Morgunblaðið - 22.12.1999, Síða 42
$2 MIÐVIKUDAGUR 22: DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Ástir og-
BÆKUR
Skáldsaga
EFTIRLEIKUR
Höf. Birgitta H. Halldórsdóttir.
Skjaldborg. Prentun: Star Indust-
ries Pte. Ltd. Reykjavík, 1999.
BIRGITTA H. Halldórsdóttir er
.hugkvæmur höfundur. Og meir en
'svo. Imyndunarafl hennar þekkir
fáa fyrirstöðu. Eftirleikur er saka-
málasaga. Söguefnið er margþætt,
það er að segja margar persónur og
fjölbreytt sögusvið. Þar til þræðirn-
ir koma saman á einum stað undir
lokin. Sá er helsti kostur sögunnar
að hún er talsvert spennandi, að
minnsta kosti með köflum. Versti
galli hennar er á hinn bóginn sá að
hún er sums staðar óþarflega klúr.
Afstaða höfundar til ástalífsins sýn-
ist annars vera mjúk og rómantísk.
Og blautlegar lýsingar fara illa sam-
an við hina einu sönnu ást!
Birgitta hefur lært ýmislegt af
eldri meisturum, t.d. að leiða
lesandann á villigötur, gefa hugar-
flugi hans byr undir vængi en leyna
þar á móti fyrir honum lykilatriðum
lausnarinnar sem koma ekki fram
fyrr líður að lokum.
Ekki fer á milli mála að Birgitta
vill stilla rödd sína eftir samhljómi
líðandi stundar. Söguhetjurnar eru
vel megandi borgarar. Aðalsögu-
hetjan er kona. Og hún er bók-
menntafræðingur og aflar sér viður-
væris með þýðingum. Elskhugar
hennar eru sálfræðingar. Og sál-
fræðin er jú tískugrein. Vandamála-
unglingar leika stór
hlutverk. Þeir mega
kallast ómissandi þar
eð þeir eru svo snar
þáttur í dægurmálaum-
ræðunni. Og afbrotin
eru morð, sifjaspell og
nauðganir sem kalla
má hátískuglæpi þessi
árin. Hérlendis er eng-
in hefð fyrir leynilög-
reglusögum. Lögreglan
kemur því lítið við sögu
og leikur aukahlutverk.
Þá er það dulspekin
sem Birgitta sækir í
eiginn hugarheim.
Þetta sem enginn botn-
ar í? Það er þó alltaf dá-
lítið kitlandi! Ein persóna sögunnar
er gædd yfirskilvitlegii fjarsýni sem
reynst hefur óskeikul þegar saka-
mál eru annars vegar.
Og dularfull öfl - óút-
skýrð og allsendis
óskiljanleg - eru látin
gripa í taumana þegar
síst vonum varir.
Persónurnar breytast
eftir þörfum; taka
sinnaskiptum þegar
söguefnið krefst þess.
Og opna hug sinn sam-
kvæmt því sem sög-
uþráðurinn útheimtir,
segja þá allt af létta.
Ekki fer á milli mála
að sumt hefði þurft að
vanda betur við ritun
bókar þessarar. Til
dæmis er ein persónan
látin rekja sömu söguna í löngu máli
að minnsta kosti tvisvar. Og þetta
sem hún segir tvisvar er þó mestallt
komið fram áður þannig að frásögn
hennar ljóstrar ekki upp neinu sem
ekki var vitað áður.
Seint verður krafist af skáld-
sagnahöfundi að hann gangist al-
gerlega undir kröfur veruleikans. I
sakamálasögu þarf þó hvaðeina að
standa á jarðföstum grunni al-
mennra lífssanninda. Lesandinn
þarf að hafa á tilfinningunni að sag-
an hafi hugsanlega gerst þótt hún
hafi reyndar aldrei gerst. Birgitta -
með sitt kraftmikla hugarflug - fer
of oft út fyrir þau takmörk. Svo
maður tali hreint út: Sagan væri
áhrifamem ef hún væri ekki svona
ótrúleg.
Þegar öllu er á botninn hvolft átti
höfundurinn að vera fullfær að
vinna betur úr efni sínu, nýta betur
ýmsa möguleika sem í því felast. Til
þess á Birgitta að hafa alla burði.
Hún er þó enginn byrjandi, bráðum
tuttugu bóka höfundur!
Prófarkalesturinn hefði mátt vera
vandaðri.
Erlendur Jónsson
sakamál
Birgitta H. Hall-
dórsdóttir
Það sem er
o g það sem
ekki er
Nútímaleg
og gagn-
leg bók um
fjallgöngur
BÆKUR
Skáldsaga
NÆTURVÖRÐUR KYRRÐ-
ARINNAR
eftir Bjarna Bjarnason. Vaka-
Helgafell 1999,273 bls.
í NÆTURVERÐI kyrrðarinnar
má finna þessi orð:
I einu orði eru fleiri myndir en á
heilu safni.
í orðum búa mynd-
ir, bæði af því sem er
og hinu sem er ekki. I
þeim býr þetta tvennt
í sátt og samlyndi.
Spegilmynd hvers
orðs er alltaf sú sama,
f.íynd af því sem ekki
er.
Með réttum orðum
má klífa fjallið í vatn-
inu, kanna leynda dali
þess.“ (146)
Ef til vill má lesa úr
þessum orðum fagur-
fræði höfundar, að
minnsta kosti lýsa
þau vel margræðni
skáldskapartexta
Bjarna Bjarnasonar um leið og
þessi stutta klausa sýnir vel þá ljóð-
rænu fegurð og það seiðmagn orða
sem öðru fremur einkennir texta
hans. Skáldskapur Bjarna er ein-
stæður í íslenskum samtimabók-
Jíinenntum, og reyndar þótt víðar
væri leitað bæði í tíma og rúmi.
Gíróseðlar liggja frammi I
öUum bönkum, sparisjóðum
og á pósthúsum. SEl
Þú getur þakkað fyrir þitt hlutskipti
Gefum bágstöddum von
Sérstaða verka hans felst aðallega í
tvennu: hinu auðuga ímyndunarafli
og ríkulegri fegurð stflsins. Hið
fyrrnefnda fær útrás á víðfeðmum
lendum fantasíu þar sem Bjarni
fléttar haganlega saman efni úr
ólíkum áttum; ævintýrum, tákn-
heimi goðsagna, trúarbrögðum,
heimspeki, spakmælum - og svo
mætti lengi telja. Hið síðarnefnda
blómstar í vandaðri, myndríkri og
nýskapandi beitingu tungumálsins.
Það sem gerir þó gæfu- (og gæða)
muninn í texta Bjarna er að mínu
mati eftirfarandi; að í honum búa
fantasían og „raunveru-
leikinn" í sátt og sam-
lyndi, spegla hvort ann-
að á djúpsæjan máta;
og að stíll hans byggist
á tærum einfaldleika í
grunninn, en getur á
köflum spunnist upp í
sjaldséðar ljóðrænar
hæðir - og það er gam-
an að taka með honum
flugið.
Það verk sem hér er
til umfjöllunar er fram-
hald af skáldsögunni
Borgin bak við orðin
sem hlaut í fyrra bók-
menntaverðlaun
Reykj avíkurborgar
sem kennd eru við Tómas Guð-
mundsson. I kynningu á Nætur-
verði kyrrðarinnar er talað um að
hér sé um „sjálfstætt framhald" að
ræða, en ég hygg að þeir sem ekki
þekkja fyrri söguna geti ekki notið
þeirrar síðari til fullnustu. Það er
síður en svo auðvelt að gera grein
fyrir efni þessara tveggja bóka því
flétta þeirra er margbrotin og heim:
ur sögunnar er í mörgum lögum. I
sögumiðju er persónan Immanúel
Merkúríus, sem er lítill drengur í
upphafi fyrri sögunnar en ungur
maður í þeirri síðari. Immanúel
Merkúríus kemur til óskilgreindrar
borgar, munaðarlaus götudrengur,
og upp úr honum streymir frásögn
af óþekktu konungsríki sem hann
segir vera ríki föður síns. Sögur
drengsins hrífa áheyrendur - hvort
sem þeir trúa honum eða ekki -
enda spanna frásagnir hans allar
mannlegar tilfinningar, allt frá kær-
leika til illinda og svika, og oftar en
ekki taka sögurnar form dæmi-
sagna og spakmæla þar sem merk-
www.creatine.is
ingin er ætíð margræð og fljótandi
og vekur fólk til umhugsunar með
táknrænum skírskotunum og tærri
visku. Saman við sögur drengsins
fléttast frásögn af lífi hans í borg-
inni, samskiptum hans við fólk af
ýmsu tagi og tilraunum hans til að
fóta sig í þeim nútímaraunveruleika
sem virðist víðs fjarri þeim heimi
sem hann lýsir sem sínu uppruna-
lega umhverfi.
Tök Bjarna Bjarnasonar á þeim
fantasíuheimi sem hann lýsir í þess-
um tveimur skáldsögum eru fum-
laus og örugg. Mjög auðvelt væri að
klúðra þessu efni, sem við endur-
sögn gæti virst hástemmt og til-
gerðarlegt. Slíkt er þó víðs fjarri í
texta Bjarna því tungumálsbeiting
hans er ætíð meðvituð og sjálfri sér
samkvæm. Eins og svo vel kemur
fram í tilvitnuninni hér í byrjun er
Bjarna ljóst hversu fljótandi merk-
ing orðanna er, hvert orð á sér
spegilmynd, „mynd af því sem ekki
er“. Eitt af mörgum leiðarstefjum
bókanna er einmitt spegilmynd
tungumálsins: þögnin, og óendanleg
merking hennar.
Það er kannski fyrst og fremst
heimur táknanna sem er það við-
fangsefni sem Bjarni tekst á við í
bókunum um Immanúel og frásagn-
ir hans. Heimur táknanna er marg-
skiptur heimur: tungumálið er einn
táknheimur, náttúran annar, trúar-
brögðin hinn þriðji, helgisiðir (rit-
úöl) hinn fjórði, ástin og samskipti
fólks hinn fimmti - og þannig mætti
lengi telja. Þessir táknheimar tak-
ast á í texta Bjarna á margræðan og
merkingarskapandi hátt. En undir-
liggjandi er fullvissan um að tákn-
unin getur aldrei náð markmiði
sínu; merkingin skreppur alltaf
undan frá táknmynd til táknmyndar
í eilífu ferli í leit að hinu endanlega
táknmiði. Sá sem leitar merkingar
orða og tákna verður að fallast á að
hvert orð og hvert tákn sýnir það
sem er og það sem ekki er. Það er
ekki síst þessi leikur að tungumáli
og táknum sem gerir verk Bjarna
að spennandi lesningu fyrir þann
sem er til í að taka þátt í sköpunar-
ferlinu með höfundi. I texta hans er
óvenju mikið rými fyrir ímyndunar-
afl lesanda, en um leið er þetta texti
sem gerir kröfur til innlifunar og
þátttöku lesandans, veitii' honum
mótstöðu, ruglar hann í ríminu, en
launar einnig ríkulega þeim sem
gengst undir forsendur hans.
Bjarni Bjarnason sýndi strax
með fyrstu (sjálfs)útgefnu verkum
sínum að hér var enginn venjulegur
stílisti á ferðinni. Hann vakti at-
hygli með skáldsögunni Endur-
koma Maríu sem var tilnefnd til Is-
lensku bókmenntaverðlaunanna
1996. En það er næstum lygilegt
hversu miklum framförum hann
hefur tekið frá því ágæta verki og til
skáldsagnatvennunnar sem Nætur-
vörður kyrrðarinnar tilheyrir. Þessi
höfundur er gæddur fágætri stíl-
gáfu og ímyndunarafli sem vert er
að gefa gaum. Eg vona að unnendur
skáldskapai'listarinnar láti verk
hans ekki framhjá sér fara.
BÆKUR
Fræflirit
Fólk á fjöllum - Göngu-
leiðir á 101 tind
Upplýsingarit handa fjallgöngu-
fólki eftir Ara Trausta Guðmunds-
son og Pétur Þorleifsson. Kápu-
hönnun: Amundi Sigurðsson.
Göngukort: Ólafur Valsson. Orms-
tunga 1999, 224 bls.
ÞAÐ blandast fáum hugur um að
útivist er orðin ein vinsælasta al-
menningsíþróttin hérlendis, ekki
síst í kjölfar aukinnar umræðu um
hálendis- og umhverfismál að
ógleymdri aukinni jeppaeign svo
fátt sé nefnt. Þessari þróun hefur
eðlilega fylgt stóraukið framboð af
ýmiskonar útivistarútbúnaði til
þægindaauka, sem tekið hefur
stórstígum framförum að gæðum á
liðnun árum. Það er því ánægju-
legt að sjá svipaða þróun í útgáfu
útivistarbókmennta, en bókin Fólk
á fjöllum eftir þá Ara Trausta
Guðmundsson og Pétur Þorleifs-
son er í stuttu máli góður vitnis-
burður um það.
Fólk á fjöllum er upplýsingarit
handa fjallgönguáhugamönnum
eins og nafnið ber með sér og er
þar að finna grunnupplýsingar um
gönguleiðir á 101 tind á Islandi.
Val gönguleiðanna réðist að mestu
af áhugasviði eða forsögu höfund-
anna, en í bókinni er fjallað jöfn-
um höndum um ljúfar gönguferðir
á lág fell sem miklar fjallgöngur á
hæstu tinda landsins.
Bókina byggja höfundar upp
með þeim hætti að leggja eina
opnu undir umfjöllun um hvern
tind þar sem upplýsingum er kom-
ið á framfæri á sex mismunandi
vegu, þ.e. ljósmynd af viðkomandi
fjalli, tveimur kortum, „einkunna-
töflu“, samantektan-amma og
texta í meginmáli þar sem fjallað
er um jarðfræði í námunda við
fjallið, gönguleiðina sjálfa og sagn-
fræði og þjóðsögur er tengjast
örnefnum í einstaka tilvikum.
Stíll meginmáls hjá þeim félög-
um er orðmargur og ágætlega
læsilegur, myndrænar framsetn-
ingar eru afar auðskiljanlegar og
heildaryfirbragð hverrar opnu því
almennt stórvel heppnað í þessari
bók að mínu mati. Höfundunum
hefur tekist að gera bókina aðlað-
andi með því að auðvelda lesend-
anum að átta sig á megininntaki
hennar, sem kemur fram í saman-
tektarrömmunum. í þeim kemur
m.a. fram hæð viðkomandi fjalls,
göngutími í klukkustundum talið,
göngulengd í km talið og leiðar-
mat, en það síðastnefnda fangaði
huga minn fyrst á hverri opnu,
bæði í umfjöllun um þau fjöll sem
ég þekki sjálfur og þau sem eru
mér ókunn og skulu nú nefnd tvö
dæmi.
Um leiðarmat á Eyjafjallajökli
segja höfundar t.a.m.: „Löng og
gæðamikil leið á eitt af stói'vöxn-
ustu eldfjöllum landsins og jökul
þar að auki. Meginhætta stafar af
jökulsprungum en einnig þarf að
hitta á sömu niðurleið en það get-
ur verið erfitt í litlu skyggni." (44)
Um Hestfjall segja höfundar: „Af-
ar auðveld og notaleg fjallganga
með útsýni yfir helsta láglendi
landsins."
Við lestur bókarinnar skín í
gegn ánægja höfunda af gerð
hennai' en um það vitnar helst lip-
urlegur stíllinn og viðleitni höfund-
anna til að mynda tengsl á milli sín
og lesenda. Þannig fela höfundar
sig ekki á bak við textann heldur
koma óhikað fram í honum með
ýmsar ábendingar og ýta undir þá
upplifun lesendans að hann sé í
fjallgöngu með leiðsögumanni. Það
er því ekki að ástæðulausu sem
mann langar helst til að troða sér í
skóna og hendast af stað upp á
fjöll eftir lestur bókarinnar.
Verst þótti mér þó að rekast á
nokkrar innsláttarvillur sem
slæddust inn í textann.
Ljósmyndir í bókinni eru sér-
staklega góðar og styðja efni
hennar vel og eru prentaðar á
vandaðan pappír.
Því ber fyrst og fremst að fagna
við þessa bók að vel ritfærir fjalla-
menn skuli hafa tekið saman þessa
eigulegu og nútímalegu bók og
miðla þannig af áratuga reynslu
sinni á fjöllum.
Ég bíð svo í ofvæni eftir að dag-
inn fari að lengja svo ég komist á
fimm langþráða tinda sem fjallað
er um í bókinni, Hrútsíjallstinda,
Þverártindsegg, Birnudalstind,
Sauðhamarstind og Dyrfjöll. Þetta
var einmitt bókin sem mig vantaði.
Örlygur Steinn Sigurjónsson
Bjarni Bjarnason
Soffía Auður Birgisdóttir