Morgunblaðið - 19.01.2000, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 19.01.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2000 21 Rafrænt greiðslu- kerfi í Þinghóls- skóla SMARTKORT ehf. og Sparisjóður Kópavogs í samvinnu við Kópavogs- bæ hafa hrundið af stað rafrænu greiðslukerfi í Þinghólsskóla í Kópa- vogi. Þetta er fyrsti skóli landsins sem tekur upp slíkt kerfi en stefnt er að því að samskonar kerfi verði sett upp í öllum grunnskólum í Kópavogi. I fréttatilkynningu frá Smartkort- um ehf. og Sparisjóði Kópavogs kemur fram að greiðslukerfið í Þing- hólsskóla felist í því að allir 230 nem- endur skólans hafi fengið í hendur SmartStart-kort frá Sparisjóði Kópavogs, sem gefin eru út á nafn nemenda og með ljósmynd af þeim. Kortin geta nemendurnir í fyrstu notað til að greiða fyrir það sem þau kaupa í skólaversluninni, en foreldr- ar millifæra fé af bankareikningum inn á kortin í stað þess að láta nem- endurna fá peninga til að kaupa nesti. Með þessu geti foreldrar stýrt neyslu barna sinna og tryggt að aur- unum sé varið til nestiskaupa. Ávinningur skólans sé sá að með notkun kortanna verði mun auðveld- ara að halda utan um rekstur veit- ingasölunnar. SmartStart-kortin verða auk þessa greiðslumiðill í öllu öðru starfi skólans, t.d. til greiðslu efnisgjalda, íyrir skólaferðalög og aðgöngumiða á árshátíðina og gilda einnig í félags- miðstöðinni. ----------------- Aðgangur að hugbún- aði leigður gegn föstu gjaldi Ax hugbúnaðarhús hf., KPMG ráð- gjöf. og Skýn- hf. hafa formlega hafið samstarf um þjónustuveitu á við- skiptahugbúnaði en þjónustuveita er nýtt hugtak í upplýsingatækni þar sem viðskiptavinir leigja gegn föstu gjaldi aðgang að hugbúnaði og varsla hans og rekstur er miðlægur en ekki hj á viðskiptavininum. í fréttatilkynningu kemur fram að þjónustuveita á viðskiptahugbúnaði sé samofin lausn á upplýsingakerfum fyrir fyrirtæki frá ráðgjöf og innleið- ingu hugbúnaðar til rekstrar- og not- endaþjónustu. Fyrirtæki muni í auknum mæli í íramtíðinni leigja vél- búnað og hugbúnað gegn þekktu gjaldi án þess að sjá sjálf um rekstur eða viðhald af neinu tagi. Það er mat samtarfsaðilanna að með því sé hægt að auka reksti-ar- öryggi, auðvelda dreifða vinnsiu og eftirlit með kostnaði af upplýsinga- kerfum verður skilvirkara. Hlutverk Skýrr hf. í þjónustuveitu er að hýsa miðlægt allan hugbúnað og nauðsynlegan vélbúnað fyrir við- skiptavininn fyrir utan vinnustöðvar. Einnig að leggja til samskiptaleið fyr- ir vinnsluna t.d. LoftNet Skýrr og að sjá um allt viðhald og allan rekstur á miðlæga vélbúnaðinum. Hlutverk AX hugbúnaðarhúss er að leggja til við- skiptahugbúnaðinn, Axapta, Agresso eða TOK sem er hýstur miðlægt hjá Skýrr, sjá um aðlögun á hugbúnaðin- um fyrir viðskiptavininn og uppfylla tæknilegar séróskir um vinnslur eða úttak sem ekki er staðlað. Auk þess mun AX hugbúnaðarhús annast not- endaþjónustu vegna hugbúnaðarins. Hlutverk KPMG er að sinna ráðgjöf við innleiðingu á upplýsingakerfinu í samvinnu við AX hugbúnaðarhús, að- stoða við endurskipulagningu í rekstrinum og með tilliti til nýs kerfis. Kristinn F. Árnason, sendiherra Islands, og Petr Kypr, sendiherra Tékklands, takast í hendur eftir undirritun tvísköttunarsamningsins. Tvísköttun- arsamningnr milli Islands og Tékklands SENDIHERRAR íslands og Tékk- lands í Ósló, Kristinn F. Árnason og Petr Kypr, undirrituðu tvísköttunar- samning milli landanna 18. janúar sl. Samningurinn kveður á um skipt- ingu skattlagningar á tekjur milli landanna og aðferðir til að koma í veg fyrir tvísköttun. Með samningn- um er ennfremur leitast við að koma í veg fyrir undanskot frá skattlag- ningu á tekjur. Sumar fram og til baka með flugvallarsköttum Danmork/Billund 17.575 19.950 lcr. fyrir einn fullorðinn * kr. á marai Flogið 24. maí - 6. september. KaupyariM^||n Flogið daglega Vetrar r _ PLUS 18.400 kr. fyrir einn fullorðinn Lomdoin____ 16.800 kr. á narai Flogið einu sinni í viku kr. á marai 18.710 lcr. fyrir einn fullorðinn ' miðað við að tveir fuilorðnir og tvö börn 2ja-11 ára ferðist saman. Ódýrt til Lomdon Flug alla þriðjudaga í jan., feb. og mars lágmarksdvöl 7 dagar og hámark 1 mánuður. 19.270kr á mann m. flugvallarskatti Ódýrt til Glasgow 25.170kr. Innifalið: Flug, gisting í 2 nætur á Forte á mann ítvíbýli Posthouse Glasgow og morgunverður. m- flugvallarskatti Odýrt til Parísar Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Honie Plazza Bastille og morgunverður. 29.990kr á mann í tvíbýli m. flugvallarskatti FERÐIR Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 535 2100 • Fax 535 2110 • Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.