Morgunblaðið - 09.12.1999, Side 67

Morgunblaðið - 09.12.1999, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 67 FRÉTTIR Nýr sjúkrabíll á Búðardal RAUÐA kross deildin á Búðardal tók nýlega við fullkomnum sjúkra- bíl, þeim sextánda, sem Rauði kross Islands útvegar siðan félagið tók að sér að kaupa og reka alla sjúkrabíla á landinu samkvæmt samningi við stjórnvöld í ársbyijun 1998. Billinn, sem er af gerðinni Volkswagen Transporter og var keyptur í gegnum Heklu mætir brýnni þörf fyrir sérútbúna bifreið til sjúkraflutninga á Búðardal, seg- ir í fréttatilkynningu. Stefnt er að því að afhenda tvo sjúkrabíla til við- bótar áður en árið er liðið, til Borg- arness og Blönduóss, og endurnýja siðan sex bifreiðir á næsta ári. Rauði kross íslands leggur ár- lega 45 milljónir króna til kaups og reksturs sjúkrabiia sem nú eru 65 að tölu og gegna mikilvægu hlut- verki í sjúkraflutningum um land allt. Jóhann Sæmundsson, formaður Rauða kross deildarinnar í Búðar- dal, tók við lyklum að nýja bflnum úr hendi Finnboga Eyjólfssonar, blaðafultlrúa Heklu, í viðurvist Sigrúnar Árnadóttur, fram- kvæmdastjóra Rauða kross Islands. Goethe-Zentrum sýnir kvikmyndina „Fást“ GOETHE-Zentrum á Lindargötu 46, sýnir fimmtudaginn 9. desember kl. 20.30, kvikmyndina „Fást“ frá ár- inu 1960 með stórleikaranum Gustaf Grúndgens í sínu frægasta hlutverki sem Mefistófeles. Þetta er kvikmyndagerð eins frægasta verks gjörvallrar bók- menntasögunnar, samnefnds leikrits eftir Johann Wolfgang von Goethe en í ár er þess víða minnst að liðin eru 250 ár frá fæðingu Goethes. Hér segir frá lærdómsmanninum Fást sem haldinn er djúpstæðri ófullnægju. Mefistófeles (djöfullinn) lofar að uppfylla allar óskir Fásts gegn því að hljóta sálu hans í staðinn. Af þessum samningi spinnst mjög dramatísk atburðarás þar sem m.a. morð og galdrar koma við sögu en örlagaríkust reynast þó kynni Fásts af stúlkunni Grétu. Myndin er með enskum texta og aðgangur er ókeypis. Bókin MIKILVÆGUSTU TUNGUMÁL JARÐAR svarar: Væri þjóðin betur sett án séríslenskra stafa? www.tunga.is „Nauðsyn lögformlegs mats“ MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Umhverfisvinum: „Sú niðurstaða meirihluta um- hverfisnefndar Alþingis að fram skuli fara lögformlegt mat á um- hverfismálum Fljótsdalsvirkjunar, markar tímamót í umfjöllun AI- þingis um Fljótsdalsvirkjun. Þessi niðurstaða styrkir enn kröfu al- mennings um að slíkt mat fari fram. Skýrsla Landsvirkjunar stenst ekki þær kröfur sem gerðar eru til frummatsskýrslu um lagalega stöðu málsins þ.e.a.s. hvort virkj- analeyfi sé fyrir hendi. Auk skýrslu Landsvirkjunar liggja fyrir Alþingi skýrsla Þjóð- hagsstofnunar um efnahagsleg áhrif virkjanaframkvæmda og skýrsla Nýsis hf. um félagsleg áhrif álvers á Reyðarfirði. Hvorar tveggja eru á ábyrgð hagsmunaað- ila. Forstjóri Þjóðhagsstofnunar, Þórður Friðjónsson, er formaður samninganefndar stjómvalda gagnvart Norsk Hydro og Sigfús Jónsson, höfundur skýrslu Nýsis, situr í stjóm Landsvirkjunar, skip- aður af iðnaðarráðherra. Þessar staðreyndir rýra mjög trúverðugleika þessara skýrslna sem þingsályktunartillaga iðnaðar- ráðherra byggir á og undirstrika nauðsyn lögbundins mats þar sem óháðir aðilar koma til verks.“ New York Times metsölubókin RÉTT MATARÆÐI FYRIR ÞINN BLÓÐFLOKK eftir dr. Peter DAdamo er LOKSINS komin ^yL í verslanir Þessi bók hefur selst í milljónum eintaka, vakið gríðarlega athygli og hjálpað fjölda fóiks. í Rétt mataræði fyrir þinn blóðflokk finnur þú einstaklingsbundið mataræði, sniðið að þínum þörfum, svo þú haldir heilbrigði, lifir lengur og náir kjörþyngd. SVO bú habt N>tfum Eigum við öll að fylgja sama mataræði? „Hvað myndir þú segja ef ég segði þér að lykillinn að heilbrigðu og þróttmiklu lífi án sjúkdóma sé að finna í blóðflokki þínum?“ spyr dr. Peter D'Adamo og sýnir okkur ein- falt svar í Rétt mataræði fyrir þinn blóðflokk. Hér koma urnmæli nokkra þekktra lækna um bókina: „Mataræði er ein af af aðalundirstöðum góðrar heilsu. Þessi þýðlega þýdda bók er gott innlegg í tengsl mataræðis og heilsu.“ Þorsteinn Njálsson, Leknir. „Tímamótauppgötvun!“ Bemie Siegel, M.D. (höfúndur bókarinnar Kærieikur, lækning, kraftaverk og þekktur bandariskur krabbameinslæknir). „Peter D'Adamo hefur annað hvort fært okkur mikilvægt tillegg til könnunar á mannlegu mataræði eða gjörbylt sviði næringarlæknisfræðinnar.“ Jonathan Wright, M.D. (höfúndur bókarinnar Dr. Wrights Book of Nutritional Healing). Fæst í öllum helstu bókaversl- unum og heilsuvörubuðum. „Læknisfræðilegt afrek fyrir framtíðina.“ Joseph Pizzomo, N.D. (rektor háskólans í Bastyr og höfúndur metsölubókarinnar Textbook of Natural Medicine). Pöntunarsímar: GSM 698 3850 og 435 6810. LEIÐARLJOS Lækkaðu skattana! Kauptu hlutabréf í tæka tíð o> *? s 00 ✓ r s = I Avöxtun fjarmuna . I Verðbréfaráðgjöf VERÐBRÉFASTOFAN Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 570-1200

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.