Morgunblaðið - 22.12.1999, Side 35

Morgunblaðið - 22.12.1999, Side 35
mö'rguWbláðíð MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999 35 LISTIR Frjálslegnr en agaðursöngur TÖJVLIST Kópavogskirkja SÍÐKVÖLDS- TÓNLEIKAR Skólakór Kársness undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur við undir- leik Marteins H. Friðrikssonar. Sungu hefðbundin jólalög, bæði íslcnsk og erlend. Sunnudaginn 19. desember. SKÓLAKÓR Kársness er góður kór, syngur hreint og með töluverð- um hljómi og, það sem mest er um vert, er að söngurinn er borinn uppi af sönggleði. Efnisskráin var að mestu byggð á hefðbundnum jóla- söngvum, sungnum í skólum, lögum eins og Bráðum koma blessuð jólin, Forðum í bænum Betlehem, Skreytum hús, Bjart er yfir Betle- hem, sem undirritaður hélt að væri tékkneskt en ekki enskt, eins og stendur í efnisskrá. Þá gat þarna að heyra Á jólunum er gleði og gaman, Skín í rauðar skotthúfur en tvö síð- astnefndu lögin eru sungin við gam- ansama texta eftir Friðrik Guðna Þórleifsson og voru öll þessi lög sér- lega smekklega sungin. Fjögur íslensk jólalög voru á efn- isskránni, lag Friðriks Bjamasonai- Jólasveinar ganga um gólf, Grýla kallar á börnin sín eftir Jón Þórar- insson, lag sem fyrir 30 árum þótti allt of nýstárlegt fyrir börn en nýt- ur nú mikilla vinsælda, sérkenni- legt en smellið lag sem var mjög vel flutt í kórraddsetningu Marteins H. Friðrikssonar. Jói-unn Viðar átti tvær lagperlur, Það á að gefa börn- um brauð og Jól, sérlega unaðslegt lag hennar við jólakvæði Stefáns frá Hvítadal. Þótt flautuna hafi vantað var söngur kórsins í þessu fallega lagi Jórunnar einstaklega hljóm- fagur. Þá var keðjan í Það á gefa bömum brauð sungin af öryggi. Tvær útfærslur vora á efnis- skránni, sem Marteinn H. Friðriks- son gerði á söngverkum efth- Praet- orius. Fyrra lagið, Quempas- -söngurinn, sem Sigurbjöm Ein- arsson biskup heiúr ljóðklætt, var sungið við upphaf tónleikanna en síðar á tónleikunum var sunginn sálmurinn í dag er fæddur frels- arinn, falleg tónlist er ásamt Ó, helga nótt eftir Adolpe Adam var viðamesta söngverkið og sérlega vel sungið. Lofsyngið Drottni eftir Handel var flutt sem víxlsöngur og var einn hópurinn eingöngu skipað- ur drengjum. Drengjahópurinn söng síðan í dag er glatt í döpram hjörtum, þrísönginn fræga úr óper- unni Töfraflautunni eftir meistara Mozart, og var söngur þeirra fal- lega hljómandi. Alls engin rós eftir Ronald Cent- er við texta Heimis Pálssonar var fallega sungið en tónleikunum lauk með tveimur jólasálmum, Nóttin var sú ágæt ein, listaverki séra Ein- ars Sigurðssonar frá Eydölum og Sigvalda Kaldalóns læknis, og síð- ast með samsöng allra í Heims um ból. Þórann Bjömsdóttir hefur á að skipa frábæram kór og er ekki á hverjum bæ að hafa svona frjálsleg- an, söngglaðan en um leið agaðan söng eins og gat að heyra hjá Skóla- kór Kái’sness sl. sunnudagskvöld í Kópavogskirkju, sem tók undir sönginn með káragný sínum. Jón Ásgeirsson Dömufatnaður til jólagjafa Gæðavara — tískuvara gjafakort tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680 Opið daglega kl. 10-18, 22. des kl. 10 -20, 23. des. kl. 10-22, 24. des. kl. 10 - 12. ; 1600W Opið allar helgar MV2. bolla y b bolla 3 bolla EXPERT er stærsta heimilis-og raftækjaverslunarkeðja í Evrópu - ekki aðeins á Norðurlöndum. - AN N O 1 929 - Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776 MínútugriUGRi800 ••JWÉÉÉfkr. 6.700, Kaffikanna CG910 -.. / kr. 2.540 fíyksuga VLE370 LG-Orbylgjuofn kr. 12.900 kr. 8.400 verðfrákr. Pönnur LG-Sjónvarp LG-Myndbandstceki &BHIH kr. 17.900. Expressokönnur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.