Morgunblaðið - 22.12.1999, Page 65

Morgunblaðið - 22.12.1999, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ I DAG BRIDS Umsjón liuðmuniliir Páll Arnarsuii ÁRIÐ 1973 skrifaði spilari að nafni Frederick Turner grein í The Bridge World um spilatækni, sem er þeim ósköpum gædd að skila engu - nema góðri skemmt- un! Þetta var greinin um „gambít Grosvenors": Norður A 108 ¥ G3 ♦ Á873 ♦ G8764 Vestur Austur ♦ DG7632 * 94 ♦ 76 ¥ D84 ♦ 106 ♦ G962 *ÁK9 *D1063 Suður ♦ ÁK5 V ÁK10962 ♦ KD4 *2 Suður spilar sex hjörtu. Vestur tekur fyrsta slaginn á laufkóng og spilar svo ásn- um, sem suður trompar. Sagnhafi tekur ÁK í spaða og trompar síðan þriðja spaðann með gosa blinds. Hugmynd hans er að svína svo hjartatíu í bakaleiðinni. En þá gerist hið óvænta: Austur hendir laufi í þriðja spaðann! Nú, þá liggur Ijóst fyrir að hann á ekki trompdrottning- una svo eina vonin er að fella hana blanka eða aðra fyrir aftan. Sagnhafi spilar því næst trompi á ásinn, tekur svo kónginn, en því miður - engin drottning. Einn niður. Austur sýnir spilin sín (og reynir að vera vandræðaleg- ur) og spyr sakleysilega: „Vinnurðu ekki spilið ef þú svínar?“ Sagnhafi hvessir á austur augun, en svarar engu. „Ef þetta er í sveitakeppni," segir Turner, „þá er aldrei að vita nema þetta spil gefi arð síðar í leiknum, því aust- ur er fjúkandi reiður." Ekki beint jólaleg hugsun, kannski; en brids er stríð, ekki satt? morgunblaðið birth' tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og íleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyi-irvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns °g símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, Sent í bréfsíma 569-1329, sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Arnað heilla ■j A A ÁRA afmæli. f lUV dag, miðvikudag- inn 22. desember, verður 100 ára Kristinn Árnason frá Skeiði í Svarfaðardal, nú búsettur í Neðstaleiti 5, Reykjavík. Kona hans var Unnur Guðmundsdóttir frá Dæli í Fnjóskadal. Hún lést árið 1967. Þau voru lengst búsett á Akureyri. Móttaka ættingja og vina verður seinna. pT/’V ÁRA afmæli. í dag, t) V miðvikudaginn 22. desember, verður fimmtug- ur Gfsli Pálsson, prófessor og forstöðumaður Mann- fræðistofnunar Háskóla ís- lands. Af því tilefni munu Gísli og eiginkona hans, Guðný Guðbjörnsdóttir, taka á móti gestum í Skóla- bæ, Suðurgötu 26, Reykja- vík, frá kl. 17-20 miðviku- daginn 29. desember. ff A ÁRA afmæli. Á O vf morgun, fimmtudag- inn 23. desember, verður fimmtugur Halldór Hlífar Árnason, verkstjóri hjá OI- íufélaginu Esso, Arahólum 2, Reykjavík. Eiginkona hans er Guðrún Jónsdóttir. Aí\ ÁRA afmæli. í dag, miðvikudaginn 22. desember, verður fertugur Stefán Björgvin Sigur- valdason, Grettisgötu 3, Reykjavík. Stefán verður ekki heima eftir kl. 18. COSPER LJOÐABROT JOLANÆTUR Ljúfurinn h'fs og dauða, lávarðurinn góði! þér ég feiminn færi fóm með þessu ljóði. Máli vil ég mæla mjúku, er til þín næði. Læturðu þér lynda lítils háttar kvæði? Þú hefur brauð þitt boðið börnum og þeim spöku; ótal einstæðingum ornað jólavöku. Lífsins vatnið léztu lítilmagna fengið, þeim, sem þyrstur hefur þrauta einstig gengið. Fórnir faguryi'ða færi’ eg jötubarni. Sönginn meðan syng ég, sit ég einn á hjami. Ekki þó með öllu einn er ég í snænum: Guðsson gerðist áðan gestkomandi í bænum. Guðmundur Friðjónsson. STJ ÖRJYUSPA eftir Franees Brake STEINGEIT Afmælisbarn dagsins: Þú ert sjálfsöruggur og með allt á hreinu. Að flana að hlutunum er ekki þinn háttur. Hrútur _ (21. mars -19. aprfl) Vertu skilningsríkur gagn- vart þeim sem eru ítilfinn- ingaiegu uppnámi og gefðu þér tíma til að setjast niður og ræða málin svo öllum líði betur. Naut (20. apríl - 20. maí) Leggðu áherslu á að eiga þægileg samskipti við annað fólk og ef þér hður ekki vel nálægt öðrum geturðu gert ýmislegt til að breyta þvi. Tvíburar . ^ (21. maí - 20. júní) o A Hugleiddu þann möguleika að leggja greiðslukortinu þínu því þannig geturðu bek ur fylgst með eyðslunni og haft betri hemil á henni um leið. Krabbi (21. júní-22. júlí) Skipulagning er allt sem þarf til að þú getir klárað þau verk- efni sem bíða þín. Að þeim loknum geturðu um frjálst höfuð strokið og slakað á. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Nú er rétti tíminn til þess að líta yfir farinn veg og finna út hvar má gera breytingar til hins betra og hvernig best er að framkvæma þær. Meyja (23. ágúst - 22. september) WSL Á mannamótum skaltu nota tækifærið og koma hugmynd- um þínum á framfæri því þá heyrirðu hvort þær falla í góðan jarðveg og getur unnið eftfr því. jCTX (23. sept. - 22. október) A A Það kemur i þinn hlut að sjá um að allt gangi upp svo stattu þig vel. Hafðu stjórn á tilfinmngum þínum þótt eitt- hvað verði tH að róta upp í þeim. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Hugsaðu ekki of mikið um hvað öðrum finnst um gjörðir þínar og haltu bara áfram á sömu braut. Þú hefur þörf fyrir frelsi og að fá útrás. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) A3 Hættu eins og skot að bera þig saman við annað fólk þvi engir tveir eru eins og þú gerir hlutina bara á þeim hraða sem þér hentar. Steingeit (22. des. -19. janúar) Það gerir bara illt verra að sópa vandamálunum undir teppið svo gakktu að þeim eins og maður og afgreiddu þau áður en þau fara úr bönd- unum. Vatnsberi f « (20. janúar -18. febrúar) Císft Tilfinningarnar koma upp á yfirborðið og það er í hæsta máta eðlilegt. Ef þú vilt vera einn með sjálfum þér skaltu bara gera það. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Enginn er fullkominn á öllum sviðum og aðalmáliðer að þú sért ánægður með sjálfan þig. Gerðu ekki meiri kröfur til sjálfs þín en þú gerir til ann- arra. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl Spár a f þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999 65 tvíumð okkar vínsælu gjafakort G t i s k u v e r s 1 u n Kauðarárslíg 1, sími 501 5077 RAYM0ND WEIL GENEVE 18 karata þykk gullhúð, stál með eða án demanta, skelplötuskífa, órispanlegt gler, verð frá kl. 35.900 HONNUN sem vekur heimsathygli ✓ Garðar Olafsson úrsmiður Lækjartorgi, sími 551 0081 OROBLU Kynnum nýju jóla- og áramóta- sokkabuxurnar í dag frá OBOBLU kl. 14.00-18.00. 20% kynningar afsláttur af öllum sokkabuxum. Master 20 den .skrefi framar** Apótekið íNýkaupi SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR 5 "> I ICTUl'lC DCVIM 3 LISTHUS REKIN AF 15 LISTAMÖNNUM INGA EUN ÓFEIGUR MEISTARIJAK0B

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.