Morgunblaðið - 22.12.1999, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999 63
I
I
I
I
Kalt
umhverfísmat
Hugleiðingar um greinar
Þorsteins Siglaugssonar
Frá Tryggva V. Líndal.
Nýlega var ég beðinn um að skrifa
mig á lista til stuðnings umhverfis-
mati á fysileika þess að virkja í
Fljótsdal. Ég neitaði og skiptist síð-
an á skoðunum um málið við undir-
skriftasmalann. Mín rök fyrir að
vera fylgjandi virkjun voru þessi:
þetta leysir dreifbýlisvanda Aust-
firðinga: þeir fá meiri vinnu og hærri
laun vegna hennar, og það jafnar
þannig nokkuð aðstöðumun þessar-
ar landsbyggðar og höfuðborgar-
svæðisins.
, Hennar svar við því þar þetta:
Ovíst er hvort störf við virkjunina
skili sér til landsbyggðarinnar; í
bráð eða í lengd; eða að slíkt leiði til
aukinnar þjónustu við landsbyggð-
ina í mennta- eða heilbrigðismálum;
miðað við það sem vænta mætti af
ferðamálavalkostinum.
Mér sýnist samt að stóriðnaður sé
helsta von landsbyggðarinnar. Ekki
það að ég haldi að æskilegt sé að við-
halda byggðinni úti á landi til lang-
frama; en það þarf að flíka því sem
til er til að gera fólksflóttann frá
landsbyggðinni til höfuðborgar-
svæðisins sem jafnastan og sár-
saukaminnstan. Og til þess þykir
mér stóriðja betur fallin en ferða-
þjónusta bænda.
Onnur mótrök mín voru þau að
andstaðan gegn virkjunum sé að
verulegu leyti bara hagsmunapot
fólks sem hefur hag af ferðaþjónustu
að viðkomandi svæðum.
Viðmælandi minn játti að hún
væri sjálf leiðsögumaður að atvinnu
og benti mér á að ferðaþjónusta
væri nú orðin langstærsti vaxtar-
broddurinn í atvinnulífi þjóðarinnar
og eina risastóra vonin um ennþá
betri tíma.
Þessu svai-aði ég til að ferðaþjón-
usta er aðeins sala á afþreyingu og
það skapi engin ný verðmæti í heim-
inum þótt öll löndin séu að togast á
um að selja hverjum öðrum sem
flestar flugferðir og rútuferðir fyrii'
sumarleyfispeninga þeirra; það sé í
raun verið að togast á um ráðstöfun
á auðlind af takmarkaðri stærð:
sumarleyfispeningum skattborga-
ranna; og þeim peningum sé jafn vel
varið hjá þegnum þessara landa í að
kaupa sér tíma til að lesa góða bók
eða hvaðeina annað.
Hún benti nú á að þá myndi Island
verða af sinni sneið af ferðamálakök-
unni. Einnig væri það skylda okkar
við alþjóðahreyfingu umhverfissinna
að bæta hálendi íslands við hin frið-
uðu þjóðgarðasvæði heimsins.
Því svaraði ég til að þar með væri
hún að viðurkenna að kominn væri
tími til að líta á ísland sem hluta af
stærra landsvæði þegar hugað væri
að afþreyingu; og í því sambandi
væri ekki endilega hagkvæmt að
rækta allt heima fyrir. Rétt eins og
íslenskar bækur prentuðust nú að
miklu leyti í útlöndum og obbinn af
sjónvarpsefni kæmi utan frá væri
kannski einnig rétt að hleypa heimd-
raganum í ferðamannaiðnaði og eft-
nláta þeim löndum okkar sneið af
kökunni sem geta boðið upp á fjöl-
sóttustu framboðin; svosem frum-
skóga, fornminjar og sólarstrendur.
Kynni okkar einangruðu eyja-
skeggja af fjarlægari þjóðum sem af
þessu kæmu gætu verið vænlegri til
Tilvalin jólagjöf
Skíðahanskar
T
Xve
Litir: Svartir með gulu
eða svartir með rauðu
Einnig til fyrir fullorðna
Póstsendum samdægurs
oppskórinn
.Veltusundi v/ Ingólfstorq. sfmi 555 1212
lífsfyllingar okkar en föndur okkar
við greiðasölu við ferðamenn í hér-
aði.
Hún gaf nú í skyn að sem Islend-
ingur vildi hún ekki hugleiða þennan
möguleika; og gerðist nú óþolinmóð.
En ég bað hana að bíða aðeins og
hlusta á stærsta trompið mitt; rúsín-
una pylsuendanum, en það væri
þetta:
Hvað höfum við svosem að gera
við óspillta náttúru? Er ekki nóg að
hafa það sem sjá má innan marka
þéttbýlisins? Og er það þó ekki samt
stórum fjölbreyttara en margt hið
kræsnasta fólk sættir sig unnvörp-
um við í stórborgum heims? Er ekki
þetta dálæti okkar á óbyggðum ís-
lands og víðar ekki bara mjög nýlega
tilkomin dægradvöl? Er það ekki
verið að gera heldur lítið úr aðlögun-
arhæfileika manneskjunnar að láta
sem hún geti ekki látið sér þéttbýlis-
lífið nægja? Lærdómar mannfræð-
innar benda enda ekki til annars.
Við þetta hugðist ég nú bæta að
ég væri einn af þeim mörgu sem færi
helst aldrei út fyrir borgarmörkin til
að upplifa náttúruna; enda þætti
mér íslenskt landslag vera fremur
ljótt og leiðinlegt miðað við það sem
sjá má í sjónvarpinn. En þá var kon-
an búin að greiða atkvæðið sitt með
fótunum.
Eftir að hún var farin gladdist ég
með .sjálfum mér yfir að enn geta
menn æst sig upp út af málefnalegri
umræðu á íslandi; fyrir utan nú það
sem gerist á bókakynningum um
sögu kalda stríðsins! Nema hvað
núna virtist krafan um umhverfis-
mat vera komin í staðinn fyrir roð-
ann í austri.
Einnig gladdist ég yfír. að minn
gamli flokkur virtist nú óvart hafa
haft rétt fyrir sér: Með því að krefj-
ast vírkjunar í þágu dreyfbýlisstefnu
var hann um leið að draga í efa gildi
þess að vera sýknt og heilagt að
kaupa og selja hluti; sem tilgang í
sjálfu sér; líkt og smáborgarar
ferðamannaiðnaðarins eru í raun
hvað uppteknastir við; undir yfir-
skini grænnar og menningarlegrar
ferðamennskuhugsjónar.
Tryggvi V. Líndal.
Frá Haraldi Sveinbjörnssyni:
ÞORSTEINN hefur í greinum í
Morgunblaðinu að undanförnu sýnt
fram á að tap af Fljótsdalsvirkjun
yrði 22 milljarðar. Þetta er fundið
með því að gera 7,2% arðsemiskröfu
til virkjunarinnar en ekki 3-4% sem
hann segir að Landsvirkjun geri.
Þessi reikniaðferð hefur svo víð-
tækar afleiðingar að hér er um nýja
fræðigrein að ræða sem við getum
kallað „hagspeki“.
Sjóður Ingólfs
Þegar ég les um að hægt sé að fá
svona mikinn arð af fjármagni finnst
mér sárgrætilegt að Ingólfur Arnar-
sson skuli ekki hafa stofnað sjóð ána-
fnaðan Islendingum þegar hann kom
til landsins. Ég fer ekki fram á mikið,
ekki nema því sem samsvaraði verð-
gildi einnar krónu.
Hann hefði svo, að sjálfsögðu sett
sjóðinn á vöxtu. Ég fer ekki fram á
mikið þar heldur, þetta var fyrir
daga „hagspekinnar“, segjum 3%
raunvexti.
Þessi sjóður yrði núna sem svarar
einum milljarði á hvern Islending.
(Ef þið trúið þessu ekki þá skuluð þið
reikna það á vasatölvuna, þetta eru
1,03 í veldinu 1125 deilt með
280.000.)
Tapið
Samkvæmt „hagspekinni“ á að
gera ávöxtunarkröfu um fjárfesting-
ar. Samkvæmt greinum Þorsteins á
hún að vera nokkuð há, en segjum að
hún sé aðeins 4% því hér á að vera
um örugga ávöxtun að ræða. Sam-
kvæmt þessu ætti sjóður Ingólfs að
vera sem svarar tveimur miljörðum
SKIPAPLOTUR - INNRETTINGAR
Æ PLÖTURí LESTAR
JJ , j-p| SERVANT PLÖTUR
pp
&co
SALERNISH0LF
BAÐÞILJUR
ELDSHÚSBORÐPLÖTUR
Á LAGER-N0RSK
HÁGÆÐAVARA
Þ.ÞORGRIMSSON & CO
ÁRMÚIA 29 S: SS3 8640 & S68 6100
Tilvalin
• •
SEG sjónvarp
50 megariða með
textavarpi og
scart tengi
Jólaverð
36.990 kr.
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
SEG siónvarp
20” með
textavarpi
Jólaverð
19.990 kr.
á hvert mannsbam í heiminum
(reiknið þið bara).
Samkvæmt „hagspekinni“ er mis-
munurinn tap og það á að innheimta
hann af almenningi (Mbl. 8. des.) t.d.
með því að hækka tekjuskatt og bif-
reiðagjöld eða fella niður barnabæt-
ur og framlög til skólamála.
Það sést af þessu hvað þessi nýja
fræðigrein er byltingarkennd. Sam-
kvæmt eldri aðferðum höfum við ís-
lendingar grætt milljarð á mann, en
samkvæmt „hagspekinni“ töpum við
sem svarar tveimur milljörðum á
hvern jarðarbúa.
En þetta er ný vísindagrein og ef
ég skil þessar greinar rétt geta orðið
vandkvæði á innheimtunni og einnig
getur orðið áhugavert að heyra hvað
á að gera við alla þessa peninga ef
tekst að innheimta þá. Ættum við
t.d. í tilfelli Búrfellsvirkjunar að
greiða þá til okkar erlendu lánar-
drottna sem gerðu sér 3% raun-
ávöxtun að góðu í stað 6%.
Ég bíð spenntur eftir framhalds-
greinum Þorsteins um þetta mál, en
á meðan eyði ég hverri krónu jafnóð-
um eins og aðrir íslendingar til þess
að tapa ekki á því að ná ekki þeirri
ávöxtunarkröfu sem „hagspekin“
gerir kröfu um.
HARALDUR
SVEINBJÖRNSSON
Kotárgerði 24, Akureyri
- Ekta pelsar á kr. 135.000
- Aldamóta- og árshátíðardress á kr. 11.900
- Handofin rúmteppi frá kr. 5.900
Úrval gjafavöru
Mörg jólatilboð í gangi
Sigurstjarna
Fákafeni (Bláu húsin),
Opið til jóla kl. 10-21, sun. 13-18 sími 588 4545.
KVENSK0R
kuldafóðraðir með gúmmísóla
Verð: 3.995
Tegund: 4899
Stærðir: 36—41
Litur: Svartur
Merð óðui 5.995
»
Opið frá
kl. 9-22
Póstsendum samdægurs
T
oppskórinn
VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212
K.B. inniskór
Verð 1.995 • Stærðir 41-46 • Litir: Svartir og brúnir
Verð 2.995 • Stærðir 36-47 • Litir: Svartir og livítir
Mikið úrval af inniskóm
D0MUS MEDICA
við Snorrabraut - Reykjavík
Sími 551 8519
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 - Reykjavík
Sími 568 9212