Morgunblaðið - 19.12.1999, Blaðsíða 14
14 B SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Möikinni 3, sími 588 0640.
Opið mrin.-fös. kl. 12-18,
lou.kl. 11-16, sun.kl. 13-17.
Bókin
MIKILVÆGUSTU
TUNGUMÁL JARÐAR
svarar:
Mun íslenskan
deyja út?
www.tunga.is
Bókin
MIKILVÆGUSTU
TUNGUMÁL JARÐAR
svarar:
Er íslensk tunga
mikilvæg?
www.tunga.is
hygli og hugarástand hundsins. Háls
er í meðallagi langur og reistur,
sterklegur og hvelfdur við hnakka.
Húð er þéttliggjandi.
Bolur er sterklegur og í samræmi
við byggingu hundsins og heildar-
svip. Bak er sterklegt, vel vöðvafyllt
og beint. Brjóstkassinn er langur,
djúpur og vel hvelfdur. Lend er
breið og vel vöðvaíyllt. Spjaldhrygg-
ur er tiltölulega stuttur, breiður,
ávalur og vel vöðvafylltur. Kviður er
aðeins uppdreginn.
Skottið er frekar hátt ásett og
hringast upp á bakið.
Útlimir:
Framhluti: Framfætur séð fram-
an frá eru samsíða, beinir og sterk-
byggðir. Liðbeygjur eru eðlilegar.
Herðablöð eru vel hall-
andi og bógar vel vöðva-
fylltir. Sporar mega
vera tvöfaldir. Lögun
loppunnar er aðeins
ílöng; tær eru hvelfdar
og liggja þétt saman.
Þófar eru stinnir.
Afturhluti: Afturfæt-
ur séð aftan frá eru sam-
síða, beinir og sterk-
byggðir. Liðbeygjur eru
eðlilegar. Læri eru breið
og vöðvamikil. Sporar
sterklegir, tvöfaldir
sporar (fjársporar) eru mjög æski-
legir. Hundurinn er alspora séu
tvöfaldir sporar á fram- og afturfót-
um. Loppur, sjá framhluta.
Hreyfingar eru vasklegar, léttar
og fjörlegar. Spyrna afturfóta er
kröftug. Yfirferð er drjúg.
Feldur samanstendur af þeli og
yfirhárum og hrindir vel frá sér
vætu.
Hárafar er með tvennu móti:
Snöggt hárafar: Ytri hár eru í meðal-
lagi löng og frekar gróf en þelið þétt
og mjúkt. Hár á trýni, kolli, eyrum
og framan á fótleggjum er þétt og
sneggra, en lengra á hnakka, á hálsi,
herðakambi, bringu og aftan á lær-
um. Skott er þétthært og loðið og
lengd skotthára er í samræmi við
hárafar hundsins.
Langt hárafar (lubbar): Ytri hár
eru lengri en í meðallagi og frekar
gróf en þelið þétt og mjúkt. Hár á
trýni, kolli, eyrum og framan á fót-
leggjum er þétt og sneggra, en mun
lengra á hnakka, við eyru, á hálsi,
herðakambi, bringu, aftan á framfót-
um (fanir) og aftan á lærum. Skott er
þétthært og loðið og lengd skotthára
í samræmi við hárafar hundsins.
Litir: Litabrigði eru með ýmsu
móti, en þó skal einn aðallitur ávallt
vera ríkjandi. Aðallitir eru: Gulur í
ýmsum blæbrigðum, allt frá mjög
ljósgulum lit til dökkrauðguls litar.
Mórauðm-. Grár. Svartur.
Hvitt fylgir alltaf aðallit, en al-
gengir hvítir flekkir eru: Blesa
(blesótt), önnur kinn eða helmingur
höfuðs (skjömbótt), kragi (strútótt),
á bringu, í skottenda (tíra/týra), í
kringum klær (sporótt), upp eftir
löpp (löppótt) og hátt upp eftir löpp
(leistótt). Mjög algengt er að liturinn
sé ljósari, jafnvel hvítur, frá hálsi
undir kvið og aftur á skottenda
(botnótt).
Svört kápa (kápótt) með gulum og
gráum aðallit er ekki hefðbundið
litaafbrigði hjá íslenskum fjárhundi.
Oft fylgir kolóttur blær á trýni gul-
um og gráum feldlit og jafnvel svört
hár og hárendar (kolhært). Svörtum
aðallit fylgja alltaf einhverjir af ofan-
gi’eindum hvítum flekkjum ásamt
gulum lit á fótleggjum, kinnum og
yfir augum (þrílitt). Mikið flekkótt er
Sunnuhlíð símil
Skyrta
Buxur
Peysa
1 08 Reykjavík
Faxafeni 8 sími: 533 1555
1.490-
1.890-
2.990-
Opið:
fimmtudag 16.des.
Föstudag 17.des.
laugardag 18.des.
sunnudag 19.des.
mánudag 20.des.
10-20
10-22
10-22
10-22
10-22