á að rekstur veitna Akureyrar-
bæjar væri með ágætum og í góðu
jafnvægi. Hita- og vatnsveita Akur-
eyrar skilar nú meiri hagnaði en
bæjarsjóður fyrir afskriftir og fjár-
magnskostnað og er haldið áfram á
þeirri braut sem mörkuð hefur verið
að greiða niður lán veitunnar af
myndarskap. Rafveita Akureyrar er
skuldlaust fyrirtæki með jákvæða
peningalega stöðu og skilar rekstur-
inn góðri afkomu. Áætlað er að fjár-
festa á vegum veitnanna fyrir 207
milljónir á næsta ári. Þá er gert ráð
fyrir að veiturnar taki áfram þátt í
fyrirtækjunum Islenskri orku ehf.
og Þeistarreykjum ehf. „Veiturnar
taka með þeim hætti af fullri ábyrgð
þátt í þeirri sókn til betri búsetuskil-
yrða sem bæjarstjóm ber að vinna
að af alefli,“ sagði Kristján.
Menntasmiðja
kvenna
Opið
hús
NEMENDUR haustannar
Menntasmiðju kvenna verða
með opið hús fyrir gesti og
gangandi frá kl. 14 til 18 á
laugardag, 11. desember.
Boðið verður upp á léttar
veitingar og munu nemendur
sýna afrakstur námsins í orði
og verki, m.a. með spuna-
dansi, söng og upplestri, og
efna til sýningar á handverki
og myndlist. Allir eru vel-
komnir.