Morgunblaðið - 19.12.1999, Síða 38

Morgunblaðið - 19.12.1999, Síða 38
38 B SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Mikið hefur verið skrif- að um hljómsveitina Sigur Rós í bresku popppressunni undan- * farið. Árni Matthíasson brá sér til Lundúna og ræddi þar við menn um hljómsveitina og komst að því að allir spá henni mikilli velgengni. HLJÓMSVEITINA Sig- ur Rós hefur mjög bor- ið á góma í fjölmiðlum undanfarna mánuði. Hljómsveitin sendi frá sér sína þriðju breiðskífu snemma á árinu og hefur selst vel það sem af er ári. Platan hefur einnig vakið athygli langt utan landsteinanna, því breskir fjölmiðlamenn hafa verið iðnir við að mæra hljómsveitina og því er gjarnan spáð í miðlum þar í landi að Sigur Rós eigi eftir að slá rækilega í gegn þar í landi og reyndar um heim allan. Þeir félagar Jón Þór Birgisson og Ágúst Ævar Gunnarsson stofnuðu saman hljómsveitina Victory Rose fyrir fímm árum en fljótlega slóst Georg Hólm í hópinn. Sú hljómsveit *«■ var ekki mjög gefín fyrir að spila op- inberlega, en lét sig þó hafa það að leika á Vorhátíð Reykjavíkurlistans í maí 1994 og sendi frá sér sitt fyrsta lag, Fljúgðu, það sumar á safnplöt- unni Smekkleysi í hálfa öld. Fljúgðu, sem tekið var upp á sex tímum, ber sterk einkenni þeirrrar hljómsveitar sem varð, en segja má að æfíngar hafi ekki hafist hjá henni fyiT en eftir að lagið kom út og þá æfðu þeir félagar að sögn allt aðra gerð tónlistar, líkari hefðbundinni nýbylgju sem þá var allsráðandi. Smám saman náðu þó hugmyndimar í fi-umrauninni yfírhöndinni að nýju. Vorið eftir lék Jón Þór sér til gam- ans með annarri hljómsveit, Bee Spi- ders, og kallaði sig þar „Djonní Bí“. Sú hljómsveit tók þátt í Músíktilraun- um Tónabæjar og fékk fyrir sérstök verðlaun dómnefndar sem athyglis- verðasta hljómsveitin. Ári síðar tók hún enn þátt í tilraununum og komst í úrslit, en náði ekki að komast í verð- launasæti. Ekki heyrðist frá Victory Rose í nokkurn tíma, en liðsmenn hennar voni önnum kafnir við að taka upp lög sem enduðu á fyrstu breiðsldfu henn- ar. Vinna við þá plötu tók alllangan tíma, enda áttu þeir lítið fé til að —* greiða fyrir hljóðverstíma, en borg- uðu fyrir sig meðal annars með því að mála hljóðverið sem kallaðist Hvarf í Mosfellsbæ. Hippísk samsuða afbjögunogsuði Þegar hér var komið sögu hafði hljómsveit þeirra Jóns Þórs, Georgs og Ágústs Ævars snarað enska heit- inu og hét og heitir upp frá því Sigur Rós, einnig erlendis. Fyrsta hljóm- platan var tekin upp smám saman 1995, eins og getið er, en ekki hljóð- blönduð fyrr en ári síðar, meðal ann- ars vegna þess að Georg brá sér til út- landa að læra kvikmyndagerð. Það orð fór snemma af Sigur Rós _ ? að tónlist sveitarinnar væri hippísk samsuða af bjögun og suði og ekki dró úr að Hðsmenn hennar voru gjarnan í mussum, síðhærðir og skeggjaðir og fluttu hægfara rokktónlist og seið- andi með fiðluboga að vopni. Um það leyti sem fyrsta platan, Von, kom út í október 1997 voru þeir félagar búnir að klippa sig og komnir með aðstoðar- mann, Kjartan Sveinsson, sem lék með henni á tónleikum og liðsinnti í hljóðveri. Kjartan varð síðar hluti af hljómsveitinni um það leyti sem Ágúst Ævar sagði skiHð við hana, en nýr trymbill, Orri Páll Dýrason, slóst - ; í hópinn snemmsumars á þessu ári. Von fékk góða dóma og í umfjöllun. f Morgunblaðinu sagði meðal annars að hljómsveitin endurvekji tilrauna- mennsku og framúrstefnu í íslensku tónHstarlífi sem sárt hafi verið sakn- að: „...Von er byltingarkennd plata nú á dögum og metin sem heild er hún framúrskarandi.“ •, Réttu ári síðar kom svo út önnur Björg Sveinsdóttir Frá tónleikum Sigur Rósar í flugskýli á Reykjavíkurflugvelli. Að sögn Alex Knight, forstöðumanns Fat Cat-útgáfunnar, stal Sigur Rós senunni þetta kvöld og hcillaði hann gersamlega. breiðskífa, Von-brigði, sem á voru endurgerð lög af Von. Ýmsir véluðu um lögin, þar á meðal Hðsmenn sveit- arinnar sjálfír, en segja má að með út- gáfunni hafi hljómsveitin náð eyrum áhugamanna um danstónlist ekki síð- ur en rokkvina og lag af henni, Leit að lífi, varð vinsælt á útvarpsrás dan- stónHstaráhugamanna. Um líkt leyti voru þeir félagar að vinna að upptök- um á næstu breiðskífu, Ágætis byrj- un, en vinna við hana hafði hafist haustið 1997, og segja má að hafi staðið í á annað ár. Reyndar stóð til að gefa Ágætis byijun út fyrir jólin 1998, en ákveðið var að fresta henni til að tryggja að hún væri sem best úr garði gerð. Von-brigði kom því út rétt til að halda aðdáendum volgum. Ágætis byijun kom út 12. júní sl. og var þegar vel tekið. Þó á plötunni væri tónHst sem að öllu jöfnu telst ekki söluleg hefur hún setið á Hsta Sambands íslenskra hljómplötufram- leiðenda yfir tíu söluhæstu plötur frá útgáfu hennar og ekki virðist lát á þrátt fyrir harða hríð af jólaplötum; er aftur á uppleið þegar þetta birtist. Von verður Von-brigði í dómi um plötuna í Morgunblað- inu segir: „Lokalag plötunnar ... Ág- ætis byrjun ... bindur plötuna saman og undirstrikar að hún er ágætis byrjun fyrir íslenskt tónHstarlíf, ágætis byijun á útgáfu ársins, ágætis byrjun á meiri metnaði fyrir íslenska tónHst." Sigur Rós er sérstök um margt í ís- lensku tónHstarlífi; ekki er bara að hljómsveitin sé ein á báti í framúr- stefnu sinni heldur er líka óvanalegt að hljómsveit nái eins breiðri skír- skotun; nái að heilla forherta rokkara, dansóð ungmenni og gamla hippa. Eftir að hafa gert Htið af því að leika á tónleikum fyrstu árin tóku þeir félagar heldur en ekki við sér eft- ir að Ágætis byrjun kom út og fóru meira að segja í tónleikaferð um land- Jón Svavarsson Liðsmenn Sigur Rósar dvelja nú löngum stundum í Sýrlandi að taka upp tónlist fyrir Engla alheimsins. ið. Tónleikar Sigur Rósar þykja eftir- minnilegir og þá ekki síst fyrfr það að sjaldgæft er að menn heyri sömu lög- in tvisvar á tónleikum, enda segjast þeir félagar oft eiga erfitt með að spila lög aftur og aftur: ,,[Við] eyðum æfingunum [fyrir tónleika] í að semja ný lög í stað þess að æfa þau gömlu, og spilum því yfirleitt meira af nýjum lögum á tónleikum en gömlum.“ Hárin risu á hnakkadrambinu Eftir að Ágætis byijun kom út spurðist ágæti plötunnar til útlanda og ekki leið á löngu að erlend fyrir- tæki föluðust eftir þvíAnnað sem ger- ir að verkum að Sigur Rós hefur skor- ið sig úi' íslenskum hljómsveitum er hversu meðlimir hennar hafa verið tregir til að ræða við fjölmiðla þótt það hafi bráð af þeim. Þeir létu reynd- ar þau orð falla í sumar að þeir kynnu því betur að aðrir leiti til þeirra en að Björg Sveinsdóttir Jón Þór lék með hljómsveitinni Bee Spiders á tvennum músíktilraunum og komst með henni í úrslit 1996.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.