Morgunblaðið - 22.12.1999, Síða 58
i
J>8 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999
ALDARMINNING
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
PALL
JÓNSSON
í dag eru liðin hundr-
að ár frá fæðingu Páls
Jónssonar skólastjóra á
Skagaströnd. Þykir
mér hlýða að minnast
hans í nokkrum orðum
þar sem ég var nem-
andi hans og hafði fulla
ástæðu til að virða hann
fyrir það sem hann var.
Páll var maður hug-
sjóna og þjóðhollustu í
starfi sínu sem kennari
og skólastjóri. Þar stóð
hann mikla og þarfa
vakt. Hugsun hans var
jafnan bimdin við það
að koma skjólstæðingum sínum
áfram til aukins þroska. Hann vildi
hlynna að nemendum sínum og
kenna þeim að virða aga og góða siði.
Ég hygg að sú einlæga viðleitni hans
hafi víða skilað sér vel og því munú
margir nemendur hans minnast
hans með þakklátum huga.
Páll var einn af þessum skólastjór-
um fyrri ára sem gengu fram í starfi
sínu af lífí og sál, fullir vilja til að
þjóna þar háleitum markmiðum og
skyldum. Gleði hans var því jafnan
rík yfir framgangi góðra mála á akri
starfs og stefnu. Hann var í eðli sínu
mikill ræktunarmaður og unni landi
sínu og þjóð. Hann vildi stuðla að
ræktun lands og lýðs
þannig að landið hæfði
þjóðinni og þjóðin
landinu. Þær hugsjónir
sem hann bar í brjósti
settu mark sitt á þau
fjölmörgu störf sem
honum voru falin, enda
kom hann víða við sögu
þar sem þörf var góðra
ráða og heillar handar.
Hann var ungmennafé-
lagsmaður, Lionsmað-
ur, organisti, kórstjóri,
samvinnumaður, skóg-
ræktarmaður, bóndi og
búnaðarfélagsmaður.
Einnig hafði hann mikinn áhuga á
náttúrufræði og kom sér upp frá-
bæru safni eggja og uppstoppaðra
fugla. Má nærri geta hvílík vinna og
alúð hefur legið að baki þeirri söfn-
un.
Hollusta hans í öllum þessum
störfum var samtengd kraftbirtingu
þeirrar sannfæringar að í öllu þessu
væri hann að þjóna til gagns og gæða
fyrir heilbrigt mannlíf og þjóðlíf.
Páll var skólastjóri við Höfðaskóla
á Skagaströnd frá stofnun hans 1939
til ársins 1966 . Lengi framan af var
svigrúm lítið til að skapa góðar að-
stæður um skólastarfið með húsa-
kosti og öðru sem nú þykir sjálfsagt,
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR,
Furugrund 68,
Kópavogi.
Árni Árnason,
Örn Vilmundarson, Björk Sigurjónsdóttir,
Kristín Guðbjörg Arnardóttir, Kristófer Jóhannesson,
Sigurjón Geirsson Arnarson,
Árný Ösp Arnardóttir
og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug vegna fráfalls
VALGERÐAR SIGURJÓNSDÓTTUR,
Dalseli 33,
Reykjavík.
Sigmundur Felixson,
Sigríður Sveinsdóttir,
Guðmundur Páll Axelsson, Eva Karen Guðbjörnsdóttir,
Sigríður Anný Axelsdóttir, Júlíus Rafn Júlíusson,
Kristján Gísli Stefánsson,
Grétar Stefánsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
sonar míns, barnabarns, bróður okkar, mágs
og frænda,
GUÐMUNDAR HALLSSONAR,
Háholti 11,
Keflavík.
Karlotta Sigurbjörnsdóttir,
Sigurbjörn Metúsalemsson,
Margrét Hallsdóttir, Carsten Bluhme,
Sigurbjörn J. Hallsson, Stefanía Hákonardóttir,
Hallur M. Hallsson, Svanbjörg K. Magnúsdóttir,
Ragnar K. Hallsson, Inga Lóa Steinarsdóttir
og frændsystkini.
en árið 1958 var skólinn fluttur í nýtt
húsnæði sem stórbætti alla mögu-
leika starfsins. Við vígslu þess húss
var Páll Jónsson allra manna glað-
astur, enda trúlega sá maður sem
gleggst vissi og skildi hvaða sigur
fólst í þeim áfanga sem náðst hafði.
Á þeim gleðidegi færði Páll skólan-
um að gjöf eggja- og fuglasafn sitt og
sýndi í því sem öðru hug sinn til
þeirrar stofnunar sem hann fórnaði
mestum starfskröftum sínum alla
tíð. Mér er minnisstætt, að Páll hafði
í heiðri þann góða sið sem skóla-
stjóri, að hafa andlega stund áður en
starfsdagurinn hófst. Þá settist hann
við orgelið og bömin röðuðu sér upp,
hver bekkur á sínum stað. Svo voru
yfirleitt sungnir tveir sálmar og síð-
an gengið til starfa. Þessi siður var
auðvitað mjög vel til þess fallinn að
glæða hjá börnunum virðingu fyrir
því göfga, háa og góða í lífinu og Páll
vissi vel af þeim áhrifum sem þetta
hafði. Nú er öldin önnur í þessum
efnum og öðrum og uppskeran eftir
því.
Þjóðfélagið líður á margan hátt í
dag fyrir agaleysi og ýmsir telja að
skólarnir mættu gera betur. Enginn
dómur skal á það lagður hér, en ef til
vill má sjá í skýrara ljósi nú til dags
hvílík afrek gömlu skólastjórarnir
unnu fyrir sín byggðarlög í málum
mennta og aukins mannþroska. Fyrr
á þessu ári var öld liðin frá fæðingu
Hannesar J. Magnússonar, skóla-
stjóra og rithöfundar, sem hóf lífs-
göngu sína á Torfmýri undir Glóða-
feyki í Skagafirði. Þeir Páll Jónsson
vom jafnaldrar og ólu með sér svip-
aðar hugsjónir um viðgang lands og
þjóðar. Tíminn fer hratt yfir og ein
mannsævi er ekki stór á mælikvarða
hans, en þeir sem vinna starf sitt af
alúð og sönnum velvilja til alls sem
lifir, skilja eftir sig margt sem nær
að ávaxtast í lífi annarra með ríku-
legum hætti. Slíkir menn vora þeir
báðir, Hannes og Páll, þeir voru heil-
ir liðsmenn í hópi vormanna þeirrar
aldar sem senn er á enda.
Ég á margar góðar minningar um
Pál skólastjóra, við ræddum margt
og ég fann ætíð fyrír velvilja hans í
minn garð. Sú hlýja sem hann sýndi
mér, óstýrilátum unglingnum, er
mér og verður í fersku minni. Því er
gamli skólastjórinn minn mér jafnan
hugstæður.
Páll kom víða við sögu í flestum
málaflokkum síns heimahéraðs eins
og að framan getur. Hann átti því oft
þátt í stóram ákvarðanatökum sem á
sínum tíma kunna að hafa verið um-
deildar. Eflaust hefur hann stundum
fundið fyrir andbyr vegna slíkra
mála, en ég hygg að almennt hafi
hann notið fullrar virðingar af hálfu
allra þeirra sem sanngjarnir vildu
vera í dómum sínum um menn og
málefni.
Páll Jónsson átti mikla ágætis-
konu, Sigríði Guðnadóttur, fædda
árið 1900, en þau felldu hugi saman
er hann var við kennslu sem far-
kennari í Rangárþingi. Hún var
bóndadóttir frá Hvammi í Holtum.
Sigríður og Páll giftust 1927 og eign-
uðust þau hjónin sjö böm, tvo syni
og fimm dætur. Einnig ólu þau upp
eina dótturdóttur sína. Uppeldis-
starfið var því líka mikið heima fyrir.
Páll missti Sigríði konu sína árið
1964 og var það þungt áfall fyrir
hann. Þau höfðu lifað í farsælu
hjónabandi og verið samhent um alla
hluti.
Árið 1977 varð Páll fyrir heilsu-
bresti og var eftir það sjúklingur.
Var hann þá að mestu leyti í umsjá
Eddu dóttur sinnar, sem annaðist
föður sinn af mikilli umhyggju. En
skammt var þá eftir af ævi hans. Páll
lést 19. júlí 1979 og var útför hans
gerð frá Hólaneskirkju á Skaga-
strönd 28. júlí að viðstöddum miklum
fjölda fólks sem vottaði honum virð-
ingu sína
Við leiðarlok. Blessuð veri minn-
ing hans og annarra vormanna hníg-
andi aldar.
Rúnar Kristjánsson.
www.mbl.is
Morgunblaðið/Amaldur
Hallgrímskirkja
Safnaðarstarf
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10 í safnaðarheimilinu. Orgel-
leikur á undan. Léttur málsverður
á eftir.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyr-
irbænir kl. 18.
Neskirkja. Jólalög við kertaljós kl.
20.30. Margrét Árnadóttir, sópran,
Martial Nardeau, flautuleikari og
Jónas Þórir, orgelleikari.
Seltjarnarneskirkja. Jólakyrrðar-
stund kl. 12. Söngur, altarisganga,
fyrirbænir. Jólamatur að stund
lokinni.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnað-
arheimilinu á eftir.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænast-
und í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúk-
um, allir velkomnir. Léttur kvöld-
verður að stund lokinni. Tekið á
móti fyrirbænaefnum í kirkjunni
og í síma 567 0110.
Vídalínskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Hugleiðing, altaris-
ganga, fyrirbænir, léttur máls-
verður á eftir í Ljósbroti,
Strandbergi kl. 13.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar á
miðvikudögum kl. 10. Sóknarprest-
ur.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Hólaneskirkja, Skagaströnd. Kl.
12 bæn og súpa. Allir velkomnir.
Jólamessur í Bústaða
kirkju í beinni út-
sendingu á Netinu
FJÖLMARGIR íslendingar bú-
settir í útlöndum sakna þess um jól
og áramót að hafa ekki tök á því að
sækja aftansöng og hátíðarguðs-
þjónustur í íslenskum kirkjum, svo
snar þáttur sem messurnar eru í
íslenskum siðum yfir hátíðarnar.
Þótt ekkert komi í staðinn fyr-
ir þann hátíðleika sem fylgir því að
sækja kirkju yfir hátíðamar hefur
tækninni fleygt svo ört fram á síð-
ustu áram að ekki er lengur neitt
því til fyrirstöðu að senda guðs-
þjónustur heimshorna á milli um
Netið. í því skyni að koma til móts
við óskir þúsunda Islendinga fjarri
heimahögunum hefur Bústaða-
kirkja ákveðið, í samvinnu við
Tæknival, að hafa beinar útsend-
ingar úr kirkjunni á Netinu um
komandi jól og áramót.
Mikilvægt er að ættingjar og
ástvinir Islendinga í útlöndum
komi þessum upplýsingum á fram-
færi og gefi upp slóðina þar sem
hægt verður að sjá og heyra ís-
lensku guðsþjónusturnar. Guðs-
þjónusturnar sem verða fluttar í
beinni útsendingu eru:
Aðfangadagur 24. desember.
Kl. 18 Aftansöngur - kirkjukór
og bjöllukjór sjá um tónlist.
Jóladagur 25. desember.
Kl. 14 Hátíðarguðsþjónusta -
kirkjukór og bjöllukór sjá um tónl-
ist.
Annar dagur jóla 26. desember.
Kl. 14 Fjölskylduguðsþjónusta -
tónlist í umsjá Barnakórs Bústaða-
kirkju.
Gamlársdagur 31. desember.
Kl. 18 Aftansöngur - kirkjukór
sér um tónlist.
Nýársdagur 1. janúar.
Kl. 14 Hátíðarguðsþjónusta -
kirkjukór sér um tónlist.
Á aðfangadagskvöld og jóladag
hefjast útsendingar á Netinu með
tónlistarflutningi 45 mínútum fyrir
athöfn en aðra daga á auglýstum
messutíma.