Morgunblaðið - 22.12.1999, Side 34
34 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ja«rpwMst&Í&
BÓKASALA 13.-19. des.
Röð Var Titill/ Höfundur/ Utgefandi
1 1 Harry Potter og viskusteinninn/ Joanna Rowling/ Bjartur 2 2 Slóð fiðrildanna/ Ólafur Jóhann Ólafsson/ Vaka-Helgafell 3 3 Útkall í Atlantshafi á jólanótt/ Óttar Sveinsson/ íslenska bókaútgáfan 4 9 Sagan af bláa hnettinum/ Andri Snær Magnason og Áslaug Jónsdóttir/ Mál og mennlng 5 4 Vandamál Berts/ Sören Olsson og Anders Jacobsson/ Skjaldborg 6 7 Ólafur landlæknir/ Vilhelm G. Kristinsson/ Vaka-Helgafell 7 10 Bretarnir koma/ Þór Whitehead/ Vaka-Helgafelí 8 8 Jónas Hallgrímsson/ Páll Valsson/ Mál og menning 9 ~ Glott í golukaldann/ Hákon Aðalsteinsson/ Hörpuútgáfan 10 S Einar Benediktsson-ll/Guðjón Friðriksson/Iðunn
Einstakir flokkar: ÍSLENSK OG ÞÝDD SKÁLDVERK
1 1 Slóð fiðrildanna/ Ólafur Jóhann Ólafsson/ Vaka-Helgafell 2 3 Örvænting/Stephen King/Fróði 3 8 Spegilmynd/ Danielle Steel/ Setberg 4 4 Þú ert mín/ Mary Higgins Clark/ Skjaldborg 5 2 Kular af degi/ Kristin Marja Baldursdóttir/ Mál og menning 6 10 Stúlka með fingur/ Þórunn Valdimarsdóttir/ Forlagið 7 7 Afródíta/ Isabel Allende/ Mál og menning 8 - Minningargeisju/ArthurS. Golden/Forlagið 9 6 Feigðardraumar/ Sidney Sheldon/ Skjaldborg 10 5 Hlaðhamar/ Björn Th. Björnsson/ Mál og menning
ÍSLENSK OG ÞÝDD LJÓÐ
1 Skagfirsk skemmtiljóð III/ Bjarni Stefán Konráðsson safnaði efni/ Hólar 2 Hugástir/ Steinunn Sigurðardóttir/ Mál og menning 3 Gullregn úr Ijóðum Þóraríns Eldjárns/ Forlagið 4 Spámaðurinn/ Kahlil Gibran/ Muninn 5-6 Gullregn úr ástarljóðum íslenskra kvenna/ Gylfi Gröndal valdii/ Forlagið 5-6 Ættjarðarljóð á atómöld/ Matthías Johannessen/ Vaka-Helgafell
ÍSLENSKAR OG ÞÝDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR
1 1 Harry Potter og viskusteinninn/ Joanna Rowling/ Bjartur 2 3 Sagan af bláa hnettinum/ Andri Snær Magnason ogAslaug Jónsdóttir/ Mál og menning 3 2 Vandamál Berts/ Sören Olsson og Anders Jacobsson/ Skjaldborg 4 S Eva og Adam-Með hjartað í buxunum/ Máns Gahrton og Johan Unenge/ Æskan 5 7 Rauðu augun/ Helgi Jónsson og Hörður Helgason/ Tindur 6 6 Tarzan og Kala/ Walt Disney/ Vaka-Helgafell 7 10 HandaGúndavél/ Guðrún Helgadóttir og Freydís Kristjánsdóttir/ Vaka-Helgafell 8 8 Svanur og sumarið/ Sören Olsson og Anders Jacobsson/ Skjaldborg 9 - Grýlusaga/Gunnar Karlsson/Skrípó 10 - Gæsahúð 3-Gula geimskipið/ Helgi Jónsson/ Tindur
ALMENNT EFNI OG HANDBÆKUR
1 1 Útkall í Atlantshafi á jólanótt/ Óttar Sveinsson/ íslenska bókaútgáfan 2 2 Bretarnir koma/ Þór Whitehead/ Vaka-Helgafell 3 4 Leggðu rækt við sjálfan þig/ Anna Valdimarsdóttir/ Forlagið 4 S Já, ráðherra/ Ritstj. Guðjón Ingi Eiriksson og Jón Hjaltason/ Hólar 5 7 BÓk aldarínnar/ Gísli Marteinn Baldursson og Ólafur Teitur Guðnason/ Nýja bókafélagið 6 3 Rauðu djöflarnir/ Agnar Freyr Helgason og Guðjón Ingi Eiríksson/ Hólar 7 6 Ljósið yfir landinu/ Ómar Ragnarsson/ Fróði 8 9 Veðurdagar/ Unnur Ólafsdóttir og Þórarinn Eldjárn/ Vaka-Helgafell 9 10 Fólk á fjöllum/ Ari Trausti Guðmundsson og Pétur Þorleifsson/ Ormstunga 10 - Litla Ijóskubrandarabókin/Eggert Jónasson valdi efni/Steinegg
ÆVISÖGUR OG ENDURMINNINGAR
1 3 Ólafur landlæknir/ Vilhelm G. Kristinsson/ Vaka-Helgafell 2 4 Jónas Hallgrímsson/ Páll Valsson/ Mál og menning 3 5 Glott í golukaldann/ Hákon Aðalsteinsson/ Hörpuútgáfan 4 1 Einar Benediktsson-ll/ Guðjón Friðriksson/ Iðunn 5 2 Steingrímur Hermannsson-ll/ Dagur B. Eggertsson/ Vaka-Helgafell 6 8 Sviptingar á sjávarslóð/ Höskuldur Skarphéðinsson/ Mál og menning 7 - Af föngum og frjálsum mönnum/ Jón Bjarman/ Hólar 8 9 Á hælum löggunnar-Sveinn Þormóðs./ Reynir Traustason/ (sl. bókaútgáfan 9 10 Dagbók Anne Frank// Hólar 10-11 7 Á lífsins leið-ll/ Þjóðþekktar konur og menn segja frá/ Stoð og styrkur 10-11 8 Lífsgleði viii-minningar og frásagnir/ Þórir S. Guðbergsson/ Hörpuútgáfan
Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni
Bókabúðin Hamraborg, Kópavogi
Bónus, Kópavogi
Hagkaup, Smáratorgi
Penninn, Hafnarfirði
Höfuðborgarsvæðið:
Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi
Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla
Bókabúðin Hlemmi
Bókabúðin Mjódd
Bóksala stúdenta, Hringbraut
Bónus, Holtagörðum
Bónus, Laugavegi
Eymundsson, Kringlunni
Hagkaup, Kringlunni
Hagkaup, Skeifunni
Penninn-Eymundsson, Austurstræti
Penninn, Kringlunni
Utan höfuðborgarsvæðisins:
Bókabúð Keflavíkur, Keflavík
Hagkaup, Njarðvík
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, Hvammstanga
Bókval, Akureyri, Hagkaup, Akureyri
Kaupfélag Héraðsbúa, Egilsstöðum
KÁ, Selfossi
Samantekt Félagsvísindastofnunar á sölu bóka13.-19. des. 1999. Unnið fyrir
Morgunblaðið.Féiag íslenskra bókaútgefenda og Féiag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru
taldar með þær bækur sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu tímabíli, né
Ávaxtakarfan á myndbandi. Gunnar Hanson og Linda Ásgeirsdóttir í hiutverkum sínum.
Einelti ávaxtanna
MYiVDBÖlVD
liarnaleikrit
ÁVAXTAKARFAN
Eftir Kristlaugu Maríu Sigurðar-
dóttur. Tónlist Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson. Leikstjóri Gunnar
Gunnsteinsson. Leikarar: Andrea
Gylfadóttir, Selma Björnsdóttir,
Hinrik Ólafsson, Margrét K. Pét-
ursdóttir, Linda Ásgeirsdóttir,
Ólöf Sverrisdóttir, Gunnar Han-
son, Sjöfn Evertsdóttir, Kjartan
Guðjónsson, Guðmundur I. Þor-
valdsson.
Framleiðandi: Draumasmiðjan
ehf.
BARNALEIKRITIÐ um
ávextina í ávaxtakörfunni þarf
tæpast langan formála. Það var
sýnt í íslensku óperunni mánuð-
um saman og þegar sýningum
lauk höfðu um 13 þúsund áhorf-
endur séð verkið svo vinsældirnar
eru óumdeilanlegar. Aðstandend-
ur sýningarinnar halda því einnig
fram að Ávaxtakarfan hafi verið
mest sótta barnaleikrit ársins
1998 og verður ekki deilt um það
þótt oft hafi áhorfendatölur verið
hærri þegar barnaleikrit eiga í
hlut.
Sviðsuppfærslan á Ávaxtakörf-
unni hefur nú verið gefin út á
myndbandi og verður vafalaust
mörgum börnum kærkomin sem
nutu sýningarinnar á fyrra ári. Því
er reyndar ekki að leyna að vissu-
lega hefði verið skemmtilegra ef
meira hefði verið lagt í að yfirfæra
verkið fyrir þann miðil sem um
ræðir: uppruni sýningarinnar er
glöggur, einfaldar sviðslausnir
sem féllu vel að sýningunni og
sköpuðu henni ákveðinn stíl verða
á stöku stað heldur þunglamaleg-
ar fyrir þá hröðu myndfrásögn
sem myndbandið útheimtir. Þá má
einnig finna að myndstjórninni,
stundum er sjónarhornið svo vítt
að ekki verður greint hver talar
eða beitt er þröngu myndhorni
þegar víðari vinkill færi betur. En
þetta eru spurningar um kostnað
og hversu mikið skal leggja í þeg-
ar ráðist er í svona framkvæmd.
Verður fremur að horfa á þetta
þannig að Draumasmiðjan hafi
með þessari útgáfu gert aðdáend-
um sýningarinnar kleift að eignast
hana á myndbandi til minningar
um skemmtilega upplifun. Hann
má svo rifja upp þegar horft er á
myndbandið.
Þannig er því sannarlega feng-
ur að myndbandinu sem ágætri
heimild um leiksýninguna. Tón-
listin stendur að sjálfsögðu fyrir
sínu og mér er tjáð af einum dygg-
um aðdáanda að á myndbandinu
syngi Mæja jarðarber eitt lag sem
ekki er á geisladiskinum. Sannir
aðdáendur Mæju kunna að meta
slíkt.
Efni Ávaxtakörfunnar er svo
ætíð brýnt að allir hafi í huga, ein-
elti og afleiðingar þess. Kosturinn
við verkið er svo auðvitað sá að
boðskapurinn er settur fram á
skemmtilegan hátt með hæfileg-
um ýkjum þótt efnið komist skýrt
til skila.
Leikararnir njóta þess greini-
lega að túlka ávextina, eða öllu
heldur að túlka persónugerðir
verksins sem flestar eru kunnug-
legar en frumleikinn felst í því að
klæða þær í búning (hýði) ávaxta
og grænmetis.
Það er semsagt hægt að gera
margt verra en slá jólapappír utan
um eintak af Ávaxtakörfunni til að
gleðja börnin á þessum jólum.
Hávar Sigurjónsson
Djöfullinn og
sá drukkni
KVIKMYNDIR
Bíúhöllin, Kringlu-
bíó, Kegnboginn,
Nýja bíó Akureyri ng
Keflavfk
DÓMSDAGUR„END OF
DAYS“Hr*
Leikstjóri Peter Hyams. Hand-
ritshöfundur Andrew W. Marlowe.
Kvikmyndatökustjóri Peter Hyams.
Tónskáld Jon Debney. Aðal-
leikendur Arnold Schwarzenegger,
Gabriel Byrne, Kevin Pollak, Robin
Tunney, C.C.H. Pounder, Rod
Steiger, Udo Kier. 122 mfn. Banda-
rísk. Universal, 1999.
ILLA er komið fyrir mannkyni.
Ný þúsöld að ganga í garð eftir ör-
fáa sólarhringa, menn uggandi í
Páfagarði, þar sem djöfullinn sjálfur
er væntanlegur til New York. Til-
gangurinn er að eignast sinn einka-
son með útvalinni hjásvæfu sinni og
allt samkvæmt forskrift Opinberun-
arbókar heilagrar ritningar. Nú er
ekki seinna vænna að öryggisvörð-
urinn Jeríkó (Schwarzenegger), út-
brunnin fyrrverandi lögga, núver-
andi drykkjurútur og taugahrúga,
ofantekinn af sjálfseyðingarhvöt,
komi til sögunnar. Hann er að búa
sig undir síðasta útkallið á flugstöð-
inni Jörð, með skammbyssuna
mundaða að höfði sér og ófáa vodka-
slurka í maganum, þegar Síkagó
(Kevin Pollack), starfsbróðir hans
og vinur, knýr dyra; nýr vinnudagur
er risinn á Manhattan.
Síkagó og Jeríkó byrja á að hand-
sama leyniskyttu uppi á þaki skýja-
kljúfs við Wall Street. Sem reynist
vera kaþólskur prestur, sérstakur
erindreki Páfagarðs, kominn til að
afstýra ráðabruggi kölska. Þar með
eru þeir komnir á slóð verðandi
barnsmóður myrkrahöfðingjans og,
fyrr en varir, hans sjálfs. Við tekur
gamla baráttan ljóss og myrkurs,
félagarnir finna konuna útvöldu,
Christine York (Robin Tunney),
djöfullinn (Gabriel Byrne) sækir
dráttinn fast því tíminn er naumur
og ætlar allt af göflunum að ganga
uns klukkan slær 12 á miðnætti.
Það ánægjulega við þessa dóms-
dagsmynd er að sjálfur yfirharð-
hausinn, Ai-nold Schwarzenegger,
er aftur kominn á rétt ról eftir
hraksmánarleg hliðarspor í gaman-
hlutverkum jólasveina og óléttra
herramanna. Fylginn sér og ber
léttilega uppi myndir sem þessar.
Það skemmir þó fyrir að maðurinn á
að standa í öllu hafaríinu hálffullur,
grúttimbraður eða hvort tveggja og
andstæðingurinn enginn venjulegur
andskoti, heldur hann sjálfur. Lát-
um það nú vera. Versti gallinn er
ógnarleg lengd sem sligar spennu í
ekkert of frumlegri atburðarás þar
sem fátt nýtt gerist. Endadægur er
öllu frekar samsuða úr gömlum
dómsdags- og djöflamyndum, leik-
stjórinn og tónskáldið virðast t.d.
hafa séð The Omen (’76 ) einum of
oft - án þess að geta nýtt sér það að
gagni. Brellurnar eru kannske flott-
ari en áður, það dugar ekki mynd til
að lyfta sér upp úr meðalmennsk-
unni. Það sáum við síðast í The
Haunting (’99). Þá er djöfullinn
heldur litlaus, sem er óheppilegt
þegar sjálfur vondi kallinn á í hlut.
Handritinu um að kenna frekar en
túlkun Byi-nes. Þrátt fyrir aðkall-
andi gamalkunnan skort á herslu-
muninum, fleiri fyrirbrigðum eins
og afstyrminu, fyrirboðanum í neð-
anjarðarlestinni, o.s.ft’v., lúrir
Endadægur á rúsínu, ágætu loka-
atriði sem lappar talsvert upp á
heildarsvipinn.
Sæbjörn Valdimarsson