Morgunblaðið - 22.12.1999, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999 25
ERLENT
Stjdrnmálakreppa á Italíu
D’ Alema reynir
að mynda stjórn
Reuters
Massimo D’Alema, forsætisráðherra Italíu, talar við fréttamenn eftir
fund sinn með Carlo Azeglio Ciampi, forseta Ítalíu, í fyrrakvöld.
Róm. AP, AFP.
MASSIMO D’Alema reyndi í gær
að mynda nýja samsteypustjórn á
Ítalíu eftir að hafa sagt af sér sem
forsætisráðherra á laugardag vegna
ágreinings innan fráfarandi stjómar
vinstri- og miðílokka um ýmis mál,
svo sem breytingar á lífeyriskerfinu
og ríkisaðstoð við tráarlega skóla.
D’Alema hóf viðræður við leið-
toga sjö flokka, sem studdu fráfar-
andi stjórn, eftir að Carlo Azeglio
Ciampi forseti fól honum að mynda
nýja stjórn á mánudag. Búist er við
að hann bjóði demókrötum, flokki
Romanos Prodis, forseta fram-
kvæmdastjórnar Evrópusamban-
dsins og fyrrverandi forsætisráð-
herra Italíu, ráðherraembætti í
næstu stjórn, en flokkurinn studdi
fráfarandi stjórn án þess eiga sæti í
henni.
Cossiga hafnar
samstarfí við D’Alema
D’Alema, sem er fyrrverandi
kommúnisti, ræddi einnig við leið-
toga bandalags sósíalista og stuðn-
ingsmanna Francescos Cossiga,
fyrrverandi forseta, sem felldi frá-
farandi stjórn með því að falla frá
stuðningi við hana. Bandalagið hafði
skorað á D’Alema að segja af sér og
sagt að annars myndu vinstri- og
miðflokkarnir bíða ósigur fyrir
hægrimönnum undir forystu Silvios
Berlusconis í þingkosningum árið
2001.
Cossiga gagnrýndi þá ákvörðun
forsetans að veita D’Alema umboð
til stjórnarmyndunar og kvaðst ekki
ætla að styðja stjórn undir forystu
hans. D’Alema gaf þó ekki upp von-
ina um að hægt yrði að telja Cossiga
hughvarf, en leiðtogar bandalagsins
áréttuðu í gær að það myndi ekki
ganga í stjórnina, að minnsta kosti
að svo stöddu. Bandalagið útilokaði
þó ekki aðild að stjórninni síðar.
Hugsanlegt þykir að sósíalistar
sitji hjá við atkvæðagreiðslu á þing-
inu um stjómarmyndunina í stað
þess að greiða atkvæði gegn henni.
Sitji bandalagið hjá við atkvæða-
greiðsluna er búist við að D’Alema
geti tryggt sér stuðning mjög
naums meirihluta í neðri deild
þingsins, eða 316 þingmanna af 630.
Talið er að hann geti reitt sig á
stuðning meirihluta efri deildarinn-
ar sem er skipuð 315 þingmönnum.
Bretland
A1 Fayed
hrósaði
sigri
London. AP.
NEIL Hamilton, fyrrverandi
þingmaður íhaldsflokksins
breska, tapaði í gær meið-
yrðamáli, sem hann hafði
höfðað gegn Mohammad A1
Fayed, eiganda Harrods-
verslananna.
A1 Fayed hélt því fram á
sínum tíma, að hann hefði
greitt Hamilton fé og leyft
honum að búa í vellystingum
á Ritz Hotel í París fyrir að
taka upp á þingi mál, sem
komu A1 Fayed vel.
Gerði út af við
feril Hamiltons
Urðu þessar ásakanir til að
gera út af við pólitískan feril
Hamiltons og voru hluti af því
spillingarorði, sem varð
íhaldsflokknum svo dýrkeypt
í þingkosningunum 1997.
Litli prinsinn bók aldarinnar
París. AP
FRAKKAR hafa valið Litla prins-
inn bók aldarinnar og fékk bókin
45% atkvæða í könnun sem gerð
var af dagblaðinu Le Parisien.
í könnuninni hafði Litli prinsinn
gott forskot á bækurnar í öðru og
þriðja sæti. Gamli maðurinn og
hafið eftir Ernest Hemingway fékk
23% atkvæða og „The Great Meaul-
nes“eftir Alain Fournier 20%.
Bókin sem var skrifuð af Ant-
oine de Saint-Exupery hefur verið
þýdd á 84 tungumál, en henni hef-
ur verið lýst sem sérviskulegri
blöndu sakleysis og hugsjóna-
stefnu. Hún var skrifuð á tímum
seinni heimsstyrjaldarinnar og er
höfundurinn einn vinsælasti höf-
undur Frakka, sem og þjóðþekkt
persóna ekki hvað síst fyrir þau ör-
lög að hafa horfið með orrustu-
flugvél sinni undan strönd Frakk-
lands eftir að hafa tekið þátt í árás
á hersveitir nasista.
“.. .alveg stórskemmtilegar sögur, það er
það sem þær eru fyrst og fremst:
Skemmtilegar!”
Þóra Amórsdóttir, Rás 2
WERK
í heild eru sögumar auðlesnar
og skemmtilegar ... og
framvindan létt og leikandi.
Hér er engin tilgerð á ferð...’
... frásögnin liðast áfram
eins og mjúk lína ...’
Sögur Páls eru
skemmtilegar, hugljúfar
og vel skrifaðar og
einkennast af sannri
frásagnargleði.”
Steinunn Inga Óttarsdóttir, DV
.. .mun margur hafa
gaman af að lesa
þessar sögur Páls ...
Þær eru opnar og
nálægar.’
Erlendur Jónsson, Mbl.
Jolametravara
á gjafverði!
*?★
fourm,-
Nú adeinsu W
Jolametmvam ur bomull
Breidd 140 sm.
' ki BÚMFKm
1.AGER1NN
eurocard Smáratorgi 1 Skeifunni13 Norðurtanga3
200 Kópavogi 108Reykjavík 600 Akureyri
MaSterCard 510 7000 568 7499 462 6662
Reykjavíkurvegi 72 Holtagörðum
-------------------- 220 Hafnarfjörður v/Holtaveg
RAÐCREIÐSLUR
GRR 7/lQQ