Morgunblaðið - 22.12.1999, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999 28
Reuters
Chandrika Kumaratunga, forseti Sri Lanka (t.h.), greiðir atkvæði á
heimili sfnu í Colombo í forsetakosningunum í gær.
Forsetakosningar á Sri Lanka
Sjö falla í átökum
á kjörstöðum
Colombo. AFP, AP.
AÐ minnsta kosti sjö stuðnings-
menn Þjóðarbandalagsins, stjórn-
arflokks Sri Lanka, biðu bana í
átökum á kjörstöðum í gær þegar
forsetakosningar fóru fram í land-
inu.
Chandrika Kumaratunga forseti
fékk að kjósa á heimili s£nu vegna
lítilsháttar meiðsla sem hún varð
fyrir í sprengjutilræði í Colombo á
laugardag þegar hún hélt þar síð-
asta kosningafund sinn. 21 beið
bana og 110 særðust í tilræðinu.
Stuðningsmenn helsta keppinautar
Kumaratunga í kosningunum,
Ranils Wickremesinghe, urðu
einnig fyrir sprengjuárás á laugar-
dag. Að minnsta kosti tólf manns
biðu þá bana og 40 særðust.
Lögreglan sagði að aðskilnaðar-
hreyfing Tamíla hefði staðið fyrir
báðum sprengjutilræðunum.
Lögreglan var með mikinn ör-
yggisviðbúnað við kjörstaðina í
gær og kvaðst hafa skotið tvo
stuðningsmenn stjórnarflokksins
til bana eftir þeir hefðu hafið skot-
hríð á lögreglumann. Fjórir stuðn-
ingsmenn Þjóðarbandalagsins létu
einnig líflð í sprengjuárás á kjör-
stað í norðvesturhluta landsins og
einn stjórnarsinni féll í átökum í
suðurhlutanum.
Tvísýn barátta um
forsetaembættið
Baráttan um forsetaembættið
stendur á milli Kumaratunga og
Wickremesinghe, sem vill að efnt
verði til friðarviðræðna við að-
skilnaðarhreyfmgu Tamíla án
nokkurra skilyrða til að binda
enda á 16 ára borgarastríð sem
hefur kostað 61.000 manns lífið.
Forsetinn hefur hins vegar óskað
eftir umboði þjóðarinnar til að
veita Tamflum takmarkaða sjálf-
stjórn eða beita hervaldi til að
kveða niður aðskilnaðarhreyfingu
þeirra falli hún ekki frá kröfunni
um sjálfstætt ríki Tamfla í norð-
austurhluta landsins.
Níu aðrir eru í framboði og
gætu fengið nógu mörg atkvæði til
að koma í veg fyrir að Kumara-
tunga eða Wickremesinghe fengi
meirihluta atkvæðanna. Fari svo
ræður annað val kjósenda á kjör-
seðlunum úrslitum í kosningunum.
Fallegar og vandaðar
ullarpeysur frá
Barbour
í miklu úrvali
6úA(/l
Laugavegl 54 S. 552 2535
Jólatilboð/U//5'
f J — kr. daqqiald
Sími 562 4433
Útbreiðsla CJD
Hundruð
þúsunda
sýkt?
Lundúnum. Reuters.
HUNDRUÐ þúsunda brezkra
kjötneytenda eiga hugsanlega eftir
að deyja úr heilarýrnunarsjúkdómn-
um Creutzfeldt-Jakob (CJD), sem
kúariðusmit í mönnum getur valdið,
en það hve margir hafa smitazt verð-
ur ekki ljóst fyrr en eftir nokkur ár.
Þetta var í gær haft eftir heilbrigðis-
málaráðgjafa brezku ríkisstjórnar-
innar.
Liam Donaldson læknaprófessor
sagði í viðtali við BBC að enn sé
margt á huldu um þennan umtalaða
sjúkdóm. „Við munum ekki vita fyrr
en að þónokkrum árum liðnum hvort
þetta verður lítill eða stór fai-aldur;
með öðrum orðum, hvort það séu
nokkur hundruð eða jafnvel nokkur
hundruð þúsund manns sem hafa
sýkzt,“ sagði Donaldson.
Donaldson lét ummæli sín falla
eftir að brezkir og bandarískir vis-
indamenn höfðu birt niðurstöður
nýrra rannsókna, sem sýndu með
nærri óyggjandi hætti að kúariða og
hið nýja afbrigði hliðstæðu þess
sjúkdóms í mönnum, CJD, sé í raun
sami sjúkdómurinn. Fram að þessu
hafa 48 Bretar dáið úr sjúkdómnum
svo vitað sé.
Ný lína frá Filodoro
Evolve System er frábcer
nýjung - sniðnar að
lögun leggjanna
Gefum
okkur Öllum betri framtíð
Hjálparstarf kirkjunnar beínir söfnunarfé
• til bágstaddra íslendinga
• til fólks sem býr vid örbirgð í þnðja heimifuim
• á átaka- og hamfarasvæði um allan heím
HMLPARSTARF
KIRKJUNN.AR
fyrir þitt hlutskipti