Morgunblaðið - 22.12.1999, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ
f
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
,og þá kom lítið héraskinn. Börnin í 2 Á sungu í skóginum stóð kofi einn.
Syngjandi
Smáraskóli
„ÞAÐ er gífurlega öflugt tónlistar-
líf hérna í Srnáraskóla," segir Val-
gerður Snæland Jónsdóttir skóla-
stjóri. „Nú í annað sinn höldum við
jólatónleika og erum afskaplega
ánægð með að hátt á þriðja hundr-
að börn komu þar fram. En stefna
okkar er að sem flestir taki þátt í
þeim.
Okkur langar að eignast flygil og
hafa veitingasalan og tónleikamir
verið hugsaðir til flygilkaupa, og
þegar við fengum sal í haust breytt-
ist aðstaðan alveg.“
Smáraskóli í Kópavogi er grunn-
skóli með nemendum frá 1. upp í
10. bekk. John Gear og Áslaug
Hálfdánardóttir eru tónlistarkenn-
arar þar og skipulögðu þau tónleik-
ana í samráði við Dagbjörtu J. Þor-
steinsdóttir tómstundafulltrúa.
Valgerður segir nemendur í 10.
bekk sérlega skapandi og gott tón-
listarfólk, en einnig er starfandi
rokkhljómsveit við skólann þar sem
nemendur og starfsfólk skólans
sameina tónlistarlega krafta sína.
„Það er rosalega margt og magnað
að gerast hjá okkur á mörgum list-
rænum sviðum," segir Valgerður.
„Við erum með marga kóra og þ.á
m. Kammerkórinn sem syngur til
styrktar langveikum börnum. „Það
eru ofboðslega fallegar raddir í
þeim kór og börn alveg niður í níu
ára, en það er John sem stjórnar
honum. Draumsýnin er svo að eign-
ast flygil til að nota við allt þetta
tónleikahald, en við eigum ennþá
Iangt í land með að kaupa hann,“
segir Valgerður stolt af kraftmikl-
um og listrænum nemendum sínum
og kennurum.
Jólahlaöborö uppselt í kvöld
Laus borö á Þorláksmessu
og á milli jóla og nýárs
ftencfur
Rauðarárstíg 14, sími 551 0400
Kringlunni, sími 568 0400
fold@artgalleryfold.com
ART CALLERY
WOMAN
Karólína Lárusdóttir