Morgunblaðið - 22.12.1999, Page 70

Morgunblaðið - 22.12.1999, Page 70
20 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FOLKI FRETTUM KVIKMYNDIR/Stjörnubíó frumsýnir nýjustu mynd Luc Bessons, Sendiboðann, sem fjallar um heilaga Jóhönnu af Örk og er með Millu Jovovich í titilhlutverkinu. Sendiboðinn Jóhanna NIKEBUÐIN Laugavegi 6 Frumsýning "óhönnumynd Luc Bessons heit- ir Sendiboðinn: Sagan um Jó- hönnu af Örk eða „The Mess- enger: The Story of Joan of Arc“ og J er með fyrrverandi eiginkonu Bess- ons, Millu Jovovich, í titilhlutverkinu en með önnur hlutverk fara m.a. Dustin Hoffman, John Malkovich og Faye Dunaway ásamt Vincent Cassel og Tchécky Karyo. Eins og kunnugt er fjallar sagan um unga stúlku á fimmtándu öld sem fær vitrun og leiðir franska herinn til sigurs gegn Englendingum við Orleans og snýr við gangi hundrað ára stríðsins. Nítj- án ára var hún handtekin af Búrg- undum og framseld Englendingum, dæmd fyrir villutrú og galdra og brennd á báli 30. maí 1431. „Eg er franskur og við erum að fjalla um franska sögu,“ er haft eftir leikstjóranum Besson, sem á undan þessari mynd gerði Fimmta írumefn- ið. Hann fékk það frelsi sem hann þurfti til þess að gera Sendiboðann eftir sínu eigin höfði en í fyrstu átti hann aðeins að vera einn af framleið- endum hennar. „Luc var mjög áhugasamur um að gera þessa mynd vegna þess að hann er franskur og þetta er frönsk saga og frönsk sagnfræði,“ segir leikkon- an Milla Jovovich. „Það er mjög áhugavert að gera bandaríska mynd upp úr franskri goðsögn með Frakka við stjómvölinn því hver annar gæti gert slíka mynd?“ bætir hún við. Þess má geta að bandaríski hasarleik- stjórinn Kathryn Bigelow ætlaði að leikstýra myndinni á sínum tíma en Besson átti aðeins að vera einn af framleiðendunum. Þegar Besson krafðist þess að Milla færi með titil- hlutverkið neitaði Bigelow og hvarf frá myndinni en Besson tók við stjómartaumunum. Luc Besson er án efa einn af þekktustu leikstjómm Frakka og hefur starfað í tengslum við kvik- myndaverin í Hollywood undanfarin ár. Fyrsta myndin hans var „Sub- way“ og vakti athygli fyrir stílæfing- Milla Jovovich í hlutverki Jóhönnu af Örk. ar og húmor en eftir hana gerði Bess- on Hið stóra bláa, sem spratt af áhuga hans á köfun og undmm hafs- ins. Þá gerði hann tryllinn „La femme Nikita“ með Anne Parrilaud og Jean Reno, sem er í flestum ef ekki öllum myndum leikstjórans. Myndinni var hvarvetna vel tekið og var endurgerð í Hollywood. Hann gerði aðra neð- ansjávarmynd, „Atlantis", áður en hann sneri sér aftur að tryllinum með „Leon“. Reno og Natalie Portman ásamt Gary Oldman fóm með aðal- hlutverkin. Besson hefur síðan starf- að með Oldman sem meðframleið- andi myndarinnar „Nil By Mouth“. Besson fékk Brace Willis til þess • Sængurföt • Gardínuefni • Servíettur • Dúkar • Klútar m á m í m ó textílsmiðja - gaI ’ trvggvagata St • ® 551 I e r 1 1 808 að leika fyrir sig í Fimmta frumefn- inu og sendir nú frá sér í stórmynda- formi hina frönsku goðsögn um Jó- hönnu af Örk. MYNDBONP Galdur og mannfórnir Galdur og mannfórnir (Perdita Durango) Spennumynd ■k'k Framleiðandi: Andres Vincente Gomez. Leikstjóri: Alex de Ia Igles- ia. Handrit: A. Iglesia o.fl. Aðal- hlutverk: Rozie Perez og Javier Bardem. (126 mín.) Bandaríkin. Há- skólabió, nóvember 1999. Bönnuð innan 16 ára. beUR^if: íjófas/qipi Gjnfir til þeirrn |em þtt v Tarotspil' J Hugljúf slökunartónlist ' J Reykelsi Bað- og nuddolíur ) Ilmkerti ‘ J Bœkur j Rúnir Orkusteinar J Skartgripir ■) o.m.fl. Sendum í póstkröfu Hótel Esja • Sími: 588 1700 Betra líf, Kringlunni, sími 581 1380 PERDITA Durango fjallar um samnefnt feigðarkvendi sem Rosie Perez leikur með heilmiklum tilþrif- um. Myndin sjálf á sér stað á landa- mæram Bandaríkj- anna og Mexíkó og byggir á andstæðu siðmenningar og villtra, jafnvel frumstæðra lifnað- arhátta. Handan landamæranna (þ.e. í villtri Mexíkó) getur allt gerst, ekki síst ís- kyggilegar galdraathafnir og mann- fórnir í bland við mannrán og blóð- ugt kynlíf. Þessi kvikmynd er byggð á sögu Barrys Gifford en hann skrifaði einnig Lost Highway og Wild at Heart sem David Lynch kvikmynd- aði eftirminnilega. En persónan sem Perez leikur kom einmitt fram sem aukapersóna í „Wild at Heart“, þá leikin af Isabellu Rossellini. Myndin stenst þó illa samanburð við hið fyrra verk, tilraunir til að skapa myndinni Lynch-íska sérstöðu era áberandi hjá leikstjóranum Alex de la Iglesia en í stað þess að vera flott verður myndin oft óþægilega klunnaleg. Persónusköpun vúdú- prestsins Romero er dæmi um það en þar dettur myndin niður í algera lágkúru. Hún er þó forvitnileg fyrir ýmsar sakir, ekki síst tengslin við „Wild at Heart“. Heiða Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.