Morgunblaðið - 22.12.1999, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ
^6
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999
UMRÆÐAN
Þriðja aðildarþing sáttmálans um
varnir gegn eyðimerkurmyndun
URVALS PC-LEIKIR:
M.a. QUAKE III, HOMEWORLD,
INTERSTATE 82, DRIVER, GTA2,
ODIUM, PHARAOH, FIFA 2000,
ACE OF EMPIRE/AGE OF KINGS,
tf ULTIMA ASCENSION, o.fl., o.fl.
TOLVUDEILD
ÞÓR HF
Ármúla 1*1 - Bími BBB-ISOO
ÞRIÐJA aðildarþing
sáttmálans um vamir
gegn myndun eyði-
marka var haldið í Rec-
ife í Brasiiíu dagana 15.
til 26. nóvember sl. Þing-
ið sóttu fulltrúar frá um
200 löndum, en um 160
þjóðir hafa nú staðfest
sáttmálann. Þar var
einnig stór hópur full-
trúa frá alþjóðastofnun-
um og frjálsum félaga-
samtökum,. auk
fréttamanna og sýning-
araðila. Alls voru á þing-
inu eða í tengslum við
það hátt á annað þúsund
manns. Fulltrúi Islands
var Andrés Arnalds.
Eyðimerkursáttmálinn er þriðji
meginsáttmálinn sem gerður var í
kjölfar umhverflsráðstefnunnar
miklu sem haldin var í Ríó 1992, en
hinir eru sáttmálamir um verndun líf-
fræðilegs fjölbreytileika og um vamir
gegn loi'Lslagsbreytingum af manna
völdum. Eyðimerkurmyndun ógnar
landkostum í meira en 100 löndum, en
alvarleg hnignun landkosta á sér stað
miklu víðar.
Forseti Brasilíu setti þingið. Að því
loknu stimplaði hann fyrsta eintakið
simi:
af nýju frímerki, en það
er helgað baráttunni
gegn eyðimerkur-
myndun.
Fyrir þinginu lágu
mörg mál. Tókust þá
oft á þróunarlöndin,
sem vilja fá aukið fé til
að glíma við vandamál
sín, og svo iðnvæddu
löndin sem halda stíft
um budduna. Upp-
byggilegri var umfjöll-
un um gerð og fram-
kvæmd áætlana um
vamir gegn eyðimerk-
Andrés urmyndun og annarri
Arnalds landhnignun, sem var
eitt helsta mál þingsins.
Að þessu sinni var sjónum einkrnn
beint að Afríku. Sáttmálinn veitir afar
góða leiðsögn um gerð slíkra áætlana,
og ljóst er að þjóðir heims hagnýta
sér í vaxandi mæli þá leiðsögn.
Fyiri vikuna fjallaði vísindanefnd
þingsins m.a. um stöðu þekkingar
vegna baráttunnar gegn eyðimerkur-
myndun. Bar þar nokkuð á togstreitu
hinna hreinu vísinda og hins stað-
bundna þekkingararfs þjóða, en illa
vii'ðist ganga að brúa bihð þar á milli.
A næsta ári mun vísindanefndin m.a.
taka til skoðunar skýrslur þjóða um
framgang landvemdarmála, ekki síst
til að greina hvað best gefst og hvað
helst stendur í vegi fyrir úrbótum.
Dagskrá með háttsettum
embættismönnum
Um 90 háttsettir embættismenn,
þar af 27 ráðherrar og 6 yfirmenn al-
þjóðastofnana, tóku þátt í sérstökum
dagskrárlið um hvað ríki heims væra
að gera til að takast á við vanda
landhnignunar. Þar kynntu einnig
fulltrúar ríkari þjóðanna og alþjóða-
stofnana þróunaraðstoð sína á þessu
sviði.
Landhnignunai’vandi margra ríkja
er skelfilegur, ekki aðeins í Afríku.
Mörg Sovétríkjanna fyrrverandi
sendu t.d. frá sér sterkt ákall um að-
stoð, en í þessum löndum era úrbætur
rétt á byrjunarstigi og þau hafa
hvorki þekkingu né fjárhagslega
burði til að takast á við vandann.
Sums staðar eru úrbætur komnar
vel á veg. Svo dæmi sé tekið hefur
Chile endurheimt 150 þúsund hektara
af eyddum beitilöndum auk þess að
rækta víðáttumikla skóga. Chilebúar
VIVENT Y
BERN0 BERGER
GLEÐILEG JÓL
laugaveqi 20 - símí 562 6062
SÍSHqjMKgJ' —......-----------------
iMÍ^M
Eyðimerkur
ísland á mikla samleið
með mörgum þeim þjóð-
um, segir Andrés Arn-
alds, sem eru nú að
berjast við landhnignun
og myndun eyðimarka.
hvetja mjög einkageirann til þátttöku
auk þess að veita bændum styrki til
að bæta land. Þar sem annars staðar
er vitund bænda og almennings um
hnignunarvandann talin vera lykillinn
að því að unnt sé að sigrast á honum.
Samhliða aðildarþinginu voru
hringborðsumræður um það hvað
þingmenn geta lagt af mörkum í lönd-
um sínum til að sigrast á landhnign-
un. Þingmennirnir lögðu síðan fram
ítarlega yfirlýsingu um leiðir til að
framfylgja sáttmálanum, m.a. með
endurbættri löggjöf um vamir gegn
landhnignun, styrkari menntunar- og
vísindastefnu og aukinni þátttöku al-
mennings í stai'flnu.
Frjáls félagasamtök
Frjáls félagasamtök vinna mikið og
óeigingjarnt starf víða um heim við að
vemda og bæta landkosti. Starf
þeirra er þó ekki ætíð viðurkennt sem
skyldi, og einkum reynist mörgum
þjóðum erfitt að brúa bilið milli stofn-
ana eða ráðuneyta og grasrótar-
starfsins. Þetta kom m.a. skýrt fram í
skýrslum margra Afríkuþjóðanna um
landverndaráætlanir sínar.
í samráði við hóp fulltrúa frá
frjálsu félagasamtökunum hvatti full-
trúi Islands til að aðildarþjóðimar
tiyggðu breiða og sýnilega aðild
frjálsra félagasamtaka allt frá undir-
búningi að framkvæmd landverndar-
áætlana. Islenski fulltrúinn lagði jafn-
framt til að mat á aðild frjálsra
félagasamtaka yrði í framtíðinni
formlegur hluti af skýrslugerð þjóða
um störf vegna sáttmálans. Fleiri
þjóðir tóku undir mikilvægi áhuga-
starfs og frjálsra félagasamtaka.
Tengsl alþjóðasáttmála
Mikið var rætt um nauðsyn þess að
auka samstarf vegna alþjóðasáttmála,
Byrjaðu í dag’
að elska RÚV!
I SUNNUDAGS-
BLAÐI Morgunblaðs-
ins hinn 19. desember
sl. rita tveir ríkis-
starfsmenn grein þar
sem þeir reyna að
færa rök fyrir ríkisút-
varpi. Þeir eru greini-
lega eru haldnir þeirri
trú að RÚV sé eitt
hæft um að færa
landsmönnum sjón-
varps- og útvarpsefni.
Þeir halda því fram að
fjölmiðill í einkaeigu
stjórnist eingöngu af
hagsmunum hluthaf- Steinþór
anna og þeir óttast það Jónsson
mikið að stjórnmála-
menn komist ekki að í slíkum fjölm-
iðlum með skoðanir sínar. Persónu-
lega finnst mér það hjákátlegt
þegar ríkisstarfsmenn sem þessir
reyna að réttlæta tilveru sína. Þeir
halda því fram að þjóðin eigi rétt á
^mb l.i is
/KLL.TA.f= £=/TTH\/j/\£D /VK77
að horfa á fjölbreytta
dagskrá á hóflegu
verði! Það segja þeir
rétt á eftir því sem
þeir kvarta yfir að hafa
ekki fengið að hækka
afnotagjöldin eins og
þá lystir. Rétt er að
benda á að eitt af hlut-
verkum G. Péturs
Matthíassonar er að
senda viðtækjaeigend-
um hótunarbréf.
Brosleg réttlæting
Einnig era eftirfar-
andi setningar
í grein þeirra ein-
faldlega hlægilegar:
„Ef Ríkisútvarpið býr ekki til dag-
skrá sem höfðar til flestra lands-
manna er það ekki ríkisútvarp og
getur þar af leiðandi ekki sinnt hlut-
verki sínu.“
Og áfram halda þeir: „Það er ekki
hægt að höfða ætíð til allra, en allir
þurfa einhvern tímann að finna efni
við sitt hæfi í dagskrá útvarps í al-
mannaþágu."
í raun skiptir engu máli hvort
þeir þættir sem ríkissjónvarpið býr
til era skemmtilegir eða hvort fólki
einkum Ríó-sáttmálanna þriggja, þ.e.
um vamir gegn eyðimerkurmyndun,
varnir gegn loftslagsbreytingum og
vemdun líffræðilegrar fjölbreytni.
Malí og fleiri lönd hvöttu til þess að öll
vinna við landbætur tæki mið af
markmiðum sáttmálanna þriggja, og
hjá fúllrúum hjálparstofnana kom
fram að byijað er að skilyrða fjár-
framlög slíkri samtengingu sáttmál-
anna. Jafnframt var bent á að æski-
legt væri að í hverju landi hefðu sömu
aðilar á höndum forsjá allra sáttmál-
anna.
Af hálfu Islands var lögð áhersla á
sáttmálatengslin og bent á að binding
koltvísýrings í lífræn efni í gróðri og
jarðvegi þjónar sameiginlegum
markmiðum loftslags- og eyðimerk-
ursáttmálanna. Ataksverkefni ís-
lenskra stjórnvalda í skógrækt og
landgræðslu var notað sem dæmi um
það hvemig loftslagssáttmálinn hefur
stuðlað að stórauknu fjármagni til
þessara mála.
I loftslagssáttmálanum eru ákvæði
sem heimila iðnríkjum að mæta hluta
skuldbindinga um minnkun gróður-
húsalofttegunda með verkefnum sem
stuðla að sjálfbærri þróun í fátækari
löndunum. Ljóst er að vaxandi fjöldi
þjóða eygir þarna tækifæri til að fá
stóraukið fjármagn til landgræðslu og
skógræktar, sem kæmi bæði landi og
loftslagi til góða. Og þá ekki eingöngu
með því að iðnaður í norðri kosti land-
bætur í suðri heldur einnig til að auka
fjármögnun þessa starfs heima fyrir.
Fram kom að t.d. Costa Rica hefur
lagt gi’æna skatta á eldsneyti í þessu
skyni.
Island á margt
að gefa
ísland á mikla samleið með mörg-
um þeim þjóðum sem era nú að beij-
ast við landhnignun og myndun eyði-
marka. Reynslusögumar eru líkar;
skógurinn er felldur, landið ofnýtt og
náttúraöflin kynda síðan undfr hnign-
uninni. Lausnimar era einnig svipað-
ar frá einu landi til annars, og þar
stendur ísland mjög framarlega. Við
getum mikið Iært af alþjóðasamstarfi
á þessu sviði, en jafnframt eigum við
miklu að miðla eftir árangursríkt
landgræðslu- og skógræktarstarf í
meira en 90 ár.
Höfundur er fagmálastjóri
Landgræðslu ríkisins.
Ríkisrekstur
Einfaldast væri fyrir
-----7------------------------
RUV að læsa dagskrá
sinni, segir Steinþór
Jónsson. Þá kæmi best í
ljós hverjir vildu horfa á
-----7------------------------
RUV og hverjir ekki.
líka þeir yfirleitt. Þeir sem borga af-
notagjöldin geta ekki sýnt óánægju
sína í verki og hætt að borga af-
notagjaldið. Þannig að gagnrýni á
keppinautinn vegna hækkana á
áskriftargjaldi þeirra er tómt píp að
mínu mati. Ef áskrifendum Stöðvar
2 og Sýnar líkar ekki verðið á þjón-
ustunni eða ef dagskráin stenst ekki
kröfur þeirra þá einfaldlega hætta
viðkomandi að greiða fyrir hana.
Einfaldast væri fyrir RÚV að
læsa dagskrá sinni og þá kæmi best
í ljós hverjir vildu horfa á RÚV og
hverjir ekki. Getur verið að Þor-
steinn og G. Pétur óttist það að sú
dagskrá sem í boði er standist ekki
þær kröfur sem neytendur gera í
dag til sjónvarpsefnis? Einnig má
minna á að hér á landi er rekin
sjónvarpsrás sem kostar ekkert að
horfa á. Þar á bæ er ekki margmenn
yfirstjórn og enginn G. Pétur til að
senda út hótunarbréf.
Höfundur er bakari.