Morgunblaðið - 09.12.1999, Síða 34
34 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Aho nýtur mestra vinsælda
fyrir forsetakosningamar
Vinsældir stjórnmálamanna fyrir fínnsku
forsetakosningarnar taka örum breyting-
um. Nýjustu tölur sýna að Esko Aho for-
sprakki stjórnarandstöðunnar hafi góða
möguleika að ná kjöri, skrifar Lars Lund-
sten, fréttaritari Morgunblaðsins í Finn
landi. Elisabeth Rehn sem þótti öruggur
sigurvegari fyrir nokkru skipar nú fjórða
sæti samkvæmt skoðanakönnunum.
ÞAÐ eru tæpir tveir mánuðir í fyrstu
umferð forsetakosninganna í Finnl-
andi. I upphafi kosningarbaráttunn-
ar þótti sjálfgefið að næsti forseti
yrði kvenmaður. Nú virðist hins veg-
ar Esko Aho fyrrverandi forsætis-
ráðherra og núverandi leiðtogi
stjórnarandstöðunnar hafa tekið for-
ystuna.
Kosningabaráttan hófst fyrir al-
vöru í nóvember en einn af helstu
frambjóðendum, Tarja Halonen ut-
anríkisráðherra frá Jafnaðarmanna-
flokknum, ætlar fyi’st að sjá um for-
mennsku Finna í Evrópusam-
bandinu sem lýkur um áramótin. Þá
hyggst hún hefja baráttuna í alvöru.
Þangað til fyrir skömmu voru vin-
sældir Halonen langt fyrir neðan
fylgi Jafnaðarmannaflokksins. Þeg-
ar nær dregur kosningadegi þykir
liklegt að Halonen nái að taka fram-
úr flestum öðrum. Hún gæti orðið
þriðji forsetinn úr röðum finnskra
jafnaðarmanna. En hún er kvenmað-
ur og sósíalisti. Þetta þykja ekki góð
einkenni í augum margra Finna.
Vinsældir breytast ört
Á meðan Halonen vinnur við að
móta stefnu ESB varðandi stríðið í
Tsjetsjníu og önnur mál sýna skoð-
anakannanir að staða hennar hefur
batnað upp á síðkastið. Halonen og
Esko Aho formaður Miðflokksins
sem er stærsti stjómarandstöðu-
flokkurinn skipuðu áður þriðja og
fjórða sæti á þeim vinsældalistum
sem fjölmiðlar birta jafnóðum og
kannanir eru gerðar. Síðustu kann-
anir gefa hins vegar í skyn að þau tvö
séu líkleg til að komast í aðra um-
ferð.
Finnar kjósa forseta í tveim um-
ferðum fái enginn frambjóðandi
hreinan meirihluta atkvæða í fyrstu
umferð. í síðari um-
ferðinni verða hins veg-
ar aðeins þeir tveir
frambjóðendur sem
hlutu flest atkvæði í
fyrri umferðinni.
Aho eini
karlmaðurinn
Esko Aho er eini
karlmaðurinn sem hef-
ur fengið mælanlegt
íylgi í þessum vin-
sældakönnunum.
Formlega eru þrír
karlmenn og fjórar
konur í framboði en að-
eins fjórir stjórnmála-
menn virðast fá fylgi
sem nokkru nemur. Auk þeirra Aho
og Halonen eru Riitta Uosukainen
frá Hægriflokknum og Elisabeth
Rehn frá Sænska þjóðarflokknum í
þeim hópi.
Elisabeth Rehn tapaði naumlega
fyrir Martti Ahtisaari fyrir sex ár-
um. Hún var um langt skeið talinn
líkleg til að sigra færi hún fram í
næstu kosningum. Starf hennar á
vegum Sameinuðu þjóðanna í Bosníu
taldist góð leið til að komast úr dæg-
urpólitíkinni heima fyrir. Reynsla
hennar af Bosníu var einnig talin
koma henni til góða vegna þess að
utanríkismál eru einkum í verka-
hring Finnlandsforseta. Samt hefur
fylgi hennar af einhverjum orsökum
hrapað úr 34 í 18 prósent síðan í júní.
Það kann að hafa áhrif á fylgi
Rehn að hún skyldi styðja aðild
Finna að Atlantshafsbandalaginu.
Að vísu hefur hún ekki beinlínis lagt
til að Finnar sæki um
NATO-aðild en um-
mæli hennar hafa hnig-
ið mjög í þá átt. Þá
sýna skoðanakannanir
að Finnar hafi h'tinn
sem engan áhuga á
NATO.
Varnarhugur Finnar
er mikill enda var hald-
ið upp á sextíu ára
minni Vetrarstríðsins
þann 30. nóvember.
Meirihluti Finna segist
treysta á eigin landv-
arnir en ekki samstarf
við erlenda aðila.
Riitta Uosukainen
frambjóðandi hægri
manna í Sameiningarflokknum tók
við af Rehn í efsta sætinu á vin-
sældalistanum í nóvember. Hún er
starfandi þingforseti og mikill þjóð-
ernissinni. Talið er að margar hægri
konur hafi yfirgefið Rehn fyrir Uos-
ukainen.
Nú virðist einnig Uosukainen vera
á niðurieið. Helsingin Sanomat,
stærsta dagblað Finna, birti á föstu-
daginn tölur sem sýndu að Aho hafi
naumlega farið framúr Uosukainen.
Fylgi hans væri 27% en hennar 26%.
Það vinnur kannski helst gegn
Uosukainen að hún er talin vera ór-
eynd í utanríkismálum. Rehn hefur
starfað á vegum SÞ en auk þess var
hún varnamálaráðherra þegar Finn-
ar nálguðust NATO eftir hrun So-
vétríkjanna. Halonen er núverandi
utanríkisráðheiTa og Aho sá um að-
ildarsamning Finna við ESB í upp-
hafi áratugarins.
Esko Aho
Uosukainen fæddist í Kirjálahér-
aði sem Sovétmenn tóku af Finnum í
síðari heimsstyrjöldinni. I upphafi
kosningarbaráttunnar var haft eftir
Uosukainen að henni fyndist eðlilegt
að Rússar skiluðu Kirjálahéraði aft-
ur en án þeirra sem byggja landið
núorðið. Þótti þetta kæruleysisleg
yfirlýsing þrátt fyrii’ að Finnar séu
einhuga um óréttlætið í því að hér-
aðið var tekið af þeim.
Valdastaða forsetans
á eftir að mótast
Þegar næsti forseti tekur við völd-
um 1. mars nk. breytist einnig
stjórnarskrá landsins. Dregið verður
úr möguleikum forsetans til að hafa
afskipti af innani'íkismálum. Einnig
er vafasamt hversu mikinn þátt for-
setinn fær að taka í mótun Evrópum-
ála. Að mörgu leyti telst sá mála-
flokkur til innanríkismála en ekki
alþjóðamála.
Esko Aho hefur tekið þá stefnu að
verða áfram stjórnmálaleiðtogi.
Þetta hefur verið einkenni Finn-
landsforseta gegnum tíðina. Riitta
Uosukainen hefur hins vegar lýst því
yfir að hún hygðist verða „menning-
ai'forseti". Halonen mætti telja nær
Aho en Rehn þar á milli.
Það er hins vegar víst að mörg
ákvæði stjórnarskrárinnar eru óljós.
Þannig getur verðandi forseti mótað
framtíð forsetaembættisins. Sumfr
telja að það skipti sköpum hvort
næsti forseti er kona eða karimaður.
Verði kona fyrir vali hafi það ef til
vill þær afleiðingar að forsetaem-
bættið verði valdaminna en ella.
Það eru aðeins þau Aho og Halon-
en sem hafa reynslu af þeim verka-
hring sem heyrir undir lögsögu
Finnlandsforseta. í forsætisráð-
herratíð sinni fékkst Aho við mótun
stefnu Finna varðandi ESB og þau
ríki sem losnuðu undan ógnarstjóm
kommúnista. Sem utanríkisráðhen’a
á Halonen hins vegar sæti meðal
þeirra sem sjá um rekstur þessara
mála í dag.
Breskir karlaklúbbar
Bann ekki
fyrirhugað
KARLAKLÚBBAR í Bretlandi
verða bannaðir, að sögn dagblaðsins
The Daily Telegraph á þriðjudag en
talsmaður Tonys Blairs forsætisráð-
herra vísaði fregninni þegar á bug.
Blaðið fullyrti að stjórnin hygðist
leggja klúbbana, sem sumir kalla
vígi karlrembunnar, að velli með því
að setja í lög að bæði kynin yrðu að
fá aðgang að þeim.
Um er að ræða margs konar
klúbba og þeir elstu eru frá 18. öld og
fornfrægir eins og til dæmis Garrick
og Cariton. Sumir em kallaðir golf-
klúbbar og mun þá íþróttin stundum
hafa verið notuð sem yffrskin er
duga myndi til að stugga við konum.
Slakað hefur verið til með því að
koma á fót sérstökum deildum fyrir
konur.
Einkaklúbbar era ekki háðir
ákvæðum laga gegn kynferðislegri
mismunun en dagblaðið hefur eftir
ráðherram að tilvist karlaklúbbanna
sé „tímaskekkja" og ekki í samræmi
við lífshætti í hinu nýja Bretlandi
Blairs.
Kate Hoey, ráðherra íþróttamála,
hefur sagt að félög geti fengið að
vera með sérstaka aðstöðu fyrir
hvort kyn ef það verði álitið nauðsyn-
legt með tilliti til „einkalífs og sið-
gæðis“. Einnig verði leyft að vera
með sérstök tímabil fyrir karla og
önnur fyrir konur í sundlaugum ef
trúarlegar ástæður séu í húfi.
Bókaverð er of hátt
3 bækur
4.460 krónur
5.606 eintök
75 milliónir króna handa
Degi og Steingrími og öðrum
www.tunga.is
tískuverslun
v/Nesveg, Seltjarnarnesi
Sími 561 1680 !
^ársttprttsítofmt
nedrum
I Brekkuhúsum 12
kynnir Sebastian hárvörur
Ráðgjafi verður á staðnum milli kl. 13 og 18.
SEBASTIAN
Allir velkomnir
ENS
Siemens uppþvottavél.
Sannkölluð hjálparhella
í eldhúsinu.
Sérlega hljóðlátog sparneytin. Fjögur þvottakerfi,
tvö hitastig (nauðsynlegtfyrirviðkvæmtleirtau),
fjórföld flæðivörn með Aqua-Stop.
Þetta er uppþvottavél eins og þú vilt hafa hana.
éé SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.is
Umboðsmenn um land allt!