Morgunblaðið - 09.12.1999, Page 50
,50 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
BJÖRG BJARNADÓTTIR
frá Geitabergi,
er lést fimmtudaginn 25. nóvember, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn
10. desember kl. 13.30.
Edda Bergljót Jónasdóttir, Guðmundur Jóhannsson,
Jónas Guðmundsson,
Björg Guðmundsdóttir, Kristbjörn Orri Guðmundsson,
Þorvaldur, Edda Lind, Karen Ösp,
Guðmundur Ragnar.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓNÍNA ALDÍS ÞÓRÐARDÓTTIR,
áður til heimilis
á Borgarheiði 1,
Hveragerði,
lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum, Selfossi,
þriðjudaginn 7. desember.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Systir okkar,
ELÍN MÁLFRÍÐUR HELGADÓTTIR,
sem lést á elliheimilinu Grund föstudaginn
3. desember, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 10. desember kl. 13.30.
Andrea Helgadóttir,
Anna María Helgadóttir.
+
Móðir okkar og tengdamóðir,
INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR,
Barðavogi 20,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju í dag,
fimmtudaginn 9. desember, kl. 15.00.
Guðmundur Örn Árnason, Sólveig Runólfsdóttir,
Haukur Kristinn Árnason, Guðrún Guðmundsdóttir,
Þórunn Árnadóttir, Tómas Agnar Tómasson,
Svava Árnadóttir, Jón Guðnason.
+
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
JÓHANNA EINARSDÓTTIR,
Óðínsvöllum 19,
Keflavík,
lést á Landakotsspítala sunnudaginn
5. desember.
Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju
laugardaginn 11. desember kl. 14.00.
Guðrún Veturliðadóttir, Steingrímur D. Steingrímsson,
Sigurður Wium Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Útför
RAGNHEIÐAR VILMUNDARDÓTTUR,
sem lést þriðjudaginn 30. nóvember síðast-
liðinn, fer fram frá Skálholtskirkju laugardaginn
11. desember kl. 13.30, en jarðsett verður að
Stóra-Núpi.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem
vilja minnast hinnar látnu, er bent á
líknarstofnanir.
Hóþferðabíll fer til Skálholts frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavik (BSI)
kl. 11.30.
\ Aðstandendur.
MAGNUSINA (INA)
BÖÐ VARSDÓTTIR
+ Magnúsína Guð-
björg (Ina) Böðv-
arsdóttir fæddist á
Hermundarstöðum í
Borgarfirði 27. aprfl
1930. Hún lést á líkn-
ardeild Landspíta-
lans 26. nóvember
siðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Digraneskirkju
3. desember.
Elsku mamma mín.
Égflytþér,móðir,
þakkir þúsundfaldar,
og þjóðin öll má heyra kvæði mitt.
Er Islands mestu mæður
verðataldar,
þá mun það hljóma fagurt, nafnið þitt.
Blessuð sé öll þín barátta og vinna.
Blessað sé hús þitt, garður
feðra minna,
sem geymir lengi gömul spor.
Haf hjartans þakkir, blessun
bama þinna,
og bráðum kemur eilíft vor.
(Davíð Stefánsson)
Svala.
Ekki er hægt að lýsa
þeirri sáru tilfmningu
sem býr í brjóstum
okkar nú. Pú varst ein-
stök kona og alveg ein-
stök amma. Þú hélst
svo vel utan um þá
stóru fjölskyldu sem
þú áttir, þú varst ein-
staklega sterk, atorku-
söm og hlý, vildir allt
fyrir alla gera og varst
ekki lengi að birtast
þegar fjölskyldan
þurfti á hjálp þinni að
halda. Húmorinn var
alltaf til staðar, alveg
fram að kveðjustund. Minningarnar
um þig eru margar: Rólegt kvöld
með Titanic á skjánum og kjúklinga-
bita á disknum, sumarbústaðaferðir
á Laugarvatn, gamlárskvöld, jóla-
boðin, kartöflutínslan í Smáranum
og ekki má gleyma rabarbara-
grautnum sem þú eldaðir svo oft í
Hrauntungunni. Þú varst alveg ein-
stök amma og svo margt hægt að
læra af þér. Mig langar að senda þér
bæn sem þú kenndir mér þegar ég
var barn:
Vertu nú yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson)
Kveðjustund er alltaf erfið en ég
veit að afi, langamma og langafi
munu taka vel á móti þér og varð-
veita þig. Elsku amma, við systkinin
munum ávallt minnast þín og þú átt
sérstakan stað í hjarta okkar. Við
kveðjum þig með þessu ljóði eftir
Hannes Hafstein:
Ég veit, þú hefðir sagt mér að herða
huga minn.
Ég hugga mig sem bezt, til að gera
vilja þinn.
Ég geymi hvert þitt bros í
minningminni.
Ég man og skal ei gleyma
samvistþinni.
Ég vildí eg gæti fléttað þér fagran
minniskrans.
En fyrir augun skyggja heitu tárin.
Svo vertu sæl, mín amma! I faðmi
fannklædds lands
þú frið nú átt. Við minninguna’
-ogsárin.
Við erum svo þakklát fyrir að hafa
átt þig fyrir ömmu.
Guð blessi þig.
Þín barnaböm
Ina, Stefán og Bjarmi.
HÓLMFRÍÐUR
ÞÓRHALLSDÓTTIR
+ Hólmfríður Þór-
hallsdóttir fædd-
ist í Laufási í Bakka-
dal við Arnarfjörð
17. ágúst 1930. Hún .
lést 26. nóvember
si'ðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Kópavogskirkju
6. desember.
Það hljóta að hafa
verið góðir og
hamingjuríkir dagar
vestur í Ketildölum og
kjarviðri þegar Hólm-
fríður Þórhallsdóttir
mágkona mín var í heiminn borin í
ágústmánuði árið 1930. Þessi mikil-
hæfa og glæsilega kona sem mér
fannst ætíð ganga upp í ímynd minni
um þær konur í söguarfi okkar sem
best voru gerðar að atgervi öllu.
Náttúran þarna vestur frá er stór-
brotin. Fjöllin há og sæbrött en inn á
milli þeirra leynast dalir sem njóta
skjóls og veðursældar.
Laufás, fæðingarstaður og æsku-
heimili Hólmfríðar, stendur utanvert
við minni Bakkadals og sér yfir Arn-
arfjörðinn og inn til dalsins gróins og
skjólsæls, kringdan fjöllum. Fyiir
neðan bæinn, hvít sandfjaran stór-
steinótt og kjörin fyrir leiki og gat
gefið ímyndunaraflinu byr undir
báða vængi. Hús, kirkjur og reið-
skjótar á sandinum sem hægt var í
útfiri, að þeysa á um hvorutveggja
þekktar lendur og þær þar sem ím-
yndunaraflið eitt ræður fór. Þetta er
náttúra sem reynir á. Gefur marg-
háttuð tækifæri til leiks og þroska á
blíðum sumardögum,
og á vetrum þegar veð-
ur verða válynd og fólk
þarf að takast á við um-
hverfið og sjálft sig;
þroskar og mótar. I
stórum hópi vel gerðra
systkina og tiltölulega
fjölmennu ungmenna-
samfélagi í Bakkadal
hefur oft verið glatt á
hjalla á þeim dögum.
Þetta umhverfi skilaði
Hólmfríði með sínar
góðu gáfur og list-
hneigð, sem hæfum og
sterkum einstaklingi út
í lífið. Við sem kynntumst henni
fundum að þarna átti hún ætíð dýr-
mætan sjóð sem hægt var að leita í
þegar á þurfti að halda í gleði og á al-
vörustundum lífsins. Ekki má
gleyma þætti foreldranna, Þórhalls
og Mörtu, í mótun bama þeirra. Erf-
iðisvinnufólki sem aldrei lét stritið
smækka sig. Átti alltaf dýran sjóð í
bókmenntum og ljóðum bestu höf-
unda eldri og yngri. Höfðu yndi af
því að tala um það sem lesið var og
flytja til þeirra sem á vildu hlýða og
ræða um. Enda sóttu margir að Lau-
fási og enginn fór þaðan svo að hann
væri ekki heldur ríkari, en áður en
hann kom. Eg veit að það hefur verið
gaman að alast upp í þessum mann-
vænlega barnahópi þeirra Mörtu og
Þórhalls. I þeim komu saman sterkir
stofnar úr Skaftafellssýslu og
Breiðafirði. Stofnar sem frá hafa
komið þjóðkunnir einstaklingar í
menningu og atvinnulífi. Arfurinn
var því góður og Hólmfríði ekki úr
+
Kærar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur hlý-
hug og vináttu við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu, lang-
ömmu og langalangömmu,
ÓLAFAR SVEINHILDAR HELGADÓTTUR,
Garðvangi,
Garði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Garðvangi.
ísleifur Guðleifsson,
Helgi Guðleifsson,
Kristján Guðleifsson,
Ingibjörg S. Guðleifsdóttir,
Heiðrún Guðleifsdóttir,
barnabörn, langömmubörn
og langalangömmubörn.
Sigrún Haraldsdóttir,
Einarína S. Hauksdóttir,
Anna M. Guðmundsdóttir,
Guðmundur Stefánsson,
ætt skotið. Ég ætla hér ekki að fara
að tíunda einstakan dugnað Hólm-
fríðar og kjark, hann er öllum kunn-
ur sem hana þekktu. Þrek hennar á
stundum þar mörgum hefur reynst
ofvaxið að taka árina, hvað þá að
skila lífsfleyinu fram á við eins og
hún gerði. En áhöfnin var samhent
og sterk og ber uppruna sínum gott
vitni. Ég þakka fyrir að hafa kynnst
svo mætri manneskju í orðsins
fyllstu merkingu. Mér verður ætíð
minnisstætt er _ég hitti þau hjónin
Hólmfríði og Olaf Heiðar, þessar
glæsilegu manneskjur, gefandi og
skemmtileg í viðræðum. Vel heima í
samtíð sinni og sögu þjóðarinnar. Að
koma á heimili þeirra og hitta þau og
hinn mannvænlega barnahóp og
kynnast þeirri ástúð sem ríkti í fjöl-
skyldunni er eftirminnilegt. Þar var
bæði hátíð og skemmtan að koma.
Þrátt fyrir að fjölskyldan væri stór á
nútíma mælikvarða, hjón með sjö
börn, virtist alltaf vera nóg rými fyr-
ir aðra á heimilinu. Þess nutum við
og börn okkar og skal hér þakkað
enn einu sinni fyrir það. Börnum
hennar og aðstandendum öllum
votta ég ríka samúð mína. Missir
þeirra er mikill, en þeirra ríkidæmi
er líka mikið. Minning um ástrík for-
eldri, sem höfðu heilbrigðan metnað
fyrir hönd barna sinna. Höfðu ætíð
tíma íyrir alla og hvern og einn. Er
nokkurs betra og dýrmætara að
minnast? Blessuð sé minning Hólm-
fríðar Þórhallsdóttur.
Snær Karlsson.
Skilafrest-
ur minn-
ingar-
greina
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins
tiltekna skilafrests.