Morgunblaðið - 22.12.1999, Side 1

Morgunblaðið - 22.12.1999, Side 1
STOFNAÐ 1913 292. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Putín væntir góðs samstarfs við nýtt þing Moskvu. AP. VLADÍMÍR Pútín, forsætisráð- herra Rússlands, ræddi í gær við sig- urvegara þingkosninganna á sunnu- dag og kvaðst telja að stjórn sín gæti átt gott samstarf við nýju dúmuna, neðri deild þingsins. „Þjóðin bindur miklar vonir við nýju dúmuna, enda bíða mörg vandamál úrlausnar," sagði Pútín á fúndi með leiðtogum stærstu flokk- anna. „Við verðum og ætlum að vinna með öllum sem voru kjörnir í dúmuna, hvaða flokki, hreyflngu eða bandalagi sem þeir tilheyra.“ Samkvæmt nýjustu kjörtölum fengu mið- og hægriflokkarnir mikið fylgi í kosningunum og svo virtist sem kommúnistar og bandamenn þeirra hefðu misst meirihluta sinn i dúmunni. Fjórir mið- og hægriflokk- ar, þeirra á meðal Eining, sem styð- ur ráðamennina í Kreml, voru á með- al þeirra sex flokka sem fengu mest fylgi í kosningunum og staða miðju- og hægriaflanna hefur aldrei verið jafn sterk í dúmunni frá hmni Sovét- ríkjanna. Meirihluti kommúnista og bandamanna þeirra hafði átt í deil- um við Borís Jeltsín forseta og oft hindrað tilraunir ráðamannanna í Kreml til að koma á efnahagsumbót- um. Miðju- og hægriöflunum spáð meirihluta Þegar rúmlega 98% atkvæðanna höfðu verið talin í gær höfðu komm- únistar nauma forystu með 24,3% at- kvæðanna. Fjórir af fímm næstu flokkum era skilgreindir sem mið- eða hægriflokkar, þeirra á meðal Eining sem fékk 23,2% fylgi. Ekki er þó enn ljóst hvort flokkarnir geti myndað traust bandalag í dúmunni. Samkvæmt spám aðalkjörstjórn- arinnar í Moskvu fá kommúnistar 111 þingsæti í dúmunni og mið- og hægriflokkarnir rúmlega 180. Talið er að rúmlega hundrað óflokks- bundnir frambjóðendur hafí náð kjöri og búist er við að það verði auð- sóttara fyrir mið- og hægriflokkana að fá þá til fylgilags við sig. Alls eiga 450 þingmenn sæti í dúmunni. Gennadí Zjúganov, leiðtogi komm- únista, krafðist þess að flokkur sinn fengi að tilnefna forseta dúmunnar þar sem hann væri enn stærstur á þinginu. Nái mið- og hægriflokkarn- ir hins vegar undirtökunum í dúm- unni munu þeir hiklaust ætla manni úr sínum röðum að setjast í þingfor- setastólinn þegar það kemur fyrst saman í næsta mánuði. Hart barizt í Tsjetsjníu Fregnir bárast í gær af hörðum átökum milli rússneskra hersveita og skæraliða Tsjetsjena, bæði í út- hverfum Grosní, héraðshöfuðborgar Tsjetsjníu, og í fjallaskörðum sunnar í sjálfstjórnarlýðveldinu.„Við erum að þyngja sóknina í fjöllunum. Þeir vita ekki hvert þeir eiga að flýja“ sagði Gennadí Troshev, yflrmaður rússnesku hersveitanna á eystri víg- línunni í Tsjetsjníu. Sagði hann 30 skæruliða hafa fallið í bardögum við bæinn Serzhen-Yurt, sem er um 30 km suðaustur af Grosní. Reuters Framendi þotunnar laskaðist illa í slysinu, er hún rakst á hús sem byggð hafa verð rétt við brautarendann. Þota rann út af flugbraut DC-10 breiðþotu kúbversks flugfé- lags hlekktist á í lendingu á alþjóða- flugvellinum við Gvatemalaborg í gær, með þeim afleiðingum að vélin rann út af regnbláutri flugbrautinni og lenti á íbúðarhúsum. Að minnsta kosti þrettán manns dóu, að sögn fulltrúa gvatemalskra flugmálayflr- valda. Flugstjóri þotunnar var meðal hinna látnu. Vai- talið hugsanlegt að fleiri myndu finnast látnir um borð, en samkvæmt bráðabirgðatölum slösuðust 56 af þeim 298 sem í vélinni vora. Slökkviliðinu tókst að hindra að eldur brytist út og þar með að for- ða frekari harmleik. Flestir farþeg- anna voru háskólanemar á heimleið úr ferðalagi til Kúbu. Húsin, sem hróflað hefur verið upp í La Libertad-fátækrahverfinu, standa nærri því upp við flugbraut- ina. Átta íbúar fórust í apríl 1995, þegar önnur þota fór fram af sömu flugbraut við svipaðar aðstæður. Skatta- lækkun í Þýskalandi Berlín. AFP, AP. GERHARD Schröder, kanslari Þýskalands, tilkynnti í gær um skattalækkanir á fyrirtækjum og einnig um meiri lækkun á tekju- skatti en gert hafði verið ráð fyrir í fyrri áformum ríkisstjómar jafnað- armanna og græningja. Er tilgang- urinn með hinum auknu skattalækk- unum sá að örva efnahagslífið og draga úr miklu atvinnuleysi. Fyrirhugað er að lækka skatta um rúmlega 1.600 milljarða ísl. kr. á ára- bilinu 2001 til 2005 og bætist þessi lækkun við þá, sem þegar hefur verið ákveðin. Á fréttamannafundi með Hans Eichel, fjármálaráðherra Þýskalands, sagði Schröder, að skattalækkunin væri sú mesta í Þýskalandi eftir stríð. Skattar á mörgum fyrirtækjum munu fara úr 40% eins og nú er í 25% árið 2001 og lágmarkstekjuskattur fer úr 23,9% í 15% í áföngum fram til 2005 og hámarkstekjuskattur úr 53% í 45% á sama tíma. Yfirlýsing Schröders um skatta- lækkunina kom sama dag og þýska efnahagsmálarannsóknastofnunin Ifo spáði auknum hagvexti á næsta ári. Að hennar mati verður hann 2,7% en 1,4% á þessu ári. Fannfergi í Bosníu NEYÐARÁSTANDI hefur verið lýst yfir í stdrum hluta Bosníu- Herzegovínu vegna snjóþyngsla og mikils vatnselgs í ám. Bflaumferð hefur víða stöðvast vegna ófærðar, en líkt og sjá má á vanda þessa bfleiganda í Sara- jevc, þá hefur snjó kyngt niður í miklu magni. Sporvagnar hættu að ganga og bflaumferð er sára- lítil, en yfir 200 lögreglumenn voru fengnir til að aðstoða við snjóruðning í Sarajevo. Þá var flugvöllum í Bosníu lokað vegna veðurs, sem og fjölda grunnskóla. Gerir gen garðslátt óþarfan? London. The Daily Telegraph. GARÐSLÁTTUR og ýmis garðvinna kann brátt að heyra sögunni til þar sem vísinda- menn hafa uppgötvað aðferð til að draga úr vexti grass og plantna með genabreytingum. Genið BAS-1, sem verkar á vaxtarhormón jurta, ætti að gera mönnum kleift að ráða hæð grass og annarra plantna og rækta jafnvel dvergtré án þess að beita öðrum aðferðum. „BAS-1 virðist stjórna því hversu mikið er af mikilvægu sterahormóni sem örvar vöxt í jurtaframum," sagði Joanne Chory, prófessor við Salk- stofnunina í Kaliforníu, sem gerir grein fyiir niðurstöðu rannsóknarinnar í tímaritinu Proceedings of the National Academy of Sciences. Genið brýtur niður vaxtarhormónið og verkar aðallega á stilk plantnanna, að sögn Chory. Annar hópur vísindamanna við Salk-stofnunina hefur ein- angrað gen sem getur hraðað lífsferli plantna og bendii- það til þess að hægt verði að rækta genabreytt afbrigði sem vaxi eins fljótt eða hægt og menn óska. Um 150.000 manns eru heimilislausir eftir nátttíruhamfarirnar í Venesúela Manntjónið jafnvel yfír 30.000 Caracas. AP, AFP. FJÖLDI þeirra sem létu lífið í aurskriðum og flóðum af völdum gríðarlegrar úrkomu í Venesúela í síðustu viku gæti verið á milli 30.000 og 50.000. Frá þessu greindi Angel Rangel, yfirmaður heimavarnarliðs landsins, í gær, en hann tók fram að sennilega yrði aldrei hægt að segja til um það með vissu hve margir hefðu farizt. „Heilu þorpin hurfu, grófust undir aur,“ hefur ÆP-fréttastofan eftir honum. „Nákvæm tala yfir þá sem fórust verður aldrei kunn. Þetta era þúsundir á þúsundir ofan. Heildar- fjöldinn gæti verið milli þrjátíu og fimmtíu þúsund," sagði Rangel. Að sögn AP gizka stjórnvöld í Venesú- ela á að manntjónið hafi verið á milli fimm og þrjátíu þúsund. Aðeins hafa um 1.500 lík fundizt. Hin era flest grafin djúpt undir aur eða skoluðust á haf út. í gær var enn unnið að því að flytja fólk af svæðum sem allar landsamgöngur rofnuðu við í Varg- as-fylki við Karíbahafsströndina, en það varð verst úti. Samtals misstu um 150.000 manns heimili sín. Hjálp- arstarf á hamfarasvæðunum var í gær fyrst og fremst farið að beinast að því að finna lík og gera ráðstafanir til að varna farsóttum. MORGUNBLAÐIÐ 22. DESEMBER 1999 5 690900 090000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.