Morgunblaðið - 22.12.1999, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999 33
FÖR
TOJVLIST
Geislaplötur
LEIFUR
ÞÓRARINSSON
Leifur Þórarinsson: Konsert
fyrir fiðlu og hljómsveit
(1969-1970). Sinfónía nr. 2
(1997). Viðtal Arndísar Bjark-
ar Asgeirsdóttur við tónskáld-
ið frá 20. nóvember 1997.
Hljómsveit: Sinfóníuhljóm-
sveit íslands. Einleikari: Sig-
rún Eðvaldsdóttir. Hljómsveit-
arsijórar: Paul Schuyler
Phillips og Petri Sakari. Ut-
gáfa: Islensk tónverkamiðstöð
ITM 7-12.
ÞAÐ er mikið fagnaðarefni að
þessi tvö tónverk Leifs Þórar-
inssonar skuli nú vera aðgengi-
leg almenningi í þessu formi.
Leifur Þórarinsson lést á síð-
asta ári langt fyrir aldur fi'am.
Hann lét eftir sig mörg ágæt
tónverk sem vonandi eiga eftir
að lifa lengi. Leifur baröi sér
aldrei á bijóst, var í senn óhátíð-
legur, hógvær og auðmjúkur í
list sinni eins og glöggt kemur
fram í áhugaverðu viðtali Am-
dísar Bjarkar Asgeirsdóttur við
tónskáldið. Minnisstæðir tón-
leikar þeir þar sem hin magnaða
Sinfónía nr. 2 var frumflutt í
nóvember 1997 eru undirrituð-
um ofarlega í huga, en við það
tækifæri upplifðu tónleikagestir
vandaðan flutning á áhrifamiklu
tónverki. Heildaryfírbragð
verksins er hljóðlátt og tamið en
þó með sterkum andstæðum í
styrk og hraða, þar má heyra
fjölbreytt stílbrigði og tilvitnan-
ir í fyrri verk höfundar svo og í
verk annarra tónskálda. Róm-
antíkin er ekki langt undan hjá
Leifí og er sinfónían því um
margt dæmigerð fyrir hina ný-
rómantísku strauma sem hafa
skotið upp kollinum nú í lok 20.
aldar. Þarna bregður fyrir
stefjabroti með tilvitnun í brúð-
annars Mendelssohns (1’38,
15’30,17’18 og aftur undir lokin
26’24) og einnig vitnar Leifur í
þá Wagner og Schumann. Meira
að segja Chopin gægist fram í
„Mahlerískum sorgaiTnai'si
(15’19-16’39). Skersó-hlutinn er
látlaus en hnyttinn og ekki er
laust við að manni fínnist Carl
Nielsen (sbr. Sinfonia Semplice)
guða þar á glugga (18’15—19’40).
Þannig að víða er komið við.
Önnur sinfónían er sérstaklega
heilsteypt verk og áleitið. Rit-
háttur tónskáldsins er glæsileg-
ur og tónlistin því afar litrík.
Stórgóð tónsmíð og glæsilega
leikin af Sinfóníuhljómsveit Is-
land undir stjóm Petri Sakari.
í Fiðlukonsertinum sem Leif-
ur lauk við 1970 sýnir Sigrún
Eðvaldsdóttir afburðagóðan
fiðluleik. Einleikshlutverkið er
án efa vandasamt en virðist ekki
valda Sigrúnu nokkrum erfíð-
leikum. Þéttur tónn hennar er
fallegur og tær og hún sýnir hér
það sem mér hefur ávallt fundist
vera aðalsmerki hennar: innsæi
og algera einbeitingu sem er svo
sannfærandi. Þótt uppbygging
verksins sé fremur hefðbundin
er tónmálið nokkuð ögrandi og
verkið talsvert ómstríðara en
sinfónían. Konsertinn er saminn
af tónskáldi í upphafi ferils síns
og ber flest einkenni síns tíma í
tónlistarsögunni.
Hljóðritun plötunnar hefur
tekist prýðilega. Jafnvægi er
gott og tónmeistarar hafa stillt
sig um að koma einleiksfiðlunni
fyrir of framarlega í hljóðmynd-
inni þannig að hljómsveitin nær
ávallt að njóta sín til fulls.
Valdemar Pálsson
BÆKUR
SkáIdsaga
SAMA OG SÍÐAST
eftir Börk Gunnarsson, Mál og
menning, Reykjavík, 1999,233 bls.
SAMA og síðast er samtímasaga
úr Reykjavík. Þetta er fyrsta
skáldsaga Barkar Gunnarssonar
en hann hefur áður sent frá sér
smásagnasafnið X, samið leikverk
og kvikmyndahandrit.
Helstu söguhetjur eru þrjár:
Breki, sem í upphafi sögu er
meindýraeyðir en gerist svo hand-
rukkari, Jonni, sem er mislukkað-
ur listamaður, og Ai-nþór, sem er
háskólastúdent. Leið þeirra allra
liggur niður á við og frásagnar-
plönin eru nokkur. Kærustur
þeirra koma við sögu á þeirri leið,
einkum Kristín, kærasta Jonna, og
Eva, kærasta Arnþórs. Þau fyrr-
nefndu eiga í stormasömu, sadó-
masókísku sambandi. Sama og síð-
ast er öðrum þræði skáldsaga um
ofbeldi. Strax á fyrstu síðunum
verður Breki vitni að ofbeldisverki
á götu en lætur sér fátt um finn-
ast: „Breki hafði litið til hliðar þar
sem þrír piltar voru að berja sjó-
mann sem var líklegast um fer-
tugt. Þeir létu höggin dynja á hon-
um en hann virtist ekki ætla að
falla í jörðina" (9). Og þegar sjó-
maðurinn loks liggur sparka þeir í
hann. „Loks fannst þeim að nóg
væri að gert og fóru að
hugsa sér til hreyfings
þó einn þeirra sneri við
á leiðinni til að hoppa
jafnfætis ofan á haus
sjómannsins. Einbeitt-
ir menn.“ (10). Þetta er
í raun dæmigerð sena
því ofbeldisverkið hef-
ur hvorki orsakir né
afleiðingar né heldur
nein áhrif á þá sem á
horfa. Þannig er sam-
tími verksins. Breki er
sinnulaus áhorfandi
lungann úr sögunni.
Og þegar hann tekur
til verka er það með
sama offorsinu og
vinnan, sem hann hefur blætis-
kennt viðhorf til. Jonni er annars-
konar nútímamaður, kaldhæðinn
og beiskur. Nokkur hluti sögunnar
fer í að lýsa ævintýrum hans í
kvikmyndabransanum og endan-
legum svikum við sjálfan sig. Arn-
þór er þriðja lífsviðhorfið - en þó
eru þetta ekki „týp-
ur“, ekki flatar
manngerðir.
Sagan vísar fram
og aftur í sjálfa sig
og talsvert er um frá-
sagnarleg stökk.
Þessi stökk virka yf-
irleitt en sundur-
leytni frásagnarinnar
að öðru leyti gerir að
verkum að mikið er
skilið eftir af lausum
endum, ókláruðum
punktum. Til að
mynda er kynnt til
sögunnar þjóðsaga
(40) sem ermikilvæg í
þráhyggju Arnþórs
og ástæða fyrir ritkreppu, en svo
kemur þjóðsagan ekki aftur fyrir.
Þá er of mikið um beinlínis illa orð-
aðar setningar, setningarbyggingu
sem gengur ekki vel upp. Eg hirði
ekki um að nefna dæmi.
En það sem er markverðast við
þessa skáldsögu er sterk nærvera
sögumanns sem túlkar og útlistar
persónurnar, gjarnan í útúrdúrum
með heimspekilegu ívafi. Þessi inn-
skot hefjast til dæmis á þessa leið:
„í bók sinni Fyrirbærafræði and-
ans (Die Phánomenologie des
Geistes) sem kom út árið 1807,
segir Hegel litla sögu um tilurð
mennskrar vitundar.“ (103) Síðan
fylgir frásögn Hegels og útlistun á
því hvernig þetta skýri persónuna.
Ihugul innskot af þessu tagi eru
ekki óalgeng í skáldsögu samtím-
ans. Tékkneski höfundurinn Milan
Kundera er til að mynda ekki feim-
inn við að láta meðvitaðan sögu-
mann eða söguhöfund fara langt
útí útúrdúra, hætta sér í órafjar-
lægð frá söguþræði í heimspekileg-
um hugleiðingum. Sögumaðurinn í
Sama og síðast gengur hinsvegar
ekki alla leið í þessum útúrdúrum
og stundum er ekki nema rétt að-
eins ýjað að útlistuninni, jafnvel
rétt aðeins nefnd nöfn án þess að
fara nánar útí hugmyndir. Og
þetta er að mínu viti vannýttasti
möguleiki skáldsögunnar.
Sama og síðast er fyrir margra
hluta sakir mjög merkileg tilraun
þrátt fyrir að hún gangi ekki full-
komlega upp, kraftmikil samtíma-
saga með ruddalegu orðfæri sem
hefur nokkur frásagnarplön í
gangi í einu án þess að missa tökin
á þeim. Síðast en ekki síst: við-
leitni til vitrænna átaka við sam-
tímann. Og það er fyrir öllu.
Hermann Stefánsson
Átök við
samtímann
Börkur Gunnarsson
Kveðið
ájólaföstu
LEIKLIST
(l -1 e i k li ú s i ð
í IVorræna húsinu
KALEVALA
Höfundar handrits: Atro Kahiluoto
og leikhópurinn. Leikstjóri: Atro
Kahiluoto. Leikarar: Ilona Korhon-
en, Juha Valkeapaa, Jukka Mannin-
en, Petteri Pennilá, Taisto Reima-
luoto, Taito Hoffrén og Tarja
Heinula. Sviðshönnuður Iíatariina
Kiijavainen. Ljósameistari: Janne
Björklöf. Tónlist: Juha Valkepáa og
Taito Hoffrén. Laugardagur
18. desember.
Á FJÓRÐA áratug nítjándu aldar fór
Elias nokkur Lönm'ot (1802-1884)
héraðslæknir í afskekktu héraði í
Kirjálahéruðum Finnlands, á stúfana
og fór að skrifa niður þjóðkvæði eftir
gömlum kvæðaþul. Eftir að hafa
fundið nokkra slíka og safnað ógrynni
kvæða settist hann niður og felldi þau
saman í eina heild, sem fyrst kom út
1835, en aukin og endurbætt komu
kvæðin út í endanlegri útgáfu 1849.
Lönnrot ólst upp í finnsku málum-
hverfi en var menntaður á sænsku og
latínu. Honum rann til rifja hve lítil
virðing var borin fyrir finnskunni,
móðurmáli langflestra íbúa föður-
lands hans, og hve lítið var um bók-
menntir á því máli. NoiTænh' menn
eiga sér Eddukvæði, Grikkir Hóm-
erskviður og fjölmargar Evrópuþjóð-
h' aðrar eitthvert kvæði eða sagna-
bálk sem skipar mikilvægan sess í
þjóðarvitund þeirra. Það sem vakti
fyrir Lönm’ot var að finna finnsk
kvæði sem gætu gegnt þessu hlut-
verki og koma þeim í form sem hæfði.
Þetta tókst afbragðsvel og varð
skáldum annaiTa landa hvöt til að
gera slíkt hið sama, eða einfaldlega til
að semja kvæðabálka um þjpðleg
efni. Dæmi um slíkt er kvæðið um Hi-
awatha efth- Henry Wadsworth
Longfellow þar sem hann tekur ind-
íánasagnir og mótar úr þeim sagna-
bálk sem náði ótrúlegum vinsældum
meðal rómantískra, þjóðhollra
Bandaríkjamanna.
Kalevala-kvæðin hafa notið mikill-
ai' hylli meðal Finna í meira en eina
og hálfa öld og finnskir listamenn
hafa sótt þangað innblástur - t.d. list-
málarinn Akseli Gallén-Kallela og
tónskáldið Sibelius - auk þess sem
kvæðin hafa verið þýdd á meira en 20
tungumál. Sýning þessi, sem hér er
til umræðu, er helmingur lengri sýn-
ingar sem samin hefur verið upp úr
kvæðinu með hliðsjón af örlögum
Lönnrots og nánustu aðstandenda.
Flytjendurnir sátu sex saman í
hálfhring andspænis áhorfendum en
til hliðar sat hljóðfæraleikari. Kvæða-
brotin voru að sjálfsögðu flutt á frum-
málinu, stemmur sem leikararnh'
hentu á lofti og köstuðu fram eftir því
sem við átti. Þó að skilningur á þýð-
ingu einstakra orða væri ekki fyrir
hendi hjá gagnrýnanda (en tekið var
fram í skránni að kunnátta í finnsku
væri ekki skilyrði þess að geta notið
sýningarinnar) þá fóru eiginnöfnin úr
sagnakvæðinu ekki framhjá neinum
sem hefur lesið það í þýðingu. Hljóm-
fall finnskunnar naut sín frábærlega í
kveðandinni og flutningur ieikaranna
sem náði hæst í söng kvennanna og
drynjandi bassaröddum sumra karl-
anna var tilþrifamikill. Kvæðið er
órímað, en stuðlarnir og endurtekn-
ingarnar sem einkenna mest ljóð-
fonnið ófu úr því þéttan vef.
Þetta var mjög sérstök upplifun að
vera viðstaddur þennan flutning
þessara brota úr kvæðinu Kalevala;
hugmyndir sem koma upp í hugann
og tilfinningin í lokin kannski einna
líkastar því sem áheyrendur verða
fyrir við flutning stórkostlegs tón-
verks. Um eitt er hægt að vera viss;
þessi flutningsmáti hæfir söguljóðinu
fullkomlega.
Sveinn Haraldsson
BURBERRY
L O ,N » O N
Wo/sey
Barbour
Yandaður fatnaður
og sérvara
{$/'exÁa ÍhíxÍí/i
^ Laugavegl 54 S. 552 2535
ENS
Glæsileg 09 vönduð
tæki í eldhusið tryggja
okkur sælkerunum
veislumat og góðan bakstur.
Hátíðartilboð
Rétti ofninn fyrir þig.
Fjölvirkur (yfir- og undirhiti,
blástur, glóðarsteiking með
blæstri, venjuleg glóðar-
steiking), létthreinsikerfi,
rafeindaklukka og sökkhnappar.
HB 28020EU
49.800 kr.
Glæsilegt
keramíkhelluborð
með áföstum rofum, fjórum
hraðsuðuhellum, tveimur
stækkanlegum hellum, fjórföldu
eftirhitagaumljósi.
ET 96021EU
48.800 kr.
Beint í eldhúsið hjá þér.
Keramíkhelluborð, fjórar
hraðsuðuhellur, ein stækkanleg
hella, fjórfalt eftirhitagaumljós,
fjölvirkur bakstursofn,
létthreinsikerfi, geymsluskúffa,
gufuútstreymi að aftan, loftkæld
ofnhurð.
HL 54023
69.800 kr.
Nú er kátt í bæ!
éé SMITH&
PP NORLAND
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.is
Umboðsmenn um land allt